Dagblaðið - 31.10.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980.
TIL SÚLU
TAUNUS
STATIOIM
R-7076
Blllinn er á góðum dekkjum og
I góðu standi. Ugpl. hjá auglþj.
DBíslma 27022 eftirkl. 13.
REYKJAVÍKURHÖFN
Tilkynning til trillubáta-
eigenda í Reykjavfkurhöf n
Af öryggisástæðum og til hagræðingar fyrir hafnaryfir-
völd vill hafnarstjórinn í Reykjavík beina þeim tilmælum
til trillubátaeigenda, er hafa báta sína í Reykjavíkurhöfn,
að fjarlægja þá úr höfninni eigi síðar en 15. nóvember
1980. Hafnarstjórinn í Reykjavfk.
Talstöðvaklúbbur
íslands
auglýsir
Aðalstofnfundur klúbbsins veröur haldinn laugardaginn 1.11.1980 kl.
17.00 i Félagsheimili Langholtssóknar. Dagskrá: Kosning í stjórn
klúbbsins og almenn aðalfundarstörf, ásamt inntöku nýrra félaga. Allir
áhugamenn um C.B. stöðvar velkomnir.
Undirbúningsnefnd.
KVENFÉLAGIÐ HRINGURINN OPNAR SINN ÁRLEGA BASAR
LAUGARDAGINN I. NÓVEMBER KL 14 í IÐNSKÓLANUM Á
SKÓLAVÖRÐUHÆD ( INNGANGUR FRÁ VITASTÍG).
Á BASARNUM VERÐA M.A. HANDAVINNA, KÖKUR, JÓLA-
KORT,PLATTAR OG LEIKFÖNG.TILVALIN TIL JÓLAGJAFA
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL LÍKNARMÁLA BARNA.
BASARNEFNDI N
Aliur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aöstæður sem þessar
||Uj|/|FEROAR
Halldór Sigurðsson og Sverrír Haraldsson: „Þessi jarðalög eru þjóðarskömm. Þau meta ævistarf bóndans einskis.”
DB-mynd: Gunnar Örn.
Jarðalögin stuðla að „áframhaldandi offramleiðslu”:
„Ævistarf bónd-
ans lagt að jöfnu
við kjallaraíbijð”
— Menn hljóta að undrast svona óréttlæti, segja Halldór
Sigurðsson verzlunarmaðurogSverrirHaraldsson bóndi
,,Þessi lög eru skerðing á mannrétt-
indum og verzlunarfrelsi,” sagði Hall-
dór Sigurðsson, verzlunarmaður í
Reykjavík, í samtali við blaðamann DB
um jarðalögin svonefndu. Sverrir Har-
aldsson, bóndi í Langadal, tók í sama
streng. Tilefni spjallsins er blaðamaður
DB átti við þá var.að Sverrir hugðist
bregða búi og var reiðubúinn seð selja
Halldóri, sem vildi kaupa. Það reyndist
hins vegar ekki mögulegt þar sem
hreppurinn átti forkaupsréttinn.
„Halldór ætlaði að kaupa. Jarðalög-
in eru hins vegar þannig, að hrepparnir
hafa forkaupsrétt og geta tekið jarðirn-,
ar matsverði, sem eru smámunir miðað
við markaðsverð,” sagði Sverrir. ,,Það
skiptir því engu máli, hvað Halldór
býður.”
„Þetta er alveg öfugt við það, sem
gildir um eignir hér í Reykjavík. Hér
gildir hinn frjálsi markaður,” sagöi
Halldór. „Bóndinn ætlar að selja sínar
jarðir, og ég er tilbúinn að kaupa. Ef
hann býður jarðirnar falar og ég legg
fram mitt tilboð, þá á bóndinn ekki
afturkvæmt. Oddvitinn sendir þá sína
matsmenn og jörðin er metin á það,'
sem þeim dettur í hug.”
,,Þó að bóndinn sætti sig ekki við
það matsverð, sem þeir skammta
honum, þá á hann ekki afturkvæmt.
Hann er í raun búinn að missa eignar-
réttinn,” sagði Sverrir.
„Þessi jarðalög eru þjóðarskömm.
Ævistarf bóndans er einskis m'etið, og
bóndinn fær fyrir stólpajörð í mesta
lagi tveggja herbergja kjallaraíbúð i
Reykjavik,” sagði Halldór.
Sverrir bætti því við, að ef hrepp-
arnir keyptu mikið af svona jörðum
yröu þær bara baggi á þeim. Þeir hefðu
ekkert við þær að gera. Hann nefndi
sem dæmi, að sá hreppur, sem hér um
ræðir, Bólstaðarhlíðarhreppur, væri
nýbúinn að kaupa jörð til aö leggja í
eyði, einungis til að koma í veg fyrir, að
Reykvíkingar festu kaup á henni.
„Búnaöarmálastjóri segir lögin
samin fyrir bændur. En þess eru engin
dæmi, að jarðarmatsnefnd hafi
hækkað nokkra jörð i verði. Við ætl-
umst til meira af búnaðarmálastjóra en
svona blekkinga,” sagði Halldór.'
„Það að bóndinn fær ekki að selja jörð
sina á frjálsum markaði er hneyksli,”
sagði Halldór.
Hann minnti einnig á, að Ragnhildur
Helgadóttir, fyrrverandi alþingismaður
hefði á sínum tíma ritað grein í
Morgunblaðið þar sem hún hélt því
fram, að þessi lög væru augljóst brot á
stjórnarskránni.
„Það er offramleiðsla á kindakjöti í
landinu en jarðalögin koma í raun í veg
fyrir að bændur, sem vilja hætta geti
það, nema þá með því að gefa jörðina.
Lögin stuðla því að áframhaldandi of-
framleiðslu,” sagði Sverrir.
„Hvers á bóndinn að gjalda,” sagði
Halldór, „þegar hann getur ekki lengur
búið á jörð sinni og vill fara til Reykja-
víkur eða þarf á eiliheimili þá er ævi-
starf hans og stórbýli lagt aö jöfnu við
lélega kjallaraíbúð í Reykjavík. Menn
hljóta að undrast svona óréttlæti, sem
birtist í jarðalögunum. Ég tel, að
bændur eigi betra skilið en þetta,”
sagði Halldór að lokum.
-GAJ
Flokksþing Alþýðuf lokksins hefst í dag:
FORYSTUKOSN-
INGAR Á MORGUN
úrsl'rt síðan birt á sunnudag
Flokksþing Alþýðuflokksins, hið
39. í röðinni hefst í dag, kl. 14.
Þingiö er haldið að Hótel Loftleiðum
og stendur fram á sunnudag. Að lok-
inni stuttri setningarræðu þar sem
minnst veröur látinna félaga verða
kosnir forsetar og ritarar. Skýrslur
verða síðan á dagskrá og umræður
um þær. Annað kvöld verður siðan
hátiðarfundur, „Jafnaðarstefnan og
alþýðumenning”, samfelid dagskrá í
tai og tónum í umsjón Sambands
Alþýðuflokkskvenna. Þá verður og
ávarp formanns Alþýðuflokksins.
Á laugardag er fundað frá 9—18
og fer þar fram kosning forystu
flokksstjórnar og verkalýðsmála-
nefndar. Þingfundir hefjast síöan kl.
10 á sunnudag með áliti starfshópa
og afgreiðslu tillagna. Umræðum
verður síðan haldiö áfram eftir mat-
arhlé. Hátíðarkaffi verður kl. 16 en á
þingfundi kl. 17 verða birt úrslit
kosninga í flokksstjórn og verkalýðs-
máianefnd.
Þingsiit eru kl. 18 og síðan hefst
fiokksstjórnarfundur þar sem kosið
verður í framkvæmdastjórn. -JH.
80PRÓ-
SENT
VERÐ-
BÓLGA
Verðbólguhraðinn verður kominn
í um 80 prósent í lok næsta árs, ef
ekki veröur gripið til aögerða, segir
Bjami Snæbjörn Jónsson hag-
fræðingur Verzlunarráðs. Þetta urðu
endanlegar niöurstöður útreiknings
hagfræðingsins, en ekki um 70
prósent, eins og fyrstu athuganir
bentu til og sagt var i DB i gær.
-HH.