Dagblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 13
Iþróttir Ping-open íBorgamesi um næstu helgi Kyrsía Ping golfmótið verður haldið á Hamars- velli i Borgarnesi laugardaginn 9. ágúst kl. 9.00 f.h. Leiknar verða 18 holur i tveim flokkum, með og án forgjafar. Hamarsvöllurinn er að verða geysiskemmtilegur og hafa fclagar unnið mikið starf til að gera völlinn sem beztan á allan hátt. t sumar hefur t.d. verið plantað yfir 7000 trjáplöntum. Mikill áhugi er nú fyrir golfi i Borgarnesi og fer ört vaxandi. Hrepps-1 nefndln hefur stutt drengilega við bakið á klúbbnum áallan hátt. Öll verðlaun eru gefin af Íslenzk-ameriska verzl- unarfélaginu, sem er umboðsaðili fyrir Ping golf- tæki, er margir af okkar beztu kylfingum leika með. Sérstök verðlaun verða veitt fyrir holu i höggi, og högg næst holu. Golfklúbbur Borgarness býður alla kylfinga vel- komna til spennandi móts. Skráning fer fram fyrir kl. 19.00 á föstudagskvöld 7. ágúst í símum 93-7248, 93-7374 og 93-7209. Frábært öldungamót á Hellu um sl. helgi Stærsta öldungamót, sem haldið hefur verið hér- lendis i golfi fór fram á Hellu á mánudag og mættu hvorki fleiri né færri en 64 kylfingar til leiks á hinn skemmtilega völl þeirra austanmanna. Ekki höfum við staðfestingu á að hér sé um metþátttöku að ræða i öldungaflokki en sláum þvi föstu. Geysijöfn keppni setti svip sinn á mótið svo og mjög góð fram- kvæmd, en mótsstjóri var Konráð Bjarnason, for- maður Golfsambandsins. í keppninni án forgjafar sigraði Knútur Björns- son, GK, á 74 höggum en annar varð Hólmgeir Guð- mundsson, GS, á sama skori en Knútur vann eftir umspil. Þriðji varð svo Guðmundur Ófeigsson, GR — nýbakaður íslandsmeistari öldunga — á 75 högg- um. Næstir voru Sveinn Snorason, GR, og Árni Guðmundsson, GOS (Selfoss) á 76 höggum og siðan komu þeir Gunnar Pétursson, NK, Pétur Auðuns- son, GK, og Marteinn Guðjónsson, GV, allir á 77 höggum. i keppninni með forgjöf sigraði Árni Guð- mundsson, GOS, á 58 nettó, Baldvin Haraldsson, GR, lék á 60 nettó og Gunnar Stefánsson, NK, á 62 höggum. Eftir keppnina var öllum keppendum boðið í kaffisamsæti i verkaiýðsheimilinu og þar voru verð- launin afhent. Höfðu allir á orði að þarna hefði verið um einkar vel heppnað mót að ræða. - SSv. Helga ogOddný til alls líklegar á Kalott Helga Halldórsdóttir og Oddný Árnadóttir spretta úr spori i 100 og 200 melrunum i Kalottkeppninni 9,—10. ágúst nk. Þær fá það erflða hlutverk að ógna hinni spretthörðu Monu Evjen frá Noregi. En Mona þessi háði einmitt mjög oft skemmtilega keppni við Ingunni Einarsdóttur áður en Ingunn hætti keppni vegna meiðsla. Helga á bezl 12,26 sek. í 100 m, en Oddný 12,30 sek. Móna Evjen sigraði ii tveim síðustu keppnum og hljóp á 11,7 og 11,9 sek. Hclga og Oddný ættu að geta veitt hinni norsku Mónu verðuga keppni i 100 metrunum en róðurinn verður þyngri i 200 metrunum þar sem Móna á mun betri tima. Úrslitin eru þó aldrei ráðin fyrirfram og allt geturgerzt. Helga keppir siðan i 100 m grindahlaupi, lang- stökki, 4x 100 m og 4 x 400 m boðhlaupum, þannig að hún fær nóg að gera. Oddný fær einnig að taka nokkra sprettina, þvi hún er keppandi i 100 m, 200 m, 400 m hlaupum og keppir einnig i báðum boðhlaupunum, 4 X 100 m og 4 x 400 m. Það mun þvi mæða mest á þeim Helgu, sem keppir f 6 greinum, Oddnýju, sem keppir i 5 greinum og Þórdfsi sem keppir i 4 greinum i Kalottkeppninni 9.—10. ágúst. íþróttir íþróttir DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGUST 1980. i Hinrik Þórhallsson hefur hér snúið á varnarmann FH i gærkvöld DB-mynd Einar. BLAK0LD FALLBARATT AN BLASIR VB> KEFLAVIK —eftir0-l tap fyrír KR á taugardalsvelli í gærkvöld íköflóttum leik Þegar iþróttaiðkcndur verða fyrir slysum, tognunum o.þ.h. er mikilvægt að þeir hljóti rétta læknis- og sjúkrameðferð f tæka tið. Páll B. Helgason orku- og endurhæfingalæknir og Halldór Matthiasson sjúkraþjálfari veita slika þjónustu að Miklu- braut 50 og er hún tilkomin að nokkru i samstarfi við ISl. Nýlega lagði ISl endurhæfingastofunni til nýtt og fullkomið hljóðbylgjutæki og sýnir myndin þegar verið er að nota tækið á Hreini Halldórssyni kúluvarpara. Frá vinstri: Halldór Matthiasson sjúkraþjálfari, Hreinn og Páll B. Helgason læknir. Keflvikingar eru nú komnir i alvar- lega fallhættu eftir tap fyrir KR á Laugardalsvelli i gærkvöld. Tapið var ekki stórt, 0-1, en það er ekki spurt að þvi þegar upp er staðið. Hins vegar var sigur KR-inganna mjög sanngjarn i alla staði þvi þeir voru Keflvikingunum fremri á flestum sviðum knattspyrn- unnar. Eina mark leiksins á 18. minútu. Eftir innkast barst knötturinn til Ágústs Jónssonar, sem var við mark- teigshorn. Hann renndi fyrir markið þar sem Börkurlngvarssonþrumaði af öllum Iffs og sálar kröttum á markið. Þorsteinn Bjarnason, sem lék sinn fyrsta leik með Keflavfkurliðinu eftir Belgiudvölina og stóð sig i heild mjög vel, kom hönd á knöttinn en náði ekki að stöðva mark. Svo fast var skotið. Þótt oft skylli hurð nærri hælum við mörkln, og þá einkum mark fBK, eftir þetta voru ekki fleiri mörk gerð. Annars léku bæði liðin ágætis knatt- spyrnu á köflum en féllu þess á milli niður á meðalmennskuplanið. Keflvík- ingar byrjuðu leikinn betur og tvívegis á fyrsta stundarfjórðungnum munaði ekki miklu að þeim tækist ætluríarverk sitt — að skora. Á þessum tíma léku KR-ingar hreint og beint illa. Hugsun á bak við framkvæmdirnar engin. Síðan tók leikurinn á sig aðra mynd. KR-ing- ar með Sæbjörn Guðmundsson sem bezta mann tóku að sækja skipulega og í ljós kom að Keflavíkurvörnin var ekki alít of samstillt á köflum. Litið var þó um hættuleg færi fyrr en á 35. minútu en þó voru það Keflvíkingar sem komust verulega nálægt því að skora. Hörkuskot Ólafs Júlíussonar utan af velli þaut í Börk og þaðan í marksúluna án þess að Stefán gæti vörnum við komið í markinu. Á sömu mínútu átti Hálfdán skot rétt framhjá úr góðu færi. Strax í byrjun siðari hálfleiks lék Sæbjörn upp allan kantinn og gaf vel fyrir markið. Þar var Jón Oddsson fyrir og kastaði sér fram og skallaði á markið. Með tilþrifum tókst Þorsteini að komast hjá marki þarna. Þorsteinn varð einnig að taka fram sparihansk- ana á 64. mínútu en Sæbjörn hleypti af utan vítateigs. Hann rétt náði að koma höndum á knöttinn og þaðan þaut bolt- inn í þverslá og út. Rúmlega 10 min. síðar komst Jón Oddsson aftur í upp- lagt færi. Hann komst í gegnum vörn- ina eftir slæm mistök en ætlaði að leika á Þorstein I stað þess að skjóta strax. Það hefði hann aldrei reynt því Steini stökk á knöttinn eins og tigur og gómaði hann glæsilega. Keflvíkingar fengu engin opin færi á við þessi en bæði Björn Íngólfsson, efnilegur nýliði, og Skúli Rósantsson voru ekki fjarri lagi í tilraunum sinum fyrr i hálfleiknum. Allt bit vantaði hins vegar í keflvisku sóknina. Steinar Jó- hannsson var daufur í leiknum og Ólafur Júliusson náði sér ekki oft á strik. Ragnar Margeirsson átti beztan leik útispilaranna en mætti leika miklu framar á vellinum. Ógnunin af honum er hverfandi þar sem hann leikur nú á við það sem hún gæti verið lægi hann frammi. Þá átti Óskar Færseth góðan leik að vanda en aðrir skáru sig ekki verulega úr, auk Þorsteins i markinu auðvitað, sem var bezti maður liðsins. Hjá KR bar Sæbjörn af. Knatttækni hans mjög góð og sendingar eru margar hverjar frábærar hjá honum. Þá átti miðvarðadúettinn, Ottó og Börkur, sterkan leik og Ágúst var lipur á miðj- unni. Þá barðist Jón Oddsson vel frammi. Stefán er i stöðugri framför í markinu. KR-ingar eiga því enn fjar- læga möguleika á titlinum eftir þennan sigur en það fer auðvitað nokkuð eftir því hvernig úrslitin þróast í leikjunum í kvöld. Kedvíkingar verða hins vegar að snúa sér af alefli að því að forða sér frá fallinu og það strax ef ekki á illa að fara. Eftir að hafa nælt sér í 5 stig í fyrstu 4 leikjunum hafa Keflvikingar ekki unnið leik og náð i 3 jafntefli í síðustu 7 leikjum. Það eru botnliðs- taktar og einhvern veginn kann ég ekki við Keflavík á þessum stað i töflunni. - SSv. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir i Markvarzla Diðríks færði Víking bæði stigin gegn FH - Varði oft frábærlega vel í skemmtilegum opnum sóknarleik FH og Víkings á KaplakrikavelG í gærkvöld. Víkingur sigraði 1-0 með marki Ragnars Gíslasonar ellef u mín. fyrir leikslok Frábær markvarzla Diðriks Ölafs- sonar við hinar erfiðustu aðstæður færði Vikingum bæði stigin i hörku- skemmtilegum leik við FH á Kapla- krika i gærkvöld. Diörik varði hvað eftir annað af hreinni snilld i leiknum og kom i veg fyrir mörk sókndjarfra FH-inga. Ellefu min. fyrir leikslok skoraði bakvörðurinn Ragnar Gislason eina mark leiksins fyrir Víking eftir gott upphlaup og glæsilega fyrirgjöf Heimis Karlssonar. Snjall markvörður FH, Friðrik Jónsson, komst ekki í veg fyrir fastan skallknött Ragnars. Hann átti einnig góðan leik í marki, þótt ekki reyndi eins mikið á hann og Diörik í Víkingsmarkinu. Merkilegt hvað mark- verðirnir stóðu sig vel við þær aðstæð- ur, sem þeim er boðið upp á á Kapla- krikavellinum. Markteigurinn við bæði mörk beinlinis leðja. Þrátt fyrir drunga og blautan völl var leikurinn góður og oft vel leikinn hjá þeim liðum, sem mesta framför hafa sýnt frá því íslandsmótið hófst. Þó FH sé nú á botni deildarinnar leika fá lið betri knattspyrnu — FH getur unnið hvaða lið sem er eins og reyndar hefur komið í ljós i sigrum þess gegn Val og Akranesi. Synd ef FH fellur. Víkingur er í mikilli sókn og hefur leikið sjö leiki án taps í 1. deildinni — sigurganga, sem fært hefur liðið upp í efsta sætið ásamt Val en Valur leikið einum leik minna. Það var mikið um opin færi í leikn- um í gær. Víkingar byrjuðu betur. Á 5. mín. komst Lárus miðherji Guðmunds- son einn inn fyrir vörn FH. Renndi knettinum framhjá Friðrik markverði en líka stönginni. Rétt á eftir var Ómar Torfason í góðu færi inni á vítapunkti. Spyrnti yfir. En smám saman náðu FH- ingar yfirtökunum á miðjunni og sóknarlotur þeirra urðu hættulegri. Bjargað var frá Magnúsi Teitssyni á siðustu stundu á 13. mín. og tveimur mín. síðar sló Diðrik knöttinn í horn eftir hættulegt skot Helga Ragnars- sonar utan frá kanti. Skömmu síðar var Helgi aðeins of seinn í opnu færi. Opin sóknarknattspyrna hjá báðum liðum — Helgi átti skot í hliðarnet marks Vík- ings — Diðrik rann i leðjunni — og tveimur min. fyrir leikhlé varði Friðrik FH-markvörður frábærlega hörkuskot Ómars Torfasonar. Rétt á eftir komst Lárus í gegn en var of seinn að leggja knöttinn fyrir sig. Valþór Sigþórsson, mjög sterkur miðvörður FH, bjargaði í horn ásíðustu stundu. Síðari hálfleikurinn hófst með miklu fjöri. Lárus komst í gott færi við FH- markið en mistókst og hinum megin varði Diðrik meistaralega frá Pálma Jónssyni. Knötturinn gekk markanna á milli. Heimir átti skalla i þverslá marks FH og aftur fyrir — Diðrik varði hörkuskot Viðars Halldórssonar. Á 66. mín. komst Lárus enn einu sinni frír að marki FH en spymti knettinum fram- hjá — og svo kom sigurmarkið. Það var á 79. mín. Gott upphlaup Víkings vinstra megin splundraði vörn FH. Heimir gaf snilldarsendingu inn í vitateig FH — alveg innundir markteig og þar var Ragnar Gíslason bakvörður kominn og skallaði í mark. Fyrsta mark Ragnars á íslandsmótinu og ákaflega þýðingarmikið fyrir Víking. Eftir markið sóttu FH-ingar stíft og reyndu að jafna. Diðrik varði vel lúmskt skot Ásgeirs Arnbjörnssonar. FH fékk hornspyrnu eftir hornspyrnu en allt kom fyrir ekki. Víkingum tókst ávallt að hreinsa — en á lokamínútunni galopnaðist þó Víkingsvörnin. Magnús Teitsson komst í gott færi en spyrnti yfir. Lánleysi botnliðsins greinilega tryggur fylgifiskur FH, einkum þó á heimavelli. Þar hefur liðið aðeins unnið einn leik, gegn Val, tapað fimm. Því aðeins hlotið tvö stig af 12 mögulegum á Kaplakrikavelli. Lítill heimavöllur það. Víkingur hefur sigrað í þremur fyrstu leikjum sínum i síðari umferðinni — ekki tapað síðan í fimmtu umferð — og leikur oft á tíðum mjög góða knatt- spyrnu á íslenzkum mælikvarða. Fram- línumennirnir Lárus og Hinrik Þór- hallsson voru þó ekki í essinu sínu að þessu sinni, þrátt fyrir færi Lárusar. Heppnin var ekki með honum í mark- skotunum að þessu sinni — en fáir eru leiknari en pilturinn sá. Diðrik var bezti maður Víkings og Ómar Torfason komst mjög vel frá leiknum. í stöðugri sókn. Gunnar, Jóhannes og Magnús sterkir í vörninni og nutu góðrar að- stoðar hins bráðduglega Þórðar Marelssonar. Leikmaður, sem vert er að veita athygli. FH-Iiðið er mjög skemmtilega leik- andi og hraði leikmanna mikill. Hann kom Víkingum oft í opna skjöldu — en heppnin var ekki fylginautur FH að þessu sinni frekar en svo oft i sumar. Ekki gaman að lenda á móti Diðrik i slikum ham. Valþór var bezti maður liðsins — mjög sterkur varnarmaður og Viðar átti einnig góðan leik. Ásgeir Elíasson virkur á miðjunni ásamt Magnúsi Teitssyni og Pálmi hættulegur í sókninni. Nokkuð grófur og var bók- aður. Eini leikmaðurinn, sem sá gula spjaldið Þorvarðs Björnssonar dóm- ara. Staða FH er slæm í deildinni en ef liðið sýnir áfram slíkan leik sem i gær getur það eflaust komizt hjá fallinu. Mörkin hljóta að koma. Góð knatt- spyrna hlýtur aðgefa uppskeru. - hsím. Tap drengjanna fyrir Dönum — Danir skoruöu sigurmarkið Í2-1 sigrí á lokasekúndum leiksins Islenzka drengjalandsiiðið í knatt- spyrnu tapaði í gærkvöld fyrir West Ham og Liverpool — mætast á Wembley Fyrsti stórleikurinn í ensku knatt- spyrnunni verður á laugardag er Liver- pool og West Ham mætast á Wembley i Charity Shield. Bæði lið verða með sína bezie menn og þessi ieikur hefur ár hvert undanfarin ár vcrið forvéiiurinn fyrir það er koma skal. Enska deilda- képpnin hefst annan laugardag og vist er að margir hér heima og þó enn fleiri erlendis biða þess með óþreyju. Flestir veðmangarar hallast að þvi að Liverpool haldi titli sínum þriðja árið i röð og í fimmta sinn á sl. 6 árum en telja að helzt verði það Nottingham Forest sem komi til með að ógna veld- inu. dönskum jafnöldrum sinum í Norður- landamóti drengjalandsliða i knatt- spyrnu, sem fram fer i Vestur-Þýzka- landi að þessu sinni. Tapið var ekki stórt, 1-2, og þaðan af siður að það væri sanngjarnt þvi islenzka liðið lék mun betur allan síðari hálfleikinn. Danirnir voru fyrri til að skora en Framarinn stórefnilegi, Einar Björns- son, jafnaði metin skömmu fyrir leik- hlé með góðu marki. í síðari hálfleikn- um sóttu islenzku strákarnir án afláts íþróttir Sigurður Sverrisson Aðofan eru sigurvegararnir I flokknum með verðlaunaskjöl sin. að marki Dananna en tókst ekki að skora. Undir lok leiksins náðu Danirnir skyndiupphlaupi og úr því skoruðu þeir sigurmarkið. Virkilegt kjaftshögg fyrir strákana. Skýringin á því að mótið er haldið í V-Þýzkalandi er sú að V-Þjóðverjar hafa alltaf leikið með í þessu nióti sem gestir og því var talið eðlilegt að það færi fram þar nú. Nokkrir leikir hafa þegar farið fram í mótinu, sem leikið er í tveimur riðlum. V-Þjóðverjarnir unnu Danina 2-0 á mánudag og ísland mælir þeim í kvöld. Þá gerðu Finnar og Sviar markalaust jafntefli i hinum riðlinum og síðan unnu Norðntenn Svíana 2-1 og eru vafalítið upp með sér ef marka má hinn stöðuga ríg á milli þjóðanna. Spennandi hjólreiða- keppni á Akranesi —hátt í 40 unglingar tóku þátt Fyrir allnokkru efndu Bæjarblaðs- stórveldið á Akranesi og íþróttabanda- lag staðarins til hjólreiðakeppni fyrir börn og unglinga. Mjög góð þátttaka, eða um 40 manns, var i keppninni en þess má til gamans geta að um 10 kepp- endur voru I svipaðri keppni i Keflavik, sem haldin var skömntu áður. Kepp- endum var skipt I þrjá flokka. Fyrst yngri flokk og i honum voru börn á aldrinum 7—11 ára, þá eldri flokk sem hafði að geyma börn á aldrinum 12 ára og upp úr og svo þriðja flokkinn sem hafði að geyma keppendur sem áttu girahjól. Hörkuspennandi keppni var og hjól- uðu þátttakendur mislanga vegalengd eftir aldri. i yngri flokknum sigraði Haraldur Ingólfsson með yfirburðum á 4:37,9 min. Annar varð Marinó önundarson (prentari ef marka má myndina til hliðar) á 4:49,2 min. Þriðji varð svo Sigurður Már Harðarson á 4:49,8 mín. í eldri flokki sigraði Gauti Halldórsson á 8:53,9 mín., annar varð Jóhannes Elíasson á 8:53,3 mín. og þriðji Jón Bjarni Baldvinsson á 9:04,3 mín. í þróaðasta flokknum, girahjóla flokknum, sigraði utanbæjarmaðurinn Ásgeir Heiöar á 21:00,6 min. Annar varð Óli Þór Jónsson á 24:23,3 og þriðji Sævar Gylfason á 25:19,6 mín. - SSv. Staðaníl.deild Staðan i I. deildinni eftir leikina i gærkvöld er þessí: KR — Keflavík 1-0 FH — Vikingur 0-1 Valur 11 7 l 3 28-12 15 Víkingur 12 5 5 2 15-10 15 Akranes 12 5 4 3 19-15 14 Fram 116 2 3 12-13 14 Breiðablik 11 6 0 5 19-14 12 KR 12 5 2 5 11-16 11 ÍBV 12 4 3 5 19-21 11 Keflavik 12 2 5 5 11-17 9 Þróttur 11 2 3 6 7-11 7 FH 12 2 3 7 16-28 7 Markahæslu menn: mörk Matthias Hallgrímsson, Val, II Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, 9 Slgurður Grétarsson, Breiðablik, 7 LAUGARDALSVELU ADALLEIKVANGI, IKVÖLD KL. 20.00. MÆTIÐ MEÐ FRAM -HÚFURNAR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.