Dagblaðið - 29.08.1979, Blaðsíða 24
f
Patreksfjörður:
Bað um varðskip til að
taka ölvaðan ökumann
• Sýslumannsembættið á Patreks-
firði neyddist til þess í síðustu viku að
fá varðskip til að leita að drukknum
manni sem talinn var hafa framið
lögbrot. Fannst maðurinn sofandi í
báti, tuttugu milur frá landi.
Forsagan var sú að maður þessi —
sjómaður — hafði ekið bU sínum ölv-
' ........................—
aður um götur Patreksfjarðarkaup-
túns, velt btlnum og eyðilagt girð-
ingu. Þar skildi hann bílinn eftir og
stakk af út á sjó með félögum sínum
ábátnum.
Patreksfjarðarlögreglan leitaði
góða stund að manninum í kauptún-
inu en allt kom fyrir ekki unz kom í
ljós hvernig í pottinn var búið. Full-
trúi sýslumanns óskaði þá eftir því að
varðskip færi á móti bátnum. Þar um
borð, 20 milur frá landi, var söku-
dólgurinn og aðrir skipverjar stein-
sofandi.
Þröstur Sigtryggsson, skipherra
hjá Landhelgisgæzlunni, staðfesti
þetta i samtali við DB í gær.
Lögreglan á Patreksfirði kannaðist
ekkert við málið er DB leitaði þangað
i gær og sýslufulltrúinn vildi ekkert
láta eftir sér hafa um það.
-ELA.
HANS HATIGN A HRAÐFERÐ
Það var mikill flýtir á hans hátign
Karli Bretaprins þegar hann kom á
Egilsstaðaflugvöll í gærmorgun eftir
árangursríkar veiðar í Hofsá. Prinsinn
hélt heimleiðis tveimur dögum fyrr en
áætlað var vegna morðsins á Mount-
batten lávarði, frænda hans, sem hann
hafði mikið dálæti á.
Lögreghtbíll flutti prinsinn og fylgd-
armenn hans á flugvöllinn og fylgdi
annar bíll á eftir. Prinsinn stökk út úr
bílnum og hljóp rakleiðis upp í einka-
þotu konungsfjölskyldunnar, en sneri
skyndilega við og kvaddi lögreglu-
mennina með handabandi. Hann hljóp
síðan aftur upp í vélina og fór ekki
framhjá þeim, sem stóðu álengdar og
horfðu á, að hans hátign var brýnt
nauðsynjamál að sinna kalli náttúrunn-
ar. — Prinsinn hafði fengið fjörutíu
laxa í Hofsá og var hver og einn þeirra
pakkaður inn í bastkörfu.
-ÓV/DB-mynd Arni Páll.
Ennjafnt
hjálóni L.
Jón L. Árnason gerði jafntefii
við pólska stórmeistarann
Schmidt i 3. umferð alþjóðlega
skákmótsins í Slupsk i Póllandi í
gær. Tefld var benóní-vörn og
bauð Pólverjinn fljótlega jafn-
tefli en Jón hafnaði. Siðan urðu
mikil uppskipti og leystist skákin
þá fljótlega upp í jafntefii.
Að loknum 3 umferðum hefur
Jón 1,5 vinning, Hann hefur gert
jafntefli í öllum skákum sínum. í
1. umfcrð gerði hann jafntefli við
búlgarska stórmeistarann Spiri-
donov og í 2. umferð jafntefli við
alþjóðlega meistarann Doda frá
Póllandi.
Pólverjinn Burgovski, sem er
eini titillausi keppandi mótsins
hefur óvænt forystu. Hann hefur
hlotið 2 vinninga úr 2 skákum,
einu sinni setið yfir.
Meðal keppenda á mótinu eru
stórmeistararnir Timochenko,
Sovétrikjunum, og Bilek, Ung-
verjalandi. Það var ranghermt i
DB i gær, að Weslerinen frá
Finnlandi væri meðal keppenda.
Hann hætti við þátttöku á síðustu
stundu. -GAJ-
Benedikt vill láta veiða 125 þús. tonn við Jan Mayen
„HEFUR EKKERT
VERIÐ RÆTT’
— segja menn ívidræðu- og landhelgisnefnd
„Við höfum ekkert rætt þetta,”
sagði Einar Ágústsson alþingismaður
i morgun um tillögur Benedikts
Gröndal utanríkisráðherra um, að ís-
lendingar veiði jafnmikið af loðnu
við Jan Mayen nú og Norðmenn hafa
gert. Benedikt nefndi 125 þúsund
tonn. Þetta kom fram á fundi Bene-
dikts með norskum blaðamönnum,
sem íslenzkum blaðamönnum var
ekki boðið til.
„Það er ekkert á móti því, að
okkar menn veiði við Jan Mayen,”
sagði Einar, „en við höfðum reiknað
með að loðnan veiddist á venjulegum
slóðum.” Einar taldi að viðræðurnar
við Norðmenn yrðu ekki fyrr en um
20. október. „Við eigum að standa
saman í þessu og ekki deila um, hver
sé mestur karl,” sagði Einar.
„Nei, þetta hefur ekki verið rætt,”
sagði Sighvatur Björgvinsson alþing-
ismaður í morgun um tillögur Bene-
dikts. „Þetta kæmi til skoðunar,”
sagði hann en taldi einfalt að svara
Norðmönnum með öðrum hætti.
Taka mætti af þeim leyfið til að veiða
5000 tonn af bolfiski á íslands-
miðum. Þar væri um verðmætari fisk
að ræða og gætu 5000 tonnin komið
á móti þeim 40 þúsund tonnum af
loðnu, sem Norðmenn hefðu farið
fram úr „heiðursmannasamkomu-
lagi” um loðnuveiðina.
Ólafur Ragnar Grimsson alþingis-
maður sagði í morgun, að það væri
eftir öðru, að Benedikt Gröndal segði
Norðmönnum fyrst hug sinn.
Sighvatur og Einar voru spurðir,
hvort það kæmi ekki bara niður á
öðrum loðnuveiðum okkar, ef afiinn
yrði aukinn við Jan Mayen og við
þyrftum að draga úr þeim að sama
skapi. Þeir töldu vafa á því. Ólafur
Ragnar og Einar eiga sæti í viðræðu-
nefndinni við Norðmenn og Sighvat-
ur í landhelgisnefnd. Ekki tókst í
morgun að ná tali af utanríkisráð-
herra.
-HH.
frjálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST.
Bamaársskákmótið:
Karl Þorsteins
orðinn efstur
Karl Þorsteins, hinn 14 ára gamli
skákmaður úr Taflfélagi Reykjavíkur,
hefur nú tekið forystuna á barnaárs-
skákmótinu í Puerto Rico. Hann hefur
hlotið 5,5 vinninga úr 7 skákum. Jafn
honum að vinningum er Adianti,
Indónesíu.
Keppendur eru 24 frá 20 þjóðum á
aldrinum 12—15 ára og verða tefldar 9
umferðir.
-GAJ-
Loðnubátamir:
KR0PPVIÐ
JAN MAYEN
Dræm loðnuveiði hefur verið það
sem af er vertíðinni að undanskildum
tveim fyrstu sólarhringunum. Aflinn
losar þó 30 þúsund tonn. Bátarnir leita
viða fyrir sér þessa dagana og allt
norður til Jan Mayen, þar sem tveir
fengu fullfermi i gær og tveir eftir mið-
nætti. Þar er nú einn bátur eftir. En
þess ber að geta að bátar þessir eru
búnir að vera þarna í nokkra daga án
árangurs þar til í gær, og geysilegur
tími fer í siglingar.
-GS.
Nýi sparisjóðurinn:
Átak
heitir hann
,,Þá hefur þetta skref verið stigið og
þá er að búa sig undir það næsta,”
sagði Hilmar Helgason formaður SÁÁ,
um stofnfund sparisjóðsins Átaks, sem
haldinn var í gærkvöldi. Hann sagði að
fljótlega yrði tögð fram umsókn um
leyfi til að reka sparisjóðinn til við-
skipta- og bankamálaráðherra, Svavars
Gestssonar.
í aðalstjórn Átaks voru þessir kjörn-
ir: Albert Guðmundsson, Hilmar
Helgason og Guðmundur J.
Guðmundsson. í varastjórn: Ewald
Berndsen, Jóhanna Sigurðardóttir og
GuðmundurG. Þórarinsson.
Borgarstjórn verður formlega til-
kynnt um stofnunina. Jafnframt
verður þess farið á leit, að hún tilnefni
tvo menn í stjórnina samkvæmt lögum.
Þá leggur borgarstjórn og til endur-
skoðanda.
Stofnfélagar voru 240. Yfirlýstur til-
gangur sparisjóðsins utan almennrar
bankastarfsemi er sá að leggja lið í bar-
áttunni við áfengisbölið. Ráð er og gert
fyrir sérstakri ráðgjafarstarfsemi.
BS.
Margeir annar
íLondon
Margeir Pétursson teflir um þessar
mundir á skákmótinu Lloyds Bank
Masters í London.
Að loknum 6 umferðum er Margeir í
2.-5. sæti með 4,5 vinninga. Bretinn
Botterill er efstur með 5 vinninga.
Meðal keppenda eru stórmeistararnir
Balinas, Filippseyjum og Westerinen,
Finnlandi. -GAJ-