Dagblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANUAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Nýir ráðamenn íWashington ófeimnir við Sovétmenn:
Kremtverjar eru reiðubúnir ab
ijúga, svikja og fremja giæpi
—til að greiða fyrir heimsbyltingunni, sagði Ronald Reagan á fyrsta blaðamaimafuidi sínum sem forseti
Ronald Reagan réðst af hörku á
Sovétríkin á fyrsta blaðamannafundi
sínum sem forseti Bandaríkjanna og
fylgdi þar í kjölfar utanríkisráðherr-
ans Alexanders Haig, sem daginn
áður hafði sakað Sovétmenn um
stuðning við hryðjuverkamenn.
Ronald Reagan skálar fyrir heimkomu
gislanna.
Reagan sagði að leiðtogar í Kreml,
bæði núna og áður, hefðu verið og
væru reiðubúnir til að Ijúga, svíkja
og fremja sérhvern glæp til að greiða
fyrir framgangi heimsbyltingarinnar.
Menn telja að Bandaríkjaforseti
hafi ekki áður gerzt eins harðorður í
garð Sovétmanna og Reagan nú, til
að vara ráðamenn í Moskvu við að
framtíð slökunarstefnunnar væri al-
gjörlega undir framkomu þeirra
komin.
Reagan tók einnig mjög ákveðna
stefnu gegn hryðjuverkastarfsemi á
blaðamannafundinum og sagði að
hryðjuverkamenn skyldu ekki treysta
því, að Bandarikjamenn myndu ekki
aðhafast gegn þeim. Hann lagði
áherzlu á að hann hefði ekki hugsað
sér að koma fram hefndum gegn
írönum fyrir að hafa haldið starfs-
mönnum bandaríska sendiráðsins í
Teheran í gíslingu í 444 daga en bætti
því við, að hann vissi ekki hvort
sættir væru mögulegar við byltingar-
stjórninaíTeheran.
Ronald Reagan sver embættiseið sinn sem fertugasti forseti Bandarikjanna, elzti maður sem nokkru sinni hefur tekið við for-
setaembætti i Bandarikjunum. Ummæli hans á blaðamannafundinum i gær og svipuð ummæli Alexanders Haig utanrikisráð-
herra daginn áður benda til þess að hin nýja stjórn Bandaríkjanna ætli sér að sýna fulla hörku I samskiptum við Sovétrikin.
„Utiðtilaf
góðu fófltí"
Liv Ullmann, norska leikkonan góð-
kunna sem nú er sendimaður Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna, var ný-
Liv Ullmann
Iega á ferð I Austur-Afríku þar sem hún
heimsótti flóttamannabúðir. Kveðst
hún hafa orðið fyrir miklu áfalli vegna
ástandsins þar. „Konur sátu þarna gráar
af ryki og biðu þess hvort þær fengju
einhvern mat. Með því að setjast við
hlið þeirra komst ég að því að þær eru á
svipuðum aldri og við en virðast hundr-
að árum eldri.”
Ullmann kom úr ferðinni uppfull af
hugmyndum um hvernig bæta mætti
aðbúnað þessa fólks og sagði að sú sjón
sem mætt hefði sér í Afríku, Sri Lanka
og Bangladesh gerði það að verkum, að
hún væri áhyggjufull yfir Iífsmáta sín-
um. ,,En maður breytir þvi varla,”
sagði hún. ,,Það er mjög fátt fólk til
sem er gott eins og móðir Teresa og er
reiðubúið að gefa allt en rétta byrjunin
er að minnsta kosti að láta sér ekki
standa á sama.”
Morðingi Lennons segir:
Óstjómleg löngun
til að myrða John”
ff
Mark Chapman, morðingi Johns
Lennon hefur skýrt kaþólskum presti
frá þvi að hann hafi einu sinni áður
haldið til New York gagngert í þeim til-
gangi að myrða Lennon. Þetta var
þremur vikum áður en hann framdi
morðið. í það skiptið tókst honum að
vinna bug á þeirri „óviðráðanlegu
löngun”, sem hann hafði til að myrða
Lennon. Hann hafi snúið aftur til
Hawai en löngunin til að myrða
Lennon hafi vaknað á ný og smám
saman orðið óviðráðanleg.
Verjandi Chapmans hefur krafizt
sýknu fyrir skjólstæðing sinn og mun
bera við geðveiki.
Kaþólski presturinn sem Mark Chap-
man ræddi við sagði að Chapman
se^ist nú iðrast þess innilega sem hann
hefði gert, þó fyrst í stað hefði hann
ekkert samvizkubit haft vegnaþess.
Eins einföld og hægt er en kemur samt á óvart.
Lögin eru flest hver nijög kröftug og rokkiö situr i
fyrirrúmi. Af lögum Fræbbblanna sjálfra eru nokk
ur sem skara fram úr ..1 nótt” ..20. sept 79” og
..Ljóð og hippar" eru að minum dómi þeir beztu.
Allt dúndrandi góðir rokkarar. -SSv.DB 19.12'80
Fræbbblarnir er ekki merkileg hljómsveit og verður
líklega aldrei.... Fræbbblarnir eru bara ekki nógu
góð hljómsveit til þess að koma þessum hugmynd
utn skammlaust til skila. Fyrir svo utan það að Val
garður hlýtur að vera einhver versti söngvari scm
komið hefur fram hér á landi á síðari árum.
Cíunnlaugur Sigfússon H.P. 19.12 '80
Viltu nammi væna? er fullkomið andsvar við þcirri
sætsúputónlist sem flætt hefur yfir markaðinn á
siðustu árum. í tónlist Fræbbblanna sameinast
hinn ruglingslegi heimur hávaða og nýbylgju sem
dynur á okkur daglega. Ég las i grein eftir einhvern
unibúðasérfræðinginn að Valgarður (iuðjónsson
væri ekki góður söngvari og verri söngvari hefði
varla komið fram. Svo djúpt risti skilningur þcssa
,spakvitra skriffinns að hann gæti alveg eins sagt að
myndir Errós væru ekki góðar auglýsingar og að
verri auglýsingarteiknari hefði ekki komið fram.
Hrafn Gunnlaugsson H.P. 2.1. '80.
Umfjöllunarefni texta er i flestum tillellum um að
..fíla og smckkleysan veður uppi hvcr á eftir
annarri. .........tónlistin. pönkið. er hresst hjá
þeim engu aðsiður. spiliðkemurágætlega út. . . ."
h.i.a. Mbl. 21. 12 '80
Frumskilyrði fyrir þvi að þcssi plala hitti i mark
sem jólagjöf er sú að viðtakandi hafi gaman af
pönki og hárri tónlist. Viltu nammi væna? Iientar
ekki viðkvæmum sálum.
ÁT.DB22.12 80
Útgefandi: ROKKFRÆÐSLUÞJÓTNUSTA FÁLKANS
Dreifing: FÁLKINN
20" 7800 7410
OJ CM 8550 8120
26" 9925 9430
Verð Staðgr. < 2 co
cr 0.