Dagblaðið - 15.11.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
ísland er fullgildur
aðili aö INTERPOL
— og íslendingar
sitja ársþing,
Evrópuþing og
sérstaka fundi
alþjóda-
samtakanna
„ísland varð fullgildur aðili að
lnterpol — alþjóðlegum samtökum
lögregluyfirvalda árið 1970 og siðan
þá hafa íslendingar setið á ýmsum al-
þjóðaþingum samtakanna, sér-
stökum Evrópufundum og ýmsum
sérfundum innan INTERPOL,”
sagði Hjatli Zóphaníasson, deildar-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, í
viðtali við DB.
Hjalti kvað Jón Thors vera yfir-
mann þeirrar deildar er um mál
INTERPOI. fjallaði hér á landi og
hefði Jón setið flesta fundi alþjóða-
samtakanna allra íslendinga. Sjálfur
kvaðst Hjalti hafa setið eitt alþjóða-
þing, eitt Evrópuþing og setið sér-
stakan fund sem fjallaði um flugrán.
Þá hefði Ásgeir Friðjónsson saksókn-
ari setið fundi um fikniefnaglæpa-
mál, Sigurjón Sigurðsson lögreglu-
stjóri setið eitt þing og Þórir Oddsson
vararannsóknarlögrelgustjóri sér-
staka fundi um afmörkuðglæpamál.
„Við sendum ekki fulltrúa á öll
allsherjarþing samtakanna vegna
kostnaðar enda eru þau haldin vítt
ogbreitt um heimskringluna.”
Hjalti taldi beinan kostnað
íslendinga af aðild að Interpol nú
nema um hálfri annarri milljón króna
og kostnaður við þátttöku á fundum
og þingum lægi þar fyrir utan.
Hjalti kvað ótvírætt hagræði að
því fyrir Island að vera í þessum sam-
tökum. Meginstarf samtakanna
væri söfnun og veiting upplýsinga um.
afbrotamenn. Með einu telex-skeyti
mætti afla upplýsinga sem langan
tíma tæki að safna ella. Hefðu
íslenzk yfirvöld þó nokkrum sinnum
notfært sér þetta og eins hefðu þau
aðstoðað Interpol um upplýsinga-
söfnun og lýst hefði verið eftir
alþjóðlegum glæpamönnum hér og
yfirvöld hér vöruð við þeim.
Meginstarfslið Interpol er skrif-
stofulið með aðalstöðvar í Paris en
skrifstofur víðsvegar um heim. Lög-
reglulið hefur ínterpol ekki en þó var
tekin upp sú nýlunda að ráða sér-
staka lögreglumenn vegna afbrota á
Kkki er óliklegt að nafn einhvers Íslcndings og mynd af honum séu í þessu
myndasafni Interpol i Paris — landinn hcfur víða komið við.
sviði fíkniefnamála því afbrotamenn
á þvi sviði þykja vera sá hópur
manna sem sízt og minnst virðir
landamæri ríkja. Finnskur maður
gegnir þessu hlutverki á svæði því
sem ísland er á hjá Intcrpol.
Hjalti kvað samvinnuna við
Interpol vera hvað mesta á sviði
fíkniefnamála.
1 Interpol eru nú rúmlega 120
aðildarríki. Samtökin urðu 50 ára
1973 og í tilefni þess afmælis voru að
sögn Hjalta víða gefin út frímerki
eða afmælisins minnst á annan hátt,
sem sýndi að yfirvöld fjölmargra
þjóða virða vel þessi alþjóðasamtök.
Hjalti kvað kvikmynd þá er
sjónvarpsáhorfendum var sýnd af
starfsemi Interpol ekki gefa rétta
mynd af starfsemi samtakanna.
Nánast ný samtök hefðu risið upp af
rústum heimsstyrjaldarinnar og væru
enn að mótast og eflast að getu og
víðfeðmi í baráttunni við af-
brotafólk.
-A.St.
Þcir sem þátt lóku i Noróurlandakeppni í hárgreiðslu og skurði i Sviþjóð um síðuslu helgi. Talið frá vinstri, Sigurpáll,
Ástvaldur, Garðar, Jón, Rannveij;. Sólveig, Krislín og Brósi. Mynd þessi var tekin þegar keppendurnir voru kynntir á
Hótel Sógu fyrir mánuði.
Noröurlandamót í hárgreiöslu og skurði:
Island með mesta
stigafjöldann
tveir komust ífyrsta sæti
ísland var númer tvö í Norðurlanda-
keppni í hárgreiðslu- og skurði sem
fram fór í Norrköbing í Svíþjóð um
síðustu helgi. Fimm hárgreiðslu-
meistarar og þrir rakarar tóku þátt i
mótinu.
Rannveig Guðlaugsdóttir frá hár-
greiðslustofunni Perlu varð númer eitt
í framúrstefnugreiðslu og Sigurður G.
Benónýsson (Brósi) númer fjögur. I
klippingu og blæstri varð Sólveig
Leifsdóttir frá hárgreiðslustofunni á
Hótel Loftleiðum númer eitt og vann
hún þar með Norðurlandameistara-
titilinn af Brósa sem lenti í þriðja sæti.
íslendingar stóðu sig mjög vel i
keppninni og þegar stigin voru tekin
saman í lokin kom fram að ísland var
með langmesta stigafjöldann. öll
Norðurlönd tóku þá't í keppninni og i
fyrsta sæti í samanlögðu, þ.e.
klippingu og blæstri, galagreiðslu og
framúrstefnu varð Danmörk. Þar á
eftir kom island, eins og áður er sagt.
Keppendur eru ennþá ókomnir til
landsins og erfitt hefur þvi reynzt að fá
upplýsingar um hvaða lönd komu á
eftir Danmörku og íslandi.
Þeir sem þátt tóku í keppninni voru
7. nóvember sl. varð kona fyrir bíl
við gangbraut á Norðurfelli í
Breiðholti. Rakst hönd konunnar
harkalega í bílinn og við rannsókn í
slysadeild kom í Ijós að höndin var
brotin.
Bílnum, sem konan varð fyrir, ók
kona. Var bíllinn blár, líklega af
Sigurpáll Grimsson, Ástvaldur
Guðmundsson, Garðar Sigurgeirsson,
Jón Benediktsson, Rannveig Guðlaugs-
dóttir, Sólveig Leifsdóttir, Kristín
Hálfdánardóttir og Sigurður G.
Benónýsson.
Mazdagerð og með í-númeri. Konan i
bláa bílnum ók konunni, er fyrir bíl
hennar varð, á slysadeild en yfirgaf
hana þar og hefur ekkert látið í sér
heyra síðan. Lögreglan biður þessa
konu í bláa Mazda-bílnum með í-
númerinu að gefa sig fram. Síminn er
21633. -A.St.
Bláan Mazda bíl
með í-númeri vantar
Vilmundur í Bæjarútgerðinni:
Við eigum
að sprengja
— ríkisstjórnimar aftur og aftur ef þær
standa sig ekki
„Ég er þrítugur og hvað haldið
þið að ég hafi í laun fyrir það að
setjast þarna inn í ráðuneytið? Eina
milljón og fjögur hundruð þúsund á
mánuði. Þetta er fjórum sinnum
hærra, en verkafólk eins og þið berið
úr býtum. Þetta errangt.”
Vilmundur Gylfason, dóms- og
menntamálaráðherra, spjallaði við
starfsfólk Bæjarútgerðar Reykja-
víkur í gær og lýsti þar launamismun
þeim sem rikir í kerfinu og tók
sjálfan sig sem dæmi. Raunar er ekki
rétt að segja að Vilmundur hafi
spjallað, því matsalur BÚR er stór og
starfsmenn margir, þannig að hann
þurfti að kalla til þess að fólkið
heyrði. Og það gerði hann svikalaust
og skóf ekki utan af hlutunum frekar
en endranær.
,,Hvað vit er í visitölukerfi því
sem við búum við í 60% verðbólgu
þar sem verkafólk fær 30 þúsund kr.
kauphækkun á meðan ráðherrann
fær 120 þúsund? Það þarf að breyta
valdakerfinu. Raunvaxtastefnan er
rétt, en þó með þvi skilyrði að ríkis-
valdið reyni að hemja dýrtíðina. Þó
ganga raunvextir í 60% verðbólgu
ekki gagnvart unga fólkinu sem er að
byggja. Þess vegna verður að taka
þau lán út úr og hafa til lengri tíma.
En hverjir hafa fengið lánin? Eruð
það þið? Nei. Það eru þeir sem búa
til atvinnufyrirtækin og eiga skipin.
Þeir græða á verðbólgunni. Það er
eignafærsla frá sparifjáreigendum til
stóreignamanna. Ríka fólkið hefur
flotið ofan á hinu óhreina vatni verð-
bólgunnar og neikvæðu vaxta-
stefnunnar. Raunvaxtastefnan er
rétt, verðbólgan er röng. Þess vegna
eru kosningar nú.
Rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar
var mynduð á þrotabúi Geirs
Hallgrímssonar til bráðabirgða. Þeg-
ar hins vegar var litið til lengri tíma
náðist ekki samstaða. Við eigum að
sprengja ríkistjórnir aftur og aftur ef
þær standa sig ekki. Við hefðum get-
að setið í fjögur ár en við munum
sprengja aftur og aftur, þar til við
getum komið hingað og varið þá
ríkisstjórn sem við erum stoltir af."
Þá var Vilmundur spurður um
stjórnarmyndun eftir kosningar.
Verður viðreisn? Engin möguleiki var
útilokaður, en „stefna Sjálfstæðis-
flokksins er botnlaus og leifturstríð
útheimtir skriðdreka. En með Geir
Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen
í forystu þarf ekki að óttast. Þá má
nefna stjórnarmyndunina eftir
kosningarnar 1956. Fyrir þær hafi
Haraldur Guðmundsson gefið loforð
um að Alþýðuflokkurinn færi aldrei í
stjórn með kommúnistum. Tveimur
mánuðum síðar voru þessir flokkar
komnir saman í stjórn og Haraldur
varð að flytja til Noregs. Ég ætla mér
að búa áfram á íslandi.”
-JH.
Vilmundur þrumar yfir starfsmúnnum BUR: Er það réttlæti að cg fái 1.4
milljónir á mánuði — fjórfalt meira en þið? DB-mynd: Ragnar I h.