Dagblaðið - 04.01.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980.
Alþjóðlegt farþegaflug:
IATA spáir erfiðum
rekstri árið 1980
— efnahagserfiðleikar og olíuverðshækkanir munu éta upp alla
farþegaaukninguna
Horfur í flugrekslri i heiminum eru
ekki bjartar í byrjun þessa árs að
sögn spámanna um slíkt hjá IATA
alþjóðasamtökum flugfélaga sem til-
kynntu þetta í gær.
Vegna almennl bágra efnahags-
horfa og síhækkandi olíuverðs er
talið að hagnaður af rekstri flug-
félaga verði nær enginn og hjá sum-
um þeirra niegi þá búast við nriklu
rekstrartapi.
Knul Hammarskjold forseti IATÁ
sagði í gær að flugfélög á alþjóða-
leiðum gætu tæpasl gert sér vonir að
komast upp fyrir rauða strikið á
rekslrarreikningum sínum og yrðu
að öllum líkindum með neikvæða
rekstrarútkomu. Mættu þessi félög
gera sig ánægð með að standa undir
nauðsynlegri fjármögnun vegna
kaupa á nýjum hljóðlátari og spar-
neytnari þotum.
Hammarskjold sagði að allt benli
lil þess að fargjöld mundu enn halda
áfram að lækka einkum þó á fjöl-
förnum flugleiðum. Áslæðan vær’
óheft samkeppni á milli flugfélaga og
mikið sætaframboð þeirra.
Um afkomu flugfélaga á liðnu ári
sagði forsetinn, að fjöldi farþega
hefði aukizt um 13,3% að meðaltali
hjá IATA flugfélögum. Aðeins
nokkur þeirra hefði haft einhvern
hagnað. Sætaframboð þessara flug-
félaga hefði aukizt um 6% frá fyrra
ári.
Hammarskjold sagði að enn væru
afleiðingar síhækkandi olíuverðs á
síðasta ári ekki komnar fram í verði
flugmiða til farþega.
:■
>v> <•>■'.JÁ
■i-ÍW
Enn er barizl i Ubanon og lillar likur taldar á að þar verði eðlilegt þjóðfélag aftur
í bráð. Sá hluti ibúanna sem oftast eru nefndir kristnir hægrimenn eru mjög and-
stæðir Palcstínuskæruliðum, sem búið hafa um sig i landinu. F.innig hafa þeir
verið lítt vinveittir Sýrlendingum, scm eru með herlið í landinu. Á myndinni er
hclzti herforingi þeirra, George Semerdjian, ásamt einum aðstoðarforingja sinna.
I baksýn er hópur stúdenta sem eru í herþjálfun, sem hófst i kjölfar fregna af þvi
að nokkur hundruð íranir væru að koma til Líbanon til að aðstoða Palestinu-
skæruliða i baráttu þeirra.
REUTER
Erlendar
fréttir
Baktiar boðar
fall Khomeinis
Shapur Bakliar, fyrrum forsætisráð-
herra írans á síðustu dögum stjórnar
keisarans, sagði við tali við fréttamenn
i París, að hann teldi ríki Khomeinís
trúarleiðtoga ekki niundu standa lengi.
Jafnframt sagði Baktiar, sem hrökkl-
aðist úr landi eftir að Khomeini komsl
til valda, að stuðningsmenn hans sjálfs
væru að undirbúa endurkomu hans lil
írans.
— Khomeini er búinn að vera og
hann mun ekki hanga við völd út
þennan vetur, sagði Bakliar. Hann
hélt fréttamannafundinn i íbúð sinni i
Paris. í stofunni var ekkert annað á
veggjum en risastórt korl af iran.
Baktiar hefur svipaða stjórnmála-
stefnu og sósíaldemókratar i Vestur-
Evrópu. Hann var oft fangelsaður á
keisaratímanum og var einn helzti and-
stæðingur hans meðal sljórnmála-
manna ásamt Barzargan, fyrrum for-
sætisráðherra Khomeinis. Vinslit urðu
á milli þessara manna er Baktiar varð
forsætisráðherra áður en keisarinn fór
úr landi þó svo að hann gerði það með
því skilyrði að keisarinn færi á brott
innan mjög skamms tíma sem og varð.
Shapur Baktiar
Fagna skæruliðum
Mikill mannfjöldi fagnaöi fyrslu
fjörutíu og þrem skæruliöaforingjun-
um, sem komu flugleiöis til Salisbury
í Zimbabwe/Ródesiu um áramótin.
Komu þeir frá Zambiu í kjölfar þess
að friöarsamningar hafa veriö sam-
þykktir og ætlunin er aö hætta aö
stríöa i landinu en ganga í þess staö
til frjálsra kosninga. Treglega gengur
aftur á móti aö fá óbreylta skæruliöa
lil aö safnast saman i búöum víös
vegar í Zimbabwe/Ródesiu, eins og
ráð var fyrir gerl. Þeir Nkomo og
Mugabe helztu leiötogar skæruliöa
hafa krafizl lengri frests til aö safna
saman mönnum sínum. Er síöast
fréttisl haföi aöeins fjóröungur hinna
sextán þúsunda skæruliöa sem taldir
eru vera innan landamæra Zimb-
ahwe/Ródesíu komiö til einhverra
búöanna.
El Salvador:
Herforingjastjómin
orðin einangruð
Ríkisstjórnin i El Salvador er nú að
falli komin eflir aðeins áltatíu daga
setu. í raun var það her landsins, sem
þar hefur ráðið mestu en í stjórninni
v,oru einnig nokkrir óbreyttir borgarar.
Þeir sögðu af sér í gær og þykir nú Ijósl
að herforingjasljórnin riði til falls.
Stjórnmálaástandið í þessu Mið-
Ameríkuríki er sagi mjög viðkvæmt
um þessar mundir og ekki hafa verið
ískyggilegra síðan herinn rak hægri-
sinnann Carlos Humberlo Romero úr
forselaslóli hinn 15. oklóber síðast-
liðinn.
Óttazt er að til óeirða geti komið á
milli hægri og vinslri sinna i El Salva-
dor en þær hafa verið tíðar á siðustu
árum þar.
Fyrir nokkru féllu þrjátíu menn úr
hópi smábænda i álökum við stjórnar-
herinn í El Salvador. Höfðu þeir tekið
herskildi stórbýli og kröfðusl bættra
kjara.