Dagblaðið - 11.12.1979, Page 1

Dagblaðið - 11.12.1979, Page 1
5. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER1979 - 275. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. [Framrókntegi^rframtill^ Stefnt að 2% kaup- skerdingu 1. marz félags- málapakki handahin- umlægst- launuðu —sjáhaksídu Sjónvarpinu neitad um afnot Akureyrarkirkju: „Viljumekki leikaraskap íkirkjunnr - segir sóknarprestur Sjónvarpinu var ekki heimilað að nota Akureyrarkirkju við töku myndarinnar Vandarhögg eftir Jökul Jakobsson. Sr. Birgir Snæbjömsson sóknarprestur sagði í viðtali við DB í morgun, að nokkurs misskilnings hefði gætt hjá fólki eftir að fjallað var um myndina í Akureyrarblaðinu íslendingi og talað um mynda- töku í kirkjunni. Ýmsir hefðu haldið að þar væri átt við Akur- eyrarkirkju. Hið rétta væri að beiðni sjónvarps um afnot af kirkju og kirkjugarði hefði verið synjað. Sóknarprestar og sóknarnefnd hefðu verið svo að segja einhuga í því máli. Hér væri um svo helga staði að ræða að ekki mætti ' annað fara fram þar en það sem væri í samræmi við boðun kirkjunnar. „Við viljum ekki vera með leikaraskap í kirkjunni,” sagði sr. Birgir. En aðalatriðið í þessu tilviki var það, að við vildum ekki veita fordæmið. í sjálfu sér var ekkert athugavert við það sem átti að mynda í kirkjunni, en hefðum við veitt leyfið hefði verið erfiðara að neita öðrum. ” Er það rétt að mynda hafi átt jarðarför gleðikonu? „Þeir báro á móti því að jarða ætti gleðikonu, en hins vegar átti að mynda hluta jarðarfarar og undirbúning hennar. Hins vegar var okkur fengið efni leik- ritsins.sem trúnaðarmál, þannig að ég get ekki greint frá þvi.” ,,Ég held,” sagði sr. Birgir, „að atriðið hafi verið myndað i Svalbarðskirkju á Svalbarðs- strönd.” -JH. Þeir voru hressir og glaðir, fulltrúar stjörnmúlaflokkanna, sem komu til stjómarmyndunarvið- rœðnanna l Þórshamri i gœr. Þar voru ú borðum pönnukökur og bakkelsi með kaffinu, sem þeir nafharnir Guðmundur J. Guðmundsson og Guðmundur G. Þórarinsson eru að gœða sér ú hér. DB-mynd: Hörður. Góðarundirtektir íKampútseu-söfnun: Konagaf hálfa milljón króna ,,Það er óhætt að segja að undirtektirnar hafi verið mjög góðar. Þannig gaf t.d. kona norðan úr landi 500 þús. kr. og hingað kom í gær maður með 100 þús. kr.,” sagði Guðmundur Einarsson, framkvæmdasljóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, er DB spurði hann í morgun hvernig söfnunin Brauð handa hungruðum heimi gengi. Fjölmargir komu i gær á skril - stofu Hjálparstofnunarinnar með framlög en ekki er Ijóst hversu mikið hefur verið greitt inn á gíróreikning. Þá hefur borizt jákvætt svar frá Kampútseu uni möguleikann á nýtingu mjólkurdufts þannig að við það aukast likurnar á þvi að mjólkurduft verði keypt hcr heima og flogið með það beint til Kampútseu. Allt ræðst þetta að sjálfsögðu af þeim undirtektum sem söfnunin fær. Þess má geta að verndari söfnunarinnar er dr. Kristján Eld- járn, forseti Islands. -GAJ. Metatvinnuleysi spáðá Vesturlöndum ánæstaári — sjá erl. fréttir ábls.6og7

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.