Dagblaðið - 30.01.1981, Qupperneq 8
i
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I)
Lech Walesa, leiðtogi Einingar, sem svo mjög
hefur verið I sviðsljósinu undanfarna mánuði er
37 ára gamall og fimm barna faðir. Hér sést
hann með fjölskyldu sinni.
Sovétmenn að missa þolínmæðina vegna ástandsins í Póllandi?
Pólsk stjómvöld hóta
„nauösynlegum aögeröum”
—til að bæla niðurverkföll Einingar
—Tass fréttastofan sakar Ðningu un að reyna að eyða sósíalismanum
Rikisstjórn Póllands og Sovétríkin
urðu í gær ákaflega harðorð í garð
hinna sjálfstæðu verkalýðsfélaga í Pól-
ElSalvador:
Nýsókn
skæruliða
Guillermo Ungo, leiðtogi
vinstri manna i E1 Salvador, segir
að skæruliðar muni innan tiðar
hefja nýja sókn til að steypa her-
stjórn landsins, sem nýtur stuðn-
ings Bandarikjanna.
Hann sagði blaðamönnum að
þvi færi fjarri að uppreisnarmenn
væru sigraðir, eins og forseti
landsins hefur lýst yfir. Fyrr i
mánuðinum hófu skæruliðar það
sem þeir ncfndu lokasókn og
stígðust stjórnvöld h^fa brotið
hana á bak aftur. Þá féllu um
þúsund skæruliðar i miklum bar-
dögum sem stóðu í viku.
landi og pólska stjórnin sagðist mundu
grípa til „nauðsynlegra aðgerða” ef
verkföll í landinu héldu áfram.
í Moskvu réðst Tass-fréttastofan af
meiri hörku en áður á Einingu, sam-
band hinna sjálfstæðu verkalýðsfélaga
í Póllandi. Hún sakaði Einingu um að
reyna að eyðileggja sósíalismann og gaf
sterklega í skyn að pólsk stjórnvöld
ættu ekki að veita frekari tilslakanir.
Tass fréttastofan sagði að Eining
væri á leið til hægri og stæði gegn til-
raunum stjórnvalda til að koma
ástandinu í landinu í eðlilegt horf.
„Allt bendir til að hugmyndin um
frí á laugardögum sé herbragð leiðtoga
Einingar og þeirra andsósíalísku afla
sem að baki þeim standa.”
Tass fréttastofan sagði einnig að frá
því á laugardag, þegar milljónir Pól-
verja mættu ekki til vinnu, hefðu and-
sósialísk öfl aukið starfsemi sína í land-
inu.
Þessar fréttir komu áður en tilkynnt
var í Varsjá að viðræður hæfust á
morgun milli verkalýðsfélaganna og
forsætisráðherrans, Jozef Pinkowski.
Spánn:
Suarez segir
afsér
Adolfo Suarez forsætisráðherra
Spánar sagði mjög óvænt af sér I gær.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar sagði að
ákvörðun Suarezar yrði ekki breytt og
væri hún tekin af persónulegum ástæð-
um. Ríkisstjórn landsins fór að dæmi
forsætisráðherrans og sagði af sér en
mun sitja þar til nýr flokksformaður
Miðflokkasambandsins og forsætisráð-
herra verður útnefndur í næstu viku.
Tvöoghálftár
íkjallara
bandaríska
sendiráðsins
Tvær sovézkar fjölskyldur, sem leit-
uðu hælis í bandaríska sendiráðinu i
Moskvu fyrir tveimur og hálfu ári,
gætu fengið bandarískan ríkisborgar-
rétt ef frumvarp það sem kynnt var í
öldungadeild Bandaríkjaþings verður
að lögum.
Árið 1979 lýsti Ronald Reagan því
yfir að Bandaríkjastjórn beitti sér ekki
nægilega fyrir Sovétmönnunum sjö,
sem leituðu hælis í bandaríska sendi-
ráðinu. Öldungadeildarþingmaðurinn
og demókratinn Karl Levin, sem flytur
frumvarpið, minnti forsetann á þessi
fyrri ummæli sín.
Frumvarpið er talið hafa stuðning
meira en helmings þingmanna. Það
vöru tvær fjölskyldur úr hópi hvíta-
sunnumanna sem leituðu hælis í sendi-
ráðinur27. júní 1978 þar sem þær töldu
'sig ekki njóta trúfrelsis í Sovétríkjun-
um. Þar hafa þær síðan búið í kjallara-
herbergi, að því er Levin sagði.
Eftirsóttasti hryðjuverkamaður V-Þýzkalands handtekinn:
Moröingi ScMeyers
og Pontos gómaöur
REUTER
Eftirsóttasti hryðjuverkamaður
Þýzkalands Peter Boock var um síð-
ustu helgi handtekinn í Hamborg.
Handtakan fór friðsamlega fram.
Maður er lét ekki nafns síns getið
hringdi til lögreglunnar og gaf henni
upplýsingar um dvalarstað Boocks.
Baader- Meinhof hryðjuverkamaður-
inn er meðal annars talinn bera ábyrgð
á dauða Jurgens Ponto og forseta
vinnuveitendasambandsins Hans-Mar-
Styrkið og fegrið Ukamann
Dömur og herrar!
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 4. febrúar. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar
fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar i baki eða þjást af vöðva-
bólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi —
Innritun og upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 í síma 83295.
Júdódeiid Ármanns
Ármúla 32.
tin Schleyer. Það var seint um kvöld
sem vestur-þýzka lögreglan lét til
skarar skriða gegn manninum sem í
mörg ár hefur verið efstur á lista
lögreglunnar yfir hryðjuverkamenn.
Þegar Peter Boock kom heim til sín í
sitt nýja heimili að Haus Industrie-
strasse 125 í Hamborg var krökkt af
leynilögreglumönnum i götunni. Þeir
voru allir dulbúnir svo Boock grunaði
ekkert. Er hann steig út úr Volks-
wagen-bifreið sinni var tveim skamm-
byssum beint að höfði hans. Hann
veitti enga mótstöðu né heldur stúlka
sem var í fylgd hans. Hún hefur ekki
áður verið bendluð við hryðjuverka-
starfsemi. Þetta var enginn smákarl úr
Baader-Meinhof hreyfingunni sem
lögreglan hafði handtekið. Peter Boock
hefur verið eftirlýstur fyrir morð síðan
30. júlí 1977, Þá réðst hann inn í hús
bankastjórans Jlirgens Pontos og skaut
hann með köldu blóði. Um Haustið
sama ár tók hann þátt i að ræna og
síðan að myrða forseta vestur-þýzka
vinnuveitendasambandsins, Hans-Mar-
tin Schleyer. Fingraför hans fundust á
bíl Schleyers. Fjórir af líf.vörðum
Schleyers voru einnig drepnir er honum
var rænt.
Lögreglan telur einnig að Boock hafi
staðið bak við sprengjutilræðið gegn
hinum nýja utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Alexander Haig, er hann var
yfirmaður herafla NATO i Evrópu.
Boock hefur tekizt að fara huldu
höfði i fjögur ár þrátt fyrir mjög víð-
tæka leit lögreglunnar. Hann var hand-
tekinn ásamt þremur öðrum hermdar-
verkamönnum Rauðu herdeildanna í
Belgrad í maímánuði 1978. Stjórnvöld í
Júgóslavíu létu skæruliðana lausa þrátt
fyrir ítrekaðar kröfur vestur-þýzkra
stjórnvalda um að þeir yrðu framseldir.
Frá þeim tíma hefur Boock oftast dval-
ið erlendis að því er talið er. Lögregl--
unni er kunnugt um að hann hefur
bæði verið í írak og Lýbíu. Síðastliðið
sumar mun hann hafa snúið aftur til
Hamborgar þar sem hann var nú hand-
tekinn.
Eftirsóttasti hryðjuverkamaflur V-
Þýzkalands, Peter Boock.
HEWLETT Jip, PACKARD HEWLETT J)D. PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT JfL PACKARD
Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKi, Banka»træti8 ami 27510