Dagblaðið - 17.01.1980, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1980.
13
Guðni sér um þjálfim Kefl-
víkinga til að byrja með
—æfmgarhefjast á laugardag af fullum krafti hjá þeim Suðumesjamönnum
Eins og við skýrðum frá í Dagblað-
inu i gær eru Keflvíkingar sem ákafasl
að leita sér að þjálfara um þessar
mundir. í því sambandi minntumst við
á að þeir hefðu mikinn áhuga á að ráða
Gyala Nemes, sem þjálfaði Valsmenn
sl. tvö sumur með ágætum árangri.
Keflvikingar hafa ekki einskorðað
þjálfaraleit sína við hann og hafa verið
með aðra í takinu þó ekki sé unnt á
þessu stigi málsins að láta uppi hverjir
það eru. Einn þeirra sem Keflvíkingar
hafa áhuga á er íslendingur sem hefur
getið sér gott orð á knattspyrnusviðinu
en tii þessa ekki mikið fengizt við þjálf-
un.
í gærkvöld var haldinn fundur hjá
leikmönnum Keflavíkurliðsins og að
Meistarar Forest duttu
heldur í lukkupottinn
— stefnir í v-þýzk undanúrslit í UEFA-keppninni
Evrópumeistarar Nottingham Eorest
duttu heldur betur í lukkupottinn i
gærdag er dregið var í 8-liða úrslit í
Evrópumótunum þremur. Þeir drógust
gegn veikasta liðinu, sem eftir var í
hópnum — a-þýzku meisturunum
Dynamo Berlin. Varla verður Clough
og hersveit hans vandi á höndum við að
ganga frá A-Þjóðverjunum. Skozku
meistararnir Celtic drógust gegn
meisturum frá Spáni, Real Madrid og
verður að telja allt annað óliklegt en að
Celtic bíði þar lægri hlut. Jafnvel þótt
liðið sé nú örugglega efst í Skotlandi
er liðið engan veginn nógu sterkt til
átaka i Evrópukeppninni.
Hinir tveir leikirnir í 8-liða úrslitun-
um eru á milii Racing Strasbourg frá
Frakklandi og Ajax, Amsterdam
annars vegar og Hamburger Sport
Verein og Hajduk Split frá Júgósiaviu
hins vegar. Það ættu því að verða
Forest, Ajax, Real Madrid og Ham-
burger SV í undanúrslitum. Ekki dóna-
leg súpa það!
Einnig var í gær dregið í 8-liða
úrslitum hinna Evrópumótanna
tveggja, þ.e. Evrópukeppni bikarhafa
og svo UEFA-keppninni. Drátturinn í
UEFA-keppninni var afar spennandi
þvi í 8-liða úrslitunum voru 5-v-þýzk
lið! Og eftir dráttinn bendir flest til
þess að það verði 4 v-þýzk lið í undan-
Tony Woodcock og Larry Lloyd hampa hér Evrópubikarnum sl. vor. Woodcock
hcfur nú haldið til liðs við FC Köln en Lloyd á alla möguleika á að vinna bikarinn
aftur i vor.
úrslitum keppninnar og yrði það í
fyrsta skipti í sögu keppninnar að sama
bjóðin eigi fjögur lið í undanúrslitum.
ti Kaiserlsautern og Bayern Munchen
prógust saman og verður að telja
Munchen-Iiðið sigurstranglegra í þeirri
viðureign. Stuttgart dróst gegn
Lokomotic Sofia og ættu Hansi Muller
og félagar að komast áfram þar.
Eintracht Frankfurt og Zbrojovka
Brno drógust saman og þar verður
vafalitið um hörku viðureign að ræða.
Brno hefur m.a. slegið út danska liðið
Esbjerg út úr keppninni, þá Keflavík og
loks Standard Liege. Þykir í raun undr-
un sæta hve Keflvikingar stóðu í þessu
sterka liði. Fjórða viðureignin verður
svo á milli Borussia Mönchengladbach
og St. Etienne frá Frakklandi. Þar
verður einnig barizt grimmilega ef að
líkum lætur og menn minnast vafalítið
enn 6—0 sigurs Frakkanna yfir PSV
Eindhoven í síðustu umferð.
Einna minnsta spennan var í sam-
bandi við dráttinn i Evrópukeppni
bikarhafa. Þar voru líka fæst stórliðin
og í gegnum árin hefur verið fremur
litill „sjarmi” yfir þessari keppni.
Ensku bikarmeistararnir voru heppnir
er þeir fengu sænsku bikarmeistarana,
IFK Gautaborg, sem mótherja. Leið
Arsenal í undanúrslitin ætti að vera
nokkuð greið. Vafalítið verður heitt í
kolunum á Spáni því Barcelona og
Valencia drógust saman. Barcelona
vann þessa keppni á sl. ári og ér þess
vegna með núna.Valencia er hins vegar
bikarmeistari Spánar. Ðynamo
Moskva dróst gegn frönsku bikarmeist-
urunum Nantes og Juventus frá Ítalíu
lenti á móti Stahl Rijeka frá Júgó-
slavíu.
honum loknum hafði Dagblaðið sam-
band við Friðrik Ragnarsson, einn
knattspyrnuráðsmanna, og spurði
hvort eitthvað markvert hefði komið
fram á fundinum.
„Nei, í sjálfu sér ekki,” sagði Frið-
rik. ,,Við höfum ekkert endilega
bundið okkur við Nemes og leitum
víðar fyrir okkur þessa stundina. Það
er þó ákveðið að Guðni Kjartansson
sjái um þjálfun liðsins, a.m.k. til að
byrja með, og við munum hefja æfing-
ar af krafti á laugardaginn,” sagði
Friðrik ennfremur.
Keflvíkingar eru því enn án fast-
ráðins þjálfara og ekki einir um slikt.
Þjálfaraleit i hinum deildunum hefur
gengið álíka og enn eru mörg félög
þjálfaralaus. -SSv.
Guðni Kjartansson mun þjálfa Kefla-
víkurliðið til að byrja með.
ENGLAND 0GITAUA
í SAMA RIÐU
— þegar dregid var í Evrópukeppni
landsliða í gærdag
Englendingar og ítalir drógust sam-
an i riðil í gær er dregið var í riðla fyrir
úrslitakepþni Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu, sem fram fer í Róm í
sumar. Mikil spenna var í sambandi við
dráttinn enda öll beztu landslið Evrópu
saman komin. í A-riðli drógust saman
V-Þjóðverjar, sem við sögðum í gær
vera Evrópumeistara í knattspyrnu.
Það er ekki rétt. Núverandi Evrópu-
meistarar eru Tékkar og þeir eru einnig
í þessum riðli ásamt Hollendingum og
Grikkjum, því liði sem langmest kom á
óvart í undankeppninni. Grikkirnir
ýttu til hliðar bæði Ungverjum og
Sovétmönnum og ruddu sér leið í
úrslitin. Hætt er þó við að þeim reynist
róðurinn erfiður í Róm.
í hipum riðlinum lentu svo saman
gestgjafarnir halir, Englendingar,
Belgar og Spánverjar. Þessi riðill virkar
einhvern veginn ekki eins spennandi
enda hafa landslið Belga og Spánverja
lítið afrekað undanfarin ár. ítalir
virðast vera með nokkuð staönað lið en
Englendingar hafa átt góðu gengi að
fagna nú um tveggja ára skeið undir
stjórn Ron Greenwood.
Fyrirkomulag keppninnar er þannig
að öll liðin leika innbyrðis í riðlunum
og ræður stigatala röðinni. Fari svo að
lið verði jöfn að stigum verður marka-
tala látin ráða. Mikið hefur verið spáð í
hugsanlega röð liðanna og til gamans
ætlum við að vera með og spáum röð-
inni þannig: 1. Holland, 2, England, 3.
V-Þýzkaland, 4. Ítalía, 5. Tékkó-
slóvakía, 6. Spánn 7, 7. Belgía og 8.
Grikkland.
O’Callaghan
til Ipswich
Bobby Robson, framkvæmdastjóri
Ipswich, keypti í gær hinn unga og
bráðefnilega Kevin O’Callaghan frá
Millwall fyrir upphæð sem nemur um
250.000 sterlingspundum. O’Callaghan
þessi var einn þriggja ungra leikmanna
Millwall er voru orðaðir við bandariska
félagið Tampa Bay Rowdies fyrr i
vetur, en ekkert varð úr samningum
þar.
Björgvin og
Gunnar gera
það gott
íslendingar í v-þýzkum hand-
knattleik er í sjálfu sér ekkert nýtt
fyrirbrigði. Það er hins vegar ekki
á hverjum degi sem við komumst
yfir litmyndir af þeim leikmönn-
um sem i V-Þýzkalandi dvelja,
hvað þá heldur liðunum sem þeir
leika með. Þessa ágætu mynd af
liði þeirra Gunnars Einarssonar
og Björgvins Björgvinssonar,
Grambke í Bremen, rákumst við á
í fyrsta hefti þýzka iþróttablaðs-
ins Kicker á þessu ári. Okkur
fannst því alveg sjálfsagt að birla
myndina og það í lit.
Gunnar Einarsson hefur leikið
handknattleik I mörg ár í V-
Þýzkalandi við góðan orðstír.
Hann hélt ungur utan og hefur
náð að skapa sér nafn, sem fyrsta
flokks handknattleiksmaður.
Þótt Björgvin hafi ekki dvalið
eins lengi úti er engum blöðum
um það að fletta að þar er einn
snjallasli linumaður íslendinga
fyrrogsíðar.
Gunnar er annar frá vinstri í
fremri röð á myndinni og Björg-
vin annar frá hægri í fremri röð-
inni.
▼Tl ^4 VlmmohHtafí -n ▼ ■ ^ j ,
" - ðltlÍlAn fcíss m pj | (BunoltiUiiD M íÉ'' i