Dagblaðið - 07.10.1980, Síða 16

Dagblaðið - 07.10.1980, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1980. fleira , FOLK ASGEIR TÓMASSON Kristjana Gunnarsdóttir fyrrum ritstjóri í Kanada starfar nú hjá Iceland Review: Skrifar Ijóð í jrístundum -— Ijóöabœkur hennar hafa verið gefnar út í Kanada Sigríðar Pálsdóttur t afgreiðslu Dagblaðstns I ÞvarhoM. DB-mynd: Siguröur Þorri. Dagblaðsdrengirnir styðja hver annan: Gleraugun kom- ust til skila — Þakklút þessum skilvísa dreng, sagði móðir eigandans „Ég var á leiðinni í Dagblaðsbíó þegar ég týndi gleraugunum mínum,” sagði Gunnar Örn Hreiðarsson, 11 ára piltur í Fossvogs- skóla er hann kom með móður sinni til að vitja gleraugna sem Benedikt Jón Garðarsson fann og kom til skila á afgreiðslu DB. ,,Við sáum frásögnina i Dag- blaðinu á þriðjudaginn” sagði móðir Gunnars Arnar. Hún sagði að svona gleraugu kostuðu líklega ekki undir 60 þúsundum króna í dag. „Ég þarf gleraugu við lestur,” sagði Gunnar örn, ,,og þaðer ósköp óþægilegt að hafa ekki gleraugun. Við biðum eftir að sjá þau auglýst og ætluðum svo að auglýsa ef ekkert fréttist.” Hann kvaðst hafa verið mjög feginn að fá gleraugun sin aftur. „Það eru ekki allir eins skilvísir og Benedikt Jón,” sagði móðir Gunnars Arnar. Því miður er þetta satt. Fleiri spurðust fyrir um týnd gleraugu en sá sem átti þau, sem að þessu sinni komust til skila. Þetta atvik sýnir að Dagblaðs- drengir hjálpast að, enda þótt þeim hlaupi stundum kapp i kinn við sölu DB. -BS. Hermann Gunnarsson á hljóm- plötu Hermann Gunnarsson fréttamaður og íþróttakappi er fjölhæfur piltur. Hann hefur um dagana lagt gjörvan fót á margt annað en að sparka bclia og nú bætist ein skrautfjöðrin enn í hatt hans. Hann fer nefnilega með viðamikið hlutverk á einni þeirra hljómplatna, sem væntanlegar eru á jólamarkaðinn. Hermann ætlar ekki að syngja inn á þessa plötu, — ekki að þessu sinni. Hann fer með hlutverk sögumanns á ævintýraplötu, sem inniheldur lög og texta Gylfa Ægissonar um Rauðhettu og Hans og Grétu. Að sögn þeirra, sem heyrt hafa í Hermanni í hlutverki sögumannsins stendur hann sig prýðilega, — eins og sannur iþrótta- fréttamaður á knattspyrnulýsingu. Leikaraflótti úr höfuðstað Norðurlands Leikarar frá Akureyri stíga nú hver af öðrum á fjalirnar i Reykjavík. Helzta leikkona Akureyrar um langt árabil, Sigurveig Jónsdóttir, ér flutt suður og æfir nú hlutverk í söng- leiknum Gúmmi-Gretti, sem senn verður frumsýndur i Iðnó. Og yngri leikkona að norðan, Saga Jónsdóttir, tekur nú við hlutverki í Óvitum í Þjóðleikhúsinu í stað Guðrúnar Þórðardóttur, sem er barnshafandi. Til Þjóðleikhússins er einnig kominn Þráinn Karlsson, einn af beztu kröftum Leikfélags Akureyrar. Hann fer með hlutverk í Smalastúlk- unni og er að æfa annað í Pólitíska könnusteypinum. í könnusteypinum leikur einnig Viðar Eggertsson, sem kom hingað suður í vor með sýningu LA á Beðið eftir Godot. Og loks er Aðalsteinn Bergdal fluttur suður og farinn að starfa með Alþýðuleikhúsinu og læra söng. Meðan á þessum byggðarflótta stendur er samkomuhúsið gamal- fræga við Hafnarstræti autt og tómt. Guðmundur Vignir hér Sigurður Baldursson hæstaréttarlög- maður hringdi i Gjaldheimtuna í Reykjavík og spurði hvort hann gæti fengið samband við nafnnúmer 3085- 5442. Kurteislega spurði símastúlkan hver það væri sem hann vildi tala við. ,,Ég hélt að þið notuðuð ekkert ann- að en nafnnúmer,” sagði Sigurður. ,,Að minnsta kosti kemst ég ekkert áfram í þessari stofnun nema sem nafn- númer.” „Andartak,” sagði símastúlkan, ekkert nema alúðin og kurteisin. Drykklanga stund mátti nú lögmaður- inn bíða í simanum. Umbeðið viðtal fékk hann þó að lokum. „Guðmundur Vignir Jósefsson hér, hvað vantar yður?” sagði röddin sem svaraði. Úr þorskastríðum við ísland — í baráttu við hungursneyðina í Uganda innií miðri Ajríku Pálmi Hlöðversson, fyrrum stýri- maður í landhelgisgæzlunni, er nú farinn áleiðis til Uganda í Afríku á vegum Rauða krossins til starfa við skipulagningu matvæladreifingar og hjálpargagna. Mcðal annars fylgist hann með því að það fé sem safnast á íslandi til hjálpar við hungrað og snautt fólk komist til skila. Þarna í Uganda hefur ekki komið deigur dropi úr lofti svo mánuðum skiptir. Landið er víðáttumikið og illt yfirferðar. Gífurlegur hiti er á daginn en kuldi og myrkur á nóttunni. íbúar landsins, bæði menn og dýr, hrynja niður úr hungri og þorsta. Pálmi á langan starfsferil í þjónustu landhelgisgæzlunnar í þrem þorskastríðum. Hann var meðal annars sæmdur brezku heiðursmerki, Sea Gallantry Medal, úr gulli, fyrir frábært björgunarafrek við erfiðar aðstæður í ísafjarðardjúpi, þegar togarinn Notts. County strandaði þar. Áður en Pálmi fer til Uganda verður hann á námskeiði í Genf á vegum Rauða krossins. Vænta menn góðs af starfi Pálma á nýjum vett- vangi. -BS. Pálmi Hlöðversson iður en hann fór til Ugande. I því sem ég er í núna. Það er allt miklu stærra hérna. Hér eru gefin út tvö mikil timarit, mánaðarlegt fréttablað og bækur á ensku,” sagði Kristjana. Kristjana hefur gert margt fleira þó henni finnist það ekki merkilegt að eigin sögn. Hún hefur skrifað talsvert af Ijóðum á ensku og hafa tvær ljóðabækur þegar verið gefnar út eftir hana í Kanada. Þá munu tvær í viðbót vera á leiðinni hjá útgefanda. Ekki sagðist hún hafa skrifað á íslenzku ennþá. „Ég er ekkert farin að hugsa um hvort ég gef út íslenzkar Ijóðabækur,” segir hún. Kristjana er aðeins 32 ára svo engum ætti að koma á óvart þó hún eigi eftir að koma Ijóðum sínum á íslenzkan markað. „Starfið hér finnst mér alveg Ijómandi skemmtilegt. Það er alltaf eitthvað að gerast spennandi og svo er líka skemmtilegt til þess að vita að yfir 30 þúsund manns víðs vegar um allan heim lesa blaðið og það er kannski það eina sem þetta fólk les um ísland,” sagði Kristjana Gunn- arsdóttir rithöfundur og þýðandi hjá Iceland Review. - ELA wl’t> Olrúu'íkníoatnn l.ííia ln-.tmr vta. Að þýða íslenzkt menningar- og fréttaefni yfir á ensku er ákaflega skemmtilegt starf, það segir hún Kristjana Gunnarsdóttir að minnsta kosti. Kristjana hóf störf hjá fyrir- tækinu Iceland Review í byrjun sept- ember, þá alkominn heim eftir að hafa dvalizt á íslendingaslóðum i Kanada síðan 1969. „Ég fór fyrst út til að stunda nám og bjóst þá aldrei við að verða svona lengi,” sagði Kristjana þegar Fólk- síðan ræddi við hana á skrifstofu lce- land Review. „Ég hef nú samt yfir- leitt komið heim á sumrin. Ég var í meistaranámi í enskum bókmennt- um. Síðan starfaði ég sem ritstjóri hjá tímariti rithöfundafélags í Kanada. Það tímarit kom út sex sinn- um á ári. Auk þess skrifaði ég nokkuð fyrir önnur tímarit „free lance”. Nei þetta starf var ekkert líkt Kristjana Gunnarsdóttir stundaði meis taranám / enskum bókmennt- um I Kanada og starfaði síðan sem ritstjóri hjá timariti rithöfunda- fálags. DB-mynd Einar Ólason. FÓLK

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.