Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 18. FEBRUAR 1980. I Iþróttir Iþróttir 17 Iþróttir Iþróttir Gíf urlegur fögnuður í N jarðvík —eftir að heimamenn höfðu lagt Val 82-74 í úrvalsdeildinni á föstudagskvöld néftírliti . tannlæknis rnig er astand þinna ■ ■ ■''■ ' ’ tanna? Brostu framan í spegilmynd þíná og kannaðu málið. Körfuknattleikur, UMFN—Valur, 82—74 (40—28) Áhorfendur ælluðu bókslaflega að ærasl af fögnuði þegar leik Njarðvíkinga lauk þar syðra á föstudagskvöldið, enda voru þeir flestir á bandi heimamanna. Sigurvegararnir, UMFN, réðu sér líka varla fyrir kaéti. „Tolleruðu” þeir þjálfara sinn og leikmann, Ted Bee, rækilega, enda átli hann, að öðrum ólöstuðum, mestan þáttinn i þýðingarmiklum sigri UMFN, með frábærum leik, í hittni, með sendingum og spili, ásamt óskaplegum dugnaði. Ted barðist eins og Ijón allan leikinn út og kórónaði leik sinn með því að troða” seinustu körfunni, með miklum tilþrifum, rétt fyrir leikslok, við mikil fagnaðarlæti áhorfenda. „Kollegi” hans í Valsliðinu, Tim Dwyer, var ekki sviphýr að leikslokum. I.itlir kærleikar eru með bandarískum þjálfurum innan vallar. í hita bar- dagans ögra þeir oft hver öðrum eins og úrillir „kalkúnar" og láta þá ýmis spakmæli falla, eins og i þessum leik, áhorfendum til gamans en dómurum til armæðu. Valssigur i þessum leik hefði veitt þeim öruggt og þægilegt forskot, fjögur stig, íslandsmeistaratitillinn væri þá svo gott sem kominn á Ösku- hlíðina á leiðinni að Hliðarenda og spennan horfin úr mótinu. En með sigri sínum hafa Njarðvíkingar náð Valsmönnum að stigum. Lokabar- áttan, seinasta umferðin, verður þvi bæði hörð og spennandi hjá þessum liðum en varla munu aðrir blandast i þá orrustu, þótt KR og ÍR séu ekki alveg út úr dæminu. Áhorfendur láta sig þvi ekki vanta á næstu leiki, hvorki i höfuðborginni né syðra. Verst er að íþróttahúsið í Njarðvík rúmar ekki lengur alla þá sem vilja fylgjast með leikjunum — urðu margir frá að hverfa á föstudaginn og sýnir það glöggt vax- andi vinsældir körfuknattleiksins hér á landi. í fyrri leik UMFN og Vals syðra tók það dómarana yfir tuttugu mínútur að komast að niðurstöðu um hvort karfa UMFN, sem skoruð var um það bil og leiktíminn var að renna út, væri gild, en hún réð öllu um hvor aðilinn gengi með sigur af hólmi. Núna var sliku ekki til að dreifa. Dómararnir, Gísli Gíslason og Jón Otti, er dæmdu mjög erfiðan leik einstaklega vel, Staðaní úrvalsdeild Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir leiki helgarinnar er nú þannig: ÍR-Fram 89- -82 Njarðvík- Valur 82- -74 Fram-ÍS 75- -85 Njarðvík 15 11 4 1241- -1151 22 Valur 15 11 4 1305- -1230 22 KR 15 9 6 1252- -1184 18 ÍR 15 9 6 1320- -1339 18 ÍS 15 3 12 1279- -1350 6 Fram 15 2 13 1165- -1300 4 Staðaníl. deild karla Staðan í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik karla eftir leiki vikunnar er nú þessi: Fram-Haukar 19—18 Víkingur-Fram 20—18 FH-KR 20—17 ÍR-Haukar 18—19 Víkingur 10 10 0 0 230—183 20 FH 9 6 2 1 198—180 14 Valur 8 4 0 4 168—158 8 KR 10 4 0 6 216—218 8 Fram 10 2 3 5 197—208 7 ÍR 10 3 1 6 195—209 7 Haukar 10 3 1 6 200—218 7 HK 9 2 1 6 151 — 181 5 Næsti leikur er i kvöld og þá mætast Valur og HK í Höllinni kl. 19.30. Má búast við hörkuleik því HK-liðið hefur verið í geysilegri sókn að undanförnu. Tenntimarlengí lífi! ^ Tennur þínar byrja að myndast strax á 5. mánuði í móðurkviði. Þær eru í stöðugri uppbyggingu fram á þrítugsaldur. þurftu ekki að hafa áhyggjur af úr- slitunum. Njarðvíkingar lóku fljótlega forustuna og héldu henni allan tímann, með minnst tveimur stigum, snemma í seinni hálfleik, en átta stigum þegar yfir lauk. „Bókhaldsskekkjur” gátu varla verið það miklar að þær breyttu einhverju þar um. Bæði UMFN og Valur fóru ekki varhluta af þeim á seinasta leiktímabili — en nú „stemmdi” allt — ritarar höfðu unnið sín störf af kostgæfni. Taugaóstyrkur einkenndi nokkuð liðin rétt í byrjun, en heimamenn voru fljótari að ná jafnvægi og komust i mikinn vígahug — meiri en þeir hafa komizt í i vetur. Auk Ted Bee fylltust þeir Guðsteinn Ingimarsson, Gunnar Þorvarðarson og Jónas Jóhannesson miklum eldmóði og var svæðisvörn Valsmanna litil hindrun fyrir þá. Áttu Guðsteinn og Gunnar oft gullfalleg skot, af löngu færi — beint í körfuna, cn Jónas gómaði oft knöttinn í frá- köstum og skoraði. Mikla athygli vöktu yngri mennirnir í liðinu, þeir Valur Ingimundarson, Jón Viðar Matthíasson og Júlíus Valgeirsson. Þeir standa nú orðið hinum eldri fyllilega á sporði, svo liðið veikist ekkert þann tima sem þeir voru inn á, nema siður væri. UMFN er því orðið jafnara lið, en nokkru sinni áður. Beztu leikkafiar UMFN voru loka- minúturnar í fyrri hálfleik, þegar allt „gekk upp” hjá þeim með Ted Bee í aðalhlutverkinu og rétt eftir miðjan seinni hálfieik en þá sýndi „harð- jaxlinn” Gunnar Þorvarðarson hvað í honum bjó og skoraði drjúgt — eftir að Valsmenn höfðu minnkað muninn úr I2stigum i tvö, 54:52. Einhverra hluta vegna náði Vals- liðið ekki að sameinast um átakið. Einbeitnina skorti og sumir leikmenn, eins og Torfi Magnússon, sem verið hefur einn traustasti máttarstólpi liðsins, fann sig ekki i leiknum og munar vísl um minna. Sömu sögu er reyndar að segja um fiesta aðra lcikmenn — nema Dwyer, Kristján Ágútsson og Jón Steingrímsson. Dwyer var traustur í vörninni — náði mörgum fráköstum með hörku og skoraði 24 stig, þrátt fyrir stranga gæzlu, sem fór greinilega einum um of í taugar hans. Kom það bæði niður á stjórn hans á liðinu og sjálfstjórn. Það kom best i Ijós þegar hann neitaði að hlýða liðs- stjóranum sem vildi fá hann út af undir leikslok. Kristján Ágústsson átti mjög góðan leik, sérstaklega á þeim kafia sem Valur minnkaði sem mest muninn — ýmist úr hraðupphlaupum eða Iang- skotum — þar var Kristján oftast að verki. En ekki er öll nótt úti enn. Fjörði og seinasti leikurinn á milli UMFN og Vals, á heimavelli hinna síðarnefndu, er eftir og þá mætast stálin stinn. Vals- menn reyna áreiðanlega að helna ófaranna í Njarðvik og þeir sömuleiðis ósigursins í annarri umferð, þar sem Valur vann með miklum mun. Við biðum og sjáum hvað setur. Stigahæstir í liði UMFN: Ted Bee 36, Gunnar Þorvarðarson 14, Guðsteinn Ingimarsson 13, Jónas Jóhannesson 8, Július Valgeirsson, Valur Ingimundarson og Jón Viðar Matthiasson 4 stig hver. Valur: Tim Dwyer 24, Kristján Ágústsson 16, Jón Slcingrimsson 9, Torfi Magnússon 8, Þórir og Jóhannes Magnússynir 4 hvor en Sigurður Hjörleifsson 2 slig. -emm. Grundvöllur góðra tanna byggist á: • Reglubundnum máltíðum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.