Dagblaðið - 04.01.1980, Page 24
Vonlítið um árangur hjá Geir:
Þingflokkur Alþýðuflokks
vill nýsköpunarstjóm
— én hefur „gleymzt” að tala við Alþýðubandalagið?
„Ég held, að þetta sé vonlítið hjá
Geir,” sagði einn forystumanna
Sjálfslæðisflokks í viðtali við DB í
morgun. Aðrir foringjar þess flokks,
sem við var rætt i dag og í gær, voru
svartsýnir.
Á fundi i þingflokki
Alþýðuflokksins í gær var ríkjandi
skoðun, að flokkurinn ætti að leggja
lið hugmyndum um „nýsköpunar-
sljórn” Sjálfstæðisflokks, Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks. Alþýðu-
flokksmenn lýslu því í morgun sem
„nauðsynlegu vopnahléi” að slík
stjórn yrði mynduð. Á fundi í þing-
flokki Alþýðubandalagsins í gær var
hins vegar einkum á döfinni, hversu
litið „áþreifanlegt” hefði komið frá
Geir Hallgrímssyni um stjórnar-
myndun. Geir hefur ekki rætt við
neinn i þingflokki Alþýðubanda-
lagsins dögum saman,” sagði einn
þingmaður flokksins í morgun. ,,Á
fundi þingflokksins í gær skiplust
menn á upplýsingum um, að ekkert
væri aðgerast.”
Sjálfstæðismenn hafa aðallega
rætt við krata um nýsköpunarstjórn
og einhverjar þreifingar hafa átt sér
stað i röðum Alþýðubandalagsins,
þar sem skoðanir á málinu eru
skiptar. Þingmaðurinn laldi, að Geir
hefði „gleymt” að ræða hugmyndina
um nýsköpunarstjórn við Alþýðu-
bandalagið!
-HH.
Ungu strákarnir hans Jóhanns Inga:
Stóðu uppi íhárínu á pólsku „atvinnumönnunum"
Ungu strákarnir hans Jóhanns Inga, eins og islenzka handknattleikslandsliðið er köflum bráðvel reyndust Pólverjarnir sterkari á lokasprettinum og sigruðu 25—23. Á
gjarnan nefnt þessa dagana, komu verulega á óvart i gærkvöldi með því að standa þessari mynd Bjamleifs sendir Viggó Sigurðsson knöttinn inn á línu til Steindórs
uppi i hárinu á hinum pólsku andstæðingum sinum. Þrátt fyrir að íslenzka liðið léki á Gunnarssonar. Sjá iþróttir bls. 12 og 17.
„Mun nota tímann til
lestrar í tugthúsinu”
— segir Einar Bragi sem boðaður er til betrunarhússvistar á mánudag
vegna VL-mála
„Það er tilgáta mín, að
Vilmundur hafi látið undan
þvingunum í þessu máli, því mér
finnst ósennilegt að hann hafi fundið
upp á því sjálfur að láta málið hafa
forgang,” sagði Einar Bragi
rithöfundur í morgun. Einari Braga
hefur verið gert að greiða sekt eða
sitja í tugthúsi ella vegna dóms, sem
gekk í meiðyrðamáli gegn aðstand-
endum Varins lands.
Einar Bragi mun ekki greiða
sektina og á því að mæta í betrunar-
húsið á mánudag og sitja þar í tvo
daga. Hann var að því spurður í
morgun hvað hann hygðist fyrir í
tugthúsinu. „Ég ætla að nota
timann til lestrar og reyni að hafa það
eins notalegt og hægt er á slíkum
stað. Ég þekki þóekki til slíkra staða.
Ég hef lengi haft löngun til jiess
að kynna mér gerðabók fyrsta
jafnaðarmannafélagsins í Reykjavik,
jafnaðarmannafélagsins Gamla, en
hún hefur varðveizt. Ég er einnig með
aðra bók, um Ágúst Strindberg, og
Einar Bragi.
fjallar hún ekki um ósvipað efni.
Háfinn var mikill málatilbúnaður
gegn honum, sem endaði með því að
stjórnvöld fóru á rassinn.
Ég hef ekki nein áform um að
skrifa um jvessa reynslu mína, en
slíka reynslu geyma menn i huga sér.
Ég mun ekki hafa samband við
Vilmund að fyrra bragði vegna þessa
máls. Ég hef skrifað honum opinbert
bréf og hann veit að ég er tilbúinn til
þess aðsitja af mér sektina.”
-JH.
fifálst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR4. JAN. 1980.
Fjórir ungir
þjófar eltir
uppi á
hlaupum
í nótt hlupu lögreglumenn uppi
þrjá 15áraogeinn 16ára pilt, sem voru
að koma út úr Breiðholtsskóla að af-
lokinni innbrotsferð þangað.
Lögreglunni barst tilkynning um að
ekki væri allt með felldu í eða við
skólann. Er bíll kom á vettvang voru
piltarnir að koma út. Tókti þeir þegar
til fótanna er þeir sáu lögregluna og
hljóp hver í sína áttina. Lög-
reglumenn voru fljótir af stað á eftir
þeim og tókst að hlaupa þá alla uppi,
þó aldursmunur væri nokkur á þeint
sem flúðu og þeim sem eltu.
Á hlaupunum vörpuðu piltarnir frá
sér peningakassa og umslagi með
peningum. Hvort tveggja fannst.
Reyndust í fórum þeirra tæpl. 40
þúsund kr. í peningum og strætis-
vagnamiðar fyrir hátt á annað
hundrað þúsund.
Mál þeirra beið rannsóknarjög-
reglumanna i morgun. -A.Sl.
Af fjölmiölafólki:
Jón Helgason
aftur í slaginn
— og Stefán Jón
fullgildur fréttamaður
Stefán Jón Hafstein sem i sumar
hefur leyst af á fréttastofu útvarpsins
varð ofan á þegar Andrés Björnsson úl-
varpsstjóri ákvað hver skyldi fá þá
fréttamannsstöðu • sem nýlega var
lauglýst. Vekur ákvörðun Andrésar
talsverða athygli þar eð útvarpsráð,
sem er ráðgefandi í málinu, hafði mælt
með Hildi Bjarnadóttur félagsfræðingi
i starfið og Stefáni til afleysinga.
Andrés ákvað hins vegar að Stefán
skyldi gerður að fréttamanni en Hildur
koma inn sem afleysingamaður.
Þá hefur þaðgerzt í fjölmiðlaheimin-
um að gamla kempan Jón Helgason
hefur aftur hafið störf á Tímanum.
jHann mun starfa sem ritstjóri, eins og
ihann gerði, ásamt þeim Jóni
ISigurðssyni og Þórarni Þórarinssyni.
'Ritstjórar Tímans hafa flestir verið
fjórir í einu.
Hjá blaðaútgáfunni Frjálsu framtaki
eru einnig nokkur tíðindi í uppsiglingu.
Hildur Einarsdóttir sem verið hefur rit-
stjóri Tiskublaðsins Lífs hætti um ára-
mótin. Jóhann Briem forstjóri fyrir-
tækisins sagði í morgun að ekki væri
enn ljóst hver tæki við en viðræður
hefðu verið í gangi við nokkra aðila
sem til greina kæmu. Ljóst yrði alveg á
næstunni hver hreppti hnossið. Að
sögn Helgarpóstsins í morgun mun
Katrín Pálsdóttir, blaðamaður á Vísi
og fyrrverandi blaðamaður á DB,
koma sterklega til greina en Jóhann
vildi hvorki játa því né neita.
Jóhann var einnig spurður út i blaðið
Fólk sem kom út rétt fyrir jól í fyrsta
sinn. Blaðið á að koma út vikulega en
hefur ekki komið út síðan þá. Jóhann
sagði ástæðuna þá að fyrsta eintakið
var dagsett fram i tímann, nánar til
tekið 8. janúar. Næsta eintak, sem
kemur út í nætu viku, verður svo dag-
sett 15. janúar. Jóhann sagði að endan-
legt form væri ekki komið á Fólk
ennþá og dreifing ekki komin í fullan
gang þar eð ákveðið hefði verið að
leyfa fólki að venjast blaðinu í róleg-
heitum. -DS.