Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979.
Venezuela hækkar
olíu um þriöjung
— Saudi Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin fylgja á eftir
Olíumálaráðherra Venezuela'
lilkynnti í morgun að ríki hans hefði
ákveðið að hækka grundvallarverð á
olíu um þriðjung eða úr 18 dollurum
oliufatið i 24 dollara. Tekur hið nýja
verð gildi frá og með deginum í dag.
Bæði Saudi Arabia og Arabísku
furstadæmin hafa ákveðið að fylgja i
kjölfarið og hækka olíuverð sitt um
sex dollara fatið. Hjá þeim á verðið
aftur á móti að gilda frá og með I.
nóvember síðastliðnum.
Calderdon olíumálaráðherra
Venezuela sagði í gær að hið nýja
verð yrði þó ekki innheimt við sölur
til Mið-Amerikuríkja né ríkjanna i
Karabíska hafinu. Væri það gert
Ijósi þeirra erfiðleika, sem þróunar-
ríkin ættu við að glíma. Mundi nýja
verðið í fyrsta lagi taka gildi gagnvart
þessum ríkjum um næstu áramót.
Tilgangurinn með verðhækkunum
Venezuela er sagður sá að ná .ieira
jafnvægi á olíumarkaðinum. Vegna
óeðlilegrar spákaupmennsku á
olíumarkaðinum væri verð á oliufati
þar komið upp í 40dollara.
Venezuela er sjöunda mesta
oliuframleiðsluland í heimi. Dagleg
olíuvinnsla úr iðrum jarðar er þar
2,35 milljón föt. Þar eru miklar
olíuhreinsunarstöðvar en um það bil
helmingur olíunnar er unninn þar en
hitt flutt út óunnið.
Kampútsea:
VÍETNAMAR STRÁ-
FELLA ÍBÚANA!
Herir Vietnama í Kampútseu stráfella
mikinn fjölda ibúa sveitaþorpa þar til
að koma í veg fyrir að þeir geti veitt
liði Pol Pots lið, segir varnarmála-
ráðherra Thailands. Eru slfk fjölda-
morð að sögn algeng í
norðausturhluta Kampútseu, en þar
er fylgi Pol Pots einna mest. Aðfarir
Vietnama þykja um sumt minna
mjög á baráltu Bandaríkjamanna við
skæruliða Vietnama sjálfra á dögum
striðsins i Vietnam. Myndin hér að
ofan er af úthlutun vatns til flótta-
manna frá Kampútseu sem komnir
eru til Thailands. Enn eru að sögn
verulegir árekstrar milli aðila um
hvernig hjálparstarf við fiótta-
mennina eigi að vera skipulagt og
hver eigi að hafa æðstu stjórn á
hendi.
Gíslamir í
sendiráðinu
í Teheran:
Ásakanir um
áhugaleysi og
hugleiðingar
um viðskipta-
bann
Bandaríkjastjórn hugleiðir nú hvort
rétt sé að beita sér fyrir viðskiptabanni
gegn íran á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna, ef gíslarnir í sendiráðinu í
Teheran verði ekki látnir lausir.
Khomeini trúarleiðtogi í íran hefur
sakað Bandaríkjastjórn um að hafa
engan raunverulegan áhuga á að fá
gíslana lausa. Aðeins væri hugsað um
stjórnmálalegar niðurstöður deilu ríkj-
anna.
George Hansen þingmaður í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings hefur einnig
ásakað stjórnina í Washington fyrir
áhugaleysi um lausn málsins. Hansen
fór til Teheran og fékk þar að ræða
við 19 af gíslunum. Hann var gagn-
rýndur fyrir þá ferð í Bandarikjunum.
Þingmaðurinn segir að enginn fulltrúi
Carters forseta Bandarikjanna hafi
rætt við sig um ferðina eftir að hann
sneri aftur. Hansen vill einnig að
kannaðar verði nánar ástæður fyrir því
að keisaranum fyrrverandi var leyft að
koma til Bandaríkjanna og einnig hvorl
viðvaranir um töku sendiráðsins í
Teheran hafi verið hundsaðar af stjórn-
völdum vestra.
lézt fimm
ára úr elli
Fimm ára gömul stúlka, Pennie
Vantine, lézt í Kaliforniu i gær. Dánar-
orsökin var elli og hlaupabóla, sem hún
hafði ekki mótstöðuafl gegn vegna elli-
hrumleika.
Pennie var haldin mjög sjaldgæfum
sjúkdómi, sem olli því að hún sýndi öll
einkenni aldraðrar manneskju.
Heyrnin skertist, hárvöxtur tregaðist,
blóðþfýstingur hækkaði o.s.frv.
Stúlkan vó aðeins fjögur kilógrömm
og var 73 cm á hæð. Læknar töldu ekki
vönir tjl. að hún lifði lengur en til sjö
ára aldurs. Hún varð veik af hlaupa-
bólu á laugardaginn og lézt í gær ein's
og áður sagði af afleiðingum hennar.
Pennie Vantine talaði nær ekkert en
uppáhaldssaga hennar var um
Bangsímon.
Kaupmannahöfn:
Bráðdrepandi
sápublandað
heróínselt
Vitað er að heróínneytendur í Kaup-
mannahöfn hafa látizt vegna
bráðdrepandi heróínblöndu, sem þar er
boðin til sölu á markaði undir-
heimanna. Efnið er blandað sápu og er
að sögn lækna lífshættulegt. Sá er
neytir þess lætur lífið samstundis sé
efninu sprautað í æð. Veldur það því
að rauðu blóðkornin eyðast upp.
Ekki er vitað hve mikið af þessu
sápublandaða heróini er á markaði í
Kaupmannahöfn en að sögn lög-
reglunnar þar eru tveir karlmenn,
danskur plötusnúður og erlendur félagi
hans taldir hafa dreift því. Eru þeir nú
báðir í gæzluvarðhaldi.
Óttazt er að nokkru af þessu eitur-
efni hafi verið dreift til Noregs.
CLARK FALL-
INN í KANADA
Minnihlutastjórn Framsækna
íhaldsflokksins í Kanada beið ósigur
við vantraustsatkvæðagreiðslu í þingi
landsins í gærkvöldi og mun Joe Clark
forsætisráðherra flokksins þar með
segja af sér. Var atkvæðagreiðslan í
tengslum við afgreiðslu fjárlaga.
Talið er að boðað verði til nýrra
kosninga i Kanada innan tiðar en þó
ekki fyrr en eftir áramót. Joe Clark
var kjörinn á þing árið 1972 og valinn
formaður Framsækna ihaldsflokksins
fjórum árum síðar. Hann er fertugur
að aldri. Ekki er Ijóst hver verður
forustumaður Frjálslynda flokksins í
kosningabaráttunni er Trudeau núver-
andi formaður og fyrrverandi forsætis-
ráðherra hættir.
Gíslað
æfa sig
Tvennum sögum fer af
meðferðinni á gislunum i
sendiráði Bandarikjanna í
Teheran. Myndin hér til
hliðar sýnir einn þeirra gera
morgunæfingarnar við
erfiðaraðstæður.
IMadrid:
Mestu óeirðir frá
endurreisn týðræðis
Tveir féllu i gærkvöldi og margir
slösuðust í mestu óeirðum sem orðið
hafa í Madrid, höfuðborg Spánar,
siðan lýðræðisskipulag komst þar á
eftir dauða Francos. Til átaka kom á
milli lögreglu og fólks sem var að
koma úr mótmælagöngu, sem haldin
hafði verið að frumkvæði verka-
lýðsfélaga.
Tilefni göngunnar, þar sem mtira
en eitt hundrað þúsund söfnuðust
saman, muo vera tillögur á þingi
landsins um ný verkalýðsfélög.
Ekki er ljóst hvernig eða hvers
vegna skothríð hófst. Samkvæmt
fyrstu fregnum voru það stúdentar
sem ruddust inn í götuna og veltu bif-
reiðum og settu fyrir umferðar-
strauminn. Lögreglan svaraði með að
skjóta reyksprengjum og gúmkúlum
að mannfjöldanum en ekki er Ijóst
hver hóf skothríð.
Hinir tveir föllnu voru nítján ára
stúlka og piltur. Nokkrir sjónarvott-
ar sögðu að stúdentarnir, sem sumir
hefðu verið búnir sérsmiðuðum
skjöldum, hefðu ráðizt að lögreglu
með grjóthríð og teppt umferð með
garðbekkjum, bifreiðum og bygging-
arefni. í einu tilviki umkringdi hópur
fólks lögreglujeppa og hóf þá lög-
reglumaðurinn sem í honum var skot-
hrið til að dreifa hópnum.
Adolfo Suarez forsætisráðherra
Spánar frétti af óeirðunum þar sem
hann var við umræður í þinghúsinu.
Hann sagði síðar að rétt væri að tveir
hefðu fallið i átökunum en hann hélt
þvi hins vegar fram að lögreglan
hefði ekki beitt skotvopnum sínum.