Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 36
Skemmdarstarfsemin kostaði borgina 23 millj. á síðastaári: Hljóta að vera geösjúkir menn —sem þannig fara með gróðurinn, segir garðyrkjustjóri borgarinnar „Gleður mitt hjarta” — sagði Gunnar Thoroddsen um skoðanakönnun DB „Hún gleður mitt hjarta,” sagði dr. Ciunnar Thoroddsen, forsattis- ráðherra, þegar fréttamaður spurði liann t tnorgun alits á skoðana- könnun DB og hver væru viðhrögð hans við niðurstöðum hennar. Dr. Gunnar bretti við: ,,Að vísu tek ég skoðanakannanir alltaf mcð nokkurri varúð. Hins vegar hefur reynslan sýnf að skoðanakannanir ykkar hjá Dagblaðinu hafa reynzt lurðu nrerri sanni. t>au óteljandi samtöl sem ég hefi átt við fólk undanfama daga og frcgnir hvaðanreva af landinu benda í sömu átt, svo ailt virðist jietta falla í einn ogsamn l'arveg. bctta staðfestir há sannfreringu mina að fólkið er með okkur og jiað gerir hvorl tveggja að styrkja okkur i starfi og leggja okkur skyldur á herðar.” I>rált fyrir itrekaðar tilraunir tóksl DB ekki að ná i Geir Hallgrints- sonimorgun. -BS. „Það er mjög algengt að tré séu skorin niður og eyðilögð. Það er alltaf eitthvað um það, en misjafn- lega mikið og það virðist sem þessi skemmdarstarfsemi komi i öldum. Um fyrri helgi er vitað um 12 til 14 stór tré sem eyðilögð voru. Við höfum ekki enn fengið tölu um þrer skemmdir, sem urðu um þessa helgi,” ,agði Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri borgarinnar i samtali við DB í morgun, aðspurður um eyðileggingu ágróðri hér í borginni. Ekki sagðist Hafliði vita hverjir það væru sem misþyrmdu gróðri á þennan hátt, en taldi að i mörgum tilvikum vreri um að ræða geðsjúka menn. „Þessi skemmdarstarfsemi hefur verið með mesta móti í vetur. Ekki veit ég hvað hefur valdið því. Það virðist þó vera að eftir að búið er að hampa þessu mikið og fjölmiðlar fara að útmála þetta, þá er eins og Hér er Hafliði Jónsson ásamt tveimur lögregluþjónum aó skoða tré sem lá við Miklubrautina. „Ég var kallaður til að líta á þelta tré, það kom í Ijós afí þetta er 15—16 ára gamalt tré sem dottið hefur af bil á leið á öskuhaugana. Það hefði getað verið verra, hins vegar er það vítavert að búa ekki betur um farma sína en þetta,” sagði Hafliði. DB-mynd: Sv. Þorm. þetta aukist. Það er ýmislegt sem getur spilað þar inn í. Það er með ólíkindum hvernig er farið með trén og þá ekki síður gras. Eftir því sem við vitum bezt varð tjón á sl. ári vegna skemmda á trjágróðri um 4 milljónir króna og tugir milljóna vegna skemmda á grasi. Þessar skemmdir á grasi og þá sér- staklega á nýgræðingi eru oftast eftir bíla. Það hefur verið mikið um að stofnanir sem þurfa að grafa upp, t.d. simi, rafmagnið og hitaveitán vanmeta verðmæti grasflata og umturna öllu. Það liggur gifurlegt verðmæti i þvi að endurbæta þessar skemmdir. Það er ekki bara gras og trjá- gróður sem er eyðilagt, einnig liggja margar milljónir í endurbótum á almenningsbekkjum og á leikvöllum, þar sem ráðizt er á hús gæzlukvennanna. Okkur reiknast til að á síðasta ári hafi borgin varið 23 milljónum í endurbætur vegna skemmda,” sagði Hafliði Jónsson. -EI.A. Öðrum bílþjófanna stungið inn í lögreglubíl eftir að lögreglumenn hlupu þá uppi í náttmyrkrinu. Á innfelldu myndinni má sjá Cortinuna skemmda utan vegar. DB-myndir: R. Th. SEX LÖGREGLUBÍLAR ÁEFTIR16ÁRA BÍLÞJÓFI í KÓPA VOGI Sex lögreglubílar og a.m.k. helmingi fleiri lögreglumenn tóku i gærkvöld þátt í að hefta för tveggja unglinga, 16 og 17 ára, er þeir geystust um götur Kópavogs á miklum hraða á stolinni Cortinu. Eltingaleikurinn hófst þannig að lögreglumenn úr Kópavogi veittu eftirtekt einkennilegu aksturslagi Cortinunnar er hún kom Kringlumýrarbrautina i átt til brejarins. Er bíllinn kom nær þekktu lög- reglumennirnir andlit piltanna tveggja af fyrri afskiptum af þeim. Hófst þá eflirförin og barst inn i vesturbæinn i Kópavogi. Þaðan yfir í austurbæinn og loks i átt til Garðabæjar um óupplýst- an vegarslóða, sem m.a. liggur framhjá hesthúsum Gusts. Þá tóku tveir lög- reglubílar þátt i eftirförinni en aðrir fjórir bílar lokuðu ýmsum líklegum akstursleiðum, auk þess sem Reykja- víkurlögreglan var að gera ráðstafanir til þess að þeir kæmust ekki úr Kópa- vogi upp i Breiðholt. Á vegarslóðanum missti —náðist loksá hlaupum frá skemmdum bfínum ökumaðurinn stjórn á Cortinunni er þeir áttu skammt ófarið til Garðabæjar. Hafnaði hún utan vegar og skemmdist nokkuð, en piltarnir snöruðu sér út og hurfu út í nátt- myrkrið. Lögreglumenn úr Kópavogi gáfust þó ekki upp, heldur náðu að hlaupa piltana uppi og handtaka þá. -GS. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980. Maður fórst í flugslysi í Borgar- firði Flugslys varð við Húsafell á fimmta timanum í gær og fórst þar einn maður, Þorleifur Jónsson, sölumaður. Flugmaðurinn var einn í vélinni, TF-REB, sem var af gerðinni Piper Super Cup. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi í morgun kom tilkynning um slysið kl. 16.25. Lögreglan fór þegar á staðinn með lækni en flugmaðurinn var látinn er að var komið. Vélin var i flugtaki fá vellinum við Húsafell, en að sögn sjónarvotta ofreis hún og féll niður. Eldur kviknaði í vélinni. Verið var að mynda vélina í flugtaki er slysið varð. Grétar Oskarsson forstöðumaður loftferðaeftirlitsins sagði í morgun, að vélin hefði verið komin í 20—30 metra hæð er slysið varð. Loftferðaeftirlitið fór á slysstað í morgun til frekari rannsóknar. Borgarneslögreglan flutti lik hins látna til Reykjavíkur í nótt. Vélin var i eigu flugmannsins. -JH/ASl. 73 tonna bátur ónýtur eftir strand Ljóst þykir nú að litlu sem engu verði bjargað úr vélbátnum Sævari KE 19, en báturinn strandaði við inn- siglinguna til Sandgerðis á föstudaginn. Var skipið þáað koma úr róðri með um 10 tonn af fiski. Enn er óskýrt hvers vegna báturinm sigldi nánast fram fyrir innsiglinguna og upp á grynningar. En báturinn tók niðri þannig að hann stóð réttur og beinn. Voru góðar horfur taldar á að ná úr honum fiskinum og létta hann svo ná mætti honum út á flöði. Nokkurt rok var og bára og um leið og tók að falla að síðdegis snerist báturinn og lagðist á hliðina. Varð ekki um að ræða tilraun til björgunar þá og nú þykir Ijóst að báturinn muni þarna „beinin bera”. Fimm manna áhöl'n var á bátnum og var hún um borð allan föstudaginn. Báturinn er eikarbátur, 73 tonn, smiðaður 1960og hét áður Valafell. -A.SI. LUKKUDAGAR: ,17. FEBRÚAR 4516 Philips vekjaraklukka með útvarpi. 18. FEBRÚAR 26031 Sharp vasatölva CL8145. Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.