Dagblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 4
f V LJOSMYNDIR: ’ BJARNLEIFUR L BJARNLEIFSSON DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1980. Ekki hægt að fá ávfsun skipt í banka: Skrif um við falskar á báða bóga? Víða maðkur í mysunni Það er ekki ósjaldan að mönnum renni í skap, þegar þeir ætla að nota ávísanir til þess að greiða eitt eða annað með. Hér kemur ein ágætis lýsing á þannig viðskiptum. „Ég er frá Hornafirði,” sagði við- mælandi okkar. ,,Ég gisti á Hótel Esju og þar sem Búnaðarbankinn er til húsa í sömu byggingu, þá fór ég þangað og ætlaði að fá skipt ávísun upp á rúmar 100 þús. krónur. Það er enginn Búnaðarbanki á Höfn i Hornafirði, en þar er Landsbanki og ég var auðvitað með eigið ávísana- hefti þaðan. Ekki kom til greina að skipta ávísun minni í Búnaðarbankanum, þótt ég væri með öll skilríki á mér og ætti fleiri milljónir í tékkheftinu, því að ég ætlaði að kaupa mér bíl. Ég varð að gjöra svo vel að fara í Lands- bankann og fá skipt þar. Sá banki er að visu rétt hjá, en þetta finnst mér engin þjónusta hjá rikisbanka. Ekki bætti þaö skap mitt að lög- regluþjónn stóð rétt hjá mér, i fullum skrúða, og var að greiða eitthvað — með tékka frá Iðnaðarbankanum. Það var tekið gott og gilt. Ég bara spyr: Hvaða hagræðing er eiginlega af að vera með tékkhefti á sér ef ekki er hægt að fá tékka skipt? Er þetta vegna þess að íslendingar séu slíkir stórsvindlarar að þeir skrifi falska á báða bóga?” Nokkuð ber á misferli Neytendasíðan leitaði eftir upplýs- ingum hjá Þórði Ólafssyni, forstöðu- manni Bankaeftirlits Seðlabanka ís- lands um það, hvaða reglur giltu um kaup banka og sparisjóða á ávisun- um, sem gefnar væru út á aðrar inn- lánsstofnanir. Sagöi Þórður, að í Reglum um tékkaviðskipti frá því í ian. 1977 væri ákvæði á þessa leið; „aðalreglan er sú, að innlánsstofnun innleysir ekki tékka á aðrar innlánsstofnanir nema vegna annarra viðskipta.” „Hér er um að ræða samkomulag milli banka og sparisjóða, en ekki opinberar reglur,” sagði Þórður. Ástæðan fyrir þessari reglu er m.a. sú, að á undanförnum árum hefur nokkuð borið á misferli með tékka og hafa bankar og sparisjóðir talið sig, með þessari framkvæmd, vera að draga úr áhættu á því að sitja uppi með innistæðulausa tékka frá aðilum sem ekki eru í viðskiptum við við- komandi stofnun. Hvimleið regla á milli banka Regla þessi er að visu hvimleið en á sér þessa skýringu m.a.” Þórður taldi að framkvæmd ein- stakra banka væri misjöfn og reglan ætti tæpast við nema þar sem Hvað skyldu það vera margir sem þurfa að hlaupa á milli banka til þess að fá smá- ávisunum skipt? DB-myndir Bj.Bj. Þórði Ólafssyni, forstöðumanni Bankaeftirlits Seðlabanka tslands, finnst fyllsta ástæða til þess að taka reglur milli banka um tékkaviðskipti til endurskoðunar. greiðslubankinn væri innan skynsam- legrar fjarlægðar. Hann sagði að skv. áðurgreindri meginreglu hefði nokkuð borið á að bankar í Reykja- vík skiptu ekki tékkum á sparisjóði úti á landi og væri viðkomandi aðila vísað á Seðlabankann, sem viðskipta- banka sparisjóðanna eða á næsta sparisjóð, en sparisjóðirnir reka „landsþjónustu”, þar sem hægt er að notfæra sér alla venjulega greiðslu- miðlun milli sjóðanna. „Full ástæða er til að taka reglur þessar til endurskoðunar,” sagði Þórður. „T.d. í þá átt að innláns- stofnanir taki ábyrgð á vissri upphæð hvers tékka, sfem gefinn er út af reikningseigendum. Með þvi móti mundu bankar og sparisjóðir vanda valið á þeim aðila sem þeir treystu fyrir tékkhefti. Þetta myndi endur- vekja traust á tékkum sem greiðslu- formi i öllum viðskiptum.” - EVI Víða virðist vera maðkur í mys- unni. Nýlega höfum við rætt um maökaöan fisk, iðandi kartöflur og nú er það inaðkur í appelsínum og hann allmyndarlegur. Lesandi Neytendasíðunnar kom með þessa og var heldur óhress. Svo sem kunnugt er hefur veðurfar verið með eindæmum gott undan- farið. Fluga er því hvimleiður gestur viða og við gátum ekki betur séð en þarna væri um lirfu hennar að ræða. - EVI Hann bráð. langaði ekki í appelsínur Á þessari appelsinu, OUTSPAN, var börkurinn skemmdur. Það er fyllsta ástæða fyrir neytendur að gæta vel að sér, þegar þeir fá slíka vöru og gá hvort það sé ekki fleira en börkurinn sem er skemmt. í þessu til- felli lifði maðkurinn góðu lífi I skemmda berkinum. MEGRUN - MEGRUN Er hægt að breyta röngum matarvenjum? Þessi maðkur lifði góðu Ufi i berki appelsfnunnar, ekki inni i henni. Hins vegar neitaði hann að skrfða út úr berkinum og var stillt þarna upp nauðugum viljugum. DB-mynd Þorri. I _ _ feinsaseðill Það er erfitt að breyta matarvenj um sem maður hefur haft I mörg ár og likaminn þarf tíma til að aðlaga Hollywood Óskum að ráða konu til gæzlu á kvennasnyrt- ingu. Uppl. á staðnum milli kl. 9 og 10 í kvöld. Hollywood, Ármúla 5. Kennarar Kennara vantar við Grunnskóla Barða- strandar. Gott húsnæði á staðnum. Um- sóknarfrestur til 15. ágúst. Nánari uppl. hjá Sveini Jóh. Þórðarsyni, sími um Patreksfjörð. sig nýjum matarvenjum. Getur það tekið nokkrar vikur. Það er nauðsyn að þrauka og ekki missa kjarkinn þó að upphafið sé erfitt. Matarvenjurn- ar verða einnig fyrir áhrifum af lífs- venjum okkar. Til dæmis leiða spenna og vandamál oft til þess að við huggum okkur með því að borða kökur og sætindi (ávextir eru heppi- legri). Til að megrun heppnist fullkom- lega þarf að gefa sér tima til að borða i ró og næði og hreyfa sig reglulega. Það tekur aðeins lengri tima að skipuleggja og fara eftir áætlun en þú kemst að raun um að það er auöveld-* ara því lengur sem þú ert I megrun. - JSB til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi I upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt hcimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími l Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í júlímánuði 1980. Matur og hreinlætisvörur kr. i Annaó i kr. Alls kr. m iikw

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.