Dagblaðið - 31.10.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980.
3
Stefnuljós lítið notuð
Spurning
dagsins
—taka þarf strangt á þeim sem ekki sýna stefnuljós
Áður hefur verið minnzt á í
þessum pistlum mínum hve mikil
brögð eru að þvi að ökumenn noti
lítið stefnuljós í akstri sinum um
bæinn. Einu sinni á árí eru þessi
stefnuljós athuguð um leið og bif-
reiðar eru skoðaðar og er það látið
nægja.
Que vadis, eða eins og það heitir á
íslenzku máli, hvert ætlar þú? Þarna
liggur hundurinn grafmn, að mínu
viti. Menn eiga að segja til um með
stefnuljósi hvað þeir ætla sér að gera,
en því miður vill það oft verða þannig
að ökumenn gefa fyrst stefnuljós um
leið og þeir beygja ef þeir þá setja
stefnuljósyfirleitt á.
Que vadis, „hvert ætlar þú?”
þarf því að upplýsast áður en
ökutæki beygir til hægri eða vinstri,
en ekki um leið og beygt er.
Þessi litla tillitssemi í umferðinni
hjálpar mikið til að gera umferðina
liprari og um leið öruggari.
Erlendis er það talin sjálfsögð
skylda að nota stefnuljósin og er
Notkun stefnuljósa gerír umferðina liprarí og öruggari, segir Siggi flug.
misnotkun þeirra talin afar hættuleg.
Það vita þeir sem ekið hafa erlendis í
geysilegri umferð.
Það er oft verið að sekta menn
fyrir of hraðan akstur og er hann
vitanlega hættulegur. Ég held nú að
of mikið sé gert úr þessu í umferðinni
og um of einblínt á þennan ógnar-
hraða, sem virðist vera kominn á
heilann á þessum umferðarlögreglu-
þjónum, sem beita sér um of að þessu
eina atriði í umferðinni.
Ég held að það eigi að taka afar
strangt á þeim, sem ekki sýna
stefnuljós og eins eigi að sekta þá er í
tíma og ótíma eru að skipta um
akrein og láta þá um leið stefnuljósin
eiga sig, sem er stórhættulegt í
umferðinni.
Mér datt þetta (syona) i hug.
Siggi flug 7877-8083.
Aðvörun!
Hættulegt sælgæti! brjóstsykur
Vilhjálmur Kjartansson, Njörva-
sundi 4 Rvík, skrifar:
Fyrir fáum dögum keypti ég með-
fylgjandi hörpudisk sem sælgæti í
biðskýlinu á horni Grensásvegar og
Sogavegar. Hélt ég að hann væri úr
marsipani eða öðru ætilegu. Hann
var fylltur með brjóstsykri sem var
steyptur fastur í honum. Kom í ljós
að börnum er eðlilegast að setja
hörpudiskinn upp i sig til að sjúga
brjóstsykurinn úr honum.
Sonur minn fór að kvarta undan
því að rendurnar særðu hann í munn-
vikin. Fór ég þá að hugsa um hvað
gæti gerzt ef þetta hrykki ofan í börn
eða fullorðna. Reynið að gera ykkur
í hugarlund, hvernig gengi að ná
þessu upp aftur ef það sæti ofan í
koki, trúlegast með kúptu hliðina
niður og tennt röndin skærist inn í
holdið! Lögunin og stærðin eru líka fólk við þessari hættu, sérstaklega
þannig að ég tel mikla hættu á að þegar börn eiga í hlut. Ekki væri úr
þetta geti hrokkið ofan í fólk. vegi að hafa upp á framleiðandanum
Ég treysti ykkur til þess að vara og koma ábendingum til hans.
^ikmerískir^
Skelin sem brjóstsykurinn e.r steyptur
í er ór plasti.
DB-mynd Gunnar Örn.
Lítill
og nota-
legur
Sælkeri skrifar:
Á undanförnum mánuðum hefur
það færzt mjög í vöxt að skrifað er
um veitingastaði í borginni og utan
hennar og þeim gefnar einkunnir
fyrir mat, þjónustu o. fl.
Einn er sá staður sem ekkert hefur
verið skrifaðum, eftir því sem ég bezt
veit. Heitir þessi staður Fjarkinn. Er
þetta lítill og notalegur veitinga-
staður sem er til húsa i Austurstræd
4, Reykjavík.
Sá sem þetta skrifar hefur starfað
i miðborginni í allmörg ár og oft
snætt á þessum stað og ávallt verið
ánægður. Það sem Fjarkinn býður
upp á er ekki fjölbreytt en það er
gott.
Ameríska matarkynningin á Esjubergi nýtur mikilla
vinsælda, henni lýkur sunnudagskvöld, annan nóvember.
Við bjóðum fjölbreytta, ameriska rétti á hlaðborói.
Heilsteiktur nautahryggur
með ferskum maís og bökuðum kartöflum.
Prim Rib of Beef,
with fresh com and baked potatoes.
Körfukjúklingur
Southern fried Chicken.
Reykt svínalæri
Smoked leg of pork — ham.
Eplakaka með þeyttum rjóma
Apple pie with whipped cream.
10 teg. salöt
— ten different salads.
Heilsteikt svínalæri.
Roast leg of pork.
Hamborgarar
Hamburgers.
Salad bar.
Er rótt að veita
feðrum fæðingar-
orlof?
Ragnar Ingi Aðalsleinsson kennarí:
Já, já. Við skulum bara veita þeim
fæðingarorlof.
Karl Karlsson, vinnur hjá RKÍ: Það er
sjálfsagt að veita feðrum fæðingaror-
lof, er ekki jafnrétti?
Kristín Guðmundsdóttir nemi: Já,
alveg hiklaust.
Jón Guðmundsson verkamaður: Já,
einn mánuð endilega.
Sólveig Asbjamardóttir: Já, mér finnst
þeir eigi að umgangast börn sin alveg
frá fæðingu, eins og móðirin.
Bryndis Ziemsen nemi: Já, já, já. Mér
fínnst þaö alveg sjálfsagt.