Dagblaðið - 07.10.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1980.
200 þúsund fyrir þriggja vikna námskeið:
Fjárkúgun Fiskvinnsluskólans?
Björn Gúslafsson, Akranesi, hringdi:
Fiskvinnsluskólinn ællar aö halda
námskeið í skreiðar- og saltfiskmati.
Námskeiðið á að standa i þrjár vikur
og fyrir það eiga nemendur að greiða
200 þúsund. Þessi skóli kennir það
fag sem flestir iandsmanna lifa á en
það verð sem sett er upp fyrir þátl-
töku í námskeiðinu finnst mér vera
fjárk úgun.
DB leilaði til Sigurðar Haraldssonar
skólastjóra Fiskvinnsluskólans.
Sagði hann þetta námskeið vera utan
fjárlagaliðs skólans og því yrðu þátt-
takendur sjálfir að standa straum af
öllum kostnaði. Skólinn hefði verið í
fjárhagslegu svelti og þvi ekki treyst
sér til að kosta svona námskeið. Hins
vegar væri mikil aðsókn á nám-
skeiðið, þeir hefðu búizt við 20—25
manns en yfir 100 umsóknir bárust
og þörfin því greinilega mikil.
Sigurður sagði að mjög væri vandað
til námskeiðsins, einn kennari væri á
hverja 7—8 nemendur en engu að
siður væri reynt að stilla öllum
kostnaði mjög í hóf.
< m
Skreiðar- og saltfiskvinnslan hefur
löngum verið mikil búbót fyrir
þjóðarbúið. Fiskvinnsluskólinn
hyggst halda námskeið i mati á þess-
ari framleiðslu en nemendur verða
sjálflr að standa straum af öllum
námskostaði.
DB-mynd: HV.
FjárhagserfiðleikarSjálfstæðisflokksins:
VÆRINÆR AÐ SEGJA
UPP STARFSFÓLKINU
— ogfela sjálfboðaliðum reksturinn
H.Kj. skrifar:
Á sama tima og Sjálfstæðisflokk-
urinn ræður tvo nýja framkvæmda-
stjóra í stað eins sem hættir gefur að
lita þessa auglýsingu um nauðungar
uppboð á húseign flokksins vegna
ógoldinna gjalda. Væri ekki nær að
segja öllu starfsfólki Sjálfstæðis-
flokksins upp störfum að hætti Flug-
leiða hf. en fela sjálfboðaliðum
rekstur hans eins og tiðkast hjá
vinstra liðinu? Líklega eru þó flokks-
broddarnir ekki þær manngerðir sem
fást til sjálfboðaliðastarfa eins og að
selja áróðursrit á götuhornum eins og
Stéttarbaráttumenn. En óneitanlega
verður fróðlegt að fylgjast með hvert
flokkurinn leitar nú eftir peningum,
líklega til stuðningsmanna Gunnars
Thoroddsen. Alla vega er engin
hætta á að hann hrófli við öllu starfs-
fólkinu sem enginn veit hvað gerir
allan daginn á fullum launum.
Þessi auglýsing um nauðungaruppboð birtist i Lögbirtingablaðinu.
Þessi mynd var tekin I Hafnarfirði kringum 1926. Eins og sést hefur mikið verið fyllt upp I Qörðinn síðan. Fremst á myndinni
er gamla Flensborg.
DRULLUSVAÐ ÍHAFNARFIRÐI
Húsmóðir i Hafnarfirði hringdi:
Fyrir framan Músíkbúðina í Hafn-
arfirði er gangstígur sem er svo mikið
svað að óþolandi er. Þarna eru
margar stofnanir, s.s. banki, rakara-
stofa og bókabúð. Þetta svað er búið
að vera þarna í þrjú ár og ég hef reynt
að láta bæjarstjórann vita en aldrei
náð í hann. Fók verður drullugt upp
fyrir haus af því að ganga þarna yfir.
Ég vil beina því til þeirra aðila sem
bera ábyrgð á þessu að lagfæra þetta
sem fyrst þvi að við Hafnfirðingar
viljum hafa bæinn okkar hreinan.
Vitni vantar að árekstri
Miðvikudaginn 27. ágúst sl., um
kl. 15, varð harður árekstur á mótum
Miklubrautar og Kringlumýrarbraut-
ar.
Þar lentu saman rauð Toyota
fólksbifreið og hvítur Mercedes
Benz. Báðir bílarnir skemmdust
mikið.
Vitni vantar að þessum árekstri og
eru vinsamlegast beðin að hafa sam-
band við slysarannsóknadeild lög-
reglunnar i Reykjavík. Simi: 10200.
Hluthafi i Flugleiðum telur ekki grundvöll fyrir rekstri bxði Arnarflugs og Flug-
leiða og telur að Flugleiðir eigi að innlima Arnarflug.
FLUGLEIÐIRINN-
LIMIARNARFLUG
— Amarf lug er líka á hvínandi kúpunni
Hluthafi í Flugleiöum hringdi:
Ég var að lesa grein frá hluthafa í
Arnarflugi þar sem hann stingur upp
á þvi að Flugleiðir selji hlut sinn i
Arnarflugi. Mér finnst að þetta ætti
að vera þveröfugt. Flugleiðir ættu að
innlima Arnarflug og nota sitt starfs-
fólk i verkefnum þess en segja upp
starfsfólki Arnarflugs þvi það hefur
miklu minni starfsaldur en starfs-
menn Flugleiða. Einnig ætti að selja
húseign Arnarflugs og færa starfsem-
ina alla til Flugleiða. Ég get ekki séð
forsenduna fyrir rekstri Arnarflugs,
að hafa svona tvöfalt kerfi bæði í
innanlandsflugi og leiguflugi. Auk
þess er Arnarflug líka á hvínandi
kúpunni þó að það hafi hvergi komið
fram opinberlega.
Raddir
lesenda
Ljósmyndari DB, Einar Ólason, þurfti ekki að fara langt til að finna dæmi um
eina veggauglýsingu. Þessi er á húsi rítstjórnar blaðsins við Siðumúla.
V