Dagblaðið - 29.08.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979.
ð
23
Útvarp
Sjónvarp
£>
John Hurt og Colin Higgins i hlutverkum sínum i Nakinn opinber starfsmaður, sem sjónvarpið sýnir i kvöld.
NAKINN, OPINBER STARFSMADUR—sjónvarp kl. 21,50:
KYNVHUNGUR.
REKUR SÖGU SINA
—frájærogvelleikinmynd
Sjónvarpið endursýnir í kvöld
brezku sjónvarpsmyndina Nakinn,
opinber starfsmaður. Myndin er sjálfs-
ævisaga Quentins Crisps sem er nú á
sextugsaldrinum.
Crisps sá fram á það á unga aldri að
hann væri kynvilltur og ákvað þegar í
stað að láta alla fordóma lönd og leið
og lifa samkvæmt eðli sínu. Foreldrar
Crisps voru efnaðir, af efri miðstétt,
eins og það kallaðist. Þeim var ger-
samlega ómögulegt að skilja þessa
hegðun sonar síns og fannst það af-
káralegt þegarhanneyddi mestum hluta
dagsins fyrir framan spegilinn til að
reyna hinar ýmsu gerðir af augnskugg-
um og varalitum.
Þó svo að á þessum árum hafi kyn-
villingar ekki verið viðurkenndir lét
Crisps það ekki á sig fá heldur hélt fast
við kenningu sina. Hann fékk ýmislegt
að reyna og bjó með hinu og þessu
fólki sem hvoru tveggja voru vinir hans
og/eðaelskhugar.
Myndin er frá 1975 og lýsir hún
öðrum þræði, hverjar breytingar hafa
orðið á þessum tíma á viðhorfum al-
mennings til ýmissa minnihlutahópa,
einkum kynvillinga.
Þeir sem sáu þessa mynd 30. janúar
1978 þegar hún var sýnd, muna það ef-
laust hversu góð myndin er, hreint og
beint frábær sögðu margir eftir að hafa
horft á hana. Þeir sem misstu af henni
þá ættu því að nota tækifærið og sjá
þessa mynd nú, því ekki er víst að ann-
að tækifæri bjóðist. Myndin er mjög
vel leikin og eins og áður er sagt hreint
og beint frábær.
Með aðalhlutverk í myndinni fer
John Hurt. Leikstjóri er Jack Gold en
handrit gerði Philip Mackie. Þýðandi
er Dóra Hafsteinsdóttir.
- ELA
ÍÞRÓTTIR—útvarp kl. 21,45:
HVERJIR LÁTA SIG MBDSU
ÍÞRÓTTAMANNA SKIPTA?
„Staðan í þessum þætti er sú, að ég
verð með viðtal við Ágúst Ásgeirsson,
hlaupara og formann frjálsiþrótta-
deildar ÍR. Hann lætur sig ekki muna
um að skokka á hverjum degi í vinnuna
niður í Mogga úr Breiðholtinu,” sagði
Hermann Gunnarsson um íþróttaþátt
sinn í kvöld í útvarpi.
„Síðan ætla ég að minnast á loka-
átökin í knattspyrnunni og fara ofan í
nokkrar greinar eftir Pálma Frímanns-
son héraðslækni. Hann er einni örfárra
lækna sem láta sig skipta meiðsli
íþróttamanna. Pálmi er sjálfur mikill
íþróttaáhugamaður og koma greinar
hans í kjölfar mikilla meiðsla á íþrótta-
mönnum nú i sumar. Er skemmst að
minnast þess að nú um síðustu helgi
fótbrotnaði einn af betri knattspyrnu-
mönnum okkar.”
íþróttaþáttur Hermanns er á dagskrá
í kvöld kl. 21.45 og er hann tuttugu
mínútna langur.
- ELA
Frá bikarkeppni FRI, Agúst Ásgeirsson
sigraði í 3000 m hindrunarhlaupi, hann
er hér aö stinga fæti í vatnsgryfjuna. Á
undan honum er Sigurður P. Sigmunds-
son sem varð annar. Hermann Gunnars-
son ræðir í kvöld við Ágúst Ásgeirsson.
DB-mynd Bj.Bj.
t-----------;----------------\
BARMÐHANSPETURS—sjónvarp
M. 20,35:
PÉVURGERIST
FÓSTRI
— ílokaþættinum, eftir að hafa reynt prentarastarf
,,í þessum þætti er Lena orðin stærri
og Pétur hefur komið henni fyrir á dag-
heimili. Sjálfur er hann kominn í vinnu
sem prentaralærlingur. Foreldrar hans
hafa fengið nýja íbúð og allt gengur vel
hjá þeim,” sagði Dóra Hafsteinsdóttir,
þýðandi myndarinnar um barnið hans
Péturs. Sýndur verður í kvöld fjórði eg
síðasti þáttur myndaflokksins sænska.
Fyrir þá sem ekki hafa séð fyrstu
þrjá þættina skal það segjast að Pétur
og Maríanna sem eru 16 og 17 ára eign-
ast barn saman. Foreldrar Maríönnu
flytjast til höfuðborgarinnar frá sveita-
þorpinu þar sem þau bjuggu og Marí-
anna getur ekki tekið barnið með.
Það verður því úr að Pétur verður að
hafa barnið, sem er þó nokkrum erfið-
leikum bundið fyrir hann. Móöir hans
gerir allt til að koma barninu í fóstur en
Pétur er ekki alveg á því og treystir
engum fyrir barninu.
Eitt kvöld er Pétur skreppur út með
kunningjunum sendir móðir hans
barnið til fósturforeldra. Pétur og
skólafélagar hans gera þá verkfall og
segjast ekki mæta í skólann aftur fyrr
en Pétur fái barnið.
Það verður því úr að Pétur fær
barnið sitt aftur og barnavernd og
félagsmálafulltrúar ákveða nú að
hjálpa honum í stað þess að reyna að fá
hann á þá skoðun að láta barnið.
Pétur gat þvi í síðasta þætti skemmt
sér áhyggjulaust með félögum sínum.
Ekki kom það beint fram i síöasta
þætti hvort foreldrar hans væru búnir
að samþykkja að hafa barnið, en svo á
það víst að vera. Enda kemur það fram
í myndinni í kvuld.
í kvöld tekur Maríanna upp á því að
koma til að sjá barnið en Pétur er ekki
ýkja hrifinn af því, þar sem það hittir
svo á að hann á fri þann sama dag.
Hafði hann hugsað sér að hafa Lenu
einn.
Síðar í þættinum kemur það svo
fram að Pétri líkar prentarastarfið ekki
nógu vel, en ákveður að gerast fóstri.
Það er Peter Malmsjö sem fer með
hlutverk Péturs. Myndin er þriggja
stundarfjórðunga iöng. - ELA
Pétur lætur skira Lenu og allir þorpsbúar mættu i kirkjuna til að forvitnast um þetta
margumtalaða barn.
V_______________________________________/
t---------------------------------------\
ístað bamsins hans Péturs:
HÚS CARADUS-
FJÖLSKYLDUNNAR
brezkur myndaflokkur ísjö þáttum
Þar sem þátturinn um Barnið hans
Péturs er á enda i kvöld lék okkur for-
vitni á að vita hvað kæmi i staðinn fyrir
þann þátt.
Hjá Birni Baldurssyni, dagskrárrit-
ara sjónvarpsins, fengum við þær upp-
lýsingar að brezkur myndaflokkur i sjö
sjálfstæðum þáttum hæfi göngu sína
næsta miðvikudag.
Myndaflokkurinn nefnist House of
Caradus og fjallar hann um Caradus
fjölskylduna sem rekið hefur fyrirtæki,
er starfrækir listmunauppboð, í
hundrað ár.
Nú er ný kynslóð að hefja reksturinn
og kemst að raun um að fyrirtækið er
yfirhlaðið skuldum. Þá kemur fráskilin
kona til Helenar Caradus, einnar úr
fjölskyldunni, og biður hana um að
selja fyrir sig mjög verðmætan ættar-
grip-
Að sögn Björns er þetta meginefni
þáttanna sem því miður hafa ekki hlot-
iðíslenzktnafnennþá. -ELA