Dagblaðið - 08.02.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980.
5
Gunnarsmenn vildu síður tjá hug sinn:
STUDNINGUR VIÐ
GEIR ÁBERANM
— í samtölum DB við áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum
Andstaða við stjórnarmyndun dr. Gunnars Thoroddsens er áberandiísamtölum DB við forystufólk
úr Sjálfstœðisflokknum víðs vegar um land í gær. Þó ber þess að geta að margir sem leitað var til
fœrðust undan að svara, sérstaklega þeir sem höfðu ekki mótað sér afstöðu til málsins eða höfðu
samúð með stjórnarmyndun dr. Gunnars. Fram kom í flestum samtölum að skoðanir sjálfstœðis-
manna eru mjög skiptar almennt. Sumir spáðu því að illindin œttu eftir að verða flokknum dýr-
keypt, aðrir töldu að hann kæmi sterkari út úr slagnum. -A RH/-JH.
Guðmundur B. Jónsson bæjarfulltrúi,
Bolungarvík:
„Ekki gott ef háset-
amir vilja fara í aðra
átt en skipstjórinn”
„Það er ekki rétt að farið við þessa
stjórnarmyndun,” sagði Guðmundur
B. Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Bolungarvík.
„Flokkurinn hefði átt að standa að
stjórninni og síðan hefði átt að ráðast
hvort Gunnar Thoroddsen hefði átt
sæti í þeirri stjórn.
Framsóknar- og alþýðubandalags-
menn hér eru ánægðir með þessa
þróun mála. En ég hef spurt þá hvort
þeir hefðu viljað að þeirra flokkar
hefðu lánað Sjálfstæðisflokknum
3—4 menn. Þeir eru ekki reiðubúnir í
það. En þeim finnst allt í lagi að
Sjálfstæðisflokkurinn lánimenn.
Ég hefði viljað að þessir þrír
flokkar hefðu strax myndað stjórn en
Steingrímur Hermannsson útilokaði
þann möguleika með yfirlýsingumt
um að hann vildi ekki vinna með
Sjálfstæðisflokknum.
Ég veit ekki hvort þessi stjórnar-
myndun Gunnars veldur klofningi í
flokknum. Það er mín trú að Gunnar
hefði náð hærra í flokknum ef hann
hefði ekki hætt i pólitik á sínum
tíma. Enginn dregur i efa hæfileika
hans.
En það er ekki gott ef hásetarnir
vilja fara i aðra átt en skipstjórinn.
Það er mín skoðun að þarna sé um
persónulegt uppgjör þessara tveggja
manna að ræða.”
-JH.
Óli M. Lúðvíksson bæjarfulltrúi, ísafirði:
Allir hljóta að fagna
ríkisstjóm sem getur
tekizt á við
„Það hljóta allir íslendingar að
fagna því ef hægt er að mynda rikis-
stjórn sem getur tekizt á við þann
vanda sem við blasir,” sagði Óli M.
Lúðvíksson bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á ísafirði. „Það má
síðan deila um þær aðferðir sem
notaðar eru við þessa stjórnarmynd-
un.
Maður verður að vona að Sjálf-
stæðisflokkurinn allur fari inn í
vandann
þessa stjórn. Það yrði farsælast fyrir
þjóðina. Menn verða að láta deilu-
mál kyrr liggja.
Ég á ekki von á því að þessi
stjórnarmyndun valdi klofningi.
Þarna er líklega að hluta til um
persónulegt uppgjör að ræða. En eins
og ástandið er nú verða menn að
leggja persónulegar deilur til hliðar.
Þá verða þeir menn að meiri.”
-JH.
Ólína G. Ragnarsdóttir
bæjarfulltrúi, Grindavík:
Þessi stjórn-
armyndun
kemur manni
spánskt fyrir
sjónir
„Óneitanlega kemur manni
stjórnarmyndun sem þessi nokkuð
spánskt fyrir sjónir,” sagði Ólína G.
Ragnarsdóttir, annar bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Grindavík.
„Annars er bezt að segja sem minnst
um þessi mál þar til þau skýrast
frekar.
Ég er á móti þessari stjórnarmynd-
un. Ég hefði talið það eðlilegra að
formaður flokksins hefði myndað
stjórn í stað Gunnars Thoroddsens.
Ég reikna með því að þessi stjórnar-
myndun valdi klofningi í Sjálfstæðis-
flokknum.” -JH.
Sigurgeir Sigurdsson bæjarstjórí:
TVBRDGASÖK
ÞEGAR DEILT ER
„Við sjálfstæðismenn vitum al-
mennt litið um hvað verið er að semja
um í stjórnarmyndunarumræðunum.
Við höfum okkar vitneskju að mestu
úr fjölmiðlunum,” sagði Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjarnar-
nesi.
„Tveir eiga venjulega sök þegar
deilt er. Ég geri ráð fyrir að það eigi
við deilurnar í Sjálfstæðisflokknum
líka. Ég vona aðsættir náist.
Það er í sjálfu sér eðlilegt að
skoðanir geti verið skiptar i stórum
og viðum flokki eins og Sjálfstæðis-
flokknum. Og flokkar hafa eins og
menn gott af uppstokkun annað
slagið.”
Aðspurður um beiná afstöðu til
stjórnarmyndunar dr. Gunnars sagði
Sigurgeir Sigurðsson.
„Það er bezt að halda sig við vilja
meirihlutans. Ég er andvígur að
skrifaðséuppá blankó víxla.”
-ARH.
Guðmundur Heíðar, formaður Varðar á Akureyrí:
Líklegt að Sjálfstæð-
isflokkurinn klofni
„Ég er andvígur stjómarmynd-
unartilraunum Gunnars. Öllu lengra
er ekki hægt að ganga en að skeyta
ekki um meirihiutaákvarðanir. Ég
:veit hins vegar ekkert um málefna-
samning stjórnarinnar og dómur um
hann og verk stjórnarinnar bíða betri
tima,” sagði Guðmundur Heiðar
Frímannsson formaður Varðar,
félags ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri.
„Síðustu atburðir eru auðvitað
mjög óæskilegir fyrir flokkinn.
Ágreiningurinn núna snýst meira um
menn en málefni. Óþarft er þó að
draga fjöður yfir að sjálfstæðismenn
greinir á um ntálefni. Sumir fram-
bjóðendur voru andvígir leiftur-
sóknarstefnunni fyrir síðustu
kosningar. Og ágreiningur er líka um
hlutverk rikisins í þjóðarbúskapnum.
Átökin eiga sér langan aðdrag-
anda og ég tel líklegt að dragi til veru-
legra tiðinda. Ég á von á klofningi i
Sjálfstæðisflokknum.”
-ARH.
Hörður Stefánsson bæjarfulftrúi Neskaupstað:
FIKT ÚT í LOFTIÐ
„Það er afar slæmt hljóð i mér
vegna þessarar stjórnarmyndunar,”
sagði Hörður Stefánsson flugvallar-
vörður á Neskaupstað. Hann situr i
bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokk-.
inn.
, I yrst og fremst er með eindæmum
hvernig að málum er staðið hjá
Gunnari og hans mönnum. Ég hef
ekki trú á þvi að stjórnin verði lang-
líf. Það sem ég hef heyrt um málefna-
grundvöll hennar er fikt út i loftið.”
| Þú styður þá við bák formanns-
ins?
„Já, ég styð Geir svo lengi sem
hann er formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Ágreiningur hefur lengi verið
Ifyrir hendi innan flokksins. Eftir
þessa atburði ættu þeir að verða úr
sögunni. Ég á von á að átökin verði
flokknum til góðs þegar litið er til
lengri tíma.”
Hörður sagði að lokum að sjálfur
hefði hann helzt kosið sér vinstri
stjórn í hálft annað ár i viðbót. „Það
ætti að nægja til að sýna mönnum
hvert slíkt leiðir. Við hefðum von-
andi fengið frið fyrir vinstri stjórnum
í minnst áratug á eftir.”
-ARH.
Vilmundur Gylfason hefur ekki gleymt Jóni Sólnes:
SÍMGJALDAMÁL JÓNS SÓL-
NESS SEND SAKSÓKNARA
— því staðreynt
er að
misfellur áttu
sér stað
Vilmundur Gylfason dómsmálaráð-
herra hefur skotið símareikningamáli
Jóns Sólness til ríkissaksóknara. Í bréfi
ráðherrans til saksóknara segir að yfir-
skoðunarmenn ríkisreikninga hafi á sl.
ári óskað athugunar ríkisendurskoð-
unar á misfellum í sambandi við fylgi-
skjöl með tilteknum reikningum sem
Jón G. Sólnes hafði fengið greidda hjá
Alþingi og eða Kröflunefnd. Segir ráð-
herrann að umræddu rannsóknarefni
hafi ekki verið lokið þrátt fyrir að stað-
reynt hafi verið að umræddar mis-
fellur hafi átt sér stað. Er þess farið á
leit við saksóknara að hann hlutist til
um, eftir því sem við verður komið, að
umrætt rannsóknarefni verði tæmt
þannig að það geti fengið lögmælta
meðferð sem efni standa til.
Að fróðra manna sögn verður opin-
ber rannsókn á þessu máli Jóns Sólness
ekki afturkölluð úr þessu því jafnvel
þótt kærandi drægi kæruna til baka
ber ríkissaksóknara að rannsaka þau •
mál sem athygli hans hefur verið vakin
á.
Þrjár leiðir liggja þá fyrir i málinu.
Ein er sú að saksóknara finnist málið
ekki þurfa frekari rannsóknar, önnur
að hann hlutist til um að lögreglurann-
sókn fari fram í þvi og hin þriðja að
saksóknari fyrirskipi beina dómsrann-
sókn málsins.
Það voru yfirskoðunarmenn rikis-
reikninga, þeir Baldur Óskarsson,
starfsmaður Alþýðubandalags, Bjarni
P. Magnússon, starfsmaður Alþýðu-
flokksins, og Halldór Blöndal, nú
alþingismaður, sem skrifuðu forseta
sameinaðs þings bréf um að Jón Sólnes
alþingismaður hefði fengið greidda
símareikninga af heimilissíma sínum
hjá Kröflunefnd. Hluta þessa sama
símakostnaðar hafði Jón Sólnes svo
einnig innheimt hjá Alþingi gegn fram-
vísun ljósritaaf reikningunum.
Símareikningar Jóns náðu til þriggja
ára: 1976, 1977 og 1978. Upphæðin
sem Kröflunefnd greiddi honum nam
um einni milljón króna. Hluta upp-
hæðarinnar fékk hann svo einnig
greiddan hjá Alþingi á grundvelli þess'
að Alþingi greiðir gjöld af heimasímum
þingmanna, þau sem umfram eru
venjulegt fastagjald af síma.
Skrifstofa Alþingis gaf Jóni tæki-
færi til að endurgreiða símgjöldin sem
hann hafði fengið greidd þar eftir Ijós-
ritum reikninga. Gerði hann það með
tveimur greiðslum í seplember og
október.
Yfirskoðunarmenn tortryggðu einnig
á sínuni tiina eftirvinnugreiðslur lil
Jóns Sólness sem formanns Kröflu-
nefndar. Vitni voru leidd fram sem
vottuðu að þær greiðslur bæri Jóni
samkvæmt ráðningarsamningi sem
Kröflunefndarformanni.
Varnir Jón G. Sólness voru þær
helztar i símareikningamálinu að
Kröflunefnd hefði lagt út fyrir þessum
símareikningum vegna ógreiddra reikn-
inga fyrir bifreiðakostnað. Sagði Jón
að enn hefði ekki verið skorið úr um
þær greiðslur en taldi sig eiga rétt á
þeim samkvæmt reglum um greiðslu
bifreiðakostnaðar forslöðumanna
opinberra stofnana vegna nola á eigin
bifreið. Hafi með þessum hætti
myndazt skuld hans við Kröflunefnd
sem hann hafi geymt að gera upp þar til
skorið yrði úr bilakostnaðarmálinu.
Hefði bilakostnaðarmálið verið gert
upp á réttan hátt og á réltum tíma hefði
Jón átt rétt til greiðslu símagjalda frá
Alþingi eftir föstum reglum.
-A.Sl.