Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979. SIGUR EÐA OSIGUR? iD Guðmundur Jónsson skrifar: Hið furðulega hefur gerzt nú eftir nýafstaðnar alþingiskosningar að ýmsir úr hópi sjálfstæðismanna hafa borið sig heldur illa, hafa jafnvel talað um ósigur flokks síns. Fengu þeir þó einum þingmanni meira en í næstu kosningum á undan, en tveimur-fleiri, ef-JSggert Haukdal er talinn með. Þessa útkomii er því engan veginn unnt að túlka sem ósigur. Aftur á móti hefur það gerzt, sem marga undrar, að alþýðubandalags- menn tala um „sigur” í kosningun- um nú í desember og misstu þeir þó þrjá þingmenn í þeirri orrustu og töpuðu fylgi í öllum kjördæmum á landinu. Rétt er að sýna hér þróunina hjá kommum 1 stærsta kjördæminu, Reykjavík, í þrennum kosningum: síðustu Alþýðubandalagið tapaði fylgi f öllum kjördæmum 1 sfðustu kosningum. Raddir lesenda 1978 (borgarstjórnarkosningar) 13.862 atkvæði .1978 (alþingiskosningar) 12.016 atkvæði 1979 (alþingiskosningar) 10.888 atkvæði Eins og tölurnar sýna hafa kommar tapað hartnær þrjú þúsund atkvæðum á hálfu öðru ári í Reykja- vík. Sú spurning hlýtur þvi að vakna, hversu miklu fylgi kommar muni tapa á heilu kjörtímabili hér í Rvk., þ.e. fram að næstu borgarstjórnar- kosningum? LESTRAR I UTA A GÆÐASTIMPIA GAGNRYNENDANNA! Margaret Trudeau: I HRHINSKII.NI SAGT „Bókin er einstaklega opinská í frá- sögnum af kynlífi, fíkniefnum og hinu annálaða ævintýri með Rolling Stones.“ Winnipeg Free Press. „Hér eru eftirtektarverðar svipmyndir af frægu fólki: Kosygin, Chou en Lai, Karli Bretaprinsi, Castro o.fl. Þetta gerir bókina í senn fróðlegan og skemmtilegan lestur sem maður getur ekki slitið sig frá.“ The Globe & Mail. Bente Clod: UPPGJÖR „. . . Þessi bók er full af hugrekki, lífskrafti og ritfæmi.“ B.H.N./ Kvinden og samfundet. „Bente Clod. . er trú eigin tilfinning- um og ákaflega heiðarlegur höfundur . . . Lesbísku ástarsambandi lýsir Clod ágætlega. Best tekst henni samt að lýsa einmanaleik konu sem frjálsar ástir gera að tilvonandi móður. ... UPPGJÖR er þroskasaga ungrar konu sem reynir margt,... rithöfund- ur sem auðnast að túlka bældar hugsanir margra kvenna með þeim hætti að allir hafa áhuga á að lesa.“ J.H./Morgunblaðið. Susan Isaacs: AFHJÚPUN „AFHJÚPUN er bráðskemmtileg saga. Hér er gamansemin þyngri á metunum en lýsing morðs og myrkra- verka, kynferðiseggjunin fyrirferða- meiri en glæpurinn sjálfur.“ J.B./ Review. „Judit Singer sem segir söguna er gædd einstæðri kímnigáfu. Hún veitir bókinni sjarma sem á ekki sinn líka.“ The San Diego Union. „. . . og veitir lesandanum blátt áfram frábæra skemmtun. Ómót- stæðileg afþreying.“ Book-of-the Month Club. Hammond Innes: FÍLASPOR „Sagan er einarðleg, trúleg, litrik og kraftmikil. Hammond Innes er frásagnameistari." The Times. „Afburðasnjöll saga“ Daily Mail. Alistair MacLean: KAFTEINN COOK „Frásögn höfundar af lífi og starfi Cooks er skemmtileg, afar lifandi og full af nýjum hugmyndum. Þetta er ekki sagnfræði í venjulegum skiln- ingi, öllu heldur það sem stundum er kallað „alþýðleg sagnfræði", þ.e. fjallað um sögulegt efni á einfaldan hátt . . . að öllu samanlögðu sýnist mér þetta hið fróðlegasta rit.“ J.Þ.Þ./Tíminn. „í bókinni eru margar eftirprentanir mynda sem gerðar voru í ferðum Cooks og er bókin ekki síst eiguleg af þeim sökum.“ J.H./Morgunblaðið. Brian Callison: ÁRÁSí DÖGUN „Brian Callison leiðir hér fram afar fjölbreytilegar manngerðir í herliði, og saga hans er þrungin af gífurlegri spennu.“ New York Times Book Review. Phyllis A. Whitney: ELDUR „Afbragðsgóð blanda af spennu og rómantík.“ Manchester Evening News. „Phyllis A. Whitney er einstakur höfundur.“ Baptist Times. „Höfundurinn rígheldur athygli lesandans frá fyrstu síðu til þeirrar síðustu." The Lady. Dea Trier Merch: KASTANlUGÖNGIN „Það er dásamleg bók sem Dea Trier Morch hefur samið. ... Það er langt síðan ég hef lesið eins sanna og heiðarlega bók fullorðins manns um böm.“ Eigil Söholm. „Ogleymanleg og óviðjafnanleg. Þetta er bók um lifið, - þetta er bók um dauðann. Maður lokar henni með djúpri þökk, og skilur betur hinar björtu og dökku hliðar tilverunnar ... Þena er meistaraverk. Dea Trier Morch er mikið skáld.“ B.T. Bris. „Grafikmyndir höfundar eru margar í bókinni og hver annarri betri ... Þær einar væru nóg rök til að hvetja alla að eignast þessa bók. Og þá er ógetið þýðingarinnar. Ólöf Eldjám hefur unnið mikið ágætisverk.“ H.P./ Helgarpósturinn. „ . . . elskuleg bók sem yljar notalega um leið og hún veitir ósvikna skemmtun." H.K./Tíminn. Adam Hall NJÓSNIR í BERLÍN Mary Stewart: KRISTALSHELLIRINN „í sem stystu máli sagt: Mary Stewart segir hér undursamlega sögu.“ The Times. „Heillandi saga sem heldur hug lesandans föngnum frá upphafi til enda.“ The Scotsman. „Ef þú vilt njóta þess að lesa sögu, sökkva þér niður í hana, - og ef þú þar að auki myndir ekki lesa nema eina bók á ári, - þá er það þessi.“ Daily Mirror. Alistair MacLean: ÉG SPRENGI KLUKKAN 10 „Nýr stórsigur MacLean. Aðdáend- um hans er hér boðin ósvikin skemmtun." Pittsburgh Press. „MacLean hefur aldrei verið betri.“ Books and Bookmen. „Sennilega hefur aldrei verið rituð skáldsaga sem er meira spennandi en þessi.“ Manchester Evening News. „Einstæð og ósvikin spennusaga um njósnir“ Observer. „Ein af allra fremstu njósnasögum eftir stríð.“ New York Times. „Nákvæm saga, lýsir glögglega hvernig njósnarar starfa, einstæð bók,“ Spectator. „Afburðavel rituð, stórsnjöll í hverri grein.“ Spectator. „Fáar njósnasögur er hægt að lesa tvisvar. Þetta er ein þeirra.“ Books and Bookmen. Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156 • iöumMv Spurning dagsins Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Sveinbjöm Bjarnason:Rafmagnsbíla- braut. Þurlður Jóhannsdóttir: Skiði og skiða- galla. Asta Rósa MagnósdóttirSkiði, skíða- galla og myndasögubækur. Elin Hanna Slgurðardóttir: Baby AUan dúkku sem borðar. Liney Marinósdótlir: Ýmislegt, til dæmis skíðagalla og bækur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.