Dagblaðið - 29.08.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979.
115
Síðu bolirnir
geta verið kjóll
á daginn en
náttkjóll á
næturnar.
TIZKAN:
VINSÆU RISINN
t Bandarikjunum kallast siðu bolirnir sem svo mjög hafa verið vinsælir hér á landi
„risinn”. Bolirnir eru stundum einlitir en oft eru þeir með myndum á, bæði af teikni-
myndafigúrum eða jafnvel ávöxtum. Þeir sem hönnuðu fyrstir slika „risa” ætluðu sér
að konur gengju f þeim á daginn við buxur en notuðu „risann” aftur á móti sem nátt-
kjól á næturnar. Þý** — ELA
BROOKE
SHIELDS
Brooke Shields, 14 ára amerísk kvik-
myndastjarna, sem gerði nafn sitt
frægt eftir leik í myndinni Pretty Baby
var lögð inn á sjúkrahús í skyndi nú
fyrir skömmu á Sidney. Brooke fékk
mjög háan hita eftir að hafa veríð
stungin af moskítóflugu. Þegar atburð-
urinn átii sér stað var Brooke að leika f
nýrri mynd Blue Lagoon sem tekin er i
Ástralíu.
SOFFIA
ÁNÆGÐ
Soffia Loren er ánægð með lífið
þessa dagana. Hún hefur nefnilega
fengið sönnun þess að brjóstin á henni
eru verðmætari en bakhlutinn á Brig-
itte Bardot. Spánskt fyrírtæki hefur
nefnilega greitt Soffiu yfir tuttugu
milljónum meira fyrir að mynda brjóst-
in á henni en Bardot fékk fyrír að láta
myndaásér rassinn.
c
Þjónusta
c
Önnur þjóhusta
Mótahreinsivél
Leigjum út mótahreinsivél
okkar fyrst um sinn á nýjum og
sérlega hagstæðum kjörum.
ORKA HF.,
Síðumúla 32, sími 38000.
I’lasf.os Bil’ PLASTPOKAR| O 82655
BYGGING APLAST
PRENTUM AUGLÝSINGAR 00 Á PLASTPOKA 00
VERÐMERKIMIÐ/3 tR OG VÉLARI
@ 8 26 55 [ HnsúM lif 630 PLASTPOKAR
c
Konur filma konur
Pomme sit-
ur fyrir hjá
sambýlis-
manni Suz-
anne.
Mónudagsmyndin
EINS DAUÐI ER ANNARS BRAUÐ
L'une chante, l'autre pas
Leikstjórí og handrit: Agnes Varda
Kvikmyndun: Chariio van Damme
Frönsk 1976
Sýningarstaðun Mánudagsmynd Háskólabfós.
í kjölfar kvennaárs fór að bera á
því að hlutverk kvenna í kvikmynd-
um tók miklum stakkaskiptum.
Konur voru ekki lengur dæmigerðar
kvenpersónur eins og húsmóðirin,
þokkadísin eða tengdamamman,
heldur fór að bera mefra á alvarlegri
umfjöllun um stöðu konunnar í
kariasamfélagi. Konur fóru i auknum
mæli að leikstýra kvikmyndum og
'hafa flestar gert rnyndir sem fjalla
um konuna á einn eða annan hátt.
Það verður ekki iitið fram hjá þeirri
staðreynd að margar þeirra eru
meðal merkustu kvikmyndaleiksíjóra
sem starfandi eru í heiminum í dag.
Má þar nefna Veru Chytilovu frá
Tékkóslóvakíu, Mörtu Medzaros, en
íslenskum kvikmyndaáhugamönnum
gafst tækifæri til að sjá eina mynd
hennar, Ættleiðingu, á Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar í febrúar 1978 og
væntanlega verður önnur mynd
hennar, Níu mánuðir, tekin til sýn-
inga í Fjalakettinum í vetur en hún
hlaut silfurbjörninn á Berlinarhátíð-
inni 1976. Af öðrum má nefna
Larissu Shepitko, sem gerði myndina
Seigla sem einnig var sýnd á Kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík 1978, en
sú mynd hlaut gulibjörninn í Berlín
1977, Margrét von Trotta, Margrét
Duras og siðast en ekki síst Agnes
Varda sem er höfundur „Eins dauði
er annars brauð”. Hún hefur gert
fjölmargar myndir allt frá árinu
1957.
Eins dauði er
annars brauð
Sögusvið myndarinnar er fyrst i
París 1962. Þar greinir frá sambandi
tveggja kvenna af ólíkum stéttum.
önnur, Pomme, er 17 ára mennta-
skólastúlka, hin, Suzanne æskuvin-
kona hennar, er 22 ára húsmóðir sem
býr með fátækum ljósmyndara.
Þegar Suzanne verður ófrisk að
þriðja barninu hleypur Pomme undir
bagga með henni og borgar fyrir
hana fóstureyðingu. Því henni er
Ijóst að vinkona hennar getur ekki
staðið undir því að eiga þriðja
barnið. Litlu seinna fremur sambýlis-
maður Suzanne sjálfsmorð og hún á
ekki í annað hús að vendá en flytjast
upp í sveit til foreldra sinna. Þannig
skiljast leiðir þeirra. Þær sjást ekki
aftur fyrr en eftir 10 ár en þá kemur
Suzanne, sem starfar sem fjölskyldu-
ráðgjafi, auga á Pomme þar sem hún
syngur baráttuljóð i hópi fólks sem
berst fyrir frjáisum fóstureyðingum.
Kvik
myndir
Friðrik Þ. Friðriksson
Þær skiptast á heimiiisföngum og
halda síðan uppi bréfaskriftum.
Pomme flyst til írans með írönskum
manni, Dariusi, oggiftisthonum þar.
Hún sér samt fljótt að hún á litla
samleið með írönskum kynsystrum
sínum sem hylja líkama sinn blæjum.
Hún snýr aftur heim og tekur til við
sína fyrri iðju, sönginn. Suzanne gift-
ist fráskildum lækni en Pomme býr
ein með dóttur sinni og Dariusar.
í lok myndarinnar er eins konar
eftirmáli, þar sem sett er fram sú von
að saga þessara tveggja kvenna megi
koma öðrum að gagni við að öðlast
betra hlutskipti.
Kvenfrelsi
Eins dauði er annars brauð er í
raun baráttumynd fyrir auknu kven-
frelsi og sem slík nær hún eflaust til-
gangi sínum. Það hefði verið tilvalið
hjá Friðfinni bíóstjóra að hleypa ein-
göngu konum inn á myndina eins og
gert var þegar myndin var sýnd í
Kaupmannahöfn.
Varda leggur mikia áherslu á að
konan afli sér aukinnar menntunar,
slíkt sé forsenda fyrir auknu sjálf-
stæði, eins og sagan af Suzanne
sannar. Það er einnig góður punktur
að etja saman frönsku og írönsku
karlasamfélagi, sérstaklega í ljósi at-
burðanna sem hafa átt sér stað í íran
að undanförnu. En þar tóku konur
virkan þátt i byltingunni gegn keisar-
anum og munu einnig berjast gegn
núverandi valdhöfum því þeir ku
ekki beint hafa frjálslyndar skoðanir
á jafnréttismálum. Myndin hefur þó
nokkra galla og jaðrar oft á tiðum
við það að vera væmin. Tæknilega er
myndin mjög fullkomin og sérstak-
lega kaflinn þar sem Suzanne fer upp
í sveit með börnin. Þess má að lokum
geta að allir textarnir sem Pomme
syngur eru eftir Agnes Varda sjálfa.
Þjónusta
Þjónustal
Tökum að okkur að hreinsa hús o.
fl. með háþrýstídælu áður en málað
er. Notum bæði vatn og sand.
Önnumst alla aðra hliðstæða
málningarþjónustu.
Kristján Daðason
málarameistari.
Kvöldsfmi 73560.
Viðtækjaþjónusta
Margra ára viðurkennd þjónusta
SKII»A SJÖNV’ARPS
LOFTNET LOFTNET
lísUn.k framlciðsla Fvrir lit og svart hvitt
SJONVARPS
YTÐGERÐIR
SJONVARPSMISSTOÐIN SF.
'Stðumúta 2 Reykjavlk - Slmar 39090 - 39091
LOFTNETS
VTÖGERÐIR
/*v
jÚtvarpsvirkja-
meistari.
Sjónvarpsviðgerðir
í heimahúsum og á verkstæði, gerum við allar gerðir
sjónvarpstækja, svarthvít sem lit. Sækjum tækin og:
sendum.
Sjónvarpsvirkinn
Arnarbakka2 R.
Verkst.sími 71640, opið 9—19, kvöld og helgar 71745
til 10 á kvöldin. Geymið augl.
LOFTNET
Trlax
. . v .
önnumst uppsetningar á útvarps- og sjónvarps
loftnetum fyrir einbýlis-og fjölbýlishús.
Fagmenn tryggja örugga vinnu og árs ábyrgð.
MECO hf„ simi 27044, eftír kl.19 30225.
Sjónvarpsviðgerðir
Heima eöa á verkstædi.
Allar tegundir.
3ja mánaða ábyrgð.
Skjárinn, Bergstaðastræti 38.
Dag-, kvöld- og helgarsimi
21940.