Dagblaðið - 10.10.1979, Page 23

Dagblaðið - 10.10.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1979. (t Útvarp 23 Sjónvarp i t---------------------\ Watergate-hneykslið í stað Listmunahússms Enginn nýr þáttur kemur í stað Sumarstúlkunnar á miðvikudögum þar sem sá þáttur var ætlaður sem unglingaefni og kom í stað barnaefnis á miðvikudagseftirmiðdögum. List- munahúsið er á þrotum því næstsíðasti þáttur þess er í kvöld. I stað Listmunahússins fáum við að sjá nýjan bandarískan myndaflokk í sex þáttum sem fjallar um Watergate- hneykslið í' Bandaríkjunum. Mynda- flokkurinn er gerður eftir bók Johns Ehrlichman sem nefnist The Company. Myndaflokkurinn ber hins vegar nafnið Washington behind the close door. Hver þáttur er mjög langur eða einn og hálfur tími að lengd. Eflaust munu margir bíða þessa myndallokks með ofvæni en hann er sagður mjög góður. -ELA. 4* Klemdíenst Ihrlíchman <-------------------- VAKA—sjónvarp kl. 21,05: Höfuðpaurar Watergate-hneykslisins sem seint mun líða úr minni manna. ixiiaki ui uii^ui iiiii a i>uimui u-cvju bem oyr par bródur. r _ r UFIÐA LENN ARDEYJU - sjónvarp kl. 18,30: VITAVARÐAR- SONURINN RÖSKI „Þessi mynd er um strák, svona II —12 ára gamlan sem segir frá lifinu á Lennard-eyju. Lennard-eyja er pínulítil eyja eða hólmi undan strönd Vancouvereyju sem er vestan við borgina Vancouver í Kanada,” sagði Björn Baldursson en hann er þýðandi myndarinnar Líftð á Lennard-eyju sem sýnd verður í sjónvarpi i dag kl. 18.30. ,,Á þessum litla hólma býT fjölskylda, vitavörður, kona hans og tveir synir. Drengirnir vinna mikið við vitann og i tómstundum fara þeir oft í könnunarleiðangra um skóginn á Lennard-eyju. Sýnt er í myndinni hvernig líf þessara drengja er að mörgu leyti frábrugðið lífi drengja i stór- borg,” sagði Björn. Myndin er kanadísk fræðslumynd, skemmtileg að sögn Björns, og e: hún luttugu og fimm mín. löng. Þulur er Birgir Ármannsson. -EI.A. V_____________________ t-----:--------------- SUMARSTULKAN - sjónvarp kl. 20,35: RÁNID UPPLÝSIST IsJenzk kvikmyndageró Fyrsti þáttur Vöku á þessu hausti er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl. 21.05. Árni Þórarinsspn ritstjóri er um- sjónarmaður hansen Þráinn Bertelsson annaðist dagskrárgerð. Árni ætlar að fjalla um grósku i íslenzkri kvikmyndagerð í þættinum. Verður þá aðallega fjallað um þrjár íslenzkar kvikmyndir, Land og syni, Óðal feðranna og Veiðiferð. Kvikmyndin Land og synir var tekin upp í Svarfaðardal og voru Svarfdælir i V__________________________________ meiriháttar hlutverkum i myndinni. Auk þess var örlítið kvikmyndað á Hialteyri við Eyjafjörð. Það voru þeir Indriði G. Þorsteinsson, Ágúst Guðmundsson og Jón Hermannsson sem stóðu að gerð þeirrar myndar sem frumsýnd verður í janúar. Myndin Óðal feðranna eftir Hrafn Gunnlaugsson var að mestu eða öllu leyti tekin í Borgarfirði og voru all- margir Borgfirðingar sem fóru með hlutverk í þeirri mynd. Að Veiðiferð stóðu þeir Andrés Indriðason, Snorri Þórisson og Jón Þór Hannesson. Sú mynd er aðeins 20 mín. að lengd og verður því væntanlega tekin til sýningar i sjónvarpi. Hinar tvær eru i fullri lengd og eru þær gerðar fyrir kvikmyndahús. Auk þess að kynna þessar þrjár myndir ætlar Árni að ræða við. menntamálaráðherra, Ragnar Arnalds, um kvikmyndir á íslandi í framtíðinni. Vaka er hálfrar klukkustundar löng. -ELÁ. J Svarfdælir sem léku kirkjugesti og söngfólk i kirkjukór í Landi og sonum er fram myndunin fór fram í Tjarnarkirkju í Svarfaöardal. fór jaróarför Olafs á Gilsbakka. Kvik- DB-mynð ARH. —síðasti þáttur Sumarstúlkunnar Sjötti og síðasti þáttur Sumarstúlk- unnar verður sýndur í sjónvarpi í kvöld kl. 20.35. í þættinum upplýsist hver rændi gamla manninn, frænda Janna og ætti mörgum að koma á óvart 'hvernig sá leikur fer. í síðasta þætti gerðist það helzt að þau Evy og Janni eru grunuð um að hafa rænt gamla manninn, frænda Janna. Lögreglan ber að dyrum heima hjá sumarforeldrum Evy en Bror segir ,Evy hafa verið heima nóttina, sem ránið var framið. Eftir að lögreglan er farin spyrja þau hana í þaula hvar hún hafi verið þessa nótt og hún segir þeim sannleikann að hún og Janni hafi verið saman. Þau vilja trúa sakleysi hennar en eru samt efins. Janni er horfinn og Evy fer út og leitar hans. Hún finnur hann að lokum úti í eyju. Þýðandi myndaflokksins er Jóhanna Jóhannsdóttir og með aðalhlutverk fara Carolína Pliiss, Lars Göran, Ingela Sahlin og Per Jonsson. -ELA. Janni og Evy ræða málið sin á milli er þau hittust á eyjunni i síðasta þætti. Fasteignasalan Laugavegi 18 simi 17374 Haraldur Magnússon, viðskiptafræðingur. TIL SÖLU m.a.: 2ja herb. ibúðir við Eiriksgötu, Asparfell og í miðbænum. 3ja herb. íbúðir við Bergþórugötu, Klapparstíg, Bjargarstíg, í Eoss- vogi og víðar. 4ra og 5 herb. íbúðir í Fossvogi, Mosfellssveit, og við Kaplaskjólsveg. Nýlegt einbýlishús í Grundarfirði. Einbýlishús í Garðabæ, Blesugróf og Mosfellssveit. Iðnaðarhúsnæði i Kópavogi og Hafnarfiröi. 6 tonna góður fiskibátur. Vantar fasteignir á söluskrá, fjársterkir kaupendur. Erum viðlátnir á skrifstofunni til 9 á kvöldin. Uppl- í síma 17374, heimasími 31593.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.