Dagblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
4'
DB á ne ytendamarkaði
Dóra
Á meðan beðið er f iskverðs:
Fisksalar hækka f leyf isleysi
—en með þegjandi samþykki
Verð á fiski er nokkuð á reiki þessa
dagana. Samkvæmt lögum átti að
vera búið að ákvarða verð á fiski
fyrir áramót. En ennþá er verið að'
þrátta um það. Gamla verðið á sam-
kvæmt reglum aö gilda þar til hið
nýja verður ákveðið, þó það sé síðan
ákveðið aftur í tímann til áramóta.
Því hafa einstakir fisksalar freistast
til þess að hækka verðið á fiski,
vegna þess að þeir vita að þeir þurfa
að greiða seljendum hærra verð fyrir
hann. Sumir þeirra sem selja smásöl-
um fisk hafa hækkað verðiö, t.d.
hækkaði BÚR það í siðustu viku en
lækkaði siðan aftur.
Jónas Jónsson fulltrúi verðlags-!
stjóra sagði að á meðan fiskverðið
væri allt i óvissu væri i raun litið
fram hjá því þó einstaka fisksalar
hækkuðu útsöluverð umfram það
sem ákveðið er. Auðvitað stæði í
reglum að fiskverðið væri þetta eða
hitt og hlyti síðasta fiskverð að vera
það sem gilti. En fyrir hinu væri
lokað augunum að fisksalar seldu á
hærra verði þegar þeim væij selt á
hærra verði á meðan beðið væri
eftir nýju verði.
Sem dæmi um það verð sem núna
gildir má nefna að ýsuflök eiga að þess að gera veður út af eins og verð á
kosta 14 krónur og 30 aura en kosta brauðum. Gaf hann litt út á þaö.
viöa 16 krónur. Jónas var spurður -DS.
hvort þetta væri ekki alvcg eins til
Búið er að ákveða að eitthvað eigi að hækka fiskverðið frá og með sfðustu áramótum, en hversu mjkið veit enginn enn. A
meðan hafa einstakir fisksalar gripið til þess ráðs að hækka á eigin spýtur. Þessi mvnd jvar tekin á milli jóia og nýárs þegar
enn var farið eftir siðasta fiskverði sem ákveðið var. Eiga ekki neytendur heimtingu á þvi eins og sjómenn að vita hvað fiskur-
inn má kosta?
DB-mynd Sigurður Þorri.
Aralia
(Dizygotheca)
Elegantissima
FingurblaA
Fingurbiaðið er ættað frá Austur-
Asiu og lfkist í mörgu þeirri Árelíu
sem best er þekkt (japonica) Þetta er
ein af auðræktuðustu og fallegustu
blaðplöntunum og hentar mjög vel 1'
þyrpingu með öðrum plöntum. Biöð-
in eru tennt og fingruð, dökkbrún-
græn með rauðleitum æðum og blað-
köntum. Fingurblaðinu hæfir best
bjartur eöa hálfrökkvaður staður og
venjulegur stofuhiti. Það þarf mikinn
loftraka, sem hægt er að ná fram
með þvi að láta pottinn standa i
djúpri hlifðarskál og úða vel yfir
plöntuna öðru hvoru. Fingurblaðiö
þarf mikla vökvun og nauðsynlegt er
að gefa þvi oft áburðaruppiausn allt
árið. Athugið þó að áburðarupp-
lausnina má ekki gefa nema moldin sé
rök fyrir. Fingurbiaöið er fallegast ef
það fær að greina sig. Plöntur í góð-
um vexti greina sig sjálfar, en með
toppskerðingu er hægt að ná grein-
ingunni í þeirri hæð sem hver vill
Fingurblaðinu er fjölgað með fræi,
sem er innflutt. Fjölgun Fingurblaðs-
ins er varla möguleg nema í gróðrar-
stöð.
-JSB/VG
Þarf að staðsetja á
björtum eða hálf-
rökkvuðum stað. Þol-
ir ekkl brennandi sól.
Þarf mikla og reglu-
lega vökvun.
Áburðarupplausn gef-
in reglulega allt árið,
en stærri skammtur er
gefinn yfir sumarið.
Þrifst vlð venjulegan
stofuhita, en þarf
miklnn loftraka.
Seyðisf jörður: Munar helmingi á verði kornf laga
Verðkönnun framkvæmd af Seyðisfjarðardeild Neytendasamtakanna, úrvinnslu gagna annaðist Verðlagsstofnun.
Sykur 2 kg. Verdkönnun 4. 12. 80. Kaupfélag Verslunin Verslun Héraósbúa Brattahlió Filippusar Seyóisfirói Seyóisfirói £iguróssonar 2155,- — '■ -- ' Kaupfélag Kaupfélagió Héraósbúa Fram Fgilsstöóum Neskaupstaó. 2155,- 1958,-
Flórsykur 1 /2 kg. 626 ,- 585,- 620,- 625,- 629 ,-
Sirkku molasykur 1 kg. 1210,- -- — — —
Pillí.bury6 hveiti 5 lb6. — 1240,- v — -- —
Robin Hood hveiti 5 lbs. 1238,- — — 1050,- - 1009,-
Pama hrÍBmjöl 350 gr. 390,- 472,- 360,- 561 ,- 392,-
River rice hrÍ6grjón 454 gr. 489,- 440,- — 489 ,- 420,-
Solgryn haíramjöl 950 gr. 972,- 950,- 940,- 908,- --
Kellogs corn flakes 375 gr. 1663,- 1395,- . 875,- 1810,- —
lelenskt matarsalt Katla 1 kg. 489,- — — 542 ,- —
3 eykjanessalt ffnt 1 kg. 288,- — — 302 ,- --
Royal lyítiduft 450 gr. 806,- 1145,- 975,- 1079,- 956 ,-
Golden Lye's sýróp 500 gr. 2236,- 2420,- — 2305,- 2311,-
Royal vanillubúCingur 90 gr. 313,- 179,- 240,- 231,- —
Maggi sveppasúpa 65 gr. 284 ,- 297,- -- 348,- 289,-
Vilko sveskjugrautur 185 gr. 644 ,- 296,- 670,- — 614,-
Melroses te 40 gr. — 245,- .250,- 485 ,- 488,-
Frón mjolkurkex 400 gr. 652,- — — 750,- 670,-
Ritz saltkex rauöur 200 gr. 545,- 700,- 1050,- 1095,- 1110,-
Korni ílatbröd 300 gr. 611,- — — 582 ,- 563,-
Frón kremkex 673,- 675,- 635,- 770,- 1170,-
Ora graenar baunir 1/1 dós 841,- 900,- 900,- 902,- 896,-
Ora rauCkál 1/2 dós 839,- 907,- 635,- 839 ,- 898,-
Ora bakaCar baunir 1/2 dós 815,- — 790,- 830,-
Ora fiskbúCingur 1/1 dós 1563,- 1403,- 1450,- 1358,- 1535,-
Ora lifrarkaeía 1/8 dós — — 415,- —
Ora maískorn 1/2 dós 729,- 890,- 800,- 949 ,- 880,-
Tómatsósa Valur 430 gr. 713,- 748,- 490,- 714,- 717,-
Tómatsósa Libbys 340 gr. 660;- 670,- 695,- — * 706,-
Kjúklingar 1 kg. 3815,- 4305,- 4000,- 4980,-
Nautahakk 1 kg. 5025,- 4860,- — 5642,- 5642,-
Kindahakk 1 kg. 3720,- 3860,- — 3863,- 3683,-
Gunnars majones 250 ml. 600,- 575,- — 600,- 592,-
Egg 1 kg. 2800,- 2820,- — 2800,- —
Sardfnur f olíu K. Jónsson 106 gr. 511,- 516,- 345,- 511,- 512,-
Regin WC pappfr 1 rúlla 217,- — — 278,- 240,-
Melitta kafíisíur No. 102 40 pokar 427,- — — 427,- 488,-
C-ll þvottaefni 3 kg. 3246,- — — — 3799,-
Þvol uppþvottalögur 2,2 ltr. 1879,- — 1802,- —
Hreinol graenn 0, 5 ltr. 528,- — 503,- 560,-
Lux handsápa 90 gr. — 335,- 360,- 297,- 350,-
DGn mýkingareíni 1 ltr. 900,- 1070,- 1100,- 1072,- 1175,-
Colgate tannkrem íluor 90 gr. 580,- 665,- — 646,- 696,-
Eplasjampó Sjöín 295 ml. — 1035,- — 1100,- —
Nivea krem 60 ml. 546,- 664,- - 617,- 620,- ,