Dagblaðið - 18.02.1980, Blaðsíða 24
24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
Bílaklúbbur Akureyrar
ELZn OLAKLUBBUR LANDSMS
Bílaklúbbur Akureyrar er elzti bíla-
klúbbur landsins, stofnaður 27. mai
1974 og jafnframt því einn virkasti
bílaklúbburinn. Það voru nokkrir
áhugamenn um bíla sem stofnuðu
klúbbinn og var tilgangurinn einkum
þrenns konar: í fyrsta lagi að koma
upp aðstöðu fyrir félagsmenn til að
stunda áhugamál sín. í öðru lagi að
halda bifreiðaíþróttakeppni og stuðla
þannig að bættri umferðarmcnningu
með því að koma öllum hrað- og
kappakstri inn á lokað, löglegt svæði.
Þriðja markmiðið er að stuðla að
varðveizlu gamalla bíla, koma upp
safni þar sem gamlir bílar og sögur og
heimildir um þá væru geymdar.
Áhugi félagsmanna Bílaklúbbsins
hefur, frá upphafi, verið mjög mikill.
Ekki var liðinn mánuður frá því að
klúbburinn var stofnaður þar til hann
hélt fyrstu bílasýningu sína en það var
17. júní ’74. Bílasýningar klúbbsins
hafa síðan verið fastur liður í há-
tíðarhöldum Akureyringa 17. júní og
sett mikinn svip á þau.
Sleitulaust hefur verið unnið að því
að koma upp aðstöðu fyrir félagsmenn.
Hluti aðstöðunnar er nú fyrir hendi en
á siðasta ári keypti Bílaklúbburinn 210
fermetra iðnaðarhúsnæði að Hafnar-
stræti 19. Þar fer nú mestöll félags-
starfsemi Bílaklúbbsins fram. Á efri
hæð hússins er fundaraðstaða en
stjórnarfundir eru haldnir þar vikulega
á miðvikudagskvöldum. í vetur hafa
fundirnir einkum verið vinnufundir en
unnið hefur verið að gagngerðum
endurbótum á húsnæðinu. Einstakir
félagsmenn geta komið með bila sina í
húsnæði og unnið þar í þeim. Þurfa
þeir að greiða leigu fyrir þann tíma sem
þeir eru með bílinn inni en þeirri
greiðslu er stillt mjög i hóf.
Bifreiðaíþróttir hafa verið
ofarlega á baugi hjá Bílaklúbbnum.
Torfærukeppni hefur verið haldin
árlega frá stofnun hans og stundum
fleiri en ein á ári. Sandspyrnukeppni
hefur verið haldin tvö síðastliðin ár og í
fyrrasumar hélt Bílaklúbburinn
íslandsmeistaramótið i þessari aksturs-
íþróttagrein. Bilaklúbbsmenn hyggjast
færa út kvíarnar næsta sumar og taka
upp keppni í fleiri íþróttagreinum. Nú
þegar er ákveðð að halda rallíkross-
keppni og í athugun er að halda lika
rallkeppni. Þá er einnig fyrirhugað að
hafa óformlegar æfingar í
torfæruakstri og sandspyrnu auk fastra
keppna. Bæjarbúar á Akureyri hafa
jafnan sýnt starfsemi klúbbsins mikinn
áhuga svo sem mikill áhorfendafjöldi
sýnir gleggst.
Bílaklúbbsmenn hafa jafnan verið í
hálfgerðum vandræðum með land-
svæði til að keppa á þvi að enn sem
komið er hafa þeir ekkert fast land-
svæði. Síðastliðið sumar sótti
Bílaklúbburinn um að fá úthlutað eins
og hálfs hektara landi undir starfsemi
' fÉLASTILUNG
Framkvæmum
vélastillingár
hjólastillingar
ljósastillingar
meö fullkomnum stillitækjum
VELASTILLING
AUDBREKKU 51, KÓPAVOGI. SÍMI43140..
Það nýjasta á marKaonum..
Barnarúm, fataskápur og skrifborð, allt sambyggt.
Mjög hagstœtt verð... ómálað, málið sjálf í þeim lit-
um, sem þið veljið.
HÚSGÖGN & LISTMUNIR
KJÖRGARÐI - SÍM116975.
—ÚTSALA
Mikil
verölækkun
ELÍZUBÚÐIN
Skipholti 5
Margir félagsmenn hafa lagt mikið á sig til að varðveita og endurbyggja gamla bíla. Eitt bezta dæmi um þennan hluta starf-
semi Bílaklúbbsins er virðulegasti öldungur landsins, Citroén BL seria 11 árg. ’46, en Valdimar Pálsson endurbyggði þennan
bil i sinni upprunalegu mynd.
Páll Kristjánsson formaður Bflaklúbbsins bendir yfir landsvæði það sem Bilaklúbbur-
inn hefur sótt um að fá afnot af fyrir starfsemi sfna. Nú virðist svo sem umsóknin hafi
týnzt í kerfinu hjá Akureyrarbæ. DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Bilasýningar Bflaklúbbsins eru jafnan vel sóttar og á þessari mynd sjáum viö binnn
sem kosinn var faliegastatryllitækiðá bílasýningunni ’78 en það var 403 cid. Javelin
bfll Halldórs Jóhannessonar.
DB-mvnd Raenar Th.
Að Hafnarstræti 19 á Akureyri á Bilaklúbburinn stórt og gott húsnæði þar sem
félagsmenn geta unnið I bflum sfnum. t þessu húsnæði fer mestöll félagsstarfsemi Bfla-
klúbbsins fram. DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
sína hjá bæjarstjórn Akureyrar. Land-
svæði þetta er í svokölluðum bæjar-
krúsum en það eru gamlar malarnámur
fyrir ofan bæinn. Bílaklúbburinn hefur
haldið torfærukeppnir sínar á þessu
svæði síðustu árin og telja þeir
bílaklúbbsmenn að það henti þeim
mjög vel. Hyggjast þeir færa alla
starfsemi sína í bæjarkrúsirnar ef þeir
fá landsvæðið. Verður þá komið upp
rallikossbraut þar, sandspyrnubraut og
síðast en ekki sízt kvartmílubraut sem
er fyrirhafnarmesta og kostnaðar-
samasta framkvæmdin. Umsókn Bila-
klúbbsins um landsvæðið var send
bæjarstjórn sem sendi hana fljótlega til
skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd
sendi umsóknina til tæknideildar sem
sendi hana svo til baka til skipulags-
nefndar. Svo virist sem umsóknin hafi
lýnzt i kerfinu hjá bæjarstjórninni en
bilaklúbbsmenn vona að bæjarstjórn
þeirra geri sér grein fyrir hvað
umferðaröryggi og -menning á
Akureyri myndi batna ef bifreiðaí-
þróttamenn fengju lokað löglegt svæði
til umráða til að stunda iþróttir sinar á.
Vonandi finnst umsóknin í kerfinu og
fær skjóta og góða lausn í bæjar-
stjórninni.
Óvenjumikið er um gamla og
merkilega bíla á Akureyri og í Eyjafirði
enda er það eitt af markmiðum Bíla-
klúbbsins að stuðla að varðveizlu
þeirra. Einstakir félagar Bílaklúbbsins
hafa keypt gamla bíla og gert þá upp.
Starfsemi klúbbsins hefur einnig orðið
til að hvetja eigendur gamalla bíla til að
gæta þeirra vel og fara vel með þá. Á
þennan hátt stuðlar Bílaklúbburinn að
varðveizlu gamalla menningar-
verðmæta. Öllum sem séð hafa kvik-
myndina Land og synir ætti að vera
Ijóst gildi þessarar starfsemi. Það hefði
verið heldur afkáralegt ef skáldið
hefði komið akandi í Lincoln
Continental Town Car árg. ’79 í stað
Dixie Flyersins sem smíðaður var árið
1917. Eða þá ef nýr Volvo tankbíll
hefði birzt í stað gamla mjólkurbilsins.
Síðastliðið ár voru félagar Bila-
klúbbsins um 80 talsins en félaga-
fjöldinn fer stöðugt vaxandi. Einu
skilyrðin til að ganga í klúbbinn eru
þau að viðkomandi þarf að vera orðinn
16 ára gamall. Stjórnarmeðlimir Bíla-
klúbbsins taka allir við umsóknum
nýrra félagsmanna en í dag er stjórnin
skipuð eftirtöldum mönnum: Páll
Kristjánsson er formaður klúbbsins,
Flosi Jónsson er varaformaður,
gjaldkeri er Magnús Finnsson,
Guðmundur Svanlaugss. er ritari, fjár-
málaritari er Halldór Jóhannesson og
meðstjórnandi er Sigursteinn Þórsson.
Jóhann Kristjánsson.