Dagblaðið - 14.12.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979.
7
hi
STEYTTUR VINSTRI HNEFI: Guömundur G. Þórarinsson (F) boðar vinstra
samstarf með steyttum vinstri hnefa — en það gekk brösótt.
makka. Alþýðuflokksmenn munu
ekki hafa viljað fá forsela sjálfir, til
að tengjast ekki um of vinstra sam-
starfi. Þeir studdu Sverri Hermanns-
son (S) í 2. umferðinni, og var hann
kjörinn forseti deildarinnar með 22
atkvæðum. Alexander Stefánsson (F)
fékk 18 atkvæði. Alexander var svo
kosinn 1. varaforseti með atkvæðum
flestra „vinstri” manna og Garðar
Sigurðsson (AB) 2. varaforseti með
atkvæðum vinstri manna, eftir að
kjósa hafði þurft tvisvar.
Þannig gekk á ýmsu á þinginu,
bæði í sölum og utan þeirra. Þing-
flokksfundir voru haldnir hvað eftir
annað, en vindur slóð úr öllum átl-
um. - HH
HAUKUR
HELGASON
Eggert Haukdal virðist samlagast þingflokki sjálfstæðismanna —
um þinghússins.
a.m.k. á göng-
LJOSMYNDIR:
BJARNL8IFUR
BJARNLEIFSSON
Heimsins bezta sement
en mengunin stóreykst
— 200 milljónum varíð til mengunarvama í Sements-
verksmiðjunni
Það sement frá Sementsverksmiðju
rikisins sem blandað er með fínkorn-
uðu kísilryki, sem fellur til i járnblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga, hefur
nú fengið þann gæðastimpil frá bæði
innlendum og erlendum rannsóknar-
stofnunum, að það sé af bezta gæða-
flokki. Er verksmiðjan eina verksmiðj-
an í heiminum, að því bezt er vitað,
sem nýtir járnblendiryk á þennan hátt i
framleiðslu sína.
Fínkornaða kísilrykið frá Grundar-
tanga hefur reynzt gefa sementinu tvö-
falt meiri vörn gegn alkalivirkni en
liparít. Að auki hefur sú staðreynd
komið í Ijós að kísilrykið eykur styrk-
leika sementsins um 20—25%. Með
notkun kísilryksins sem íblöndunarefni
hafa náðst þau takmörk sem fyrir 12
árum var byrjað að keppa að varðandi
alkalivörn og styrkleika sementsins.
Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu
frá Sementsverksmiðjunni en þess jafn-
framt getið að notkun kísilryksins hafi
skapað ýmis vandamál i verksmiðjunni
sjálfri, t.d. vegna mjög aukins finleika
sementsins sem veldur mengun og
flutningsörðugleikum.
„Hér er einvörðungu um vinnu-
staðarmengun að ræða,” sagði
Guðmundur Guðmundsson, tækni-
legur framkvæmdastjóri Sementsverk-
smiðjunnar, í samtali við DB. ,,Á
framleiðslustigum sements er það flutt
til með loftblæstri, en hið kísilryk-
blandaða sement hefur ekki reynzt eins
flytjanlegt og sementið hefur verið
fram til þessa. Hefur þetta reynzt verst
við pökkun í poka og i sementsskemm-
un,” sagði Guðmundur.
Sementsverksmiðjan hefur nú
ákveðið að verja samtals 200 milljón-
um króna til úrbóta á mengunarvand-
anum sem upp er kominn. Verður 100
milljónum varið til hönnunar og kaupa
á nauðsynlegum tækjabúnaði við
íblöndun kisilryksins og útbúnaðar á
loftflutningsleiðslum sem sementið fer
um á framleiðslustigum. Öðrum 100
milljónum á að verja til rykvarna við
pökkunina. Á í þeim efnum að gera
stórátak.
Guðmundur sagði að vegna meng-
unarvandans væri kisilryki ekki
blandað í alla framleiðsluna. Alll
sement sem fer til Reykjavikursvæðis-
ins er blandað með kísilryki, en það
sement sem sett er í poka cr aðeins
blandað lipariti.
Fjórir menn vinna við pökkunarvél-
arnar en alls 10 í sementskemnnim.
Hafa þeir að vonum kvartað yfir versn-
andi vinnuaðstæðum.
,,En öll tækniþróun skapar vanda,"
sagði Guðmundur, ,,og við vonumsl lil
að geta leyst hann sem fyrst á næsta
ári, en erfitt hefur reynzt að.la fjár-
magn til mengunarvarna. Semenlið er
nú blandað að 5% magni kísilryki.
Stel'nt er að því að auka þá iblöndun i
7—10% að magni til. En sú aukning
getur ekki orðið fyrr en mengunar-
vandinn er leystur og þá verður ekkcrt
sement afgreitt nema af be/la gæða-
flokki sem náðst hefur með kísilryks-
iblönduninni," sagði Guðmundui.
- A.S|.
MOON
BOOTS
Stœrðir 30—36
kr. 9.970.-
Stœrðir 37—42
kr. 10.660.-
Stærðir 43—45
kr. 11.350.-
ALPINA SKÍÐASKÓR
ÓDÝRIR SKAUTAR
Alpina
skíðagönguskór
Leður. Nr. 37—46
Verðkr. 16.755.-
Stœrðir 30—40
kr. 16.
Stærðir 41—46