Dagblaðið - 08.02.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FLBRÚAR 1980.
Erlendar
fréttir
REUTER
Giap stríðshetja
settur til hliðar
Giap hershöfðingi varð stríðshetja í
Vietnam er hann stjórnaði bardögum
gegn franska nýlenduhernum þar um
miðjan sjötta áratuginn. Hann var
einnig einn aðalherstjórnarmanna
Vietnam þegar Bandaríkjamenn voru
reknir þaðan tuttugu árum síðar. Giap
hefur nú misst eitthvað af vegtyllum
sínum í einhverskonar endurskipulagn-
ingu rikisstjórnarinnar í Vietnam.
Castro gefur upp
hermannafjöldann
í Afríku
Kúbumenn voru á tímabili með
þrjátiu og sex þúsund hermenn i
Angóla og tólf þúsund í Eþíópíu að
sögn Fidels Castro forseta Kúbu. Þetta
er í fyrsta skipti sem Castro eða annar
ráðamaður í Kúbu upplýsir nokkuð um
fjölda Kúbumanna sem sendir voru
þangað til aðstoðar vinstri sinnuðum
skæruliðum.
Kuwait segir
upp olíusamningi
Kuwait hefur rift samningi um að
selja olíu til ítalska fyrirtækisins
Pontoii. Ástæðan er sögð sú að grunur
leikur á að einn skipsfarmur af olíunni
hafi verið seldur Suður-Afríku.
SAS dregur saman
á Atlantshafsleiðinni
— olíukreppan kemur fyrst og fremst
fram I fækkun ódýrra sæta fyrir
almenna ferðamenn
Sífellt hækkandi eldsneytisverð
veldur því að skandinaviska flug-
félagið sér sig tilneytt að draga úr
ferðum yfir Atlantshafið. Samkvæmt
tilkynningu Carl-Olof Munkberg,
aðalforstjóra fyrirtækisins, verður
samdrátturinn átta af hundraði
næsta sumar. Er þá miðað við fram-
boð SAS á þessari leið síðastliðið
sumar.
Munkberg forstjóri sagði í viðtali
við dönsk blöð að þegar í vetur hefði
mátt merkja samdrátt á seldum flug-
farmiðum yfir Atlantshafið á milli
Evrópu og Bandaríkjanna. Sé þessi
samdráttur hjá SAS um það bil einn
af hundraði miðað við fyrri vetur. í
tekjum er þetta einhvers staðar nærri
því að vera jafnvirði tuttugu og
fjögurra milljarða íslenzkra króna.
Þá mun að vísu vera átl við eins pró-
sent samdrátt í farmiðasölu yfir allt
árið.
Að sögn ráðamanna hjá SAS eru
fyrirtæki þegar farin að horfa meira í
aurinn áður en starfsmenn fara í við-
skiptaferðalög sem krefjast flug-
ferða. Sagt er að búast megi við enn
meiri íhugun í þeim efnum eftir að
hækkanir á verði flugfarmiða hefur
gengið í gildi. Munkberg forstjóri
SAS sagði að minnkandi framboð
sæta á Atlantshafsflugleiðinni mundi
fyrst og fremst koma niður á ódýrum
Krfiðleikar í Ameríkuflugi eru sam-
eiginlegir öllum evrópskum flug-
félögum segir Munkberg, aöalfor-
sljóri SAS. ^ ^
ferðum sem ætluð hafa verið til að
hvetja hinn almenna____ferðamann.
Einkum verður lögð áherzla á að
selja farmiða til kaupsýslufólks og
annarra sem þurfa að ferðast atvinnu
sinnar vegna og greiða mun hærra
verð en venjulegir sumarleyfisferða-
menn.
Að sögn Munkbergs, aðalforstjóra
SAS, eru erfiðleikar á flugi ntilli
Evrópu og Bandaríkjanna sameigin-
legir öllum evrópskum flugfélögum.
Nýja Sjáland:
Fækka sendiráðs-
mönnum í 8 úr 31
Robert Muldoon forsætisráðherra
Nýja-Sjálands sagði í gærkvöldi að
hann mundi skipa Sovétmönnum að
fækka sendiráðsmönnum sínum i
Wellington úr þrjátíu og einum í átta ef
ekki yrði hætt að senda kommúnista-
flokki landsins fjárstyrki.
Sendiherra Sovétríkjanna í Welling-
ton, Vsevolod Sofinsky, var vísað úr
landi fyrir tólf dögum fyrir að hafa i
eigin persónu afhent forráðamönnum
kommúnistaflokksins „Rússagull”.
Flokkur þessi er mjög lítill en hefur
verið dyggur fylgjandi Moskvulín-
unnar. Sendiherrann neitaði algjörlega
þessum ákærum og sagði þær fremur
eiga heima i glæpasögu en raunveru-
leikanum.
Forráðamenn kommúnistaflokksins
i Nýja-Sjálandi hafa einnig neitað að
hafa fengið nokkra peninga frá
Moskvu.
í kjölfar brottvísunar sovézka sendi-
herrans ráku Sovétmenn nýsjálenzka
sendiherrann í Moskvu úr landi. Auk
þess hafa þeir að sögn nýsjálenzkra
yfirvalda dregið úr hömlu að sam-
þykkja formlega þann mann sem átti
að taka við af þeim brottrekna.
'ungur Kúmenl taldi sig l gámi, sem siðan var settur um borð i bandarfskt
flutningaskip. Gerðist þetta i Svartahafshöfninni Costanta i Rúmeniu. Hann
siapp úr prisundinni eftir viku en þá var skipið komið til Genúa á ítalfu. Myndin
sýnir hvar flóttamaðurinn gægist út úr gáminum rétt áður en hann komst út i
frelsið.
Hjálparstofnun kirkjunnar þakkar
eftirtöldum aðilum veittan stuðning:
Listamönnunum sem fram koma,
Tónkvísl,
Litmyndum
Þórhildi Jónsdóttur,
eigendum og starfsfólki Austurbæjarbíós.
Forsala aögöngumiöa í
Fálkanum
Hiálparstofnun-^
kirkjunnar J 0