Dagblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979.
MIKIL LEYND YFIR
VETRARDAGSKRÁNNI
Ólafur R. Einarsson formaður út-
varpsráðs tjáði DB ekki alls fyrir löngu
að fyrirhugað væri að hafa samfellda
tónlist frá kl. 1—4 á daginn og sleppa
þar með föstum póstum eins og popp-
hornum eða láta þau renna í bland
þessara vinnulaga.
Gert er ráð fyrir að þessi breyting
verði með tilkomu vetrardagskrár sem
hefst 27. október n k. Marta Thors
hefur þetta skipulag með höndum en
hún er starfsstúlka i tónlistardeild út-
varpsins.
Marta sagði í samtali við DB að þessi
dagskrá væri enn í smíðum og vildi þvi
ekki segja neitt hvernig þetta kæmi til
með að vera. Marta var að því spurð
hvort útvarpsráð ætti eftir að taka sína
ákvörðun. „Bæði og,” sagði hún en
vildi ekki „auglýsa” það nánar eins og
hún orðaði það.
Mikil leynd virðist hvíla yfir vetrar-
dagskrá útvarpsins og hefur því reynzt
mjög erfitt að fá nokkrar upplýsingar
um það mál. Útvarpsráð mun á fundi
sinum í dag væntanlega fjalla um
DB-mynd: Bj. Bj.
V.___________________
ORKA—sjónvarp kl. 20.35:
vetrardagskrána og er vonandi að al-
menningur i landinu fái að vita eitthvað
áður en langt um líður. Maður gæti
álitið að einhverra stórtíðinda væri að
vænta. . . Eða er hér aðeins um einka-
mál útvarpsins að ræða? -ELA.
Ómar Ragnarsson fréttamaður stýrir umræðum um stjórnmálaástandið I landinu I
umræðuþætti í sjónvarpi i kvöld.
UMRÆÐUR—sjónvarp kl. 21.45:
r
Hvernig skal draga ur RITSTJORAR
hitunarkostnaði
Magnús Bjarnfreðsson mun fræóa og Magnús Torfi Ólafsson flytur erindi
okkur um inniend orkumál i sjónvarpi f um alþjóðleg orkumál f útvarpi.
kvöld....
Orka nefnist þáttur sem sjónvarpið
sýnir í kvöld kl. 20,35. Sá þáttur er í
umsjá Magnúsar Bjarnfreðssonar.
Fjallar hann um aðferðir til að bæta
einangrun húsa til að draga úr hitunar-
kostnaði. Þátturinn er tuttugu mín.,
langur.
Orkumál hafa verið ofarlega á baugi
síðustu vikurnar og verða sennilega
eitthvað áfram. í síðustu viku sýndi
sjónvarpið tvo þætti um orkumál.
Annar var frá Tvind-skólanum í
Danmörku en hinn endurtekinn þáttur
Magnúsar Bjarnfreðssonar frá því i
mai um orkunotkun og innlendar orku-
lindir.
Útvarpið virðist einnig hafa áhuga
fyrir orku því i kvöld kl. 19,35 mun
Magnús Torfi Ólafsson flytja erindi um
alþjóðleg viðhorf í orkumálum.
Einhvers ættum við þvi að verða vísari
um orkuna eftir að hafa hlýtt og horft á
alla þessa þætti.
-ELA
FLOKKSBLAÐANNA
— ræða um stjómmálin íbeinni útsendingu
UTVARPSSAGAN - útvarp kl. 20.30:
DÓTTIR MARX 0G SÓSÍAUSK
BARÁTTA HENNAR
Um þessar mundir er Sveinn Ásgeirs-
son hagfræðingur að lesa þýðingu sína
á Ævi Elenóru Marx eftir Chushichi
Tsuzuki. Sveinn les valda kafla úr
þessari bók. AIls verða lestrarnir 12 og
er það u.þ.b. einn þriðji úr bókinni sem
Sveinn les.
Ævi Elenóru Marx fjallar að mestu
um einkabréf hennar og skjöl. Hún
barðist mikið fyrir sósialismaí anda
föður síns, Karls Marx. Hún háði mjög
erfiða baráttu í sínu einkalífi og í bók-
inni er vitnað töluvert í bréf sem hún
sendi systur sinni, Láru, og sem hún
fékk frá henni.
Bókin hefur ekki verið gefin út í
íslenzkri þýðingu en hún er 300 bls. að
stærð. Enska sjónvarpsstöðin BBC
hefur gert myndaflokk um ævi Elenóru
og sagði Sveinn að hann hefði látið
íslenzka sjónvarpið vita um þá þætti.
Sveinn sagðist hafa séð þessa bók
erlendis á sínum tíma í London og hafi
hann þýtt hana úr ensku. Sjálfur
höfundur bókarinnar, Chushichi
Tsuzuki, er japanskur. Lestur sög-
unnar í kvöld hefst kl. 20,30 og er það
annar lestur.
-ELA.
Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur les i kvöld annan lestur þýðingar sinnar i Elenóru
Marx.
Ómar Ragnarsson fréttamaður er
með umræðuþátt í sjónvarpi í kvöld kl.
21.45. Að þessu sinni mun Ómar leiða
á sinn fund ritstjóra pólitísku dagblað-
anna. Umræðuefnið verður að sjálf-
sögðu stjórnmálaástandið i landinu og
það sem því fylgir. Efþættinum svipar
eitthvað til Kastljóssþáttarins á föstu-
dag megum við eiga von á þrælgóðum
þætti. Stjórnandi útsendingar er
Þrándur Thoroddsen. Þátturinn er
klukkustundar langur. -ELA
UTB0Ð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í að
reisa stöðvarhús II og byggja spennistöð í Svarts-
engi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja Vesturbraut 10A Keflavík og
Verkfræðistofunni Fjarhitun Álftamýri 9
Reykjavík frá og með þriðjudeginum 16. október
gegn 75 þúsund króna skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja 5.
nóvember 1979 kl. 14.
Danskir skápalampar
Verð:
kr. 8.610.-
45 cm á lengd
Verð:
kr. 8.880,-
90cmðlengd
Raf
Kóp
Raftækjaverzlun
Kðpavogs hf.
Hamraborg 11 - Kópavogi, simi 43480.