Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 22
22 ÐAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Varamaðurinn meiddist og Wat- ford sló ÚHana út úr bikamum —f lest annað samkvæmt bókinni í 5. umf erð enska bikarsins á laugardag Fátl óvænl geróisl í 5. umferó' ensku bikarkeppninnar sem fram fór. á laugardag. Að vanda urrtu þól a.m.k. ein óvænl úrslil og það urðuj Úlfarnir sem lentu i gildrunni að þessu sinni. Mótherjar þeirra voru Watford — liðið hans F.llon John — sem ekki hefurgengið neitl afburða vel i 2. deildinni í vetur. Úlfunum gekk þó ekkert alll of vel að hemja leikmenn 2. deildarliðsins og þegar 60 min. voru af leiknum var staðan 0—0. En þá snerusl heilladisirnar á sveif með Walford. John McAlle, sem hafði komið inn á sem vara- maður fyrr í leiknum, meiddist og varð að víkja af leikvelli. Úlfarnir urðu þvi að leika 10 talsins það sem eftir lifði og það var þeim ofraun. Malcolm Poskett skoraði tvívegis fyrir Watford og svertinginn Luther Blissett bætti þriðja markinu við áður en yfirlauk. Úlfarnir eru þvfúr leik í bikarnum, en Watford er komið1 áfram í 8—liða úrslitin og þar Verða að öllum likindum 6 I. deildarlið. F.n lítum á úrslitin i bikarnum áður cn við höldum áfram: i Blackburn-Aston Villa I — I Bolton-Arsenal 1 — 1 i Everton-Wrexham 5—2 Ipswich-Chester 2—1 Liverpool-Bury 2—0 Tottenham-Birmingham 3—1 West Ham-Swansea 2—0 Wolves-Watford 0—3 Bikarmeistarar Arsenal áttu ekki sjö dagana sæla gegn botnliði I. deildar, Bolton. Þar virðist hafa orðið alger bylting á hlutunum og leikmenn hafa öðlazt sjálfstraust á| ný. Það var Frank Stapleton, semj tryggði Arsenal forystu í leiknum enj Sam Allardyce jafnaði fyrir Bolton seint i leiknum. Undir lokin sóttij Bolton stíft, en tókst ekki að knýja fram sigur. Liðin mætast því aftur á Highbury í Lundúnum á þriðjudag og þá ættu bikarmeistararnir að komast i 8—liða úrslitin. Liverpool í basii Hvorki gekk né rak hjá Liverpool lengi framan af í leiknum gegn Bury á Anfield. Um 43.000 manns fylgdusl' mcð viðureigninni og þar á meðal var gamli miðvörðurinn Ron Yeats. ,,Ég hef ekki séð larkari fyrri hálfleik hjá nokkru Liverpoolliði i langan tíma,” sagði hann og var allt annað en ánægður. Bob Paisley tók þá það ráð að setja David „supersub” Fairclough inn á og að sjálfsögðu gekk spilið upp. Fairclough sneri varnarmönnum Bury sundur og saman og ekki liðu nema 5 min. þap til hann hafði sent knöttinn í netiði hjáBury. Á 56. mínútu skoraði hannj gott mark og tiu mínútum fyrir leiks-j lok bætti hann öðru markinu við. Sigur Liverpool í höfn en ekki með neinum glæsibrag. David Fairclough hefur nú skorað 6 mörk fyrir Liverpool á 8 dögum og það þykir furðu sæta að hann skuli ekki vera i byrjunarliðinu. Eitthvað virðist hann eiga erfitt uppdráttar hjá félögunum í liðinu því eins og sjónvarpsáhorf- endur sáu vafalítið á laugardag var honum ekki fagnað neitt í líkingu við það og þegar t.d. David Johnson eða Kenny Dalglish skoraði. Malcolm Postetl 3—Osigri Watford skoraði tvivegis yfir Úlfunum. Markaregn á Goodison Áhangendur Everton sneru loks heim ánægðir á svip eftir ferðalag á Goodison Park. Everton hefur gengið brösulega i vetur og þá ekki sízt á heimavelli sinum. Nú gengu hlutirnir hins vegar upp og Everton vann stórsigur, 5—2. Munurinn var þá allt of mikill á liðunum því Wrexham barðist með kjafti og klóm. Megson skoraði strax á 4. mínútu fyrir Everton og þar með var tónninn gefinn. Peter Eastoe bætti tveimur mörkum við og þeir Trevor Ross og Bob Latchford sinn hvoru. Mick Vinter skoraði bæði ntörk Wrexham í leiknum. Naumt hjá Ipswich Þriðjudeildarlið Chester tók forystuna gegn Ipswich á Portman Road strax á 8. mínútu. Jones skallaði þá í netið eftir fyrirgjöf og knötturinn sveif efst markvinkilinnj án þess að Paul Cooper kæmij nokkrum vörnum við. Þannig stóð| þar til á 34. mínútu að bakvörðurinn George Burley jafnaði metin Nokkrum mínútum fyrir hlé tókst svo John Wark að ná forystunni fyrir Ipswich með skoti af 20 rnetra færi og þannig stóið í hléi. Hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum það sem eftir lifði og Ipswich fer því áfram í 6. umerðina. Aðrir leikir Tottenham sigraði Birmingham nokkuðörugglega á White Hart Lane og spekingar telja nú að Tottenham ntuni sigra í bikarkeppninni í vor. Síðast: þegar Tottenham sigraði i bikarnum (úrslit gegn Chelsea 1967, 2—I), lagði liðið Birmingham einmitt að velli á leið sinni í úrslitin og nú halda menn að sagan endurtaki sig. Þess má til gamans geta að Tottenham sigraði Birmingham 6—0 Í6. umferðinni fyrir 13 árum eftirO— 0 jafntefli í fyrri Ieik liðanna, sem fram fór á St. Andrews i Birmingham. Gerry Armstrong náði forystunni fyrir Tottenham í leiknum en Keilh Berschin jafnaði metin. Glenn Hoddle tók síðan við völdum og skoraði tvö mörk fyrir Tottenham — þar af annað úr vitaspyrnu — og N- Lundúnaliðið er nú komið i 8-liða úr- slitin. West Ham komst einnig i 8-liða úrslitin með 2—0 sigri gegn Swansea. Bæði mörkin komu með 90 sek. millibili um 5 mínútum fyrir leikslok. Fyrst skoraði Paul Allen og síðan David Cross. „Hamers virðast nú hafa ágætu liði á að skipa og liðið á góða möguleika á að endurheimta sæti sitt í 1. deildinni. Aston Villa virtist lengst af vera með unninn leik gegn Blackburn í Eastwood Park en á lokamínútunpi varð miðvörðurinn sterki, Allen Ewans, fyrir því óláni að senda knöttinn í eigið mark. Það þýðir að liðin verða að mætast aftur á miðvikudag á Villa Park. Mark Villa skoraði David Geddis á 41. mínútu. Dregið verður í bikarnum i dag og verður fróðlegt að sjá hvaða lið lenda saman. -SSv. Staða Liverpool styrkist enn — Manchester United tapaði stigi á Victoria Ground í Stoke á laugardag Þótt enski bikarinn hafi verið í sviðsljósinu á laugardag var einiiig leikið í dcildakeppninni og þar á meðal voru 5 leikir i I. deildinni. Þeim lauk öllum með jafntefli og eflir þá eróhætt að segja að staða Liverpool hafi enn styrkzt á toppnum þótt liðið hafi átt fri i deildinni. Manchester Uniled náði nefnilcga ekki nema öðru stiginu á Victoria Ground gegn Stoke ög mátti reyndar þakka fyrir. En litum á úr- slitin. l.deild Brighton-WBA 0—0 Derby-Southampton 2—2 Manchester C-Leeds 1 — 1 Nottingham F.-Middlesbrough 2-2 Stoke-Manchester U 1 — 1 2. deild Cardiff-Bristol R. 0—1 Chelsea-Cabridge 1 —1 Lulon-Fulham 4—0 Orient-Shrewsbury 0—1 Preston-Sunderland 2—1 QPR-Oldham 4—3 3. deild Barnsley-Colchester 1—2 Blackpool-Plymouth 1—3 Exeter-Gillingham 3—1 Grimsby-Swindon 2—0 Hull-Millwall 1—0 Mansfield-Reading 2—2 Oxford-Sheffield U. 1 — 1 Sheffield W-Swindon 3—3 Southend-Brentford 3—2 4. deild Aldershot-Walsall 1 — 1 Bournemouth-Tranmere 2—1 Bradford-Wigan 2—1 Darlington-Torquay 2—0 Doncaster-Scunthorpe 5—0 Hartlepool-Halifax 1—2 Hereford-Peterbrough 0—1 Huddersfield-Stock port 5—0 Lincoln-Newport 2—1 Northampton-Crewe 1—0 York-Portsmouth 1—0 Manchester United missti af dýr- mætu stigi í toppbaráttunni, er liðið náði aðeins jafntefli gegn Stoke. Irwin skoraði fyrir Stoke í fyrri hálf- leiknum, en Steve Coppell jafnaði metin á 84. mínútu. Nottingham Forest mátti einnig þakka sínu sæla fyrir annað stigið gegn Middlesbrough. Tvívegis náði Micky Burns forystunni fyrir Boro, en þeir John Robertson og Martin O’Neill jöfnuðu metin fyrir Forest — Robertson úr viti að sjálf- sögðu. «c Steve Coppell skoraði jöfnunarmark United gegn Stoke. Roger Davies skoraði fyrir Derby á 15. minútu gegn Southampton. David Watson jafnaði á 60. mínútu en mín. siðar náði Powell aftur forystu fyrir Derby. Baker skoraði siðan jöfnunar- mark Dýrlinganna á 66. mínútu. Paul Power skoraði mark Man. City gegn Leeds, en áður hafði Arthur Graham sent knöttinn í net heimaliðsins. í 2. deildinni er nú baráttan á topnum i algleymingi. Luton tók aftur forystu í deildinni með 4—0 sigri yfir botnliði Fulham. David Moss skoraði þrennu og Brian Stein þætti fjórða markinu við. QPR var hætt komið undir lokin gegn Oldham. Eftir að hafa komizt í 4—0 munaði minnstu að Oldham tækist að jafna metin. Clive Allen skoraði tvö marka QPR — hans 22. og 23. mark í vetur — og þeir David McCreery og Paul Goddjtrd skoruðu hin mörkin. En leikmenn Oldham voru ekki á þeim buxunum að gefast upp. Vic Halom minnkaði muninn og skömmu síðar bætti Simon Stainrod öðru marki við. Er 12 mínútur voru til leiksloka skoraði síðan Kowanizci þriðja markið. Leikmenn Oldham sóttu látlaust lokakaflann en tókst ekki að jafna. Fillery skoraði mark Chelsea gegn Cambridge en Riley jafnaði metin. Biggins skoraði fyrir Shrewsbury, sem hefur staðið sig framar öllum vonum í 2. deildinni í vetur. Vegna þrertgsla verðum við að sleppa töflunum i 1. og 2. deild að þessu sinni en litlar breytingar hafa þó orðið. Liverpool enn efst með 37 stig, Manch. U. með 36. í 2. deildinni eru Luton, Leicester og Chelsea öll með 36 stig. Newcastle með 35, Birminghan 33, QPR og Sunderland 32 og West Ham og Wrexham með 31. -SSv. Skozka bikarkeppnin: Aðeins jafntef li Celtic gegn St. Mirren Fjórða umferðin í skozku bikar- keppninni fór fram á laugardag og kom þar mest á óvart að Celtic skyldi ekki takast að komast áfram i 5. umferðina St. Mirren náði forystu á 36. mín. með marki Frank McDougall og það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins að Cellic jafnaði metin — Murdo McLeod varþarað verki. Úrslitin urðu annars þessi: Aberdeen — St. Mirren 8—0 Celtic — St. Mirren 1—1 Hearts — Stirling 2—0 Keilh — Berwick 1—2 Morton — Dunfermline 5—0 Q.o.t. South — Patrick 1—3 Rangers— Dundee United 1—0 Hibernian — Ayr 2—0 Steve Archibald skoraði fjögur mörk fyrir Aberdeen í stórsigrinum yfir Airdrie úr 1. deildinni. Rangers átti í ægilegu basli með Dundee Únited og það var loks að Derek Johnstone skoraði markið sem dugði til sigurs. í gær var svo dregið í skozka bikarn- um og lentu þessi lið saman. Celtic eða St. Mirren gegn Morton, Partick gegn Aberdeen, Berwich gegn Hibernian eða Ayr, Rangers gegn Hearts. I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.