Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979. a ..................... Kratar unnu til hægri og vinstri: ...og viðreisnar- draumurinn búinn NÝ ÞJÓNUSTA KHppií heimahúsum Pantanasími 21781 eftir kl. Á daginn áauglþj. DB. simi 27022. - H-20. KRISTJÁN RAKARAMEISTARI. K >Ö2 fcomfo GERIÐ HAGKVÆM JÚLAINNKAUP Þetta er aðeins lítiö sýnishom Þú færð jólagjafirnar hjá okkur Mínútugrill Margar geröir af jólaljósa- samstœðum. Mislitar perur, hagkvœmt verð Ennfremur margar gerðir afflúorlömpum í eldhús, ganga o.fl. — vegna útkomu úr kosn- ingum í efri deild vindar úr öllum áttum og þinghúsið hlaðið spennu Hafi einhverja dreynrl um við- reisnarsljórn Sjálfstæðis-, Alþýðu- flokks og Eggerts Haukdal, endaði sá draumur snögglega á Alþingi i gær, þegar kosnir voru þingmenn til að fara i Efri deild. Slík stjórnarmyndun hefði verið nröguleg miðað við þing- styrk, þar senr þessi sveit hefur 32 þingmenn gegn 28. Hefði þetta lið unnið saman, hefði það getað fengið 11 þingmenn gegn 9 í El'ri deild og 21 gegn 19 í Neðri deild. En það gerði liðið ekki. Sjálfstæðisnrenn buðu fram lista ásamt Eggerti Haukdal. Framsókn og Alþýðubandalagið voru með sam- eiginlegan lista. En Alþýðuflokkur- inn bauð franr sér lista. Við það féll 8. maður á lista sjálfstæðisnranna og Eggerts, Birgir Ísleifur, og komst ekki i Efri deild. Öll mál hugsan- legrar viðreisnarstjórnar mundu stranda i El'ri deild, þar sem hlutföll- in yrðu 10:10. Alþýðubandalagið tregðaðist við Loftið var hlaðið spennu i þinghús- inu frá því um hádegi. Mikið var makkað á alla kanta. Samkomulag náðist ekki hjá vinstri flokkunum unr lillögu Framsóknar um að slyðja framsóknarmann við forsetakjör i Sameinuðu þingi. I fyrstu unrferð buðu allir flokkarnir fram. Varð að kjósa aflur, af þvi að ekki fékkst hreinn meirihluti. Við aðra alkvæða- greiðsluna studdu kralar franr- sóknarmanninn Jón Helgason, en Alþýðubandalagið þrjózkaðist við og bauðenn fram Helga F. Seljan. Varð að kjósa i þriðja sinn, og studdu þá allir „vinslri” menn Jón Helgason nema einn, sem skrifaði nafn Eggerts Haukdal. Var það talinn hafa verið Garðar Sigurðsson (AB), en það at- kvæði var ógilt, þar sent aðeins var kosið í 3. umferð milli þeirra tveggja, sem llest atkvæði hlutu í 2. unrferð. Jón Helgason varð kjörinn forseti. Gunnar Thoroddsen (S) var kosinn I. varaforseti nreð þorra atkvæða, annarra en alþýðuflokksmanna. Karl Steinar Guðnason (A) var kjörinn 2. varaforseti með atkvæðunr vinstri manna. Fundunr hafði þá tvisvar verið frestað, meðan leitað var sam- komulags i ýmsar áttir. Við forselakjör í Efri deild stóðu framsóknarmenn og alþýðubanda- lagsmenn saman, en kralar buðu franr sér í I. umferð. í annarri um- ferð komu kratar til liðs við vinstri nrenn, og var Helgi F. Seljan (AB) kosinn forseti. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) var kosinn 1. varaforseli með at- kvæðum annarra en alþýðuflokks- manna. Guðmundur Bjarnason (F) var kosinn 2. varaforseti, og varð að kjósa þrisvar, þvi að kratar vildu ekki slyðja hann. Enn eitt afbrigði hjá alþýðuflokksmönnum Alþýðuflokksmenn komu meðenn eitl afbrigðið, þegar kosinn var for- seti Neðri deildar. Kosningu var frestað um hrið, svo að hægt væri að VIÐREISNARMENN? Jón Baldvin Hannibalsson, ritstjóri Alþýðublaósins, hefur veríð sagður hafa áhuga á viðreisnarstjórn. Hér sést hann ræða við Albert Guðmundsson (S), áður en fundirnir hófust, þar sem viðreisnardraumurinn endaði. V Pétur „sjómaður” kann greinilega vel við sig að vera kominn aftur I setustofu þingsins. Við hlið hans eru Steinþór Gestsson (S) til hxgri á myndinni, Egill Jónsson (S), Albert og Salóme Þorkelsdóttir (S).

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.