Dagblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
Matthfas Viktorsson, aðstoðarmaður
félagsm&lafulltrúans I Keflavik,
hefur með atvinnuleysisskráningar að
gera.
Matthías Viktorsson,
aðstoðarmaður
félagsmáiafulltrúa:
Hrein
bjartsýni
hjáatvinnu-
málanefnd
— atvinnuleysi
örugglega helmingi
meiraen ífyrra
„Það fer vissulega tvennum sögum
af því hvort hér sé um atvinnuleysi að
ræða. Ég get alveg skilið sjónarmið
verkakvenna, kvenfólk er margt á at-
vinnuleysisskrá. Það er auðvitað við-
kvæmnismál fyrir verkakvennafélag-
ið. Fiskverkun Ólafs Lárussonar
hefur lagt upp laupana og selt togara
sinn úr bænum. Þar unnu margar
konur sem nú hafa misst atvinnu
sína. Um síðustu helgi voru hér 53 á
atvinnuleysisskrá, þar af eru 45 kon-
ur,” sagði Matthías Viktorsson
aðstoðarmaður félagsmálafulltrúans
í Keflavík.
„Ég er að byrja að vinna í atvinnu-
leysistölum frá þvi í fyrra að beiðni
bæjarstjórans. Það var talsvert at-
vinnuleysi hér í fyrrasumar um tima
þegar frystihúsin lokuðu. 1 janúar í
fyrra voru 55 skráðir hér atvinnulaus-
ir. Það hlýtur að verða mikið meira,
allt að helmingi meira, núna.
Mér virðist gæta örlítillar bjartsýni
í þessari samþykkt sem atvinnumála-
nefnd hefursent frásér. Við vitum að
það eru margar konur sem ekki láta
skrá sig, þar sem þær fá ekki bætur.
Konur eru mjög sárar yfir því að
loksins þegar þær eru orðnir sjálf-
stæðir skattgreiðendur fá þær ekki
atvinnuleysisbætur vegna þess að
maki þeirra er með yfir 6 milljónir í
tekjur. Þær kæra sig ekki um að fara
einu sinni í viku til að skrá sig-þegar
þær njóta engra bóta,” sagði Matt-
hías ennfremur.
„Það er erfitt að segja alveg til um
atvinnuleysið núna, bæði vegna þess
að margar konur skrá sig ekki og svo
hef ég ekki reiknað út tölur síðan í
fyrra til að fá samanburðinn. En ég
held ég geti sagt það alveg vist að at-
vinnuleysi er örugglega helmingi
meiranúna”.
Haraldur GTslason, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum:
tækinu nema að þeir ætli að vera með
saltfiskverkun og skreiðarvinnslu og
það eru engar konur sem starfa í
því,” sagði Haraldur.
„Atvinnumálanefnd verður auð-
vitað að standa við sína yfirlýsingu. í
henni eiga sæti menn sem eru kunn-
ugir í öllum sveitum hér í kring, bæði
atvinnurekendur og aðrir. Við höld-
um að verið sé að gera meira úr hlut-
unum heldur en þeir í rauninni eru.
Það hefur alltaf verið atvinnuleysi
hér í desember og janúar en um leið
og vertíðin er komin í gang lagast
ástandið.
Það þarf að fjölga iðnaðarfyrir-
tækjum hér öðrum en í sjávariðnaði.
Þá hefur einnig sjávarafli minnkað í
tveimur kjördæmum, Reykjanes-
kjördæmi og Vestfjarða. Það er líka
alltaf mikið af aðkomufólki hér á
vertíð þó það fari minnkandi. Við
verðum lfka að athuga að á milli 1 og
2 þús. manns sækir vinnu hingað til
vallarins. Það er fólk alls staðar af
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Við höf-
um álitið að fólk héðan ætti að sitja
fyrir vinnu hjá varnarliðinu og ís-
lenzkum aðalverktökum en þannig er
það ekki.
„Margir Keflvíkingar sækja vinnu
til Garðs, þar se'm er nóg að gera, og
þeir 9 sem voru á atvinnuleysisskrá í
Njarðvíkum hafa flestir fengið
vinnu. Það eru ekki nema tveir á skrá
þarnúna,” sagði HaraldurGislason.
„Atvinnumálanefnd gefur ekki frá
sér tilkynningu nema að vel athuguðu
máli. Að visu er eitthvð af konum at-
vinnulausar, sem ekki hafa skráð sig
vegna þess að eiginmenn þeirra eru
með of háar tekjur til að þær rijóti
bóta. Atvinnumálanefnd getur hins
vegar ekki farið eftir öðru en at-
vinnuleysisskrá. 23. janúar voru 49
manns á atvinnuleysisskrá, eitthvað
af því voru konur og eitthvað vöru-
bílstjórar,” sagði Haraldur Gíslason,
framkvæmdarstjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum, í viðtali
við blaðamann DB.
„Eitt stótt frystihús lokaði hér um
áramótin og seldi burt togara, en það
frystihús var með tugi manns í vinnu
og það hefur sín áhrif. Þetta frystihús
fékk mjög góða fyrirgreiðslu ríkis-
valdsins í fyrra en það var ekki nóg.
Engar ástæður hafa komið frá fyrir-
Haraldur Gislason, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Við álftum að Suðurnesjamenn eigi að ganga fyrir vinnu á vellinum en svo er ekki.
Um eitt til tvö þúsund manns sækja hingað vinnu frá Stór-Reykjavíkursvæðinu.
MEIRA GERT ÚR HLUTUNUM
EN ÞEIR ERU í RAUNINNI
Valgerður Haldórsdóttir
húsmóðir
Heldaðþað
sé atvinnu-
leysi
„Já, ég held að það sé atvinnuleysi
hér. Maður hefur heyrt um þetta og
þegar frystihúsin hafa svona litla at-
vinnu og eitt er lokað þá hlýtur það
að koma af sjálfu sér að vinnan
minnkar. Um fjölskyJdur sem eru að
flytja til útlanda vegna atvinnuleysis,
þaðhefég ekki heyrt ,” sagði Val-
gerður Halldórsdóttir húsmóðir.
Róbert Rósmann
sjómaður:
Töluvert
atvinnu-
leysi
„Já, ég hugsa að það sé töluvert
atvinnuleysi hérna og þá aðallega hjá
konum. Ég vissi um fimm konur sem
voru atvinnulausar, svo kom upp
vinna hjá Brynjólfi i Njarðvíkum og
þær voru skyldaðar til að fara
þangað að vinna. Ég er sjómaður og
það hafa margir komið niður í bát og
spurt um vinnu svo ég tel fulivíst að
atvinnuleysi sé hér,” sagði Róbert
Rósmann sjómaður.
LJÓSMVNDIR:
SIGURÐUR ÞORRI
SIGURÐSSON
Sigurbjöm Gunnarsson
nemi:
Alltílagiá
meðan
við höfum
völlinn
„Ég hef ekki orðið mikið var við
þetta atvinnuleysi en maður hefur
heyrt um þetta. Atvinnuleysi kemur
alltaf upp hér öðru hvoru á meðan
lítið er að gera I frystihúsunum. Ég á
von á því að þetta lagist aftur þegar
vertiðin byrjar. Annars held ég að
þetta sé í lagi á meðan við höfum
Keflavíkurvöll, það byggist því miður
alltof mikið á honum,” sagði Sigur-
björn Gunnarsson sem við stöðvuð-
um á götunni til að forvitnast um álit
bæjarbúa á ástandinu.
ENnlónatansdóttir
húsmóðir:
Hefbara
heyrt um
þettaí
fjölmiðlum
„Ég þekki engan sjálf sem er at-
vinnulaus. Hins vegar hefur maður
heyrt um þetta og þá aðallega í fjöl-
miðlum. Ég veit einnig að vinir mínir
hafa ekkert orðið varir við þetta og
þekkja engar fjölskyldur sem eru að
fara utan vegna atvinnuleysis,” sagði
Elin Jónatansdóttir húsmóðir og úti-
vinnandi hálfan daginn.
Bára Árnadóttir
atvinnulaus:
Veriðat-
vinnulaus í
fimm
mánuði
„ Já, hér er örugglega atvinnuleysi.
Ég hef t.d. gengið hér um í fimm
mánuði atvinnulaus. Ég var að vinna
í frystihúsi í Vogunum, missti vinn-
una þar og hef ekki fengið aðra. Ég
er búin að vera á atvinnuleysisbótum
en það gengur ekki endalaust. Fisk-
vinna er eiginlega það eina sem hægt
er að fá hér en núna er ekkert að gera
í fiski,” sagði Bára Gunnarsdóttir.
, ,Ég er svo heppin að ég bý heima
hjá foreldrum mínum, annars veit ég
ekki hvernig þetta færi. En auðvitað
er ekki hægt að vera atvinnulaus alla
tíð og þetta gengur ekki svona. Eitt-
,hvað verður að gera.”
\
Valdimar Gunnarsson:
Ekki hugmynd
umatvinnu-
leysi
„Ég hef ekki hugmynd um hvort
hér sé atvinnúleysi, en svo er sagt. Ég
er ekki atvinnulaus, er sjómaður, en
það getur vel verið að hér sé atvinnu-
íeysi. Ég hef heldur ekki heyrt um
neinar fjölskyldur sem eru að flytja
út en það getur vel verið að einhverjir
aðrir viti um það,” sagði Valdimar
Gunnarsson sjómaður.
Ætlar til Virginíu til að losa sig við skattbyrði:
„Verð kannski útárið vestra”
—en fer ekki með fjölskylduna, segir Finnbjöm Guðjónsson sjómaður
„Jú, ég er að fara til útlanda að
vinna. Ég er sjómaður og hef næga
atvinnu, en skattarnir eru orðnir
byrði á manni og ég held að þetta sé
eina leiðin til að losna undan þeirri
byrði. Það var auglýst eftir sjómönn-
um í einhverju blaði til Virginíu og ég
veit um 10 menn sem eru að fara
þangað eftir þessari auglýsingu. Þar
af eru þrír menn héðan,” sagði Finn-
björn Guðjónsson sem er einn þeirra
sem hefur fengið vinnu í Amerlku.
Finnbjörn sagðist ekki ætla út með
fjölskylduna, aðeins að fara til að
vera i stuttan tíma.
„Það er búið að samþykkja um-
sókn mína en ég er að bíða eftir at-
vinnuleyfi. Reynslutíminn er þrír
mánuðir, ef mér likar vel getur farið
svo að ég verði út árið. Ég hef lengi
leitað fyrir mér um vinnu erlendis og
greip tækifærið er ég sá þessa auglýs-
ingu.
Ég hef verið að hugsa um að hætta
sjómennsku en það tæki mig 5—6 ár
að vinna mig út úr þessari skatta-
byrði. Ég var að vinna í Danmörku
um tíma og það er ekki sambærilegt
hve miklu minni skattar eru greiddir
þar,” sagði Finnbjörn Guðjónsson.