Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 21
21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
Iþróttir
Iþróttir
D
I
Iþróttir
Iþróttir
Sæmundur Stcfánsson svífur hér inn f teiginn hjá KR og skorar. Ólafur Lárusson fylgist skelfdur með. DB-mynd Hörður.
FH-ingar sigu fram úr
KR á lokasprettinum
—skoruðu 4 síðustu mörkin og sigruðu 20-17
FH-ingar gela svo sannarlega prísað
sig sæla yfir að hafa fengið bæði stigin
í hendurnar eftir viðureign sína við
KR i 1. deild íslandsmótsins i hand-
knattleik karla i Hafnarfirði á laugar-
dag. FH sigraði 20—17 eftir að KR
hafði leitt 8—6 í hálfleik. Með sigrinum
standa FH-ingar mjög vel að vígi í
baráttunni um 2. sætið í 2. deildinni, en
vonir KR-inga hafa að sama skapi
horfið eins og dögg fyrir sólu. Nú er
það fallbaráttan sem bíður á næsta leiti
hjá KR eftir fjóra tapleiki í röð. Engin
uppgjöf hefur þó verið í herbúðum KR-
inga og þeir barizt eins og Ijón í öllum
þessum leikjum. Slik barátta var einnig
uppi á teningnum gegn FH og fleytti
liðinu áfram. Klaufaleg mistök undir
lokin kostuðu KR hins vegar sigurinn.
Varnarleikur KR.og markvarzla í
upphafi leiksins var einhver sú bezta
sem boðið hefur verið upp á í vetur.
Leikmenn börðust geysilega vel og að
baki vörninni stóð Pétur Hjálmarsson
og varði stórvel. KR skoraði fyrstu þrjú
mörkin en siðan tókst Kristjáni að
skora fyrir FH úr víti eftir 7 mínútur.
Mikil harka var í leiknum og hvergi
neitt gefið eftir. KR lagði ofurkapp á
vörnina og það hlaut að leiða af sér
hægara spil. Þegar 15 mín. voru liðnar
af leiknum leiddi KR 4—1 — eina mark
FH úr vítakasti. Þá loksins tók aðeins
Kolombía og
Argentína
tilMoskvu
Kolombíumenn tryggðu sér far-
seðilinn á ólympíuleikana í Moskvu er
þeir gerðu jafntefli í knattspyrnulands-
leik við Argentínu um helgina. Leikn-
um lauk án marka og það þýðir að
Kolombía kemst áfram í stað Perú á
belri markatölu. Argentínumenn
sigruðu i þessum riðli undan-
keppninnar með yfirburðum. Hlutu II
stig, Perú og Kólombia 7 stig hvor
þjóð.
að losna um leikmenn. FH minnkaði
muninn í 3—4 en KR komst aftur 3
mörk yfir — 6—3. í hálfleik var staðan
8—6 og var forysta KR mjög sann-
gjörn. Þó voru þeir í einar 3 min.
aðeins 4 inn á gegn 6 FH-ingum eftir
ærið strangar brottvísanir hvað eftir
annað. Fengu þrír KR-ingar að kæla
sig með örstuttu millibili. Hinum megin
var ekki einu sinni veitt tiltal fyrir sams
konar brot.
Sama baráttan hélt áfram í síðari
hálfleiknum. Liðin skoruðu á víxl og
KR leiddi yfirleitt með 2 mörkum. FH
tókst einu sinni að komast yfir, 12—11,
en KR-ingar voru fljótir að komast yfir
á nýjan leik. Þegar 8 mín. voru til leiks-
loka var staðan 15—13 KR i vil og
höfðu þeir þá leyft sér þann munað
nýta ekki tvö vítaköst í síðari hálf-
leiknum.
Þá fór KR-vélin eitthvað að hiksta.
FH jafnaði, 15—15 en Jóhannes kom
KR yfir 16—15. Voru þá fimm minútur
enn til leiksloka. Þegar tæpar þrjár
mín. voru til leiksloka leiddi KR enn,
17—16. Kristján jafnaði 17—17 og KR-
ingar fengu knöttinn. Þá kom furðu-
legur dómur. Konráð hljóp inn í eyðu í
FH-vörninni og ætlaði að skjóta. Tveir
FH-ingar hlupu að honum og lokuðu
hann af. Dæmdur var ruðningur á
Konráð — nokkuð sem enginn skildi.
Geir skoraði síðan sannkallað „grísa-
mark” fyrir FH þegar 80sek. voru til
leiksloka. FH því komið yfir 18—17.
Þegar 40 sek. voru til leiksloka reyndi
Konráð skot úr vonlausu færi og FH
brunaði upp og skoraði. Lokaorðið átti
svo Hans Guðmundsson er KR-ingar
klúðruðu enn einni sókninni rétt l'yrir
leikslok. Knötturinn var sendur fram á
Hans, sem átti ekki í vandræðum með
að skora. Lokatölur því 20—17 KR í
vil. Hreint ótrúlegar tölur miðað við
gang leiksins.
KR-ingar geta þó engum nema
sjálfum sér um kennt hvernig fór í lokin
eftir að hafa haft leikinn í hendi sér
allan tímann. Bráðlæti ogæsingur kom
t veg fyrir sigur. Nokkuð sem liðið þarf
að læra að forðast. Ekki er hægt að
FH - KR 20-17 (6-8)
jslandsmótið f handknattieik, 1. deild karta FH—KR 20—17 (6—81. Hafnarfirfli 1C. febrúar.
Beztu leikmenn: Pótur Hjólmarsson, KR 8, Birgir Finnbogason, FH 8, Kristján Arason, FH 7,
Haukur Ottesen, KR 7, Ólafur Lárusson, KR 7.
FH. Birgir Finnboason, Sverrir Krístinsson, Guflmundur Magnússon, Krisfján Arason,
Pótur IrtgóHsson, Sœmundur Stefánsson, Valgarður Valgarflsson, Magnús Teltson, Eyjótfur
Bragason, Geir Hallsteinsson, Ami Ámason, Hans Guflmundsson.
KR. Pétur Hjálmarsson, Gtsll Felis Bjamason, Friflrik Þorbjömsson, Haukur Ottesen, Ólafur
Lámsson, Konráfl Jónsson, Jóhannes Stefánsson, Haukur Geirmundsson, Simon Unndórs-
son, Einar Vilhjálmsson, Bjöm Pátursson, Kristinn Ingason.
Dómarar vom Ólafur Steingrímsson og Bjöm Kristjánsson. KR fákk 3 viti — nýtti 1. FH fákk
2 vlti og nýtti þau. Fjómm úr KR vfsafl útaf, Einari, Friðrík, Bimi og Ólaft. Þremur úr FH,
Kristjáni, Ama og Ssemundi. Ahorfendur um 300.
tala um KR-liðið sem ungt og efnilegt
endalaust því inn á milli eru leikmenn
sem hafa mikla reynslu. Pétur varði
mjög vel i markinu og þá áttu þeir
Ólafur Lárusson og Haukur Ottesen
góðan leik. Haukur Geirmundsson er
mjög á uppleið og Konráð átti ágætan
leik þrátt fyrir vitleysuna í lokin.
FH-ingar geta einkum þakkað
tveimur mönnum sigurinn. Annars
vegar Birgi Finnbogasyni sem varði
mjög vel allan tímann og svo Kristjáni
Arasyni, sem var mjög sterkur loka-
kaflann og skoraði þá þrjú mörk.
Annars virtist FH-liðið aldrei finna sig
almennilega í leiknum og mega
leikmenn liðsins vel við una að hafa
fengið tvö stig.
Mörk FH: Kristján 5/2, Sæmundur
4, Pétur 3, Geir 2, Guðmundur M. 2.
Valgarður, Árni Magnús og Hans l
hver.
Mörk KR: Haukur O. 4, Konráð 4,
Björn 3/l, Jóhannes 32, Friðrik,
Haukur G., Einar og Ólafur I hver.
-SSv.
MARKS SIGUR VALS
— nú gegn Víkingi, 17-16
Valur sigraði Víking í 1. deild
kvenná í Laugardalshöil á laugar-
daginn með 17 mörkum gegn 16. Var
þessi sigur Vals fimmli eins-marks sigur
liösins í röð. Valur er því með 14 stig
eftir níu leiki — hefur unnið sjö leiki og
itapað tveimur.
Valsstúlkur byrjuðu á því að misnota
viti, sem þær fengu á fyrstu mínútu
leiksins. Ingunn Bernódusdóttir
skoraði fyrsta mark leiksins, 1—0.
Víkingur var alltaf einu til tveimur
mörkum á undan, þar til rúmar tvær
'minútur voru eftir af hálfleiknum, þá
jafnaði Marín Jónasdóttir, Val. Var
staða þá 9—9. Harpa Guðmundsdóttir
kom Val yfir þegar rúm mínúta var
eftir af tímanum, 10—9. 1 hálfleiknum
fékk Jón Hermannsson, þjálfari
Valsliðsins, að sjá gula spjald dómara
leiksins. Hafði hann að þeirra dómi
látið eitthvað verr, en þjálfari á að
láta. Það er kannski engin furða þó Jón
þurfi að láta heyra i sér. Harpa
Guðmundsdóttir er ein af mörgum
slelpum sem spila i I. deild kvenna,
sem er með algjöra skotdellu. Það er
skotið þar sem staðið er hvort sem það
telst færi eða ekki. Öskrin i henni eru
svoleiðis að manni rennur kalt vatn
milli skinns og hörunds. Það er eins og
enginn í liði hennar megi revna neill
nema hún.
í seinni hálfleik var leikurinn mjög
jafn. Skemmtilegir kafiar konni innan
um. Víkingur komst aldrei yfir í hálf-
leiknum og var Valur alltaf einu og
tveimur mörkum yfir. Valsliðið fékk
tvö víti i hálfleiknum á móti einu víti
Vikings. Sextánda mark Vikings var
skorað úr viti á síðustu sekúndu
leiksins, en þá hafði Valur ekki skorað i
rúmar þrjár mínútur. Dómarar leiksins
voru þeir Árni Tómasson og Grélar
Vilmundarson.
Mörk Vals skoruðu Harpa
Guðmundsdóttir 9/1, Erna Lúðvíks-
dóttir 5/1, Marin B. Jónasdóttir,
ÍÁgústa Dúa Jónsdóttir og Karen
Guðnadóttir I hver.
Mörk Víkings skoruðu þær jris
iÞfáinsdóttir 5/4, Eiríka Ásgrimsdóttir
og Ingunn Bernódusdóttir 4, Guðrún
Sigurðardóltir, Sveinbjörg Halldórs-
dóttir og Sigrún Olgeirsdóttir I hvor.
-HJ.
Valur—Víkingur 17-16 (10-9)
íslandsmótið í handknattleik 1. doild kvenna, Valur-Víkingur 17—16 (10—9) i Laugardalshöll
laugardaginn 16. febrúar.
Beztu leikmenn (hœsta einkunn 10) Jólianna Pálsdóttir, Valur, 8, Jóhanna Gufljónsdóttir,
Vikingur, 8, íris Þróinsdóttir, Vikingur, 7, Ema Lúðvíksdóttir, Valur, 7, Harpa Guðmundsdóttir,
Valur, 6.
Valur. ólafía Guðmundsdóttir, Jóhanna Pólsdóttir, Ema Lúðvíksdóttir, Marín B. Jónas-
dóttir, Þuríður Hjartardóttir, Eín Kristinsdóttir, Sigrún Bergmundsdóttir, Kristin Óiafsdóttir,
Ágústa Dúa Jónsdóttir, Guflbjörg Einarsdóttir, Harpa Guðmundsdóttir, Karen Guðnadóttir.
Víkingur. Jóhanna Guðjónsdóttir, Anna Vignir, Sigurrós Bjömsdóttir, Anna Bjömsdóttir,
íris Þróinsdóttir, Eiríka Ásgrímsdóttir, Guflrún Sigurðardóttir, Ingunn Bernódusdóttir, Sigrún
Olgoirsdóttir, Sveinbjörg Halldórsdóttir.
Rangstöðufnykur af sigur-
marki ítala gegn Rúmeníu
Mikill rangstöðufnykur var sigur-
marki ítala gegn Rúmenum er
þjóðirnar mættust i landsleik í knatt-
spyrnu i Napóli á Ítalíu um helgina.
ítalia sigraði, 2—1 og þótti sigurinr.
'ósannfærandi á flestan hátt. Rúmenar
náðu forystunni með marki Bolony á
52. mínútu en sjö mín. siðar jafnaði
miðvörðurinn Collovati eftir horn-
spyrnu Franko Causio. Það var svo
Causio sjálfur sem skoraði sigurmarkið
!á 86. min. hinum 55.000 áhorfendum
til mikillar ánægju en Rúmenar mót-
mæltu harðlega og töldu hann hafa
verið kolrangstæðan.
Frábærir innanhússtímar
Sovézka slúlkan Vakrusheva náði
um hclgina bezta heimstímanum í 800
metra hlaupi innanhúss er hún hljóp
vegalengdina á 1:58,4 min. Þetta er frá-
bær timi þegar tekið er tillit til þess að
keuDl varinni.
Þá náði Grazyna Rabsztyn sínum
bez.ta tíma og um leið bezta heims-
tímanum i 60 metra hlaupi kvenna
innunhúss á móti i Póllandi um
helgina. Hún rann skeiðið á 7,84 sek.
og bætti sig um 2/100 úr sekúndu.
: v < »
r=Jl
D
=3
K
VERÐ:
Kr. 159.500.-
FISHER
eins og tönlist í litum
Kassettusegulbandstæki CR-4110
Ljósadíóöumælir — framhlaðiö
Cartiidge loading: Front
Nr. of heads: 2 (Hard permalloy rec./playback, ferrlte erase) i
Wow & flutter: Less than 0.1% WRMS
RMgnal-to-nolse ratio: 60dB (Dolby on)
Frequency response: 30-15.000HZ (Cr02 30-12.500HZ (normal)
Fast forward / rewind tlme: 90 sec. (C-60 tape)
BORGARTUN118
REYKJAVÍK SlMI 27099
SJÓNVARPSBÚÐIN
ENN EINN EINS