Dagblaðið - 31.10.1980, Qupperneq 1
• r
I
1
ÍftjálSty
Júháð
f dagblað
6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980 — 247. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022.
íbúar Gamla Garðs óánægðir:
\
Hass- og áfengisneytendur
raska ró íbúa Gamla Garðs
gramsa í vistarverum okkar, segja Gamlgerðingar
sjáblsS
}
Áf ram þref í
prentaradeilu
Samningafundur í deilu bókagerðar-
manna stóð til kl. 1 í nótt án árangurs
en fundur hófst kl. 14 í gær. Mjólkur-
fræðingar voru einnig á sáttafundi í
gær en í dag eru boðaðir fundir i far-
mannadeilunni og deilu flugmanna
um starfsaldurslista.
Bakarar og garðyrkjumenn skrifuðu
undir nýja kjarasamninga í gær sem
eru í samræmi við heildarsamninga
ASÍ og VSÍ.
- ARH
Lagt upp
í hnatt-
ferðina
Þau Magnea Jónsdóttir og Guð-
mundur Jóhannsson, vinningshafar í
óskrifendagetraun DB, lögðu upp í
morgun i heimsreisuna sem þau hlutu i
vinning. Fyrsti áfanginn var héðan til
Kaupmannahafhar, en þaðan leggja
þau síðan upp með Globetrotter ferða-
skrifstofunni áleiðis vestur um haf og
fyrsti viðkomustaðurinn verður San
Francisco. Ferðin umhverfis jörðina
tekurþau 21 dag og verður viða komið
við á þeirri leið.
DB fierði þeim hjónunum blómvönd
við brottfórina í morgun. Þau Magnea
og Guðmundur sögðu að rigningin og
slagviðrið i morgun gerði ferðina svo-
litið óraunverulega, en hlómvöndurinn
minnti þau sannarlega á sól og sumaryl
sem I vtendum vteri á hringleiðinni.
- JR/ DB-mynd: Einar Úlason.
Hangikjöt fæst ekki útfíutt
vegna hugsanlegrar mengunar
— Aldrei rætt um mengun þess hér á landi, hvorki fyrir útlenda né innfædda
ASÍ-þing:
Framsókn
hefur unnið
talsvert á
Framsóknarmenn hafa bætt við sig
talsverðum fjölda fulltrúa í kosningum
verkalýðsfélaganna til þings Alþýðu-
sambandsins. Greinilega verða mun
fleiri framsóknarmenn á næsta Al-
þýðusambandsþingi en nokkru sinni
fyrr.
Áhrifamenn i stjórnmálaflokkunum
eru engan veginn sammála um hversu
mikið lið hver flokkur hefur á næsta
ASÍ-þingi. Alþýðubandalagsforingi
einn sagði DB að skiptingin væri
þannig: Alþýðubandalagsmenn um
150, framsóknarmenn 60—70 og sjálf-
stæðis- og alþýðuflokksmenn samtals
um 200. Framsóknarforingi sagði DB
að skiptingin væri þannig: Alþýðu-
bandalag 150, Sjálfstæðisflokkur um
100, Alþýðuflokkur 80—90, Framsókn
80. Alþýðuflokksforingi sagði að skipt-
ingin væri sú að Alþýðubandalag hefði
innan við 150, Framsókn innan við 60,
Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur
um 100 hvor flokkur. -HH
/
Kjarasamningar
farmanna:
„Þeirfástaðeins
tilað ræða
orlofsmálin”
„Það hefur lítið gengið í samninga-
málum okkar. Viðsemjendur okkar
neita að ræða allar sérkröfur nema
helzt þá sem varðar orlofsmálin,”
sagði Baldur Halldórsson, formaður
samninganefndar Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, í morgun, en
um níuleytið var boöáður fundur í far-i
mannadeilunni hjá sáttasemjara.
Fuirdir hafa verið af og til frá því í á-
gúst í sumar en lítið þokazt í átt að
samkomulagi.
,,Við viljum fá í gegn lagfæringar á
orlofsmálum, enda er orlof mjög
vangreitt til farmanna. Vinnutími
okkar er lítt skilgreindur, jafnaðar-
kaup hvort sem unnið er á virkum
dögum eða um helgar til sjós. Það
hefur vægast sagt gengið illa að fá
skilgreindan vinnutíma farmanna og
réttar orlofsgreiðslur í samræmi við
það,” sagði Baldur.
Launaliður í kröfum farmanna
Tilraunir með útflutning á hangi-
kjöti hafa strandað að minnsta kosti í
bili. Hefur það verið áhugamál
ýmissa ráðamanna landbúnaðarins
að reyna slikan útflutning. Þær litlu
tilraunir sem fram hafa farið 1 þessu
skyni, bæði á Evrópu- og Ameríku-
markað, hafa nú stöðvazt f bili.
Gefur yfirdýralæknir ekki grænt ljós
á slíkan útflutning, þvi gamalkunn og
vinsæl aöferð fslendinga við reykingu
kjöts uppfylltr ekki heilbrigðis-
kröfur.
Þurrkaö tað er notaö hér sem elds-
neyti við reykingu lambakjöts. Af því
er hugsanleg mengunarhætta. Yfir-
dýralæknir vill ekki skrifa upp á það
að á borð útlendinga komi vara sem
hugsanlega er menguð. Um er að
ræða sama kjötið og lslendingar
halda hvað mest upp á, hafa borðað
öldum saman, og er enn i dag jóla-
réttur hjá öllum þorra íslendinga,
hvar sem þeir eru staddir i heiminum.
Án hangikjöts — engin jól.
Litlar prufur af hangikjöti hafa
bæði verið sendar til Sviss í fyrra og
til Bandaríkjanna i haust. Að svo
komnu máli er allt á huldu um fram-
haldið. Verið er að reyna að „þróa
aðferð” til að fyrirbyggja alla meng-
unarhættu, svo undirskrift yfirdýra-
læknis fáist.
Forráðamenn landbúnaðarins vilja
ekkert láta hafa eftir sér um þetta
mál og visa hver á annan. Þeir kunna
ekki að skýra hvers vegna útlendingar
mega borða hangikjöt hér á landi á
sama hátt og íslendingar sé varan
hugsanlega menguð. Um framtíðar-
markað er einnig allt óvist. Hangi-
kjöt er svo miklu dýrara en nýtt kjöt
að útflutningur í einhverjum mæli
kann að vera útilokaður nema með
gífurlegri uppbótum en nú þekkjast.
- A.St.
hefur ekki verið ræddur ennþá, en
viðræður snúast eingöngu um sér-
kröfurnar. Samningar farmanna hafa
verið lausir frá því 1. marz 1979 sé
horft fram hjá bráðabirgðalögum og
kjaradómi sem farmenn fengu á sig á
síðasta ári eftir margra vikna verkfall.
Sé miðað við kjaradóminn hafa
samningar verið lausir frá áramótum.
Stjórn farmanna hefur fengið heimild
til boðunar verkfalls, en engar
ákvarðanir liggja fyrir um slíkt.
-ARH.