Dagblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 31
35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGÚR 14. DESEMBER 1979.
ð
Útvarp
Sjónvarp
Jólastundin okkar verður á dagskrá sjónvarpsins á jóladag kl. 18.00. Efnið var meðal annars tekið upp f Glæsibæ þar sem
Ragnar Th. Ijósmyndari tók þessa mynd.
Jóladagskrá sjónvarpsins:
Fjölbreytt en þó með sama
sniði og undanfarin jól
Jóladagskrá sjónvarpsins hefst á að
fangadag kl. 14.00. Þá verður stuttur
fréttatími og síðan barnaefni til kl.
16.00. Sýndar verða norrænar teikni-
mýndir. Sýnd verður mynd sem nefnist
Tobbi túba og er byggð á kunnu ævin-
týri. Fyrsta mynd af þrettán um
Múminálfana verður sýnd og Prúðu
leikararnir skemmta ásamt Roy
Rogers.
Sjónvarp hefst síðan aftur kl. 22.00
með guðsþjónustu i sjónvarpssal.
Biskupinn yfir íslandi, hr. Sigurbjörn
Einarsson, predikar. Dagskrá sjón-
varpsins á aðfangadag endar á tón-
listarprógrammi frá sænska sjónvarp-
inu.
Sjónvarp hefst kl. 16.30 á jóladag
með því að sýndur verður ballettinn
Hnotubrjóturinn í útfærslu Bolshoi
leikhússins. Kl. 18.00 verður Jóla-
stundin okkar með hefðbundnu sniði.
Eftir fréttir syngur kór Langholtssókn-
ar og dagskráin endar með bandarísku
bíómyndinni Konungur konunganna.
Sjónvarp hefst kl. 18.00 á annan í‘
jólum með Barbapapa og Höfuðpaurn-
um. Síðan verður endursýnd mynd um
Grímsey sem áður var á dagskrá 1.
janúar 1974. Að loknum fréttum
verður sýnd heimildarmynd um jóla-
hald í nokkrum löndum. Þar á eftir
verður frumsýnt leikrit Guðlaugs Ara-
sonar, Drottinn blessi heimilið. Og
síðast á dagskrá er skemmtiþáttur með
söngkonunni Marciu Hines. - EI.A
„Ef hann fær að sprengja dálítið verður hann mjög friðarsinnaður á eftir"
Áttunda getraunin sýnir mann, Norðurlandabúa, sem frægur varð fyrir þrumandi
uppfinningar sínar en þar að auki fyrir framiög sín tH menningar og friðar í heiminum.
Strikið undir nafn hans, klippið myndina út og geymið hana þangað tH tvær eru komrtar
í viðbót Þá skuluð þið senda ailar myndirnar tíu í einu umslagi tH DB. Glæsileg verðlaun
eru í boði — 980 þúsund króna myndsegulbandstæki af gerðinni Fisher — og um það
verður dregið úr róttum lausnum, sem berast ekki síðar en 21. desember næstkomandi.
Hvað heitírlitli sprengimeistarinn?
a) Alfred Nobel b) Winston Churchill c)Yasser Arafat
SK0NR0KK—sjónvarp kl. 20.50:
SÍBASTA SK0NR0KKH)
—að minnsta kosti á þessu ári
„Þar sem þetta er síðasta Skonrokk-
ið mitt á árinu finnst mér sjálfsagt að
enda það með því að vinza úr þau lög
sem öðrum fremur hafa heyrzt á ár-
inu,” sagði Þorgeir Ástvaldsson, um-
sjónarmaður Skonrokks, í samtali við
DB.
„Það verða því vinsælustu popplög-
in 1979 eða eitthvað í þá áttina,” sagði
Þorgeir ennfremur, „lög sem flestir
þekkja. Þættirnir eru nú orðnir 22 með
þeim sem verður í kvöld. Ég hef haft
mjög gaman af að sjá um Skonrokkið,
hvort það verður áfram eftir áramótin
er enn óráðið.
Það er eitt sem ég vil að komi fram,
það er að ekki er alltaf unnt að fá fílm-
ur,” sagði Þorgeir. „Ég er oft beðinn
að sýna þennan eða hinn listamanninn,
en það erbara ekki svo auðvelt.”
— Af hverju eru aldrei íslenzkir
hljómlistarmenn í þættinum?
„Já, það er nú það, ég hef oft beðið
Þorgeir Ástvaldsson.
um það. Það er því ekki mér að kenna.
en það stafar m.a. af fáránlegri reglu-
gerð,” sagði Þorgeir að lokum. - EI.A
POSTSENDUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
OPIÐ í KVÖLD
TIL KL. 10
HAGSTÆTT VERÐ
BASTLAMPAR
HOLLENZKIR LEÐURSKERMAR