Dagblaðið - 14.12.1979, Page 12
12
Höfum til sölu
Einbýlishús í Köpavogi
um 100 ferm. Mjög viöráðanleg ákvílandi lán.
Höfum kaupanda að 3ja herb. íbáð.
Vantar allar íbúðir á skrá.
Fasteigna- og skipasala.
Stgmundur BÖAvarsaon hdL
— ' —o — O x wgmunaur nouvai
yiTA-BORG
V FASTEIGNA- OG SKIPASALA
Hverfisgötu 76 - Sfmar 13041,13386
Ford Granada árg. '11. Svo til
ókeyrður, 8 cyl., beinskiptur f gólfi
með vðkvastýri og -bremsum. Einn sá
alfallegasti bfll á markaðnum, bæði að
utan sem innan. Skipti möguleg.
Toyota M II árg. ’74. Mjög góður og|
traustur bill, stór eftir aldri. Gulur,
gott lakk. Verð aðeins kr. 2.700 þús.
Jólagjöfin handa frúnni: Honda Civic
árg. '11, silfurlitur og fallegur. Aðeins
ekinn 32 þús. km. Til sýnis og afhend-
ingar á staðnum.
Datsun 180 B árg. ’78, aðeins ekinn 22
þús. km. Þessi bill er eins og nýr að
utan sem innan. Sparneytinn en kraft-
mikill. Tveir dekkjagangar.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979.
r . ——i" *
Kammermúsíkpopp
EYJÓLFUR
MELSTED
Játa skal ég, að eftir Hertel beið
ég með mestri eftirvæntingu á
þessum tónleikum. Vonbrigðin yfir
því að fagottin fundu sig ekki fyrr en
seint í öðrum kafla urðu vegna þess,
að öllum líkindum, mun sárari.
Framan af fannst mér þau vera eins
og tvær jarðýtur að keppa hvor við
aðra. En þegar þau náðu loks saman
féll leikur þeirra vel að prýðisgóðum
leik óbóanna. Stjörnuleik átti hins
vegar Lárus Sveinsson trompet-
leikari. Hann hefur náð slikum af-
bragðstökum á piccolotrompet að
honum verður aðeins jafnað við
þekkta menn á þessu sviði.
Vivalditríóið kom svo eftir hlé,
prýðisvel leikið. Þau léku síðasta
kaflann ótrúlega hratt, en samt ekki
hraðar en svo að hann naut sín vel.
Að slikum hraða getur verið góð
skemmtun, þegar flytjendur ráða yfir
jafngóðri tækni og ná jafngóðum
samleik og þau Helga Ingólfsdóttir,
Kristján Þ. Stephensen, Bernard
Wilkinson og Sigurður Markússon.
Bach kvintettinn var svo hafður til að
slá botninn í þessa ágætu hljómleika.
Jóhann Christian hefur ekki verið
mikið leikinn hér á landi og er nú af
sú tíð þegar hann skyggði á föður
sinn, sem hann kallaði stundum hálf-
gert fornaldarfyrirbrigði. Svo skipast
skjótt tískan í tónlist, sem öðru, og
allt of margir draga hinar ýmsu
tegundir tónlistar i dilka eftir fyrir-
fram ákveðnum skapalónum. Ég hélt
að fleiri dæmdu barokkmúsík í
stjörnuflokk en þeir sem komu í Bú-
staðakirkju þennan sunnudag. Vera
má að jólabakstur og annað stúss
hafi glapið fyrir mörgum, en þar
bakaði líka margur af sér góða
tónleika.
Jólatúntoicar Kammaravaltar Raykiavhur II
Búataflakkkju 9. deaambar.
Varkafni: Antonio Vlvaldi, Konaart I amoll fyrlr
óbó, 2 flfllur, aalló og aembal, Jobann WMhakn
Hartal, Concarto é clnqua fyrlr trompet, 2 óbó og
2 fagott;' Antonio Vivaldi, Trló I gmoll fyrlr
flautu, óbó, fagott og aambal; Johann Chriatian
Bach, kvlntatt I D-dúr, op. 11/8 fyrir flautu, óbó,
flflki, lágfifllu, aadó og aembal.
Það voru dálagleg viðbrigði að
koma bent úr (ég segi ekki hversu
mörgum decibelum) Háskólabíói í
Bústaðakirkju þetta sunnudagssíð-
degi. Sist ætia ég að lasta það ágæta
fyrirbæri jólakonsertinn, þar sem
heyra gat rjómann af poppmúsík
landsins, ekki síst þegar með góðum
huga er gert og öllum stofnana-
vistuðum boðið til gleðinnar. En það
var önnur poppmúsík, sem meiningin
var að ræða um hér, sem sé popp-
músik kammermúsíkneytendanna.
Kammermúsíkpoppararnir
þekktu sem sagt ekki rafuppmögnun
og þvi eru menn enn að burðast við
að spila með gamla laginu. Ég naut
því hvíldarinnar við að hlusta á
Vivaldikonsertinn ljúflega leikinn af
afbragðs hljóðfæraleikurum.
Stjörnuleikur
Romm -
Súkkulaéi -
Sitrón fromage
Tízkan:
Kvendragtir og hattar
Dragtir hafa enn á ný náð vinsæld-
um og verða eftir því sem tízku-
hönnuðir segja það vinsælasta í vetur
og næsta sumar. Jakkarnir eru
fremur stuttir og með löngum kraga.
Pilsin eru aftur á móti mjög þröng og
þá gjarnan með klauf á hliðinni eða
að aftan. Auk þess eru nú axlapúðar í
algleymingi og ekki má gleyma hött-
unum. Þeir eru víst ómissandi nú þó
ekki séu þeir mjög áberandi hér á
landi, nema þá helst á eldri frúm.
Rúnnuðu pilsin eru þó ekki farin
úr tizku, þau eru ætluð sem kvöld-
klæðnaður og eiga þá að vera síðari
áð aftan en að frarnan. Það fylgdi í
texta með þessari mynd að ennþá
væri fjarlægðin nokkur á milli
Skandinavíu og Parisar þvi þeir í
París segja sumartízkuna á næsta ári
vera stutta. Minikjólar og pils er það
sem koma skal að því er Parísartízku-
kóngarnir segja, en okkur hér á norð-
lægari slóðum þykir það víst kulda-