Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979.
4
Gleymið ekki
að gef a
þeim að
drekka
í fótinn
Sjö lítrar app-
elsínumarmel-
aði á 2.355 kr.
Góðar fréttir fyrir þá sem hrifnir
eru af marmelaði
Þcgar við vorum á heimleið i fyrra-
dag lögðum við leið okkar í Spari-
markaðinn í Austurveri. Það er eins
konar „heildsöluverzlun” þar sem
viðskiptavinirnir kaupa vörurnar i
magninnkaupi. Þar er stundum hægt
að gera rífandi góð kaup. — Á ntið-
vikudaginn voru t.d. á boðstólum
Ijómandi fallegar appelsínur, 5 kg í
poka á 1500 kr.! Við fengum þær
upplýsingar að appelsínurnar væru
dálítið súrar, komnar væru sætari
appelsinur á markaðinn og því hefði
verið ákveðið að selja þessar súru á
þessu afbragðsgóða verði. Við
skelltum okkur á einn poka og
bjuggum til marmelaði um kvöldið.
í öllum venjulegum uppskriftum
af marmelaði eru ýmist sítrónur eða
greip auk appelsína. Við slepptum
því og notuðum aðeins appelsínurnar
og þreifuðum okkur áfram.
Uppskriftin varð endanlega á þessa'
leið:
Tæp 5 kg appelsinur
3 kg sykur
2 lilrar vatn
Við notuðum börkinn, — skárum
aðeins „blómið” af, síðan appelsín-
urnar í bita og létum í „blender”. Ef
slikt tæki er ekki fyrir hendi má alveg
eins nota hakkavél. Við tókum
steinana frá og létum í grisjupoka,'
sem við suðum svo með appelsínu-
maukinu. Það sauð með vatninu i um
það bil 1 1/2 klst. við mjög vægan
hita. Tvisvar tókum við pottinn af
eldinum og hrærðum 1 1/2 kg sykri
tvisvar sinnum út í. Létum suðuna
koma vel upp i pottinum á milli. Úr
þessu magni fengust um það bil 7
lítrar af marmelaði, sem er alveg reið-
innar býsn. Við létum einnig rot-
varnarefni út í, samkvæmt leiðarvisi
á glasinu.
Skammturinn kostaði allur ekki
ncma 2.355 kr. Benda má á að smá-
glas af „búðarmarmelaði” kostar
7—800 kr. Þetta eru þvi góðar fréttir
fyrir þá sem hrifnir eru af appelsinu-
marmelaði. -A.Bj.,
Hreinsið jólatrén áður
en þau eru tekin inn
— Meters grenitré kostar 9.800 krv furan á 13,700
Dæmigerður jólatrésfótur, sem Kristrún heldur á. Skrúfurnar á „fætinum” eru
skrúfaðar utan um stofn trésins scm stungið er ofan 1 „fótinn”. Gætið þess að hafa
jafnan nóg vatn f skálinni. Það er ótrúlegt hve tré þarf mikið „að drekka” á
meðan það stendur inni i hlýrri jólastofunni. DB-mynd Ragnar Th.
eru toppar af hærri trjám sem
seldir eru á 2.500 kr.
Sautján ára fura úr Vifilsstaðahliðinni. Tréð er 250 cm á hæð og kostar 18.200
kr. Reynir heldur i tréð en með honum á myndinni er Kristrún Egilsdóttir, sem
vann hjá Skógræktinni sl. sumar.
„Það er ekki nokkur vafi á því að
við getum verið sjálfum okkur nógir
með jólatré. Það cru svo margir blett-
ir til á landinu sem eru kjörnir til
skógræktar, en hafa enn ekki vcrið
notaðir,” sagði Reynir Sveinsson,
sem verið hefur starfsmaður Skóg-
ræktarinnar í Fossvogi sl. þrjátiu og
þrjú ár. Hann ætti að vita hvað hann
eraðtalaum.
Skógræktin hefur eingöngu á
boðstólum islcnzk tré, rauðgreni og
furu.
„Þelta cr ekki nrikið sem við erum
mcð, fólk verður að hafa það hugfast
að þctta eru nærri eingöngu tré sem
fallið hafa til við grisjun,” sagði
Rcynir.
Trén islenzku cru úr Skorradal,
Haukadal, Þjórsárdal, Norðtungu og
Hallormsstað. Eins og jal'nan áður er
trjánum skipt niður i serðllokka cftir
stærð. Minnstu rauðgrenifrén cru 75
cm — 1 m og kosta 9.8UU kr„ 2,5 m
—3 m kosta 14.000 kr. Fururnar
njóta meiri vinsælda en grcnið, enda
fella þær ekki nálarnar eins og
grenið. Fururnar cru einnig dýrari i
innkaupi.
75 cm — I m fura kosta 13.700 1,5
m — 1,75, m fura kosta 15.800 kr. og
stærsta furan, sem var 3 m á hæð,
kostaði 18.200 kr.
Rcynir sýndi okkur einnig furu-1
toppa, mjög fallega, á 2.500 kr. Þá er
vel hægt að hafa í vasa, skreyta grein-
arnar og láta vasann t.d. standa úti
i horni. Þá voru á boðstólum furu-
búnt með 1 1/2 kg á 1.500 kr. Loks
var hægt að fá lífvið og tuju í plast-
pottum á 2.500 kr.
Reynir sagði að þessar tvær
tegundir væru vinsælar sem inni-
plöntur i svartasta skammdeginu,
þær má setja út i garð þegar vorið er
komið og taka síðan inn aftur á
haustin og lífga upp á stofur sínar í
skammdeginu.
Jólatrén verður að geyma á köldum
stað þar til tréð er tekið inn rétt fyrir
jól. Þá á að þvo þau vel, helzt með
þvi að spúla þau með köldu vatni í
þvottahúsinu, eða i baðkerinu ef
þvottahús er ekki fyrir hendi.
Erlendu trén geta verið grútskítug, —p
höfum hugfast allt sem þau hafa
gengið i gegnum síðan þau voru
höggvin á józku hciðunum fyrir
mörgum vikum. íslenzku trén hafa
einnig gott af þvi að fá smábað áður
en þeim er komið fyrir i hlýrri og
jólaskreyttri stofunni.
Jólatrén eiga að standa í þar til
gerðum jólatrésfæti og gætið að hafa
jafnan nóg vatn i fætinum. Það er
ótrúlega mikið sem trén þurfa að
„drekka” þessa daga sem þau standa
uppi.
„Fyrstu dagana sem jólatrésalan
stendur cr ekki spurt um neitt nema
furu,” sagði Reynir. „Égspái því að
eftir svona 15—20 ár verði ekki
nokkur maður meðgreni sem jólatré.
Það verða allir komnir með furuna.”
sagði Reynir. Jólatré kosta það sama
alls staðar, samkvæmt upplýsingum
Reynis. -A.Bj.
}
DB á ne ytendamarkaðí
ANNA
BJARNASON
SMAKKAÐ Á HEITUM OG
KÖLDUM RÉTTUM í KVÖLD
Gestum i Súlnasal verður boðið að smakka ú ýmsum réttum I kvöld frá kl. 10.30—11.30. Réttirnir eru frá Kjötiðnaðarstöð
Sambandsins. Verður boðið upp á heita pottrétti og ýmislegt kalt „smakk ” auk þess sem framleiðsla Goða verður til sýnis.
— Hótel Saga býður upp á diskótek fram að matarkynningunni. Þorgeir Ástvaldsson kynnir nýjustu plöturnar. Slðan leikur
hljómsveitRagnarsBjarnasonarfyrirdansitilkl. 2. Myndin var tekin á „smakk kvöldi”ISúlnasalsl. föstudag.