Dagblaðið - 04.01.1980, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980.
C*
Útvarp
27
Sjónvarp
i
Meðal þeirra sem koma fram i kvöldvöku úlvarpsins í kvöld er Kór Álthapafélags Strandamanna. Er ekki að efa að þar á
meðal verða lög heiman frá Ströndum þar sem mikilóðleg flöll gnæfa yfir þorpum sem eru meira og minna í eyði þó aðeins
séu Strandirnar farnar að byggjast upp aftur. Myndin er frá Djúpuvik sem fvrir nokkrum árum var sögustaður myndarinnar
Blóðrautt sólarlag.
KVÖLDVAKA - útvarp í kvðld kl. 20.45:
Æviminningar og
söngur af Ströndum
Kvöldvaka útvarpsins er sanr-
kvæml venju á dagskránni í kvöld.
Hún er að vanda blanda þjóðlegs
fróðleiks, kveðskapar og söngs.
Vakan hefst með söng hins ágæta
bassasöngvara, Eiðs Ágústs Gunn-
arssonar sem syngur nokkur lög við
undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.
Þá les Alda Snæhólm frásögn
móður sinnar, Elínar Guðmunds-
dóttur Snæhólm, af vestfirzkunr
jólum eins og þau voru i hennar
æsku.
Næstur. á dagskrá er Hjalti Rögn-
valdsson sem les Ijóð eftir Steingerði
Guðmundsdóttur. Nefnist sá liður
Guðsmóðir, gef mér þinn frið.
Fjórði liðurinn á vökunni er svo
frásöguþáttur eftir Eggerl Ólafsson
bónda í Laxárdal i Þistilfirði. Frásag-
an, sem nefnist Lómatjörn, leikskól-
inn góði, er frá æskuárum höfundar.
Jóhannes Arason þulur les.
Kvöldvökunni lýkur svo nteð söng
kórs Átthagafélags Strandamanna
undir stjórn Magnúsar Jónssonar frá
Kollafjarðarnesi. Er ekki að efa að
meðal annarra verða sungin lög
norðan af Ströndum þar sem allt er
aðeins að glæðast aflur eftir að útlit
hafði verið á límabili fyrir að byggðin
færi í eyði.
-I)S
FIÐLUKONSERT EFTIR BRAHMS - útvaip kl. 20.00:
Alvarlegur hetjudýrkandi
Gildon Krenter fiðluleikari leikur í
kvöld fyrir útvarpshlustendur eina
fiðlukonsert tónskáldsins Jóhannesar
Brahnts nteð undirleik Ríkishljóm-
sveitarinnar í Frakklandi. Stjórnandi
er Evgéní Svetlanoff.
Þennan fiðlukonsert tileinkaði
Brahms fiðluleikaranunt Joachim
sent var ntestur fiðluleikara í kring
um árið 1850. Joachim launaði
honum konserlinn með því að kynna
hann fyrir öllunt helztu tónsnillingum
þessa tima og varð það siðar til þess
að Robert Schuman og Clara kona
hans tóku Brahnts undir sinn
verndarvæng.
Braltms, sem uppi var á árununt
1833—97, var eitt af síðustu tón-
skáldunt rómanlísku stefnunnar og
hlaut hann á sínunt tíma nokkra
gagnrýni fvrir ófruntleika. Karlar
eins og Wagner og Liszt voru á því að
sinfónían hefði runnið silt skeið á
enda og hennar tinti kænti aldrei
aftur. Brahms var á annarri skoðun.
Hann svaraði reyndar aldrei gagnrýn-
inni einu orði en samdi þess í stað
fjórar gullfallegar sinfóníur og
sannaði þar með að tími þeirra var
ekki liðinn.
Núlimamenn kunna nrun betur að
meta þetta framtak en samtimamenn
Brahms gerðu. í hugum þeirra er
hann eitt hinna þriggja stóru B-a eins
og sagt er. Hin tvö eru Beethoven og
Bach.
Flest verka Brahms eru alvarlegs
eðlis, full af hetjudýrkun og jafnvel
sorg. En ekki öll. Hann skrifaði
einnig nokkur léttari verk, til dæmis
hina skemmtilegu Ungversku dansa.
Sönglög hans eru meðal þeirra bezlu
sem samin hafa verið.
Brahms olli ekki neinum formbylt-
ingum í tónlistinni, hélt sig að niestu
Jóhannes Brahms um tvítugt, þá þegar fragur hljóðfæraleikari og upprennandi
tónskáld.
við þau form senr fyrir voru. En það
hvernig hann fyllti út í formið er það
sem gerir hann svo einstakan. Hann
hafði mikið að segja og nolaði til þess
hin gömlu tónlistarform sem virðast
hafa verið í uppáhaldi hjá honum.
Brahms var vigur vel á margar
tegundir hljóðfæra. Faðir hans var
hljóðfæraleikari að alvinnu og byrj-
aði snemma að kenna stráksa. Þegar
hann svo eltist var honum komið lil
betri kennara en aðeins nokkrum
árum seinna var það hann sjálfur sem
farinn var að kenna öðrum. Á tíma-
bili vann hann fyrir sér með spila-
mennsku á öldurhúsum og fékk þá í
laun ,,lvo dali og allan þann bjór er
hann gat innbyrl” á kvöldi. En strax
unt tvitugl fóru menn að uppgölva
þennan snjalla hljóðfæraleikara.
Meðal þeirra var eins og áður sagði
Clara Schuman. Hún var þá frægur
píanóleikari og hóf að leika tónlist
Brahms opinberlega. Þetta var
honum mjög til framdráttar og tóksl
mikil og innileg vinátta með þeim
Clöru þar til hún dó. Fjórir trega-
fullir söngvar, eitt af Ijúfustu og feg-
urstu verkum Brahms, voru einmitt
samdir þegar Clara dó. Sjálfur lifði
Brahms hanaaðeins í ár.
- DS
GYÐJAN 0G GUDSMÓDIRIN
— sjónvarp í kvöld kl. 22.05:
UNDARLEG K0NA
í UNDARLEGU HÚSI
Gyðjan og guðsmóðirin heitir ný
frönsk sjónvarpsmynd sem er siðust á
sjónvarpsdagskránni í kvöld. Að sögn
Björns Baldurssonar dagskrárritstjóra
sjónvarpsins þykir myndin nokkuð góð
og ekki ætli að spilla fyrir henni að hún
er ný.
Myndin gerisl í þorpinu Deauville.
Þorpið er vinsæll sumardvalarstaður en
hins vegar er lítið þar um að vera á vet-
urna. Þó ber svo við einn veturinn að
tveir þreyttir og stressaðir tónlistar-
nienn koma til þorpsins í þvi skyni að
slappa af. Þeir kvnnast konu sem
starfar að ritstörfum. Hún býr ein i
húsi sem nokkuð er afskekkt i þorpinu
og er afstaða hennar til hússins nokkuð
einkennileg að mati tónlistarmann-
anna. Hún er hálfhrædd við að búa
þarna ein en neyðir sjálfa sig samt til
þess.Myndin gengur út á samskipti
konunnar og karlanna tveggja.
Mvndin er rúmlega klukkutima löng
og þýðandi hennarer Ragna Ragnars.
- ns
Fröken Svinka varð á dögunum af þvi aó hljóta verðlaun sem bezta leikkona
ársins 1979. Til þeirra var hún útnefnd fyrir leik sinn i Prúðu kvikmyndinni.
Myndin er úr einu hugljúfasta atriði þeirrar mvndar, froskurinn Kermit tjáir ung-
frúnni ást sina.
PRÚDU LEIKARARNIR
— sjónvarp í kvöld kl. 20.40:
„DREIFBÝLISSÖNG-
K0NA” í HEIMSÓKN
Söngkonan Crystal Gayle er gestur
Prúðu leikaranna í kvöld. Fyrir
skömmu var reyndar systir Crystal,
Lorelta Lynn, einnig gestur þeirra
Prúðu en vart má búast við að fleirum
úr ællinni verði boðið í þáttinn.
Þær systur eru þekktar „dreil'býlis-
söngkonur” í Bandaríkjunum, Loretta
þó öllu þekktari. Crystal hefur hins
vegar vinninginn yfir syslur sína utan
Bandaríkjanna.
Crystal Gayle syngur í stil sem popp-
skríbent DB hefur skilgreint sem Nash-
ville country & western. Hún varð fyrst
fræg fyrir lagið Don’l It Make My
Brown Eyes Blue. Með það flaug hún
upp í efsta sæli vinsældalistans og
hefur kontið þar nokkrum sinnum við
siðan. Má þar nefna lög hennar
Talking in Your Sleep og Why Have
You I.efl The One You l.eft Me For.
Núna á Crystal lag ofarlega a . in-
sældalista Bandaríkjanna og hel'ui hún
rneðal annars komizt með það á topp
,,dreifbýlislistans”, I.agið heitir Half
Way og gcta menn hevrt það ósparl
leikið i Kanaúlvarpinu þessa dagana.
Crystal Gayle er 28 ára gönutl og gil't
lögfræðingi.
Afgestgjöfum hennar, Prúðu lcikur-
unum, er það annars helzt að I rétta að
hin frábæra skapgerðarleikkona, söng-
kona og dansmey, fröken Svinka, varð
af því að hljóta vcrðlaun sem bczla
leikkona ársins á dögunum. Hal'ði hún
veiið úlnefnd til verðlaunanna Ivrir
vandaðan og fágaðan leik i Prúðu kvik-
mvndinni sem reyndar er jólamynd
Regnbogans í ár. Fegurðardisin Svinka
lél þetta þó ekkert á sig fá en hyggsl
halda ótrauð áfram á frægðarbraut-
inni.
- I)S
Gömlu dansa
námskeið
* ;oni &
Þjóödansafélags Reykjavíkur fyrlr börn og fullorðna hefst
mánudaginn 7. janúar I Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Innritun og upplýsingar i síma 75770 og í Alþýðuhúsinu
eftir kl. 4 á mánudag, sími 12826.
Þjóðdansafólagið.