Dagblaðið - 26.04.1980, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 26.04.1980, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. APRlL 1980. 20 í Messur Gudsþjónustur i Reykjavfkurprófastsdæmi sunnudaginn 27. april 1980. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma ij safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Altaris gönguathöfn fyrir fermingarbörn og aðstandendur þeirra kl. hálfníu síðd. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Fermingarguðsþj ónustur í Bústaðakirkju kl. 10.30 og kl. 13.30. Sr. Jón Bjarman. BtlSTAÐAKIRKJA: Fermingar Breiðholtssóknar kl. 10.30 og 13.30. Safnaðarstjóm. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. II. Ferming arguösþjónusta I Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÖMKIRKJAN: Kl. II messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 2. Fermingarmessa Fella og Hólasóknar. Sr. Hreinn Hjartarson. FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: Laugardagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnudagur: Barnasamkoma i Fcllaskóla kl. 11 árd. Fermingarguðsþjónusta í Dómkirkjunni kl. 2. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Sunnudagaskólinn fer i heimsókn í Breiðholtssókn. Börn mæti kl. 10 árd. Guðsþjónusta kl. 2 — altarisganga. Organleikari: Jón G. Þórarinsson. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRtMSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. II. Sr. Ragnar Fjalar I^russon. Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Erlendur Sigmundsson messar. Sr. Karl Sigurbjörns son. Kirkjuskólinn fer i ferðalag kl. 2 á laugardag.' Þriðjud. Bænaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Beðið fyriri sjúkum. LANDSPlTALINN: Messa kl. 10. Sr. Erlendur Sig-j mundsson messar. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Messa kl. 2. Sr. Arngrimur Jónsson. Organleikari Orthulf Prunner. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Kárs nesskóla kl. 11 árd. Fermingarguðsþjónusta í Kópa | vogskirkju kl. 10.30 árd. Sr. Arni Pálsson. LANGHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. II. Jón Helgi, Sigurður Sigurgeirsson, Kristján og sóknarpresturinn sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 2. Sóknarprestur. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Messa kl. 14. Aðalsaínaðarfundur strax eftir messu. Þriðjud. 29. apríl. Bænaguðsþjónusta kl. 18 og æskulýðsfundur kl. 20.30. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11 árd. í Félags | heimilinu. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. FRtKIRKJAN t REYKJAVlK: Messa kl. 2.1 Organleikari Sigurður Isólfsson. Prestur sr. Kristjánl Róbertsson. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa aö Mosfellii sunnudag kl. 14. Hestamönnum Harðar sérstaklega; boðið að koma ríöandi til kirkju. Eftir messu verða1 seldar veitingar. Sóknarprestur. NVJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58: Messa sunnudag kl. 11 og 17. Kaffi á eítir, HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fermingarmessur kl. 10.30 f.h. og 2 e.h. Sóknarprestur. Tonleikar Háskólatónleikar Sjöttu Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir' laugardaginn 26. apríl 1980. Tónleikarnir verðaj haldnir I Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og| ■ hefjast kl. 17. Aðgangur er öllum heimill. Á þessum tónleikum leika hjónin Ursula Ingólfsson j Fassbind og Ketill Ingólfsson fjórhent á píanó auk1 tónverka fyrir tvö píanó. Til er talsverður fjöldi tón verka fyrir píanó og tvo flytjendur en mörg þeirra eru1 píanóútsetningar á tónverkum sem upphaflega voruj samin fyrir önnur hljóðfæri. Verkin sem flutt verða á þessum tónleikum eru hins vegar öll upphaflega samin | fyrir píanó þó að sum þeirra hafi síðar verið umrituð fyrir hljómsveitarflutning. Á efnisskránni eru Mars i D dúr og Fúga i e moll eftir Franz Schubert, Sónata í D dúr og Fúga í c moll eftir W.A. Mozart og Tilbrigði í B-dúr um stef eftir Joseph Haydn eftir Johannes Brahms. Leiklist LAUGARDAGUR ÞJÓÐLEIKHtlSIÐ: Sumargestir kl. 20. IÐNÓ: Er þetta ekki mitt lif? kl. 20.30. Sýningar DJtJPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): Brian Pilkington, málverk & teikningar. Opnar laugardag. ÁSMUNDARSALUR v/Freyjugötu: Hannes Lárusson, myndverk og gjörningar. GALLERt SUÐURGATA 7: Engm sýning um helgina. Náttúrulækningafélag íslands og tímaritið Heilsuvernd Ráðstefnan verður haldin að Laufásvegi 12 laugar daginn 26. apríl kl. 14. Framsögumenn verða: Sigurður Þráinsson kennri við Garðyrkjuskóla ríkisins, Halldór Svetíisson, plöntsjúkdómafræðingur, Guðfinnur Jakobsson, garðyrkjustjóri og matvæla fræðingur frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Að loknum frásöguerindum verða hring borðsumræður, þar sem áheyrendum gefst kostur á að koma spurningum og athugasemdum á framfæri. Allir áhugamenn eru velkomnir. LAUGARDAGUR GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótek. HOLLYWOOD: Diskótek. HÓTEL BORG: Lokaöeinkasamkvæmi. HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Maríu Helenu. Mimisbar: Gunnar Axelsson leikur á píanó. Stjörnu- salur: Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður. INGÓLFSCATÉ: Gömlu dansarnir. KLUBBURINN: Hljómsveitin Goðgá og diskótek á tveimur hæðum. LEIKHtlSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalia. LINDARBÆR: Gömlu dansarnir. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt söngkonunni Mattý Jóhanns og Grétari Guðmundssyni. ÓÐAL: Diskótek. SIGTÓN: Hljómsveitin Pónik og diskótek. Gísli Sveinn Loftsson. ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek. Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður. SUNNUDAGUR GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir. HOLLYWOOD: Diskótek. HÓTEL BORG: Gömlu dansarnir. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Iðja með kaffiboð fyrir félagsmenn 65 ára og eldri. Mímisbar: Gunnar Axels son leikur á pianó. Stjörnusalur: Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður. HREYFILSHUSIÐ: Gömlu dansarnir. ÓÐAL: Diskótek. ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek. Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður. Iþróttir ^ Reykjavíkurmótið í knattspyrnu LAUGARDAGUR MELAVÖLLUR Ármann — Fylkirkl. 14. Aðaifundir Aðalfundur Flugleiða hf verður haldinn mánudaginn 28. april i Kristalsal Hótels Loftleiöa og hefst kl. 13:30. Dagskrá: 1. Venju- lega aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins- 2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. önnur mál. Tökum að okkur hreingerningar á íbúðum, stiga-; göngum, opinberum. skrifstofum, o.fl. ( Einnig gluggahreinsun, gólfhreinsun oíí gólfbón hreinsun. Tökum líka hreingerningar utanbæjar. Þorsteinn,1 símar 31597 og 20498. ÞriC hreingerningar, teppahreinsun. ’ Tökum að okkur hreingerningar á íbúð-, um, stigagöngum og stofnunum, einnig teppahreinsun með nýrri djúphreinsivél, sem hreinsar með mjög góðum árangri.j Vanir menn. Uppl. í síma 33049 ogi 8^086. Haukur og Guðmundur. Rreingerningastöðin Hólmbræðiy._ önnumst_ hverg kongr Tireingerningar, stórar og smáar, í Reykjavik og nágrenni. Einnig i skipum. Höfum nýja, frábæra teppahreinsunar- vél. Símar 19017 og 28058. Ólafur Hólm. Hreingerningafélagið Hólmbræður. Unnið á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir sama verð. Margra ára örugg þjónusta. Einnig teppa- og húsgagna- hreinsun með nýjum vélum. Símar 50774 og 51372. ökukennsla ökukennsla — æfingatimar. i Lærið að aka bifreið á skjótan og öruggan hátt. Engir lágmarkstímar. Kenni á Mazda 323. Sigurður Þormar ökukennari, Sunnuflöt 13, sími 45122. Ökukennsla — æfingatímar. Get nú aftur bætt við nokkrum nem- endum. Kenni á Mazda 626 hardtópp '79. ökuskóli og prófgögn sé þess óskað. Hallfriður Stefánsdóttir, sími 81349. Lærið að aka bil — —vinna og ánægja mannsins krefst þess. ökuskóli Guðjóns Andréssonar býður upp á þolinmæði og skilar yður færum í umferðina. ökuskóli Guðjóns Andréssonar býður yður velkomin. Sími 18387 eða 11720. Ökukennsla, æfingartimar, bifhjólapróf. Kenni á nýjan Audi, nemendur greiði aðeins tekna tíma, engir lágmarkstimar, nemendur geta byrjað strax. ökuskóli og öll prófgögn ef óskað er. Magnús Helgason, sími 66660. Ökukennsla, æfingartimar. Get aftur bætt við nemendum. Kenni á hinn vinsæla Mazda 626 ’80, R-306. Nemendur greiða aðeins tekna tíma. Greiðslukjör ef óskað er. Kristján Sigurðsson, sími 24158. Ökukennsla-æfingatimar. Kenni á Volvo ’80. Nýir nemendur geta byrjað strax. Engir skyldutímar, nemendur greiði aðeins tekna tíma. Uppl. í síma 40694. Gunnar Jónasson. GEIMGIÐ GENGISSKRÁNING Ferðamanna- NR. 76 - 22. APRfL 1980 * gjaldeyrir Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarikjadollar 443,00 444,10* 488,51* 1 Sterlingspund 993,50 996,00* 1096,60* 1 Kanadadollar 374,26 375,15* 412,87* 100 Danskar krónur 7646,15 7666,15* 8431,87* 100 Norskar krónur 8801,00 8822,90* 9706,19* 100 Sœnskar krónur 10200,30 10225,60* 11248,16* 100 Finnsk mörk 11654,85 11683,75* 12852,13* 100 Franskir frankar 10247,50 10273,00* 11300,30* 100 Bolg. frankar 1485,10 1488,80* 1837,68* 100 Svissn. frankar 25555,20 25618,70* 28180,57* 1Q0 Gyllini 21710,40 21764,30* 23940,73* 100 V-þýzk mörk 23863,40 23922,60* 26314,86* 100 Lfrur 50,91 50,04* 56,14* 100 Austurr. Sch.' 3352,25 3360,55* 3696,61* 100 Escudos 884,65 888,85* 975,54* 100 Pesetar ^ 619,40 620,90* 682,99* 100 Yen 177,40 177,84* 196,62* 1 Sérstök dráttarréttindi 563,70 565,10* ^: * Breyting frá síðustu skróningu. * Símsvari vegna gengisskráningar 22190. Kleikarfklfpu Frá því I jánúar hefur Leikfélag Reykjavíkur sýnt ærslaleikinn Klerkar i klípu á miðnætursýningum i Austurbæjarbiói og eru sýningar orðnar 20 á þessum| stutta tima. Sýningargestir nálgast 15. þúsundið. Sýningum fer nú fækkandi þar sem skammt er til jeikársloka. Sýnt er á laugardagskvöidum kl. 23.30. | Höfundur er Philip King og er leikurinn sýndur í leikstjórn Sigurðar Karlssonar. Hlutverkin eru í höndum Sögu Jónsdóttur, Jóns Hjartarsonar, Soffiu Jakobsdóttur, Margrétar Ólafsdóttur, Haralds G. Haraldssonar, Kjartans Ragnarssonar, Guðmundar Pálssonar, Steindórs Hjörleifssonar og Sigurðar Karlssonar. Örnefnastofnun fœr gjafir Kirkju- og kennslumálaráðuneytið norska hefur sent örnefnastofnunun Þjóðminjasafns að gjöf tvö stór norsk ritverk: hið fágæta og afar verðmæta norska fornbréfasafn, Diplomataríum Norvegicum, samtals 21 bindi, og 13 bindi, sem komin eru út af ritverkinu Bygd og by i Noreg. Rit þessi eru mikilvæg hjálpar gögn við rannsókn íslenzkra og norskra örnefna. Basar Haldinn verður basar á vegum nemenda Myndlista- og handíðaskóla Islands í Bernhöftstorfunni föstudaginn 25. april, laugardaginn 26. og sunnudaginn 27. april frá kl. 10—18. Kettir í óskilum I Hjá Kattavinafélaginu eru i óskilum tveir högnar. Annar eru svartur, en hvitur á trýni og fótum með dökka hálsól. Hálsólin er með rauðum og hvitum ^steinum. Hann kom frá Kópavogi. Hinn er ungur og svartur. Simi Kattavinafélagsins er 14594. Tilkynning frá félaginu Anglia Stjórn Anglia mælist til að félagar fjölmenni við kvöldverð á Hótel Loftleiðum laugardaginn 26. april. Breska vikan verður þá í fullum gangi. Þátt- tökutilkynning hjá veitingastjóra. Hjónaklúbbur Hveragerðis Síðastliðið haust var haldinn stofnfundur hjóna- og paraklúbbs Hveragerðis og nágrennis. Á þeim fundi voru samþykkt lög klúbbsins og kosin stjórn. For- maður er Steinn Kárason garðyrkjufræðingur. I lögum klúbbsins segir, að tilgangur hans sé að stuðla að heilbrigðu og þroskandi félags og skemmt- analífi enda sé áfengi stillt í hóf. Fyrsta skemmtun klúbbsins var siðan haldin i þess- um anda upp úr siðastliðnum áramótum og þótti tak- ast með afbrigðum vel. Skemmtiatriði voru heima- fengin. T.d. söng söngsveit klúbbsins og leikfélagið sýndi atriði úr Möppudýragarðinum. Starfsáætlun árið 1980 liggur nú fyrir og verður. Vetur konungur kvaddur með glaum og gleði siðasta vetrardag. 1 júni verður svo hlöðuball með fyrra fallinu og loks stórdansleikur í september. Þá er áætlað aö fara i stutt ferðalag með börn félagsmanna i júní og tileinka ferð- ina ári trésins. öllum kostnaði er haldið í lágmarki og kostar t.a.m. aðeins fjögur þúsund krónur inn á næsta dansleik klúbbsins, sem þykir víst ekki mikið á dýrtíðartimum. Skráðir klúbbfélagar eru 86. „Tungi hjól sól allt nema nema staðar" Ut er komin Ijóðabókin „tungl hjól sól allt nema nema staðar” eftir Martin Götuskeggja. I bókinni sem er 16 siður eru 9 Ijóð, myndskreytt af Guðrúnu Eddu-og R. Crumb. Höfundur er sagður vera fæddur og uppalinn, vel menntaður, vel læs og sæmilega vel brenglaður. en bókin er tileinkuð A. Baader og S. Ciesielski. Bókin er prentuð í Letri. Flaututónleikar í sal Tónlistarskólans Birna Bragadóttir heldur flaututónleika i sal Tónlistar- skólans í Reykjavík 27. apríl kl. 14.30. Er það burtfar- arpróf hennar frá skólanum. Á efnisskrá eru verk eftir Hándel, Bach, Roussel og Reinecke. Þórunn H. Guðmundsdóttir leikur með á píanó. Velunnarar skólans eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir hlut- höfum á aðalskrífstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli frá og með 21. apríl nk. og lýkur laugardáginn 26. april. Athugið að atkvæðaseðlar verða afgreiddir laugardaginn 26. aprílkl. 10— 17. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar i hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Tekið skal fram að fyrri um- boð til að mæta á aðalfundi Flugleiða hf. eru fallin úr giidi og er þvi nauðsynlegt að framvisa nýjum umboðum hafi hluthafar hug á að láta aðra mæta fyrir sig á aðalfundinum. Fumlir Frá Guðspekifélaginu I kvöld kl. 21 verður Halldór Haraldsson meðerindi. Hugleiöingar um Svami Vivekanda. Kvenfélag Óháða safnaðarins Fundur verður laugardaginn 26. apríl kl. 15 i Kirkju bæ. Kvöldferöalag rætt. Kaffiveitingar. Fræðslufundur í Skógræktarstöðinni Fræðslufundur verður haldinn í Skógræktarstöðinni I Fossvogi, í dag, laugardag 26. apríl kl. 2 e.h. Þar verður sérstaklega leiðbeint með uppeldi á trjám og runnum, svo sem sáning umplöntun, græðlinga- klipping og fjölgun plantna á þann hátt. Þá verður sýnikennsla i klippingu og snyrtingu runna, gróður- setning trjáplantna og færsla stærri trjáa. Sigurður Blöndal skógræktarstjóri, Hulda Valtýs- dóttir framkvæmdastjóri Árs trésins ásamt sér- fræðingum Skógræktarfélagsins verða til viðtals um skógrækt og trjárækt. Jafnframt þessari fræðslu verður hægt að fá ýmsa bæklinga og rit um trjárækt og garðrækt á staðnum. Kvikmyndasýningar verða i húsi félagsins frá kl. 3—5. Sýndar verða skógræktarmyndir. r Ferds ,lög a Útivistarferðir Sunnud. 27.4. kl. 13 Grænadyngja — Sog, létt ganga I fylgd með Jóni Jóns- syni jarðfræðingi, sem manna bezt þekkir Reykjanes skagann. Verð 3000 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Fariðfrá BSl, bensínsölu (i Hafnarf. v. kirkjugarðinn). Landmannalaugar (5 dagar) 30.4—4.5. Gengið (á skíð- um) frá Sigöldu. Fararstj. Jón I. Bjarnason. Farseðlar áskrifstofu Utivistar, Lækjarg. 6a,sími 14606. Fyrirlestur umöryggismál Svíþjóðar Hádegisverðarfundur verður haldinn í Átthaga- salnum (i suðurenda Hótel Sögu) laugaraginn 26. april 1980. Fundurinn hefstkl. 12. Ræðumaður verður dr. Ake Sparring, forstjóri sænsku utanríkismála-' stofnunarinnar. Fyrirlestur hans, sem verður fluttur á ensku, nefnist öryggismál Svíþjóðar og tengsl þeirra við önnur Norðurlönd og Atlantshafssvæðið. Ræðumaður mun svara spurningum fundargesta. Félagsmenn í SVS og Varðbergi eru hvattir til þess 1 að fjölmenna á fundinn og taka með sér gesti. Kaffiboð Iðju Iðja heldur kaffiboð fyrir félagsmenn sína 65 ára og eldri. Kaffiboðið verður haldið i Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 27. april kl. 15. Skemmtikvöld Framsóknar- félaganna í Reykjavík Framsóknarfélögin í Reykjavík gangast fyrir skemmti kvöldi laugardaginn 26. apríl. Hefst það með borð haldi kl. 19.30*í Hótel Heklu. Veizlustjóri verður » Hrólfur Halldórsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavikur. Karon sýningarflokkurinn heldur tízku sýningu. Töframaðurinn Baldur Brjánsson sýnir listir sinar nýkominn frá London. Hljómsveitin Ásar leikur gömlu og nýju dansana. Allir velkomnir á meðan hús rúm leyfir. Upplýsingar í síma 24480. Kvæðamannafélagið Iðunn Munið kaffikvöldiö að Hallveigarstöðum i kvöld, laugardag 26. apríl kl. 20. Velunnarar félagsins eru velkomnir. Stjórnin. Heimdallur opnar atvinnumiðlun Vegna mikilla erfiöleika ungs fólks viö að finna sér sumaratvinnu hefur stjórn Heimdallar SUS opnað at vinnumiðlun í Reykjavík. Allt ungt fólk kannast við hversu erfitt þaö reynist oft að fá einhverja atvinnu yfir sumarmánuðina Stjóm Heimdallar telur að með skipulögðu starfi sí hægt að ráða nokkra bót á þessu. Byrjað er að taka fólk’niður á skrá og leita að vinnu fyrir það hjá at vinnurekendum. Heimdallur SUS Reykjavík ætla sér með þessu starfi, auk þess að útvega skólafólki atvinnu, að opna umræður um þessi mál og leita varanlegra úrbóta. Þess er vænzt að hægt verði að fá forystumenn laun þegasamtaka og vinnuveitenda til aö tjá sig um málið. Skólafólk, hafið samband viðskrifstofu Heimdallai öll kvöld í síma 82900—82098 eða komið við aí’ Háaleitisbraut 1,2. hæð(Valhöll). Málakennarar halda ráðstefnu t júní nk. efna Samtök Islenzkra málakennara og hlið- stæð félög annars staðar á Norðurlöndum til ráð- stefnu í Reykjavík. Ráðstefnan er haldin i tilefni norræns málaárs og hefur Norræni menningarsjóður inn veitt styrk I þeim tilgangi. Áætlað er að um 200 kennarar hvaðanæva á Norðurlöndum muni taka þátt í henni. Ráðstefnunni hafa verið valin kjörorðin MÁL — HEIMUR — MANNFÉLAG og verður einkúm tekið fyrir að rannsaka og ræða mikilvægi málakennsl- unnar fyrir nemenduma, jafnt á starfsvettvangi sem i persónulegum viðskiptum. Fyrirlesarar ráðstefnunnar eru meðal færustu sér fræðinga i Evrópu hver á sinu sviði, og ennfremur munu koma þar fram fulltrúar atvinnulífsins, sem gera munu grein fyrir nauðsyn málakunnáttu innan hinna ýmsu atvinnugreina.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.