Dagblaðið - 11.12.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979.
DB á ne ytqndamarkaði
ANMA
BJARNASON
Hlutlausar upplýsingar um
verð og gæði byggingarefna
Bygginga-
þjónustan
flytur
umáramótin
Frá og með næstu áramótum
opnar Byggingaþjónustan, sem verið
hefur til húsa að Grensásvegi 11, i
nýju og rúmgóðu húsnæði 1 kjallara
Iðnaðarmannahússins að Hallveigar-
stíg 1. Sýnishorn byggingarefna og
tækja verða þar flokkuð eftir
alþjóðlegu flokkunarkerfi, þannig að
auðveldara verður fyrir hönnuði og
almenning að bera saman hin
einstöku efni. Verða t.d. öll gólfefni í
sérdeild, þakefni í annarri o.s.frv.
Byggingaþjónustan mun einnig veita
upplýsingar um hvort ný byggingar-
efni hafa hlotið tilskilda innlenda
viðurkenningu. Verður einnig lögð
aukin áherzla á að hafa jafnan
sambærilegt verð fyrir hendi þannig
að treysta megi verði og gæðum á
hverjum tíma.
Allar upplýsingar sem gefnar eru
hjá Byggingaþjónustunni eru hlut-
lausar og er aðgangur að sýningar-
s. t-Vrti 'vll'im heimill og ókeypis.
H nsnæðismálastofnun ríkisins
(> K.mnsókiia.siofimi byggingar-
iðnaóarins komu ul hðs við Arki-
tektafélag íslands um siðusiu iramót
og gerðu Byggingaþjónustuna að
sjálfseignarstofnun. Síðan hafa
Akureyrarbær, Félagísl. iðnrekenda,
Iðntæknistofnun íslands og Lands-
samband iðnaðarmanna lagt hönd á
vogarskálina til eflingar þessum
mikilvæga þætti og bættrar þjónustu
í húsnæðis- og byggingarmálum
þjóðarinnar.
20 ára þjónusta
Byggingaþjónustan var fyrst
opnuð almenningi árið 1959 að
Laugavegi 18a. Fimm árum síðar
flutti þessi þjónusta að Laugavegi 26.
Aðsókn var mikil, 25—30 þúsund
manns komu áriega.
Árið 1973 flutti Bygginga-
þjónustan enn og þá að Grensásvegi
II. Eftir það varð minni aðsókn að
sýningarsvæðinu en þjónusta
gegnum síma jókst að verulegu leyti.
í stjórn Byggingaþjónustunnar
eru nú Ólafur Sigurðsson arkitekt,
formaður, Guðmundur Gunnarsson
verkfr., forstöðumaður tæknideildar
Húsnæðismálastofnunar ríkisins og
Haraldur Ásgeirsson verkfræðingur,
forstjóri Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins. Framkvæmda-
stjóri er Ólafur Jensson.
-A.Bj.
Heitperu-
tertaíábæti
Einn af lesendum Neytenda-
síðunnar hringdi og gaf okkur eftir-
farandi uppskrift. Þetta er alveg
tilvalinn ábætisréttur en getur einnig
verið hentugur t.d. í saumaklúbbinn.
Heit peruterta
1 bolli hveiti
1 bolli sykur
1 egg
1/4 tsk salt
1 1/2 tsk lyftiduft
1/2 dós perur
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli kókosmjöl
Búið er til venjulegt hrært deig, —
perurnar eru látnar síðast út í deigið
Smyrjið eldfast mót og bakið kökuna
i því í 15—20 mín. við 200° C hita.
Borin fram strax með ísköldum
þeyttum rjóma. Hráefniskostnaður
er rétt um 1500 kr., og er þá reiknað
með einum pela af rjóma. -A.Bj.
ELDHÚSKRÓKURINIM
17
Hlutun og hagnýt-
ing á kálfakjöti
Kálfshöfuð eru notuð í svokallaða
skjaldbökulíkingu eða löguð úr þeim
suíta. Hálsinn og bógurinn er soðinn
og steiktur í ýmsa hádegisrétti, kjúkl-
ingalíkingu og gufusteikta kálfasteik.
Einnig notaður í kjötvinnslu. Skank-
arnir eru notaðir til að laga ljóst eða
brúnt kjötsoð, gufusteiktir, soðnir
nýir eða saltaðir. Framhryggur er
skorinn í kótelettur eða steiktur heill.
Einnig er hann úrbeinaður í ýmsar
pönnusteikur. Afturhryggur er ýmist
heilsteiktur eða notaður i pönnusteik-
ur. Bringan er ýmist soðin ný eða
söltuð, fyllt, gufusteikt eða notuð í
smásteikur. Slagið er notað í rúllu-
pylsu og ýmsa kjötvinnslu. Lærið
skiptist í þrjá aðalhluta: innanlærs-
vöðva, sem ýmist er sneiddur eða
steiktur heill, flatsteik, sem er heil-
steikt eða söltuð í álegg og klumpinn,
sem er steiktur heill, saltaður í álegg,
notaður í kjúklingalikingu, rjóma-
gúllas og fleiri rétti. Bein, brjóst og
fætur er notað til þess að búa til
kjötsoð.
Næst verður fjallað um notkun
nautakjöts.
Kálfakjöt er notafl i margvLslega rétti. Hausinn er
alveg tilvalinn i skjaldbökulikingu, sem er tUval-
inn veizluréttur.
DB-mynd Bjarnleifur.
^ráostefnusalur
f
PALLBOROI
í
./
UPPLÝSING AR
Llu h
■•czn
ouo
BÆKUR OG RIT
SÝNINGARSALUR
Nýja húsnæði Byggingaþjónustunnar er 540 fermetrar að flatarmáli. Nú verða öll byggingaefni flokkuð eftir alþjóðlegu
flokkunarkerfi en ekki eftir fyrirtækjum eins og verið hefur. Upplýsingar eru öllum heimilar og ókeypis.
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldiö?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi I upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von I að fá fria mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar.
Kostnaður í nóvembermánuði 1979.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö
kr.
Alls kr.
m t/Kiv
Fjöldi heimilisfólks