Dagblaðið - 16.10.1979, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979.
Útgefandi
Framkvœmdastjórf: Syeinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
RitstjórnarfuHtrúi: Haukúr Helgason. Fróttastjóri: ómar VakJknarsson.
Skrífstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal.
íþróttir: HaHur Simonarson. Menning: Aóabteinn IngóHsson. Aöstoöarfróttastjóri: Jónas Haraldsson.
Handrít: Ásgrfmur Pótseon.
Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Bragi,
Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur
Geirsson, Siguröur Svorrisson.
Hönnun: Hilmar Karlsson.
Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjarnlerfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös-
son, Svoinn Þormóösson.
Skrifstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þoríetfsson. Sölustjórí: Ingvar Sveinsson. Dreif-
ingarstjórí: Már E. M. Halldórsson.
Ritstjórn Síöumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
Aöabími blaösins er 27022 (10) Knur).
Setning og umbrot: Dagblaöið hf., Slöumúla 12. Mynda- og plötugerö: HUmir hf., Síðumúla 12. Prentun:
Árvakur hf., Skpifunni 10. - - —
/skríftarverö á mánuði kr. 4000. V«áö í laátasöki kr. 200 einta^ið.'
Landstjórinn er vaknaöur
Guðfaðir ríkisstjórnarinnar, Guð-
mundur J. Guðmundsson, er stundum
kallaður landstjórinn vegna þeirrar
áráttu hans að vilja ráða því, hvaða
ríl&sstjórnir hafi vinnufrið.
í framkvæmd byggist áhugi land-
stjórans á kjarabótum verkamanna eingöngu á því^
hvort Alþýðubandalagið er í ríkisstjórn eða ekki. I
hans augum eru kjarabætur ómerkari en flokkurinn.
Þegar Guðmundur kom á fót þeirri ríkisstjórn, sem
nú er að syngja sitt síðasta, var kaupmátturinn 119
stig. Hann er núna kominn niður í 109 stig og fer í
næsta mánuði niður í 105 stig.
Samtals eru þetta 12% rýrnun lífskjara almennings
á hálfu öðru ári. Slík rýrnun á svo skömmum tíma er
auðvitað mjög tilfinnanleg, einkum þeim, sem ekki
höfðu af neinum lúxus að taka.
Allan þennan tíma hefur landstjórinn haft mjög
hægt um sig. Hann hefur mildilegast fallizt á, að kjara-
samningar séu ekki í heiðri hafðir. Þessu hefur fólk
orðið að fórna fyrir stjórnarsetu Alþýðubandalagsins.
Nú eru nokkrar horfur á, að Alþýðubandalagið
verði utan stjórnar næstu misseri. Þess vegna má búast
við, að Guðmundur fái nú aftur feiknarlegan áhuga á,
að gamlir samningar verði í gildi.
Á þriðjudag sagði landstjórinn einmitt, að fólk
þyrfti ekki að óttast svartnætti, þótt hægri sinnaðri
stjórn tæki við. Hann mundi gæta sinna.
Guðmundur hefur engan áhuga á því lýðræði, sem
felst í því, er kjósendur ákveða í kosningum, hvernig
völd færist milli stjórnmálaflokka. Hans hlutverk er
bara að gæta hagsmuna Alþýðubandalagsins.
í því tafli landstjórans er verkafólk aðeins peð, er
skiptir litlu sem engu máli.
Felldi Bolle stjómina?
Ekki hefur enn fundizt nein verulega sannfærandi
skýring á tímanum, sem Benedikt Gröndal valdi til að
láta undan kröfum þingmanna Alþýðuflokksins um
slit stjórnarsamstarfs.
Föstudaginn í síðustu viku, þegar Benedikt féllst á
sjónarmið þingflokksins, var Alþýðuflokkurinn ekkert
verr settur í ríkisstjórninni en endranær.
í rúmt ár hefur Alþýðuflokkurinn verið illa leikinn í
stjórnarsamstarfinu og jafnan kveinað sáran. Ef eitt-
hvað er, þá hefur misþyrmingunum heldur linnt.
Ólafslög síðasta vors voru heldur nær sjónarmiðum
Alþýðuflokksins en Alþýðubandalagsins. Og hið nýja
fjárlagafrumvarp Tómasar Árnasonar er einnig heldur
nær sjónarmiðum Alþýðuflokksins.
Af hverju valdi Benedikt þá síðasta föstudag til að
gera kröfur þingflokksins að sínum? Ekki sást þá neinn
nýr örlagavaldur í efnahagsmálunum.
Hin opinbera skýring er auðvitað sú, að betra sé
seint en aldrei. En það getur líka verið, að skýring-
arinnar sé að leita í útlöndum, í samskiptum íslenzkra
og norskra jafnaðarmanna.
Frétzt hafði, að hinn harði samningamaður norskra
þrýstihópa í sjávarútvegi, Bolle, hefði öllum á óvart
endurheimt stöðu sína sem sjávarútvegsráðherra
norsku stjórnarinnar.
Benedikt hefur í sumar og haust sætt hörðu ámæli
fyrir slæma útreið í viðræðum við hinn norska flokks-
bróður. Utanríkisráðherra kemst ekki lengur hjá því að
taka tillit til þjóðarviljans.
Hugsanlega hefur Benedikt hreinlega ekki treyst sér
til að gæta íslenzkra hagsmuna við Jan Mayen nógu vel
andspænis hörðum samningamönnum, norskum
flokksbræðrum, velgerðarmönnum Alþýðuflokksins.
: Dogblaöiö hf.
BIAÐIB
Sovétmenn reið-
ir vegna nýrra
NATO-eldfiauga
Viðbrögð Sovétríkjanna vegna
fyrirætlana um að setja sex hundruð
kjarnorkueldflaugar af meðalstærð
upp í Vestur-Evrópu verða stöðugt
harðari. Ætlunin er að þessar eld-
Andstaða gegn kjarnorkueldflaug-
unum er einnig mjög mikil á Vestur-
löndum. Andstæðingar þeirra eru
heldur ekki eingöngu meðal þeirra
sem eru andvígir herbúnaði yfirleitt
Brésnef forseti Sovétríkjanna býður að tuttugu þúsund hermenn og eltt þúsund
sovézkir skriðdrekar verði dregnir frá Austur-Þýzkalandi.
flaugar af Pershing II gerð og einnig
eldfiaugar, sem skotið er af jörðu
niðri, beinist að sjálfsögðu gegn skot-
mörkum í Sovétrikjunum.
Nýverið birtist grein í sovézka
blaðinu Isvestia, þar sem varað var
við að gera alvöru úr niðursetningu
eldflauganna með kjarnorkuhleðsl-
unum. Slíkt mundi rugla mjög því
jafnvægi sem greinarhöfundur sagði
að tekizt hefði að ná í vígbúnaði
Sovétríkjanna og Vesturveldanna.
heldur einnig hermálasérfræðingar í
Vestur-Evrópu. Rökin gegn kjarn-
orkueldflaugunum eru meðal annars
þau að kjarnorkuvopn sem sett verði
upp i Vestur-Evrópu minnki í raun
varnargildi slíkra vopna. Ef slík vopn
verði staðsett þar muni það nefnilega
óhjákvæmilega leiða til þess að ríkin
þar verði mjög treg til að grípa til
þeirra vegna þeirra gjöreyðingarafia
sem þá yrðu leyst úr læðingi. Einnig
mundu slíkar eldflaugar, að mati
gagnrýnenda þessara hugmynda,
verða til þess að Sovétríkin munu
setja upp sams konar kjarnorkueld-
fiaugar til varnar og til hugsanlegra
árása á V-Evrópu. Staðan verði þá sú
sama og áður hvað varðar jafnvægi
um vopnabúnað.
f Isvestia segir að með því að slíkt
ástand skapist muni þau ríki Vestur-
Evrópu sem eru í Atlantshafsbanda-
laginu alls ekki finna sig á neinn hátt
öruggari en áður heldur þvert á móti.
Einkum mun það vera þrýstingur
frá bandarísku stjórninni sem veldur
hugmyndum um að setja hinar
meðaldrægu kjarnorkueldfiaugar
upp í Vestur-Evrópu. Rök aðila
vestra eru þau meðal annars að brýna
nauðsyn beri til að færa vopnabúnað
Vestur-Evrópuherja í nútimahorf.
Þar sem tiltölulega litlar breytingar
hafi orðið á herjum Atlantshafsríkj-
anna þar á undanförnum árum séu
hernaðaryfirburðir Sovétríkjanna
orðnir verulegir í þessum heimshluta.
Svo furðulegt sem það má teljast
eftir allt fjaðrafokið sem verið hefur
vegnaSalt II samkomulags Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna, þá ná fyrir-
hugaðar meðaldrægar kjarnorkueld-
fiaugar ekki til efnis þess samnings.
Hann er þó einkum ætlaður til að
draga úr kjarnorkuvígbúnaðar-
kapphlaupi risaveldanna tveggja.
Herfræðingar í Bandaríkjunum og
þeir sem eru á þeirri skoðun benda á
að Sovétríkin séu nú í óðaönn að
endurnýja kjarnorkuvopn sin, sem
nota megi gegn Vestur-Evrópu. Ekki
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979.
Carter Bandaríkjaforseti telur nauó-
synlegt að endurnýja vopnabúnað
herja Atlantshafsbandalagsins i
Vestur-Evrðpu.
sé því um annað að ræða en koma
upp nútímavopnum sem unnið geti
gegn hinum nýju vopnum Sovétríkj-
anna.
Gagnrýnendur stefnu Bandaríkj-
anna halda því margir fram að þrýst-
ingur sem beitt er núna til að fá ríki V-
Evrópu til að taka við þessum kjarna-
eldfiaugum sýni aðeins veikleika
stjórnar Jimmy Carters Bandaríkja-
forseta. Vilji hann með þessu sýna
fram á styrkleika sinn og með því
eiga frekar tækifæri á að koma full-
gildingu Salt II samningsins i gegnum
öldungadeild þingsins í Washington.
Þetta geri Bandaríkjaforseti þrátt
fyrir að uppsetning meðaldrægu eld-
flauganna gangi þvert á hugmyndir
Salt II samkomulagsins.
Bandarikjaforseti hefur bent á að
Sovétríkin séu nú að auka kjarnorku-
eldfiaugastyrk sinn sem beinist að
Vestur-Evrópu. Þess vegna sé ekki
annað hægt en grípa til sams konar
aðgerða. Siðan megi ræða við Sovét-
ríkin um jafnhliða samdrátt á eld-
fiaugunum i viðræðum sem þegar er
farið að undirbúa og eiga að hefjast
um leið og Salt II samkomulagið er
gengið formlega í gildi.
Síðastnefnda atriðið kom fram er
Jimmy Carter var spurður um af-
stöðu sína til tilboðs Brésnefs forseta
Sovétríkjanna um samdrátt í vígbún-
aði rikis hans í Evrópu. Sagðist
Brésnef vilja draga 20 þúsund
sovézka hermenn frá Austur-Þýzka-
landi auk eitt þúsund skriðdreka.
Einnig mundu Sovétríkin láta hjá líða
að endurnýja þær kjarnorkueldflaug-
ar sem beina mætti að Vestur-Evrópu
gegn því að Atlantshafsbandalagið
hætti við fyrirætlanir um að staðsetja
meðaldrægar kjarnorkueldflaugar i
Vestur-Evrópu.
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
sagði þó að tilboð Sovétrikjanna
mundi verða athugað vandlega af
hernaðarsérfræðingum vestra.
JARÐARFÖR
VERÐBÓLGUNNAR
Flestum myndi bregða nokkuð, ef
skýrt væri frá, að verðbólga væri úr
sögunni. Tilkynningin gæti verið svo-
hljóðandi: Verðbólgan er látin og
hefur jarðarförin farið fram. Við-
staddir útförina voru nokkrir nánir
aðstandendur og vinir svo sem ríkis-
-.jórn, þingmenn, verkalýðsfor-
ingjar, stjórn Seðlabanka, auk nokk-
urra skuldakónga.
Auðvitað er þetta sett fram hér í
gamni, en samt fylgir þessu alvara.
Verðbólgan er óþörf í þeim mæli,
sem við látum hana blómstra hér hjá
okkur á íslandi og koma þarf á sam-
komulagi allra stjórnmálaflokka um
að draga úr henni, þótt seint verði nú
sigrazt svo á henni, að tala megi um
að hún hafi verið jörðuð fyrir fullt og
allt.
Vinir verðbólgunnar
Ég nefndi hér að framan vini verð-
bólgunnar. Þótt það sé nú að ein-
hverju leyti ofmælt að stimpla einn
frekar en annan vin verðbólgunnar,
myndi hún ekki vaxa árum saman
með auknum hraða, ef allir væru í
raun og veru andvígir henni. Hún á
marga vini. Þeir eru fáir eða engir í
orði, en þeim mun fieiri leggja henni
lið á borði með einum eða öðrum
hætti.
Gervikaup-
hækkanir
Ég sá það í blöðunum að bráðum
fáum við kannski gervigras á Laugar-
dalsvöll. Þetta á vel við á öld gervi-
efna og gervimennsku. En það sprett-
ur fieira en gervigras. Stærsta blekk-
ingin í verðbólgukapphlaupinu eru
kauphækkanir, sem svo eru
kallaðar, en eru í raun og veru gervi-
kauphækkanir. Lítið skeður annað
en það, að krónan okkar verður
minni og minni, en allir standa í
sömu sporum með kjör sín. Þau
batnalitið.
Enginn má skilja orð min þannig,
að ég sé á móti kjarabótum. Ég er
með þeim. Ég vil raunverulegar
kjarabætur, en ekki gervikauphækk-
anir og gervikjarabætur.
Verð vfnar-
brauðsins
Á árunum fyrir síðasta stríð
kostaði vínarbrauðið 10 aura. í dag
kostar þetta sama vínarbrauð kr.
120,00. Það kostar því 1200 sinnum
meira.
Nú hefur vínarbrauðið lítið
breytzt. Við höfum ekki enn fundið
upp gervivínarbrauð. Sumir segja, að
vínarbrauðið sé orðið verra en áður
og auk þess hafi það minnkað. Þetta
mun nú nokkuð fara eftir því, hver
bakar og selur. í heild hefur vínar-
brauðið verið einsí síðustu 40 ár.
Ef vínarbrauðið kostar nú 1200
sinnum meira en áður er það augljóst
mál, að það er einungis krónan sem
hefur fallið og orðið minni, en vínar-
brauðið stendur i stað.
Ef ný króna verður 1200 sinnum
stærri, kostar vínarbrauðið aftur 10
aura og allt er orðið eins og fyrir 40
árum.
Lrfskjarasjóður
í staðinn fyrir gervikjarabætur og
gervikauphækkanir þurfa að koma
kjarabætur úr sjóði, sem ég vil kalla
lífskjarasjóð. Þar væri um kjarabæt-
ur án verðbólgu að ræða óg einnig
væru þetta ekki gervikjarabætur. Úr
þessum sjóði vil ég greiða öllum
jafnt, bæði háum og lágum.
En hvar á að fá tekjur í lífskjara-
sjóðinn? Fátt verður til úr engu og
tekjur þurfa fyrst að koma í slíkan
sjóð, áður en úr honum er hægt að
greiða.
í stórum dráttum vil ég afla tekna
með því að koma á aukinni arðsemi i
einni eða annarri atvinnugrein. Með
því kæmi fram fjármagn sem Ieggja
mætti í lífskjarasjóð og skipta milli
allra fslendinga.
Dæmi úr
sjávarútvegi
Við vitum að arðsemi sjávarútvegs
máauka með ýmsu móti. Talað hefur
verið um fækkun skipa til að stækka
sem fyrst þá fiskistofna, sem eru
• „! staöinn fyrir gervikjarabætur og gervi-
kauphækkanir þurfa að koma kjarabæt-
ur úr sjóði, sem ég vil kalla lífskjarasjóð.”
N
Kjallarinn
Lúðvík Gizurarson
ofveiddir. Þá gefa þeir fljótt meiri
arð.
Ekki er lagður dómur á slíkar ráð-
stafanir, en tækni í stjórnun hefur
aukizt og með notkun á tölvum má
ná markmiðum, sem voru áður fjar-
læg og óviðráðanleg. Við ættum að
geta verið sammála um það íslend-
ingar, að taka höndum saman um
ráðstafanir sem auka arðsemi, ef
tekjur af slíkum ráðstöfunum kæmu
til skipta jafnt milli allra íslendinga
án verðbólgu.
Landhelgin
Aukin arðsemi í sjávarútvegi
kemur fljótt til vegna stækkunar
landhelgi einnar, þótt ýmsar hliðar-
ráðstafanir gætu fiýtt þar fyrir, svo
sem getið hefur verið.
Ef kerfið er óbreytt, hækka laun í
sjávarútvegi með auknum arði. Á
eftir koma svo aðrir og verðbólgu-
kapphlaupið fær endurnýjaðan
kraft.
Með skattlagningu þessarar auknu
arðsemi og greiðslum á slikum skatti í
lífskjarasjóð, sem kæmi til skipta til
allra landsmanna jafnt, má forða
slíku.
Lúðvík Gizurarson
hæstaréttarlögmaður.
NIDURINAUST1NU
Húsmóðirin Jóna Jónsdóttir náði í
strætisvagn rétt utan við húsið.
Það var langt síðan Jóna hafði
notað strætisvagnana. Fjölskyldan
átti litla mjólkurpútu, sem allir
notuðu í snattið. En í kvöld ætlaði
Jóna ekki að nota bílinn. Hún hafði
aðrar ráðagerðir í huga.
Síminn á torginu
Meðan uppgjör um pólitíkina, sem
ég nefndi í fyrri grein í DB, fór fram
við furuborðið í eldhúsinu, sló ein-
hverju niður í huga Jónu. Hún gerði
sér ekki alveg ljóst hvað var að ger-
ast. En uppsteytur dótturinnar
Gunnu á heimili hennar vakti hjá
henni einhverjar kenndir sem hún gat
ekkiáttaðsigá.
Þó að Jóna væri róleg á yfirborð-
inu, var hún núna dálítið rugluð.
Þegar hún sat i strætisvagninum vissi
hún varla hvert hún var að fara. Þó
hafði hún hugsað sér að nota almenn-
ingssímann á torginu.
Þegar hún kom í símaklefann varð
ekki úr því að hún hringdi, heldur
leitaði hún aðeins að heimilisfangi
Pálínu. ,,Ég fer bara til hennar upp á
von og óvon,” hugsaði Jóna. Síðan
gekk hún út úr símaklefanum og yfir
á bilastöðina handan götunnar.
Við skulum
drrfa okkur
Pálína kom til dyra. Hún horfði á
Jónu svolitla stund án þess að þekkja
hana. Allt í einu rann upp fyrir henni
ljós. Svipurinn varð að samblandi
undrunar og gleði. Báðar konurnar
virtust vera orðlausar.
Allt í einu sagði Pálina: „Hvað ert
þú að gerahér?”
„Það kom dálítið fyrir heima,”
sagði Jóna.
Þær höfðu ekki sést í 15 ár eða
meira. Þegar Jóna gifti sig hvarf hún
eins og ungt fólk gerði á þeim tíma.
Fyrst varð að byggja og svo fóru
börnin að fæðast. Þegar rofaði til
voru hlutirnir ekki eins og áður.
Margir reyndu að taka upp þráðinn
Seinni hluti
aftur en þá var komið nýtt fólk og
allt hafði breyst.
Núna sátu þær Jóna og Pálína í
eldhúsinu hennar Pálínu og drukku
kaffi. Þeim var í fyrstu svolítið stirt
um málið. Þetta var eins og gömul
vél sem ekki hefur verið smurð lengi.
„Þetta dugar ekki,” sagði Jóna
allt í einu. ,,Við skulum drífa okkur
niður i Naust.”
Þjónninn hváði
Þær voru að afhenda kápurnar
sínar i fatageymslunni í horninu. Það
heyrðist kliður að ofan og matarlykt
lagði neðan úr salnum.
Jónu fannst eitthvað streyma um
sig, niður eftir bakinu og út um hand-
leggina. í höfði hennar þyrluðust
skipulagslausar hugsanir sem hún
réð ekki við.
Þegar hún stóð neðan við stigann
sagði hún allt í einu ósjálfrátt og
stundarhátt: ,,Hve fagurt var þá
liðnu daga. Lífið.” „Þetta er Ehren-
burg,” hugsaði hún upphátt, en
þjónninn sem kom upp úr salnum
hélt að hún væri að tala við sig og
hváði. En Jóna sá ekki þjóninn sem
leit á klukkuna og tautaði: ,,Að fólk
skuli koma svona drukkið, og klukk-
an ekki nema níu.”
Veggirnir tala
,,Við förum upp,” sagði Pálína.
Þær fóru ekki á barinn, sem er rétt
fyrir ofan stigann. Þær gengu þegj-
andi inn í hornið og fundu þar sæti.
Þær höfðu ætlað að tala en nú þögðu
báðar. Gamlar minningar var ekki
hægt að klæða í fátækleg orð. En
veggirnir og borðin töluðu á hljóðlát-
an hátt. Og í höfði þeirra Jónu og
Pálínu söng sama orðið: „Manstu,
manstu.”
Fullorðinn þjónn kom til að sækja
tóm glös. Þjónninn leit á þær stall-
systur og það var eins og eitthvað
væri að brjótast um í svip hans. Allt í
Kjallarinn
Hrafn Sæmundsson
einu rann upp Ijós fyrir honum.
Hann hneigði sig og sagði: ,,Ef ég
man rétt, drekka þessar dömur
aðeinsgosdrykk.”
Skálaferðirnar enduðu oft í Naust-
inu og þá var „menningin” ekki á
hærra stigi en það að unga fólkið
drakk aðeins gosdrykk. Áfengi var
bannað í ferðalögum og sú kynslóð
sem kom í Naust eftir ferðalag út í
bláinn ætlaði að frelsa heiminn.
Undir súð
í Naustinu speglast hluti mannlífs-
ins. Uppi undir súðinni safnast fólk
saman. Þetta er að stórum hluta ein-
mana fólk. Sömu andlitin sáust eftir
tuttuguár.
En það var líka komið þarna ungt
fólk á gallabuxum sem sat á barnum
og drakk. Kannski var þetta unga
fólk líka einmana þó að það væri
ungt og ætti lífið framundan. Kann-
ski átti það ekki til mikla trú á þetta
líf sem það var að hefja.
Og það voru einnig útlendingar í
Naustinu. Líklega komu þeir þarna
af því að undir súðinni er andrúms-
loft þeirrar kráarmenningar sem alls
staðar er hægt að ganga að á megin-
landinu.
íslendingar hafa þróast burt frá
þessari menningu. Á íslandi eru
flestir hlutir gljábónaðir og umgerð
skemmtanalífsins er ópersónuleg og
kynlaus. Líklega er Naustið eini
staöurinn þar sem fólk getur talað
saman vegna hávaða og setið í næði
yfir glasi sínu.
Á danskri tungu
Nokkrir Sviar sátu við borð. Þeir
voru með drykk i glösum. Útlend-
ingar sitja gjarnan með sama drykk-
inn allt kvöldið.
fslenskur rithöfundur settist hjá
Sviunum og byrjaði að skýra frá ýms-
um staðreyndum á danskri tungu.
Þetta voru dálítið grófar staðreyndir
og Svíarnir tæmdu fljótlega glösin sín
og yfirgáfu staðinn.
Snarlegur maður reis allt i einu úr
sæti sínu og hélt ræðu: ,,Þegar Guð-
jónsen kemur til helvitis, þá segir
andskotinn: Nú er ég farinn.” Eng-
inn hló. Líklega höfðu menn heyrt
brandarann áður.
Lítill neisti
Og þannig leið kvöldið.
Pálína og Jóna sátu lengst af þegj-
andi. Þær fengu að vera óáreittar,
nema þegar miðaldra menn sem
komnir voru í stuð vildu ræða málin
nánar og fullorðnir herrar könnuðu
þessi glæsilegu mið.
Allt í einu sagði Jóna: „Getum við
ekki byrjað aftur?”
„Ég held það,” sagði Pálina. „En
við verðum að taka málið upp á
öðrum vettvangi. Gömlu dagarnir
komaekkiaftur.”
„En við erum ungar. Við erum enn
mjög ungar,” sagði Jóna.
Á þessu kvöldi hafði eitthvað
gerst. Kannski var það meira en
sýndist á einföldu yfirborðinu. Kann-
ski hafði lítill neisti kveikt í gömlu
púðri.
Hrafn Sæmundsson