Dagblaðið - 31.10.1980, Qupperneq 8
(I
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Pólland:
Walesa og Pinkow-
ski funda í Varsjá
— Brésnef ákvað að styð ja Kania f lokksf ormann eftir fimm klukkustunda
fund þeirraíMoskvu
Leiðtogar þeirra sjö milljón
pólskra verkamanna sem eru í sam-
tökum frjálsra verkalýðsfélaga hitta í
dag að máli Pinkowski forsætisráð-
herra landsins í Varsjá. Þar verða<
ræddar kröfur verkalýðsleiðtoganna
um að ákvæði um forræði pólska
kommúnistaflokksins í stjórnmálum
verði fellt út úr lögum verkalýðssam-
takanna.
Fundurinn í Varsjá kemur í kjölfar
fundar Kania formanns kommúnista-'
flokksins og Pinkowskis með ráða-
mönnum i Moskvu. Fóru tvimenn-
ingarnir þangað í fyrrakvöld af mik-
illi skyndingu. Ræddu þeir meðal
annars við Leóníd Brésnef, forseta
Sovétríkjanna. Pólskir verkamenn
hafa hótað frekari verkföllum ef ekki
verði orðið við kröfum þeirra.
Á fundinum í Moskvu sem stóð að
sögn í fimm klukkustundir kom í ljós
að Brésnef hefur ákveðið að styðja
við bakið á Kania, flokksformannin-
um pólska. Hann kom til valda fyrir
um það bil tveim mánuðum þegar
hæst stóðu deilur á milU stjórnarinn-
ar í Varsjá og verkamanna í Gdansk
og víðar. Leiddu þær síðan til verk-
falla og samkomulags þar sem viður-
kenndur var réttur verkamanna til að
stofna frjáls og óháð verkalýðsfélög.
í frásögn pólska sjónvarpsins af
Moskvufundinum í gærkvöldi sagði
að Brésnef forseti hefði lýst þeirri
sannfæringu sinni að samfélag
pólskra verkamanna væri sjálft fært
um að leysa öli sín vandamál á eigin
spýtur. Væri þá sama hvort vanda-
málin væru pólitísk eða efnahagsleg.
Leiðtogar pólsku verkalýðssam-
takanna hafa lýst yfir að þeir muni
boða til nýs verkfalls hinn 11. nóvem-
ber næstkomandi ef ekki verði orðið
viðkröfumþeirra.
v- ' •;
x
■ijfgfííM
■mMæm
Danir hafa eignazt vfnbónda sem á umtalsverðar ekrur i Frakklandi. Þóttu það
merk tiðindi f Danmörku fyrir nokkrum dögum að 1978 árgangurinn hjá bóndan-
um þótti drykkjarhæfur og á að koma á jólamarkaðinn f Danmörku. Umræddur
vlnbóndi heitir reyndar Henrik og er prins og eiginmaður sjálfrar Margrétar
Danadrottningar. Myndin sýnir prinsinn við fjölskyldusetrið I Frakklandi og er
hann að smakka fyrstu flöskurnar af Chateau Caix frá 1978, en svo kallast vinið.
Washington: r
SENATOR AKÆRD-
r
UR FYRIR MUTUR
Þekktur öldungadeildarþingmaður
i Washington hefur verið ákærður
fyrir mútuþægni og aðra glæpi í
tengslum við „arabamálið” sem FBI,
bandaríska alríkislögreglan, bjó til.
ÞÍngmaðurinn heitir Harrison Willi-I
ams, er frjálslyndur demókrataþing-
maður og hefur verið í nánum tengsl-
um við verkalýðshreyfinguna banda-
rísku. Kjördæmi hans er New Jersey.
Williams er fyrsti öldungadeildar-
þingmaðurinn sem ákærður er í þessu
máli. Áður hafa tveir fulltrúadeildar-.
þingmenn hrökklazt af þingi vegnaj
þess.
Sjálfur segist þingmaðurinn, sem
er 60 ára að aidri, vera saklaus.
Honum hafi að vísu verið gert tilboð
en það hafi verið rangt og hann hafi
hafnað þvi samstundis. Hafi málinu
þá lokið af sinni hálfu.
Williams er ákærður fyrir að hafa
ætlað að ná i viðskiptasamninga við
ríkið fyrir titanium námafyrirtæki á
fallandi fæti. í staðinn hafi hann átt
að fá 100 milljón dollara til fjárfest-
inga í námunni frá manni sem þóttist
vera arabi en var FBI-maður.
Jamaica:
MANLEY FELLUR
í KOSNINGUNUM
Samkvæmt þeim tölum sem búið verið hefur á Jamaica, sem er í Kara-
var að birta í þingkosningunum á biska hafinu, síðan landið fékk sjálf-i
Jamaica virðist svo sem hinn íhalds- stæði árið 1962. Áður var Jamaica
sami Verkamannaflokkur undir brezk nýlenda.
forustu Edward Seaga muni vjnna Fréttir bárust af skothveUum i;
stórsigur yfir vinstri flokknum, höfuðborginni Kingston. Sumt af
Þjóðarflokknum, sem er undir þeim mun hafa verið frá flugeldum,;
forustu Michael Manley, forsætis- sem fylgismenn Verkamanna-
ráðherra landsins. fiokksins skutu á loft í gleði sinni.,
Óopinberar tölvuspár töldu þá að Einnig bárust óstaðfestar fregnir um
Verkamannaflokkurinn mundi fá að ráðizt hefði verið á lögreglustöð ii
rúmiega fimmtíu þingsæti af sextíu á borginni.
þingi landsins. Gerist þetta eftir Jamaica á við mikla efnahags-!
óróasömustu kosningabaráttu sem erfileikaaðstríða.
REUTER
Indland:
Tuttuguogsex
fórustí
jámbrautarslysi
í það minnsta tuttugu og sex manns
fórust og rúmlega eitt hundrað særðust
þegar hraðlest ók á fiutningalest nærri
borginni Kanpur á Norður-Indlandi í
morgun.
Alsir:
BenBellafær
fullt frelsi
Ríkisstjórn Alsir hefur tilkynnt að
öllum takmörkunum á frelsi og ferðum
Ben Bella, fyrsta forseta landsins og
frelsishetju í stríðinu við Frakka, hafi
verið aflétt. Tilkynnt var að Chadli
Benjedid, forseti landsins, hefði einnig
náðað nokkra pólitíska fanga í tilefni
þess að 26 ár eru liðin frá því að frelsis-
baráttan gegn Frökkum hófst.
Teheran:
Gíslarnir ná einu
áriíprísund sinni
Ljóst er nú að bandarísku gislarnir
fimmtíu og tveir í Teheran munu halda
upp á ársafmæli dvalar sinnar þar í
prisund sinni. franska þingið ákvað í
gær að ákvörðun um örlög þeirra
skyldi ekki tekin fyrr en eftir þrjá
daga, hið fyrsta.
Cartertilnefnir
Clausen sem
eftirmann
McNamara hjá
Alþjódabankanum
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
hefur tilnefnt A.W. Clausen aðal-
bankastjóra The Bank Of America,
sfærsta banka Bandaríkjanna, sem
eftirmann Robert McNamara, aðal-
bankastjóra Alþjóðabankans. Clausen
verður vafalaust þá kjörinn banka-
stjóri þar sem Bandaríkin ráða yfir
21% af atkvæðum við stjórn Alþjóða-
bankans.
Sonurírans-
keisaratvítugur
og myndugur
Elzti sonur fyrrum keisara í íran
verður tvítugur í dag. Mun fjölskylda
hans lýsa hann réttkjörinn keisara
landsins og eftirmann föður síns sem
lézt í sumar. Fjölskylda keisarans
dvelst nú í Egyptalandi í skjóli Sadats
forseta þar.
Með gætni
skal um götur aka
\m| UMFERDAR y
UR& /