Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979.
SIGUR EÐA OSIGUR?
iD
Guðmundur Jónsson skrifar:
Hið furðulega hefur gerzt nú eftir
nýafstaðnar alþingiskosningar að
ýmsir úr hópi sjálfstæðismanna hafa
borið sig heldur illa, hafa jafnvel
talað um ósigur flokks síns. Fengu
þeir þó einum þingmanni meira en í
næstu kosningum á undan, en
tveimur-fleiri, ef-JSggert Haukdal er
talinn með. Þessa útkomii er því
engan veginn unnt að túlka sem
ósigur.
Aftur á móti hefur það gerzt, sem
marga undrar, að alþýðubandalags-
menn tala um „sigur” í kosningun-
um nú í desember og misstu þeir þó
þrjá þingmenn í þeirri orrustu og
töpuðu fylgi í öllum kjördæmum á
landinu. Rétt er að sýna hér þróunina
hjá kommum 1 stærsta kjördæminu,
Reykjavík, í þrennum
kosningum:
síðustu
Alþýðubandalagið tapaði fylgi f öllum kjördæmum 1 sfðustu kosningum.
Raddir
lesenda
1978 (borgarstjórnarkosningar)
13.862 atkvæði
.1978 (alþingiskosningar)
12.016 atkvæði
1979 (alþingiskosningar)
10.888 atkvæði
Eins og tölurnar sýna hafa
kommar tapað hartnær þrjú þúsund
atkvæðum á hálfu öðru ári í Reykja-
vík.
Sú spurning hlýtur þvi að vakna,
hversu miklu fylgi kommar muni
tapa á heilu kjörtímabili hér í Rvk.,
þ.e. fram að næstu borgarstjórnar-
kosningum?
LESTRAR
I
UTA A GÆÐASTIMPIA GAGNRYNENDANNA!
Margaret Trudeau:
I HRHINSKII.NI SAGT
„Bókin er einstaklega opinská í frá-
sögnum af kynlífi, fíkniefnum og
hinu annálaða ævintýri með Rolling
Stones.“ Winnipeg Free
Press. „Hér eru eftirtektarverðar
svipmyndir af frægu fólki: Kosygin,
Chou en Lai, Karli Bretaprinsi,
Castro o.fl. Þetta gerir bókina í senn
fróðlegan og skemmtilegan lestur sem
maður getur ekki slitið sig frá.“
The Globe & Mail.
Bente Clod:
UPPGJÖR
„. . . Þessi bók er full af hugrekki,
lífskrafti og ritfæmi.“ B.H.N./
Kvinden og samfundet.
„Bente Clod. . er trú eigin tilfinning-
um og ákaflega heiðarlegur höfundur
. . . Lesbísku ástarsambandi lýsir
Clod ágætlega. Best tekst henni samt
að lýsa einmanaleik konu sem frjálsar
ástir gera að tilvonandi móður. ...
UPPGJÖR er þroskasaga ungrar
konu sem reynir margt,... rithöfund-
ur sem auðnast að túlka bældar
hugsanir margra kvenna með þeim
hætti að allir hafa áhuga á að lesa.“
J.H./Morgunblaðið.
Susan Isaacs:
AFHJÚPUN
„AFHJÚPUN er bráðskemmtileg
saga. Hér er gamansemin þyngri á
metunum en lýsing morðs og myrkra-
verka, kynferðiseggjunin fyrirferða-
meiri en glæpurinn sjálfur.“ J.B./
Review.
„Judit Singer sem segir söguna er
gædd einstæðri kímnigáfu. Hún veitir
bókinni sjarma sem á ekki sinn líka.“
The San Diego Union.
„. . . og veitir lesandanum blátt
áfram frábæra skemmtun. Ómót-
stæðileg afþreying.“ Book-of-the
Month Club.
Hammond Innes:
FÍLASPOR
„Sagan er einarðleg, trúleg, litrik og
kraftmikil. Hammond Innes er
frásagnameistari." The Times.
„Afburðasnjöll saga“ Daily Mail.
Alistair MacLean:
KAFTEINN COOK
„Frásögn höfundar af lífi og starfi
Cooks er skemmtileg, afar lifandi og
full af nýjum hugmyndum. Þetta er
ekki sagnfræði í venjulegum skiln-
ingi, öllu heldur það sem stundum er
kallað „alþýðleg sagnfræði", þ.e.
fjallað um sögulegt efni á einfaldan
hátt . . . að öllu samanlögðu sýnist
mér þetta hið fróðlegasta rit.“
J.Þ.Þ./Tíminn.
„í bókinni eru margar eftirprentanir
mynda sem gerðar voru í ferðum
Cooks og er bókin ekki síst eiguleg af
þeim sökum.“ J.H./Morgunblaðið.
Brian Callison:
ÁRÁSí DÖGUN
„Brian Callison leiðir hér fram afar
fjölbreytilegar manngerðir í herliði,
og saga hans er þrungin af gífurlegri
spennu.“ New York Times Book
Review.
Phyllis A. Whitney:
ELDUR
„Afbragðsgóð blanda af spennu og
rómantík.“ Manchester Evening
News.
„Phyllis A. Whitney er einstakur
höfundur.“ Baptist Times.
„Höfundurinn rígheldur athygli
lesandans frá fyrstu síðu til þeirrar
síðustu." The Lady.
Dea Trier Merch:
KASTANlUGÖNGIN
„Það er dásamleg bók sem Dea Trier
Morch hefur samið. ... Það er langt
síðan ég hef lesið eins sanna og
heiðarlega bók fullorðins manns um
böm.“ Eigil Söholm.
„Ogleymanleg og óviðjafnanleg. Þetta
er bók um lifið, - þetta er bók um
dauðann. Maður lokar henni með
djúpri þökk, og skilur betur hinar
björtu og dökku hliðar tilverunnar ...
Þena er meistaraverk. Dea Trier
Morch er mikið skáld.“ B.T. Bris.
„Grafikmyndir höfundar eru margar í
bókinni og hver annarri betri ... Þær
einar væru nóg rök til að hvetja alla
að eignast þessa bók. Og þá er ógetið
þýðingarinnar. Ólöf Eldjám hefur
unnið mikið ágætisverk.“ H.P./
Helgarpósturinn.
„ . . . elskuleg bók sem yljar notalega
um leið og hún veitir ósvikna
skemmtun." H.K./Tíminn.
Adam Hall
NJÓSNIR í BERLÍN
Mary Stewart:
KRISTALSHELLIRINN
„í sem stystu máli sagt: Mary Stewart
segir hér undursamlega sögu.“
The Times.
„Heillandi saga sem heldur hug
lesandans föngnum frá upphafi til
enda.“ The Scotsman.
„Ef þú vilt njóta þess að lesa sögu,
sökkva þér niður í hana, - og ef þú
þar að auki myndir ekki lesa nema eina
bók á ári, - þá er það þessi.“
Daily Mirror.
Alistair MacLean:
ÉG SPRENGI KLUKKAN 10
„Nýr stórsigur MacLean. Aðdáend-
um hans er hér boðin ósvikin
skemmtun." Pittsburgh Press.
„MacLean hefur aldrei verið betri.“
Books and Bookmen.
„Sennilega hefur aldrei verið rituð
skáldsaga sem er meira spennandi
en þessi.“ Manchester Evening
News.
„Einstæð og ósvikin spennusaga um
njósnir“ Observer.
„Ein af allra fremstu njósnasögum
eftir stríð.“ New York Times.
„Nákvæm saga, lýsir glögglega
hvernig njósnarar starfa, einstæð
bók,“ Spectator.
„Afburðavel rituð, stórsnjöll í hverri
grein.“ Spectator.
„Fáar njósnasögur er hægt að lesa
tvisvar. Þetta er ein þeirra.“ Books
and Bookmen.
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156
• iöumMv
Spurning
dagsins
Hvað langar
þig að fá í
jólagjöf?
Sveinbjöm Bjarnason:Rafmagnsbíla-
braut.
Þurlður Jóhannsdóttir: Skiði og skiða-
galla.
Asta Rósa MagnósdóttirSkiði, skíða-
galla og myndasögubækur.
Elin Hanna Slgurðardóttir: Baby AUan
dúkku sem borðar.
Liney Marinósdótlir: Ýmislegt, til
dæmis skíðagalla og bækur.