Dagblaðið - 29.08.1979, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979.
Kennara vantar
Kennara vantar að barnaskóla Vestmannaeyja.'
Gott húsnæði í boði. Upplýsingar veitir skóla-
stjóri í síma 98—1944 eða heima í síma 98—
1793.
Skólastjóri.
Til áskrifenda DB
á Neskaupstað
Umboðsmaður Dagblaðsins á Neskaupstað, Þor-
leifur G. Jónsson, er fluttur að Nesbakka 13.
Símanúmer er óbreytt, 9 7- 76 72.
Umboðið Neskaupstað
InterRent
ÆTLIÐ ÞÉR í FERÐALAG ERLENDIS?
VER PÖNTUM BÍLINN FYRIR YÐUR,
HVAR SEM ER I HEIMINUM!
BILALEIGA AKUREYRAR
Reykjavík: Skeifan 9, Tel. 91—86915.
.Akureyri: Tryggvabraut 14, Tel. 21715.
Innri-Njarðvík
Blaðbera vantar í Innri-Njarðvík. Vinsamlega
hringið í umboðsmann DB í Njarðvík, sími 2249.
MÉBIABIÐ
PEUCEOT
404 PICKUP
Mjög traustur, sparneytinn og lipur sendiferðabíll. Burðarmagn 1000
kg. Bílnum fylgja grindur og blæjur.
Notaðir bílar til sölu: 504 GL '78 - 504 GL '77
504 USA GERÐ ÁRG. '76
504 L ÁRG. '74
504 STATION ÁRG. '74.
HAFRAFELL H/F
VAGNHÖFÐA 7 SIM185211.
Stirðar sátta-
viðrædurvið
Kúrda í Teheran
Samningar á milli stjórnarinnar í
Teheran og fulltrúa Kúrda munu
ganga stirt og litlar líkur eru sagðar á
að árangur muni nást í þeim á næst-
unni. Hinir síðarnefndu munu meðal
annars benda á að síendurteknar af-
tökur á handteknum leiðtogum
Kúrda, sem komast í hendur hers
Teheranstjórnarinnar, bæti ekki úr
samkomulagshorfum. Talsmaður
fimm manna sendinefndar þeirra í
Teheran sagði þó í gær að þeir
mundu enn um sinn reyna sitt ítrasta
til að ná einhverjum sáttum milli
aðila.
Hann sagði að allt byggðist nú á
afstöðu hins sjötíu og níu ára gamla
trúarleiðtoga og helzta ráðamanns í
íran, Khomeini. Hann er aftur á móti
sagður hafa lítinn áhuga á að gefa
Kúrdum neitt eftir. Annar ráða-
maður í Teheran og meðlimur bylt-
ingarráðsins sagði að Khomeini
mundi ekki samþykkja formlegt
vopnahlé á milli herja stjórnarinnar
og Kúrda. Aftur á móti hafa vopna-
viðskipti legið niðri i rúmlega tvo
sólarhringa og hafa báðir aðilar
beðið eftir árangri í samninga-
viðræðum þeim sem fram fara í
Teheran.
Ráðamenn í Teheran segja að
Khomeini sé ákveðinn í að ná aftur
fullum yfirráðum í borginni
Mahabad, hann sé ekki reiðubúinn
til að gefa ráðamönnum i uppreisnar-
stjórn Kúrda upp sakir.
’.ý-jfi'i
Bandaríkin:
Við
lok
bfía-
aldar?
Umboðsmenn fyrir Dodge og
Plymouth bifreiðir i Rochester í
Bandaríkjunum gripu nýlega til
þess ráðs að auglýsa sérstaka
helgarútsölu á gripunum. Báðar
eru þessar tegundir framleiddar í
Chrysler verksmiðjunum, sem
hafa farið illa út úr orkuskortin-
um og hækkandi verði á bensíni.
Á helgarsölunni var boðinn þetta
10 til 20% afsláttur og þætti ýms-
um vafalaust gott að komast á
slíkan markað.
Stöðugt hækkandi verð á
bensíni hefur vakið þær hugsanir
hjá mörgum hvort komið sé að
lokum bílaaldar. Aðrir bregðast
aftur á móti þannig við að kaupa
sér sparneytnari bíla en áður og
enn aðrir leita að öðrum ódýrari
og auðfengnari orkugjöfum en
bensíninu. Ljóst virðist þó að
tími stóru bensindrekanna sé lið-
inn.
Kanada:
Skipstjóramir
segjast e/ sekir
— málið gegn bandarísku skipunum talið verða athyglisvert
próf mál um fiskveiðiréttindi Kanada
Skipstjórar hinna átta bandarísku
fiskiskipa sem ákærðir hafa verið
fyrir ólöglegar veiðar innan kana-
dískrar efnahagslögsögu hafa allir
lýst sig saklausa. Þeir voru teknir af
kanadískum-varðbátum á sunnudag-
inn var. Réttarhöld í máli þeirra fara
fram í Victoria í Brezku Kólumbíu
fylki á vesturströnd Kanada.
Bandarísku skipin en ftmm þeirra
eru frá Seattle og þrjú ftá Kalifomíu
voru að veiða túnfisk, sem bandarísk
yfirvöld kalla flökkufisk sem ekki
eigi að njóta verndar innan efnahags-
lögsögu Kanada. í þessum efnum ber
mjög á milli skoðana þeirra og kana-
dískra yfirvalda.
Mál gegn hinum átta bandarísku
fiskiskipum er talið verða athyglis-
vert mjög þar sem um prófmál verði
að ræða að þessu leyti. Kanadísk
stjórnvöld halda því ákveðið fram að
allar fisktegundir innan 200 mílna
efnahagslögsögu þeirra séu háðar
þeim takmörkunum um veiðar sem
þau ákveði.
Kanadíski sjávarútvegsráðherrann
James Mcgrath sagði í gær, að ríkis-
stjórnin væri ákveðin í að framfylgja
lögum um efnahagslögsöguna til
fullnustu hvað varðaði fiskveiðirétt-
indi. í því sambandi væri verið að
kanna staðsetningu og veiðisvæði þar
sem um það bil fimmtíu til sextíu
bandarískir fiskibátar héldu sig. Ef í
ljós kæmi, að þeir væru fyrir innan
200 mílurnar yrðu þeir teknir og
kærðir fyrir brot á lögum Kanada.