Dagblaðið - 30.01.1981, Page 1
7. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981 - 25. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMl 27022.
Umbrotahrina hófstá Kröflusvæðinu í morgun:
HRAUNKVKA HUÓP N
ANIARDAR TTL NORÐURS
—jarðhræringar aðallega í Gæsadal. Jarðvísindamenn á leið norður
Enn ein umbrotahrinan á Kröflu-
svæðinu hófst á áttunda tímanum í
morgun, nánar tiltekið kl. 7.15. Jarð-
hræringar komu aðallega fram á
mælum sem eru í Gæsadal. Hraun-
kvika hljóp neðanjarðar til norðurs
um leið og land byrjaði að síga.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur
á skjálftavaktinni í Mývatnssveit
sagði að tíðindin boðuðu ekki endi-
lega eldgos. Þó væri rétt að hafa á
allan viðbúnað. Goshætta er venju-
lega mest fyrstu klukkutímana eftir
að umbrot hefjast. Hræringarnar í
morgun voru á þeim enda gos-
sprungunnar á Kröflusvæði sem
fjærst er byggð. Jarðvísindamenn
hafa búizt við að til tiðinda dragi á
svæðinu frá því fyrir jól, enda var
landris nú orðið meira en dæmi eru
til um áður.
Almannavarnanefnd Mývatns-
sveitar fékk boð um umbrotin strax i
morgun. Ekki þótti ástæða til að
setja fasta vakt i stjórnstöð AI-
mannavarna, enda „engin ástæða til
taugaveiklunar á meðan ekki dregur
til frekari tíðinda”, eins og Mývetn-
ingur orðaði það í samtali við blaðið.
Jarðvísindamenn í Reykjavík voru
i morgun að búa sig undir ferð til
Kröflu..
-ARH.
Hann er dapur á s vipinn, snáðinn i fanpinu áfóstru sinni. Skammdegið þrápar hann
jafnt og aðra landsmenn og vorið virðist aldrei œtla að koma. í hvert sinn sem menn
freistast til að halda að ná sé veturinn liðinn byrjar aðfrysta og snjóa á nýjan leik. Þá
er gott að hafa einhvern tilþess að hvetrfa Ifangið á og láta hugga sig með loforði, sem
gefið er af vissu um það að vlst komi vorið, bráðum.
- DS / DB-mynd Sigurður Þorri.
Söguleg Reykjavíkurf erð Strandamanna:
RUTAN FAUK UT AF A
LEK) HEIMAN OG HEJM
—svonalagað hvekkir mann óneitanlega segir bílstjórinn í báðum ferðunum
„Hann var að rjúka þarna upp og
það skipti engum togum að bíllinn
fór út af — fyrst á hjólunum niður í
dálítinn gilskorning, fullan af ís og
snjó, og svo á hliðina,” sagði Þór-
hallur Geirsson rútubílstjóri í samtali
við DB í morgun. Á þriðjudaginn
fauk rúta Þórhalls (frá Guðmundi
Jónassyni) skammt frá Kiðafelli i
Kjós þegar hann var á leið norður á
Hólmavík með tólf farþega. Viku
áður fauk önnur rúta hjá Þórhalli út
af veginum á svipuðum slóðum — þá
á leið til Reykjavíkur frá Hólmavík.
Nokkrir sömu farþeganna voru í rút-
unni í bæði skiptin og munu þeir
vafalaust minnast þessarar höfuð-
borgarfarar sinnar lengi.
Bílarnir skemmdust ekki mikið í
hvorugt skiptið og slys urðu ekki á
fólki. „Svonalagað. hvekkir mann
óneitanlega,” sagði Þórhallur i sam-
talinu við DB i morgun. „Ég er búinn
að keyra þessa leið í fimm ár og oft
fengið hvasst en ekki svona. Það eru
ákveðnir blettir, beggja megin við
Esjuna, sem eru hættulegir. Maður
var svo óheppinn að vera á þessum
stöðum á röngum tima — það stend-
ur ekkert af sér svona hviður. Það
var Norðurleiðarúta 50—100 metra á
undan mér á þriðjudaginn og bíl-
stjórinn varð ekki var við neitt. Svo
heyrist allt í einu undirgangur í fjall-
inu og hvinur og áður en maður veit
af er bíllinn kominn út af. í fyrra
skiptið, á miðvikudaginn í siðustu
viku, þá var bíllinn fokinn út af áður
en ég vissi, en á þriðjudaginn — sem
var næsta ferð norður — tókst mér
að ná honum út af á hjólunum.”
Þórhallur Geirsson sagðist reikna
með að farþegarnir hefðu verið
hræddir — en um það væri ekki spurt
fyrr en allt væri yfirstaðið. Aðrir
bílar hefðu komið á staðinn og fólkið
haldið áfram ferð sinni.
-ÓV.
landfráVísi
til Tfmans
Elías Snæland Jónsson ritstjórnar-
fulltrúi dagblaðsins Vísis hefur verið
ráðinn ritstjóri Tímans og mun hefja
þar störf i siðasta lagi 1. maí. Elias
Snæland starfaði reyndar einu sinni
sem biaðamaður á Tímanum, varð
siðar ritstjóri Nýrra þjóðmála, sem
Samtök frjálslyndra gáfu út, og fór
þaðan til Visis. Athygli vekur að
hann er ekki í Framsóknarflokknum,
sem er óvenjulegt um Tímaritstjóra.
Elías Snæland verður fréttaritstjóri
blaðsins. Eftir sem áður verður Þór-
arinn Þórarinsson ritstjóri pólitiskra
skrifa og annast tengsl blaðsins og
Framsóknarflokksins. Jón Helgason
er þriðji ritstjórinn og annast sunnu-
dagsútgáfuna. Jón Sigurðsson rit-
stjóri lætur af störfum hjá Timanum
1. júní og kemur Elías Snæland Jóns-
son í hans stað. - ARH
Skíðafólk
íBláfjöllum
íhrakningum
Stór hópur fólks sem var við
skiðaiðkun i Btáfjöllum i gærdag
'lenti í hrakningum er halda átti hcim-
leiðisigærkvöldi.
Veðrið rauk upp um áttaleytið í
gærkvöldi með austan krapahríö.
Gerðist fljótt þungfært, ekki sízt á
Bláfjailaveginum.
Bílar þaðan höfðu lagt af stað i
bæinn klukkan liölega átta. Var
leitað aðstoðar lögreglunnar í Árbæ
og fékk hún ruðningstæki til að fara
bílunum til aðstoðar. Gekk bæjar-
ferðin úr Bláfjöllum seint, en í bæinn
kom fólkið um kl. 1.40 i nótt. Engum
haföi orðið meint af. -A.St.
Dularfulluráfengis-
stulduríHafnarfirði
Dularfullur stuldur áfengis úr
tveimur húsum í Hafnarfirði átti sér
stað í gær. Var farið inn í húsið og
teknar 3 flöskur áfengis í öðru og 2
. flöskur úr hinu. Annars er ekki sakn-
að og inn í húsin var farið án hús-
brota og það gerir málin dularfull.
Það er sett i samband við þennan
stuld að sonur annars húseigandans
tapaði húslykli í skólanum nýverið.
Er talið hugsanlegt að þessi tapaði
lykill hafi verið notaður. Beinist því
grunur lögreglunnar að unglingum
varðandi þennan áfengisstuld. -A.St.