Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980. ÍW % y* e* CÆ<3 ÍÍAÖ OS5 U-S'J'X Í-NTER ♦ STO «01, CHS t£x HEWLETT hp PACKARD HEWLETT-PACKARD-einkaumboö á íslandi STÁLTÆKI Bankastræti 8. Sími 27510. |Cr leik í 1. deildarkeppninni i knattspyrnu. Beztu leikmennirnir streyma úr landi: ER ÍSLENZK KNATT- SPYRNA GLÖTUÐ? íþróttaunndandi skrifar: Ég held að það sé kominn tími til fyrir islenzk knattspyrnufélög að gera eitthvað róttækt í sínum málum áður en við missum alla okkar beztu knatt- spyrnumenn til útlanda. Ástandið er orðið þannig, að leik- menn flykkjast til útlanda, oft á tíðum til lélegra liða i Svíþjóð, liða i 2. og 3. deild þar. Félögin hér heima sitja siðan eftir með sárt ennið og geta enga björg sér veitt. Ef svo heldur sem horfir á þetta eftir að gera út af við knattspyrnuna hér á íandi. Fólk hættir að sjálfsögðu að fara á völlinn þegar aðeins verða eftir miðlungsknattspyrnumenn. Enginn endist til að horfa á hálfgerð varalið leiða saman hesta sína. íslendingar verða nú að taka sig saman í andlitinu og sporna gegn þessari þróun. Setja þarf lög sem koma í veg fyrir að útlend lið geti sótt hingað leikmenn án þess að borga íslenzku félögunum fyrir það. íslenzk knattspyrnufélög hafa ekki efni á því' að ala upp knattspyrnumenn fyrir erlend félög. Ef ekkert verður gert i þessum málum nú þegar er knattspyrnan á íslandi glötuð. „Geri mun á opinberu meti og meti settu í lokuðu einkasamkvæmi” — segir Vilhjálmur Ástráðsson ég greinarmun á meti sem gert er i opinberu veitingahúsi þar sem fram fer opinber maraþondanskeppni, eða i lokuðu einkasamkvæmi uppi í sveit, sem enginn veit um, nema þá kannski þeir sem á staðnum voru. Það gæti hver sem er boðið heim til sinum vinum og spilað plötur tímunum saman. Það má kannski likja þessu við íþróttamenn. Þeir sctja ekki sín met á æfingum heldur á opinberum mótum. Ég setti mitt met i opinberu veitingahúsi þar sem fjöldi gesta var samankominn. Logi setti sitt met í einkasamkvæmi Unglinga- klúbbs Reykjavíkur í Saltvík. Þar liggur munurinn. Vilhjálmur Ástráðsson plötusnúður að störfum. Nú er dcilt um hver eigi íslandsmetið i plötusnúningi. LOKSINS A ISLANDI M! ! GERVIATVINNUVEGIR ERU OFDEKRAÐIR —ákostnaðsjáv- arútvegsins Sjómaður hringdi: Ég vil taka undir það sem sagl var i lesendabréfi i Dagblaðinu um sjávarútveginn. Auðvitað er hann undirstaðan undir lífi þjóðarinnar. Það er kominn tími til að stjórnvöld hætti að dekra við gerviatvinnuvegi á kostnað sjávarútvegsins. Skólakerfið mætti líka að skaðlausu gera sér grein fyrir þessu svo að menntun unglinganna verði hagnýtari en nú er og tengist undir- stöðuatvinnuvegunum. Það mætti gjarnan koma í staðinn fyrir sál- fræðina og félagsfræðina. Mér lízt lika vel á að vinna við sjávarútveginn verði skyldugrein i skólum, þannig að nemendur fái einhverja punkta eða einingar fyrir sjómennsku. Við höfum ekki efni á þeirri vit- teysu sem hefur rikt í skólakerfinu. Námið verður að meira og minna leyti að vera tengt undirstöðuat- vinnuvegunum. „Mér lizt vel á aö vinna við sjávarút- veginn verði skyldugrein i skólum,” segir bréfritari. DB-mynd Bjarnleifur. Vilhjálmur Ástráðsson plötusnúður hringdi: í santbandi við viðtal við Loga Dýrfjörð plötusnúð sem birtist í DB fimmtudaginn 14. febrúar vil ég taka það fram um leið og ég óska honum til hamingju að það er ekki rétt seml hann segir, að hann hafi talað við mig á fimmtudag fyrir keppnina og sagt að ég yrði að ná hans meti áður en ég færi að grobba mig. Ég man ekki eftir að hafa talað við Loga þennan dag og ég vissi ekki um þetta met hans. Hins vegar geri skor skór — skor LEÐURSTIGVEL Litir: Svart Ljóst Miiiibrúnt Verð: 47.890.- POSTSENDUM LAUGA S/EG! 6S StM( 76850 jo>/s — jp>/s — jp>fs — jo>/s — jo>/s

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.