Dagblaðið - 30.01.1981, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
Staða húsvarðar
Við Iðnskólann í Reykjavík er laus til umsóknar.
Umsóknir berist skrifstofu skólans fyrir 20. febrúar nk.
Umsóknum fýlgi upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf. Húsverði er ætlað íbúðarhúsnæði í skólanum.
Iðnskólinn í Reykjavík.
ADALMANNTAL
1981
Dreifingu manntalseyðublaða á nú að vera
lokið alls staðar. Þeir, sem hafa ekki fengið
eyðublöð i hendur, eru vinsamlega beðnir að
afla sér þeirra á skrifstofu sveitarstjórnar. í
þéttbýli á höfuðborgarsvæði og á Akureyri
eru eyðublöð einnig fáanleg á lögreglu-
stöðvum.
Hagstofan
AÐALMANNTAL
1981
Akureyrarbær og sveitarstjórnir á höfuð-
borgarsvæði veita leiðbeiningar um útfyll-
ingu manntalseyðublaða laugardaginn 31.
janúar, í síma sem hér segir:
Sími
Akureyri................. 21001
Garðabær................. 42311
Hafnarfjörður............ 53444
Kópavogur................ 41570
Mosfellshreppur......... 66267
Reykjavík................ 18000
Seltjarnarnes.............. 20980
Sveitarstjórnirnar
BJÖRNINNi
nunaa nccora arg. /«. lvijog
fallegur. dökk vinrauður, eins og nýr.
Útvarp og segulband. Kr. 80 þús.
Galant Super Salon árg. ’81. Nýr bill
ekinn 2 þús. km., sjálfskiptur, vökva-
stýri, veltistýri, rafknúnar rúður, litað
gler og extra bölstruð sæti. Tveir
dekkjagangar, stereó útvarp. Skipti
möguleg.
Toyota Crown dísil árg. ’80. Ekinn Datsun 220 C árg. '79. Silfurgrár,
27 þús. km. sem nýr, vökvastýri, og ekinn 97 þús. km. Útvarp, segulband,
bremsum. Ekki leigubill. Skipti á ný vetrardekk, litað gler o.fl. Skipti á
ódýrari. Vetrardekk. ódýrari bil möguleg. Kr. 90 þús.
i!iii!iilil!;!i!
B,j LAKAU.P
JtlllllllilllInlliij^uJ^lllllllllliliiJöilifllMllllllillliIllÍúii
SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030
Keflvíkingar ekki
á eitt sáttir um
atvinnuleysið
—þó virðast allir sammála um að margar
konur séu atvinnulausar
Er hörmungarástand í atvinnumál-
um á Suðurnesjum, eða er verið að
æsa upp mál sem ekki er til? Tvenn-
um sögum fer af því. 9. janúar sl.
birtist I DB grein um atvinnuástand á
Suðurnesjum. Þá höfðu fimm frysti-
hús verið lokuð síðan fyrir jól og eitt
lokað fyrir fullt og allt. Síðan þá
hefur verið mikið fjallað um mál
þetta í fjölmiðlum. Hefur Karl
Steinar Guðnason meðal annars látið
hafa eftir sér að 40 fjölskyldur séu að
flytja til útlanda vegna atvinnuleysis-
ins. Atvinnumálanefnd Suðurnesja
sendi frá sér tilkynningu þar sem seg-
ir að þessar fréttir séu stórlega ýktar.
Verkakvennafélagið sendir aftur frá
sér tilkynningu sem segir að atvinnu-
málanefndin hafi „skvett köldu
vatni” framan í verkakonur sem
gangi um atvinnulausar.
En hvað er til í þessu atvinnuleysi?
Blaðamaður DB gerði sér ferð suður í
Keflavík og kannaði málin þar.
Greinilegt var á öllum þeim fjölda
manna, sem DB ræddi við, að at-
vinnuleysi væri ekki ýkja mikið meira
nú en undanfarin ár á þessum tíma.
Þó hefði eitt frystihúsið lokað og það
hefði haft í för með sér að margar
konur misstu atvinnu sína. En þrátt
fyrir ítrekaða leit DB-manna, og með
hjálp manna að því fólki sem hyggst
„flýja land” fannst það ekki. Við
fréttum af einni fjölskyldu sem er að
flytjast burt af landi. Sú fjölskylda
hefur rekið fyrirtæki í Keflavik og er
þvi ekki að flýja atvinnuleysi. Þá
fréttum við af þremur sjómönnum
sem hyggjast breyta til og reyna fyrir
sér í Ameríku í nokkra mánuði, en
„geyma” fjölskyldurnar heima á
meðan. Svör þeirra manna sem DB
ræddi við í fyrradag eru hér á síð-
unni.
lokuö síöan fyrlr i«:
hörmungarAstandíat-
VINNUMÁLUM SUÐURNESJA
_íannaðhundraðstvinnulíusir Stk'r6i.'',i“uLtH'
jmZSTZiz sáasE !
-aa “
Hólmf ríður Ótafsdóttir skrífstofustjóri VS:
Enginn á atvinnu
leysisskrá héma
„Hér hjá okkur er enginn á at-
vinnuleysisskrá. Það var ein mann-
eskja í eina og hálfa viku en hún
hefur fengið vinnu núna,” sagði
Hólmfriður Ólafsdóttir skrifstofu-
stjóri hjá Verzlunarmannafélagi
Suðurnesja er við heimsóttum hana á
skrifstofu Verzlunarmannafélagsins.
„Ég get nefnt sem dæmi að fyrir
ári voru sex manns hjá mér á skrá í
janúar, en núna hefur aðeins verið
ein manneskja. Ég held að atvinnu-
leysi sé mest hjá konum sem hafa
verið heima og sinnt heimilisstörfum
og vilja nú komast út á vinnumark-
aðinn. Það er ekkert fyrir þær að
gera hérna. Keflavík er líka verst sett,
t.d. er alveg næg vinna í Garðinum
og margir hafa leitað þangað eftir
vinnu: Það er í rauninni skrýtið að
meðan allt er brjálað að gera á
stöðunum hér í kring í fiskinum þá er
allt stopp hérna,” sagði Hólmfriður.
EmilJónsson
starfsmaður hjá
Verkalýðs-
og sjómannafélaginu:
Á þríðja
tug manna
ætlartil
Ameríku
— enþaðerekki
atvimulaust
„Ég veit um á milli tuttugu og
þrjátiu manns, allt fjölskyldur, sem
eru að flytja til útlanda héðan. Hins
vegar get ég ekki gefið upp nöfn á
þessu fólki þar sem ég veit að það vill
ekki tjá sig við fjölmiðla. Nei, þetta
fólk er ekki atvinnulaust en það sér
fram á minnkandi atvinnu og fer þess
vegna. Flest er þettaTólk að fara til
Ameríku,” sagði Emil Jónsson,
starfsmaður hjá Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur, er blaða-
maður DB náði tali af honum hjá
ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir ítrekaða
leit blaðamanns að því fólki sem
flytja ætlar burt frá Suðurnesjum til
Ameríku tókst ekki að finna það.
Vi
Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjórí:
„HELDUR MEIRIÁSÓKN í VINNU”
— og hefur veríð síðan í haust
„Það hefur verið talsvert mikið
sótt um vinnu hjá okkur síðan í
haust, eiginlega síðan í september.
Við erum alltaf með nokkuð margar
konur á biðlistum, þær vilja kannski
breyta tii, fara úr flskinum og þá er
þetta eiginlega það eina sem er á boð-
stólum,” sagði Gunnar Sveinsson
kaupfélagsstjóri I Keflavík.
„Sumar konur vilja einungis vinna
í fiskinum, þar er bónusvinna og þær
geta haft meira upp úr því svo þær
hafa ekki leitað hingað eftir vinnu.
Hins vegar hefur verið talsverð ásókn
i vinnu hér síðan í september.”