Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 5
5 \ DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979. Víst var Rússagullið til: ISLENZKIR KOMMUNISTAR FENGU PENINGA AÐ UTAN — beint frá ráðstjórninni í Moskvu, segir í bók Þórs Whitehead um kommúnistahreyfinguna „Gögn Kommúnistaflokks Íslands og alþjóðasamtakanna, sem sá flokk- ur laut, liggja ekki á lausu. Var því ekki um annað að ræða en að styðj- ^ast við prentaðar heimildir og samlöl við nokkra menn sem gegndu trún- aðarstörfum i flokknum. Tóku þeir mér allir vel og greiddu gölu rnína.” Svo segir Þór Whitehead sagn- fræðingur i formála fyrir bók sinni um Kommúnistahreyfinguna á íslandi 1921 —1934 sem Menningar- sjóður hefur nú gefið út. Stofninn í ritinu kveður höfundur vera B.A.-ritgerð í sagnfræði, sem hann lagði fram í Háskólanum 1970. Þórhallur Vilmundarson er ritstjóri ritraðarinnar, sem bókin er i. Meðal annars má lesa eftirfarandi í bókinni: ,,...! hinn „sameiginlega sjóð” runnu aðeins tekjur úr einni átt, frá ráðstjórninni i Moskvu, en þaðan var fénu dreift i margvíslegri mynd til allra deilda Kominterns. Þótt ekki sé vitað, hversu mikið fé kom í hlut Íslandsdeildarinnar, má fullyrða, að það hrökk hvergi fyrir útgjöldum hennar. Hér er bæði átt við þann beina fjárstyrk, sem á tímabili fór um hendur Signe Silléns, svo og ýmsa óbeina fyrirgreiðslu. Þótt „Rússa- gullið” kæmi sér vel, urðu flokks- félagarnir að taka á sig tiitölulega þungar byrðar af sínum litla mætti .... Hér er því beinlinis haldið franí ög fyrir þvi bornar heimildir, að Islands- deild Komintern hafi þegið styrktarfé erlendis frá. Nokkru frekar er unt styrkinn fjallað og fólk er við sögu kemur að flytja hann tii jslands. Félagatal er rakið og sillhvað l'leira sem er athygli verl. - BS Hafskip kaup- ir m/s Borre „Við gátum tilkynnt Fred Olsen skipafélaginu í gær að við hefðum aflað allra nauðsynlegra leyfa hér til þess að ganga frá samningi um kaup á fljótfermisskipinu ms. Borre,” sagði Ragnar Kjartansson, framkvstj., Haf- skips hf. í viðtali við DB. Frá þessu var skýrt á fjölmennum kynningarfundi Hafskips hf. á Hótel Sögu á þriðjudagskvöld. A fundinunt voru kynnt störf Hafskips, staða félagsins i fjölmörgum málurn og nteiri háttar ákvarðanatökur. Ein þeirra var sú að ganga nú, að nauðsynlegum leyf- um fengnum, til samninga um kaup á áðurgreindu skipi. Hafskip hafði skipið á þriggja mánaða leigu með forkaupsrétti. Þeim leigutima er nú lokið og var eigendunt skipsins lilkynnt ákvörðun stjórnar Hafskips. Ms. Borre er með opnanlegan skut og síðulúgum, með 2.800 tonna burðargetu, byggt 1970 og brennir svartoliu. -BS. Nýtt skip i islenzka kaupskipaflotanum, ms. Borre, sem Hafskip hf. hefur fengið öll nauðsynleg le.vfi til að kaupa af Fred Olsen-skipafélaginu I Noregi. Unnið á ný í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og á Kirkjusandi: r ENGINN VERTIÐ- ARKRAFTUR í FRAMLEIÐSLUNNI „Við höfunt unnið síðan á ntánu- daginn og búumst við að geta haldið frantleiðslu áfram a.m.k. út desent- berntánuð,” sagði Rikharður Jóns- son, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- hússins Kirkjusands, við Dagblaðið. Vinna lá niðri i 3 vikur hjá Kirkju- sandi vegna skorts á hráefni. Togar- arnir Ögurvik og Karlsefni sigldu með aflann og stöðva varð vinnslu i húsinu þar sem fisk skorti. 50—60 verkakonur voru skráðar atvinnu- lausar fyrir vikið. Ótryggt atvinnuástand er viðar i fiskvinnslustöðvum á Stór-Reykja- víkursvæðinu. í siðustu viku var ekk- ert unnið í Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar og konur i 80 heilsdagsverk- um misstu vinnu. Í þessari viku cr full vinna í BÚH, en óráðið með þá næstu. „Ástandið cr ekki of gott,” sagði Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. „Okkur hefur lekizt að halda uppi fullri dagvinnu, en þó ekki meiru. Við höfum svo til ekkert hráefni fengið undanfarið til að vinna i salt og skreið. Mannskapurinn hefur þó haft nóg að gera við pökkun á eldri fiski, en það fer að ganga á birgð- irnar sem eftir er að pakka.” Þórhallur Helgason hjá Hraðfrystistöðinni sagði að fram- leiðslan gengi ekki með neinum „ver- tíðarkrafti”. Þar cr haldið uppi dag- vinnu í fiskinum. „Við forðumst að láta okkar tog- ara sigla. Það er reynt að halda uppi fullri atvinnu og hefur tekizt," sagði Gísli Konráðsson hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Afli Akureyringa hefur verið þolanlegur. em afkoma Út- gerðarfélagsins er engan veginn þolanleg, að sögn Gisla. „Við fáum ekki kostnaðarverð fyrir framleiðsl- una.” - ARH Stofna hlutafélag um húseiningaverksmiðju Á sunnudaginn verður stofnað hlutafélag áhugamanna um húsein- ingaverksmiðju á Loftleiðahótelinu i Reykjavik. Hefst fundurinn kl. 14. Segjast fundarboðendur, Haf- steinn Ólafsson og fleiri, geta nú sýnt „með all haldgóðum rökum, að hægt sé að fjöldaframleiða einingahús af margvíslegu tagi í þar til gerðri verk- smiðju, fyrir mun lægra verð en gert hefur verið til þessa.” í fréttatiIkynningu frá Hafsteini segir, að nú þegar liggi fyrir áætlanir um slíkar framkvæmdir. „Þannig er búið að forhanna verksmiðjuhús, ganga frá öllunt framleiðsluteikning- um ogákveða vélar til framleiðslunn- ar . . . Markaðsaðstæður hafa verið kannaðar og fyrir liggja arðsemisút- reikningar, rekstrar- og stofnkostn- aðaráætlanir. Gera má ráð fyrir að stofnkostn- aður sé nú orðinn nálægt 400 milljón- um króna. Afkösl slíkrar verksmiðju geta orðið nærri því ein íbúð/hús hvern virkan dag nteð 35—40 manna starfsliði í verksntiðjunni." -ÓV sá besti í heimi Knattspyrnusnillingurinn Kevin Keegan Þessi bók fjallar um erfiðleika, baráttu og sigra í lífshlaupi Kevin Keegans, bæði utan vallar og innan. Bókin er skrifuð af honum sjálfum, og frásögnin öll er hreinskilin og skemmtileg. Hún er ekki aðeins sönn og merk lýsing á lífi atvinnuknattspyrnumanna, heldur einnig frásögn af erfiðri lífsbaráttu og mörgum sigrum, sem unnust með ótrúleg- um dugnaði og lífsþrótti. Bókin um Kevin Keegan er þarfur og lær- dómsrikur lestur fyrir alla, sem fylgjast með eða taka þátt í knattspyrnu. Auk þess fá lesendur bókarinnar glögga innsýn í þá bar- áttu er fylgir því að fæðast í fátækt en kom- ast samt á hæsta tindinn í knattspyrnunni og mikil efni, án þess að það hafi áhrif á lífsviðhorf og starf. Þetta er bók fyrir alla er lifa lífinu lifandi. I bókinni eru margar myndir úr knattspyrnu- leikjum og frá ævi Kevin Keegans. HAGPRENT

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.