Dagblaðið - 08.02.1980, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Flúor:
Heilsusamlegt
eða hættulegt?
Er flúor heilsusamlegt sneftlefnii réttum skömmtum verkar hvetjandi á: Heilsuhringsins er sá maður sem
sem nauðsynlegt er líkamsstarfsem-
inni i ákveðnum skömmtum eða er
það eitur hættulegt manninum? Um
það eru alls ekki allir sammála.
Félagsskapurinn Heilsuhringurinn
berst harðri baráttu á móti flúor-
notkun, þó sérstaklega þeirri hug-
mynd aðblanda flúor í drykkjarvatn.
Aftur telja margir tannlæknar og
læknar, bæði hér á landi og erlendis,
að flúor sé mjög til bóta í drykkjar-
vatni. Og fyrst ekki sé ennþá farið að
blanda því saman við vatnið hérna sé
betra en ekki að skólabörn fái flúor-
töflur í skólanum og taki þær reglu-
lega. Þar sem þetta er mál sem varðar
alla neytendur er Neytendasíðan í dag
helguð röksemdum með og á móti
flúornotkun.
Heilsusamlegt
og hættulaust
í opnu bréfi sem skólatannlæknar
Reykjavíkur hafa sent blöðunum
segir meðal annars: „Flúor tekið inn í
reglulegum skömmtum á myndunar-
skeiði tannanna minnkar tann-
skemmdir um og yfir 50%. Flúor í
kölkun tannglerungsins.” Hættan af
því að taka inn flúor er sögð vera í
algjöru lágmarki, minni en sú hætta
sem því fylgir að taka flestaðrar töfl-
ur. Tannburstun í flúorupplausn er
einnig að sögn hættulaus því vand-
lega er fylgzt með tannburstuninni og
sú blanda sem bömin fá það veik að
henni fylgir engin hætta.
Borgarlæknirinn í Reykjavík,
Skúli Johnsen, sagði er hann var
spurður um álit sitt á flúori að hann
hefði ekki séð neinar vísindalegar
niðurstöður um að flúor væri hættu-
legt. Hins vegar bendir fjöldi niður-
staðna til þess að flúor sé nauðsynlegt
ákveðinni líkamsstarfsemi mannsins.
Hann kvaðst tvímælalaust fylgjandi
blöndun flúors i drykkjarvatn og
sagði að því gæti alls ekki fylgt nein
hætta. Hann sagði einnig að auðvitað
hefðu allir þeir sem vildu fullan rétt
til að berjast á móti slíku, en í málum
sem þessu yrði þó almenningsheill að
sitja í fyrirrúmi.
Rottueitur
Marteinn Skaftfells formaður
hatrammast hefur barizt á móti
flúori í drykkjarvatni eða til inntöku.
Hann sagði í kjallaragrein í DB þann
12. desember sl. að flúor væri eitt
sterkasta eitur sem til væri. Því er
það notað í baráttunni við rottur,
ekki til að firra þær tannátu heldur
lífinu í heild. Marteinn telur að flúor-
inntöku fylgi einhverjar aukaverk-
anir og þá sérstaklega þegar börn,
gamalmenni og vanfærar konur taki
inn sama skammt og aðrir, í gegnum
drykkjarvatn.
Sú spurning hefur einnig vaknað í
hugum efasemdarmanna að þó
flúorið sé hollt og beinlínis nauðsyn-
legtsésvo um fjölda annarra efna og
hvort þá beri að blanda þeim öllum í
drykkjarvatn landsmanna.
Hvar setja á mörkin er nokkuð sem
menn eru greinilega ekki sammála
um, en neytendur ættu sannarlega að
reyna að afla sér upplýsinga um
flúorið, en láta ekki bara einhverja
menn úti í bæ um að ákveða hvort
það verði sett í vatnið. Eins ættu
foreldrar að kynna sér flúorið nánar
áður en þeir láta börnin sín taka það
reglulega. -DS.
Upplýsingaseöill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldiö?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseöil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðiun
meðai almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von i að fá nytsamt heimilistæki.
Kostnaður í janúarmánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
m i nt i v
Fjöldi heimilisfólks
Hluti þátttakenda f fyrsta námskeiðlnu á vörukynningunni og viðskiptavinir sem
fengu að smakka á gómsætum réttum.
Betri þjónusta
við matar-
innkaupin
Neytendur og viðskiptavinir kaup-
félaganna víðs vegar um landið mega
í framtíðinni eiga von á mun betri
þjónustu er þeir kaupa í matinn en
hingað til. Sextán manns, afgreiðslu-
fólk kaupfélaganna, voru nýlega á
þriggja daga námskeiði i meðferð
kjöts og kjötvara á vegum Samvinnu-
skólans. Námskeiðið fór fram í
Reykjavík i samvinnu við Kjöt-
iðnaðarstöð Sambandsins. Mark-
miðið var að veita afgreiðslufólki í
matvöruverzlunum fræðslu um
sundurtekningu og meðferð kjöt-
vöru. Einnig var leiðbeint um útstill-
ingar í kjötafgreiðsluborð og tilsögn
veitt í sölumennsku.
Helztu efnisþættir sem teknir voru
fyrir á námskeiðinu voru: kjötmat,
sundurtekning og úrbeining á dilka-
kjöti, nauta- og svínakjöti, heil-
brigðis- og hreinlætismál, geymslu-
aðferðir og geymsluþol, matreiðsla,'
útstillingar í kæliborð og frystiborð,
sölumennska og vörukynning.
Mestur hluti námskeiðstímans fór i
verklegar æfingar, en einnig voru
fyrirlestrar og myndrænar skýringar.
Næsta námskeið verður haldið
dagana 12. —14. febrúar. Er það
þegar fullskipað og byrjað að bóka
þátttakendur á þriðja námskeiðið en
ekki ákveðið hvenær það verður.
Fyrsta námskeiðinu lauk með vöru-
kynningu í verzluninni KRON í
Breiðholti, sem þátttakendurnir sáu
að mestu leyti um sjálfir.
- A.Bj.
Uppskrift dagsins
GRILLUÐ YSU-
FLÖKMED
HOLLENZKRI
SÓSU
Á dögunum grilluðum við í til-
raunaeldhúsinu venjulegt ýsuflak.
Bárum það síðan fram með soðnum
kartöflum og hollenzkri sósu (frá
Toro), örlítið endurbættri
Roðflettið flakið og skerið í hæfi-
leg stykki. Raðið stykkjunum í eld-
fast fat og stráið góðu kryddi yfir,
t.d. Lemon’n herbs. Fatið er síðan
látið á miðrimina í ofninum, eftir að
grillið er orðið rauðglóandi. Eldunar-
timinn fer dálitið eftir því hve þykk
stykkin eru, ca 6—8 mín. Þá er fatið
tekið út úr ofninum og stykkjunum
snúið viö, xrydduð og látin aftur inn í
ofninn.
Á meðan fiskurinn er að grillast er
sósan búin til, eins og stendur á pakk-
anum. Bætið sósuna með safa úr
einni sítrónu. Rétt áður en sósan er
borin fram er gott að hræra út i hana
einni eggjarauðu og svolitlum rjóma
(má gjarnan vera kaffirjómi).
Hráefniskostnaður ef notað er t.d.
ýsuflak er tæplega 1500 kr. eða um
375 kr. á mann. Þá er reiknað með
þvi að kaupa um 200 g af ýsuflökum
á mann.
-A.Bj.