Dagblaðið - 29.08.1979, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979.
Dfi á ne ytendamarkaði
----- —
Sumarlegasti
rétturinn
Einhver sumarlegasti réttur sem
hægt er að hugsa sér er blómkáls-
gratín. 1 kg af blómkáli kostar nú í
kringum 1863 kr. Einn meðalhaus
vegur mjög nálægt 4—500 g. Reikna
má því með að hver haus kosti nálægt
900 kr. í gratín handa 6 nægir einn
slíkur haus, ásamt 2—3 eggjum. Það
er því ekki svo mjög dýrt, miðað við
hvað það er gott. Margar husmæður
baka gratínið upp, en það þykir ekki
samræmast nútíma matreiðslu. Þvi
skulum við hræra út í gratinsósuna.
Gratín handa sex gæti verið sem hér
segir:
500 g blómkál
100 g hveiti
1/2 I mjólk eða soð (gjarnan til helm-
inga)
3egg
Sjóðið blómkálið í saltvatni, — þar
sem á að nota það í gratín er allt í lagi
að taka hausinn í sundur, þá þarf
kálið minni suðu.
Látið soðið eða mjólkina í pott,
hrærið hveitinu út í og sjóðið dálitla
stund. Hrærið vel í á meðan. Hrærið
síðan eggjunum út í, einu í einu,
takið pottinn af plötunni á meðan
eggjunum er hrært út í. —'Síðast er
kálinu blandað saman við. Ef vill má
skilja hviturnar frá eggjunum og
þeyta þær sér og hræra þeim mjög
varlega út í síðast. •
Gratínið er siðan látið í eldfast,
smurt mót og raspi stráð ofan á. Bak-
að í 200°C heitum ofni í að minnsta
kosti 45 mín. Borðað með bræddu
smjöri.
Hráefniskostnaður er í kringum
1520 kr. eða um 253 kr. á mann. Þá
er reiknað með 100 g af bræddu
smjöri út á. — Þetta er hins vegar
frekar lítill skammtur, þannig að
varla nægir sem einn réttur handa
sársvöngu fólki. Betra er því að eiga
t.d. skyrspón í ábót.
A.Bj.
Pappahús á íslandi
Viðskiptavinirnir fá
„súper”-þjónustu
Þegar kaupa á gluggatjöld getur verið mjög gott að fá góðan bút I heimlán til
þess að sjá hvemig efnið fer við annan húsbúnað i herberginu. Oft á tiðum er
hægt að fá smáefnisbút, en alls ekld 1 metra prufu eins og þeir lána i Epal.
Sýnishornin eru einnig merkt með „vörulýsingu”, leiðbeiningum um þvott
o.fl. DB-mynd Bjarnleifur.
„Við eigum bara ekki til orð yfir
hve við fengum fína afgreiðslu,”
sögðu tvær ungar konur sem litu inn
á ritstjórn Neytendasíðunnar. Þær
voru gð koma úr verzluninni Epal,
sem er í næsta nágrenni við DB í
Síðumúlanum.
„,Ég var að hugsa um gardínuefni
í bamaherbergið hjá mér og var mér
boðið að fá í heimlán metralanga
prufu af efninu, sem mér leizt bezt á.
Einnig var mér boðið til láns lita-
sýnishorn. Á því mátti sjá vörulýs-
ingu, þar sem allar upplýsingar um
efnið eru fyrir hendi, þvottameðferð
og eiginleikar efnisins eru taldir þar
upp.”
Því miður er ekki oft sem lesa má
um á síðum blaðanna að viðskipta-
vinir verði yfir sig hrifnir yfir góðri
þjónustu. Miklu oftar má lesa um hið
gagnstæða. Hins vegar þegir fólk
frekar y fir því sem vel er gert.
A.Bj.
„Við höfum verið að glíma við að
hanna þetta hús í rúmlega sex ár.
Þetta er eina húsið sinnar tegundar í
heiminum,” sagði Haukur Halldórs-
son hjá fyrirtækinu Spilaborg hf.
Fyrirtækið sýnir framleiðslu sína á
útisvæði austan við sýningarhöllina í
Laugardal, kúlulagað pappahús og
kúlutjald, sem hvort tveggja eru svo-
kölluð Buckminster Fuller hús.
Pappahúsið er úr bylgjupappa, sem
nokkrum lögum af trefjaplasti hefur
verið smurt á, bæði utan og innan.
Það var hlýtt inni fyrir þótt kaldrana-
legt væri utan við húsið.
Tjaldið er mjög skrautlegt og
hannað eftir sömu formúlu og
pappahúsið. Haukur sagði að þeir
félagar í Spilaborg hefðu lagt nótt við
dag undanfarinn mánuð að sauma
tjaldið og notið við það góðrar að-
stoðar Seglagerðarinnar Ægis.
„Við höfum hugsað okkur að út-
búa fimm svona 300 fermetra tjöld
og hafa í þeim alls konar uppákom-
ur. Það tekur ekki nema 1 1/2 tima
að reisa það. Grindin er gamalt írskt
„patent” úr áli.”
Pappahúsið er 30 fermetra stórt,
mesta lofthæð er 2,90 m. Það kostar
uppkomið 7—800 þúsund kr. Húsið
er sett niður án undirstöðu. Tilvalið
er að klæða það að utan með torfi.
Þannig fæst bæði góð einangrun,
auk þess sem það fellur þannig vel
inn í umhverflð í náttúrunni. Svona
hús eru tilvalin sem sumarhús, björg-
unarskýli eða fjallakofar. Hentug-
asta stærðin er hins vegar um 60 fer-
metrar, að sögn Hauks. Þá verður
lofthæðin það mikil að hægt er að út-
búasvefnpláss á „annarri hæð”.
Spilaborg framleiðir fleira en kúlu-
tjöld og hús. Fyrirtækið framleiðir
leiktæki, margar tegundir af spilum,
svo sem útvegsspilið, sem náði mikl-
um vinsældum í fyrra. Þeir eru nú að
gefa út norska útgáfu af því, sem ráð-
gert er að fari á markað í haust.
Auk Hauks, sem er auglýsinga-
teiknari, starfa Einar Þorsteinn
Ásgeirsson arkitekt, Jón Jónsson og
Guðrún Jónsdóttir við fyrirtækið.
- A.Bj.
Feitur ostur í
fallegum sneiðum
Það getur verið erfitt að
skera fallegar sneiðar af feit-
um osti. Ef hnífurinn er
skolaður úr sjóðandi vatni
gengur það betur.
Haukur Halldórsson er þarna með
elns konar „gestaþraut” sem hann
hefur hannað ósamt félögum sinum.
Hægt er að velta þrautinni i höndun-
um endalaust og fá sifellt út nýjar og
nýjar myndir.
Pappahúsið er mjög nýstárlegt i út-
líti, eins og það er á sýningunni. Hins
vegar benti Haukur á að ef það væri
klætt að utan með torfi fengist bæði
góð einangrun auk þess sem húsið
fellur þá inn í náttúruna og verður
mjög lítið áberandi.
DB-myndir Bjarnleifur.
Veióileyfi
í Haukadalsá efri. Kr. 10 þús. fyrir stöngina á
dag.
Upplýsingar hjá ÍVARI, Skipholti 21, símar
23188 og 27799.
miAÐin
Umboðið Neskaupstað óskar eftir blað-
burðarbörnum. Vinsamlegast hafið sam-
band við umboðsmann ísíma 7672.
Umboðið Neskaupstað.
ÚTB0Ð
útboö nr. 79034
útboð nr. 79035
útboö nr. 79036
útboö nr. 79037
útboö nr. 79038
útboö nr. 79039
útboö nr. 79040
útboö nr. 79041 •
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirtalið efni:
1. Línucfni fyrir Vesturlínu
Vír
einangrar
klemmur
þverslár
2. Línuefni fyrir Vopnafjaröarlínu
Vír
einangrar
klemmur
þverslár
3. Spjaldloki fyrir Gönguskarðsárvirkjun
útboö nr. 79032
4. Hlífðarhólkar fyrir sæstreng
útboö nr. 79042
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi
118, 105 Reykjavik, frá og með þriðjudeginum 28. ágúst 1979 gegn
óafturkræfri greiðslu kr. 5000,- fyrir hvert eintak útboða samkvæmt
liðum 1—2ogkr. lOOO.-fyrirhverteintaksamkvæmtliðum 3—4.
Tilboðum samkvæmt liðurri L—2 skal skila fyrir kl. 12.0(1 fimmtudaginn
20. september nk. en þau verða opnuð kl. 14.00 sama dag.
Tilboðum samkvæmt liðum 3 og 4 skal skila mánudaginn 10. september
nk. Tilboð samkvæmt lið 3 verður opnað kl. 10.00 og tilboð samkvæmt
lið 4 kl. 14.00samadag.
Væntanlegir bjóðendur geta verið viðstaddir opnun tilboða.
Rafmagnsveitur ríkisins
Uppskrift
dagsins