Dagblaðið - 10.10.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBHR 1979.
Rættvið sjátfstæðismennámiðstjómarfundi:
Samstjóm Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks hugsanleg
—til jæss eins að knýja f ram þingrof og kosningar, segir Sverrir Hermannsson
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
kom saman til fundar í gærdag til
þess að fjalla um hin nýju viðhorf
sem skapazt hafa í stjórnmálunum.
DB ræddi stuttlega við fjóra þing-
menn flokksins, sem sæti eiga í mið-
stjórn, og spurði þá hvort hugsanlegt
væri að Sjálfstæðisflokkurinn
myndaði ríkisstjórn með Alþýðu-
flokki til þess að rjúfa þing og efna til
kosninga, fari svo að Ólafut
Jóhannesson forsætisráðherra rjúfi
þingið ekki.
Beita verður öllum
ráðum til að
f ramkvæma þingrof
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi beita öllum
þeim ráðum sem hann hefði yfir að
ráða til þess hægt væri að fram-
kvæma þingrof og efna til kosninga.
,,Á þessu stigi get ég ekki sagt um
það til hvaða ráða verður gripið en
það verður ekki samsteypustjórn fyr-
ir kosningar.”
Skylda forsætis-
ráðherra að rjúfa
þing
Matthías Bjarnason alþingismaður
sagði að frekari tafir á því að boða til
kosninga yrðu aðeins til þess að auka
þann vanda sem væri ærinn fyrir eftir
rúmlega eins árs starf rikisstjórnar-
innar. ,,Eg tel það skyldu Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra að
rjúfa þing og efna til kosninga. Það
er engin ástæða fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að fara í ríkisstjórn fyrr en
þjóðin hefur kveðið upp sinn dóm.
Einhver stjórn verður að sitja þar
til kosningar fara fram og það verður
að vega og meta hvort það verður
Matthias Mathiesen
DB-myndir RagnarTh.
Samstjórn Sjálf-
stæðis- og Alþýðu-
flokks kemur til
greina ef nauðsyn
krefur af tæknileg-
um ástæðum
,,Ef nauðsynlegt er af tæknilegum
ástæðum að mynda stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks til þess
að koma þingrofi í gegn þá kemur
það til greina en aðeins til þessa eina
verkefnis,” sagði Sverrir Hermanns-
son alþingismaður.
,,Síðan verður almenningur að fá
að segja sitt um störf stjórnarinnar
undanfarið ár og stefnu Sjálfstæðis-
flokksins sem sett verður fram á cin-
faldan og skýran hátt.”
Matthías Bjarnason
Geir Hallgrímsson
einn flokkur öðrum fremur sem það
gerir.”
Trúi ekki öðru
Ólafur rjúfi þing
Matthías Mathiesen alþingismaður
sagði þessi mál ekki hafa verið rædd
Sverrir Hermannsson
hjá Sjálfstæðisflokki. Þau yrðu tekin
fyrir á miðstjórnarfundinum og siðan
á þingflokksfundi á morgun þegar
viðbrögð forsætisráðherra lægju
fyrir. ,,En ég trúi ekki öðru en Ólafur
Jóhannesson rjúfi þing og efni til
kosninga,” sagði Matthías.
9
\
Fjármálaráðherrann vill ekki kosningar á Þorláksmessu!
BRÆLA FYRIR AUSTAN 0G
BRÆLA í PÓUTÍKINNI
— sagði Vilhjálmurá
Brekkufyrir
þingflokksfund
Framsóknar
„Þetta er vanhugsuð aðgerð hjá Al-
þýðuflokksmönnum sem meðal annars
stafar af hvatvisi þeirra. Þó er afstaða
Magnúsar H. Magnússonar vísbending
um að i Alþýðuflokknum er til allt önn-
ur og betri hugsun,” sagði Ingvar
Gíslason, þingmaður Framsóknar-
flokksins, við fréttamenn DB áður en
Framsóknarmenn lokuðu að sér og
hófu þingflokksfund í gær.
,,Ég hefði viljað halda stjórnarsam-
starfinu áfram um sinn. Það er
ábyrgðarlaust að slíta því á þessu stigi
og skilja við landið stjómlaust.
Mér lizt í sjálfu sér ekki illa á kosn-
ingar, ef af verður, fyrir hönd Fram-
sóknarflokksins. En að efna til þeirra á
þennan hátt er illur kostur,” sagði
Ingvar Gislason. Hann kvaðst sjálfur
ætla að gefa kost á sér í framboð á ný.
„Það er bræla fyrir austan í dag og
bræla i pólitíkinni,” sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson. „Fréttirnar leggjast auð-
vitað ekki vel í mig. Of snemmt er að
spá um það hvert framhaldið verður.
Ég ætla ekkert að segja um það hvort
ég muni verða á ný í framboði á Aust-
fjörðum. Það þarf að ræðast t'yrir
austan.”
„Ég ætla bara að vona að við fáum
ekki kosningar á Þorláksmessu!” sagði
TómasÁrnason fjármálaráðherra.
- ARH
„Éfi skal ekkert uni það sefija hvort éfi
fer í framboð aftur,” safiði Vilhjálmur
Hjálmarsson.
Álafoss hf.
efnir til
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNI
Við munum verðlauna beztu hugmyndirnar, sem okkur berast, um vörur — prjónaðar, heklaðar eða á
annan hátt gerðar úr eftirtöidum ullarbandategundum frá ÁLAFOSS: PLÖTULOPA — HESPULOPA —
LOPA LIGHT - TWEED - EINGIRNI
7. Dómnefnd verður skipuð þannig: Andrés Fjeldsted, aðalfulltrúi hjá
Álafossi, 11.-.*••'•ir Gunnarsson, verslunarstjórí í Rammagerðinni,
Pálína Jónmundsdórt*r, ritstj. prjónauppskríftaútgáfu Alafoss,
Steinunn Jónsdóttir, verzlunarstjóri i verslun Áiafoss, Vigdís
Pálsdóttir, handavinnukennari.
8. Hugmynoum skal skila inn undir dulnefndi þannig, aðennfremur
fylgi í lokuðu umslagi mrrktu dufnefninu allar nauðsynlegar upp-
lýsingar, svo sem nafn, hei.nil* :f -»ng og simanúmer viðkomandi.
9. Hugmyndirnar skulu hafa borizt a annan eftirgreindra staða fyrir
1. desember 1979: Verzlun Álafoss Vesturgötu 2, Reykjavík. Skrif-
stofa Álafoss, Mosfellssveit.
10. Áskilinn er réttur til að framlengja skilarrestinn ef ekki berst
nægur fjöldi verðlaunahæfra tillagna.
Á Álafoss hf.
Nánari ákvæði um þátttöku:
1. Þátttaka er öllum heimil.
2. Vörurnar séu að megincfni til úr ofangreindum Álafossvörum.
3. Æskilegt er, að hugmyndum fylgi, vinnulýsing, þannig að auðvelt
sé að búa til mynstur (uppskrift) úr þeim til almennra nota.
4. Álafoss verður eigandi þeirra hugmynda, er verðlaun hljóta en
áskilur sér forkaupsrétt að öllum þeim hugmyndum, sem fram
koma í keppninni.
5. Við mat á hugmyndinni verður fyrst og fremst miðað við almennt
sölugildi hugmynda.
6. Veitt verða 5. verðlaun:
1. verðlaun kr. 200.000.-
2. verðlaun kr. 120.000.-
3. verðlaun kr. '70.000.-
4. verðlaun kr. 60.000.-
5. verðlaun kr. 50.000.-
samtals: kr. 500.000.-
„Hvatvísi hjá Alþýduflokksmönnutn,” safiði Ingvar Gislason.