Dagblaðið - 30.01.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANUAR 1981.
II
Yfirlitsmynd af Hafnareyju sem Kobeborg lét b.vggjá upp.
staklingar fengið lóðir fyrir einbýlis-
hús. Unglinga- og barnaskólar hafa
verið byggðir, ásamt 1000 rúma
sjúkrahúsi og svo mætti lengi telja.
Hafnareyjan hýsir því nokkurs konar
„vasaútgáfuþjóðfélag” og var allt
hannað algerlega frá grunni af
mannahöndum áður en fólk fluttist
þangað.
Orkumál
Hafnareyjan er tengd Kobeborg
með nýrri gerð af lest sem er stjórnað
af tölvu og því algerlega sjálfvirk.
Einnig veldur hún engri hávaðameng-
un. Þessa dagana er verið að tilkeyra
þetta nýja lestarkerfi en á annatímum
er reiknað með að kerfið flytji yfir 10
þúsund manns á klukkustund. Hafa
Japanir fengið fjölda fyrirspurna
erlendis frá um þetta nýja lestarkerfi
sitt.
Portopia ’81 verður opin í 3
mánuði og margt verður að sjá.
Flestar þátttökuþjóðir byggja upp
sýningar sínar kringum meginkenni-
orð sýningarinnar, „Creation of a
new cultural city on the sea”. Mörg
japönsku fyrirtækjanna munu einnig
tengja sýningar sinar orkumálum og
munu sýningargestir geta virt fyrir sér
það nýjasta í sólar- og vindorkumál-
um. Einnig verður skyggnst inn í
framtíðina t.d. á sviði hljóm- og
myndtækni svo allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Og
hvað skyldi þetta fyrirtæki kosta? Jú,
eina litla 1560 milljarða og er þá
reiknað í gömlum krónum.
Kjallarinn
Pétur Guðjónsson
austur til Sovétríkjanna. En ekki var
látið nægja að flytja vélar og tækja-
búnað, heldur voru mennirnir fluttir
með vélunum og haldið þar árum
saman þar til búið var að kenna Rúss-
um meðferð þeirra. Við munum hér á
landi eftir fyrsta Moskovitsbílnum,
sem var Opel 1939. Til þess að gera
heimskommúnismanum í Sovétríkj-
unum þetta allt auðveldara mokuðu
Bandaríkjamenn fjármagni í Sovét-
ríkin gegnum hjálparstofnunina
UNNRA og er talið að eingöngu i
gegnum hana hafi Sovétrikin fengið 8
milljarða dollara á gengi kringum
1948. Þessa tölu má í það minnsta
þrefalda í dag. En hver var einn aðal-
ráðgjafi Roosevelts á Yalta? Alger
Hiss, í dag dæmdur sovézkur njósn-
ari.
Atómleyndar-
málanjósnir
Við vitum líka í dag, að helgustu
þjóðarleyndarmál Bandaríkjanna. og
Bretlands, atómleyndarmálin, láku
beinustu leið til Moskvu, og eru
þekkt nöfn í því sambandi Rosen-
berghjónin og Fuchz. Slík voru tök
njósnakerfis Sovétrikjanna á Vestur-
löndum, að í Bretlandi varð Philby,
einn aðalnjósnari heimskommúnism-
ans á Vesturlöndum, sem slapp á
endanum nauðuglega frá Beirut til
Sovétríkjanna á 7. áratugnum og lifir
þar í dag praktuglega, einn af 4 um-
sækjendum, er til greina komu sem
yfirmenn aðalnjósnastofnunar
Bretlands M5, sama og CIA í
Bandaríkjunum. Það var ekki þekk-
ing, heldur einskær tilviljun, sem réð
því, að Philby varð ekki æðsti yfir-
maður brezku njósnastarfseminnar.
Hugsið ykkur stöðuna, ef Allen
Dulles, sem var yfirmaður CIA árum
saman, hefði verið rússneskur stór-
njósnari. En rétt er að geta hér nokk-
urra annarra nafna í Bretlandi eins og
Burgess, McLean, hins fræga Blunt,
og eftir því, sem höfundur uppljóstr-
ananna um Blunt lýsir yfir, eru 20 til
30 Sovétnjósnarar ennþá starfandi i
ráðuneytunum í London.
Sögulegur lærdómur
Það sem skiptir máli hér er að gera
sér ljóst, hversu vel tókst til á Vestur-
löndum að verjast njósnum heims-
kommúnismans, þar sem allt var sett
til reiðu til að verjast þeim, bæði fólk
og fjármagn. Það kom ekki í veg
fyrir að sovézku njósnanetin næðu
inn í helgustu þjóðarleyndarmálin.
Njósnavarnir á Vesturlöndum
reyndust algjörlega ómegnugar að
vernda ríkisleyndarmálin.
önnur þjóðlrfssvið
Hvað þá um önnur svið þjóðlífsins
þar sem engum bar að vita neitt um
víðara alheimssamhengi og hagsmuni
heimskommúnismans, því að engum
í ríkisstofnunum var upp á lagt að
safna upplýsingum um ákveðin mál-
efni. Hvernig átti nokkur aðili í
stjórnardeildum Vesturlanda að afla
upplýsinga um mikilvægi heimshaf-
anna fyrir heildarmatvælafram-
leiðslu Sovétríkjanna eða hermála-
ráðuneytin að taka matvælastöðu
Sovétríkjanna inn í heildarhernaðar-
stöðuna gagnvart Sovétríkjunum,
þegar algjörlega var neitað að líta á
„mat sem vopn”? Þó bar hermála-
ráðuneytunum að gera þetta, því ef
til hernaðarátaka kemur, er matvæla-
framleiðsla ein af forsendum fyrir út-
haldi og mætti í hernaðarrekstri. En
hvað skal segja, þegar vanrækslan og
sinnuleysið var svo mikið, að heims-
kommúnismanum var ekki skipað í
NYTT LYFIBARÁTT-
UNNIGEGN EITUR-
LYFJAVANDAMÁUNU
Vonir hafa nú vaknað um, að
fundizt hafi lyf, sem á fljótlegan og
árangursríkan hátt geti eytt líkam-
legri þörf eiturlyfjasjúklinga fyrir
eiturlyf.
Lyfið, klonidin, hefur í tilrauna-
skyni verið gefið tíu eiturlyfjasjúkl-
ingum í „niðurtalningarmeðferð” á
meðferðarstofnun i Kaupmanna-
höfn.
Meðferðin byggðist á því, að lyfið
var tekið í töfluformi fjórum sinnum
á dag. Eftir fjóra daga höfðu sjö af
tiu eiturlyfjasjúklingum misst löng-
unina í eitrið og létu það vera þó þeir
ættu þess kostað fá það.
Hinir þrir sjúklingarnir tóku lyfið í
þrjá daga i viðbót og þá var löngunin
horfin.
Andstætt metadon, sem er út-
breitt en umdeilt „niðurtalningar-
lyf”, er klonidin ekki fíknilyf og þar
af leiðandi ekki vanabindandi.
Allir sjúklingarnir tiu höfðu áður
reynt metadon og þeir voru sammála
um, að tilrauninni lokinni.að kloni-
din tæki metadon fram. Það hefði
róandi áhrif á þá og gerði þá skýrari i
höfðinu.
Um tilraun þessa er fjallað í lækna-
tímariti, sem kom út í Kaupmanna-
höfn síðastliðinn mánudag. Það eru
nokkrir læknar, sem fjalla um lyfið
og eru sammála um, að það lofi
góðu.
Þeir eru þeirrar skoðunar, að þessi
tilraun hafi skapað nýjan grundvöll i
umræðunni um eiturlyfjavandamálið
í Danmörku og vonast til að ítar-
legri rannsóknir eigi eftir að leiða
gildi þess enn betur í ljós.
Fjögurra til sex daga læknismeð-
ferð með þessu lyfi virðist einnig hafa
flokk andstæðinga sem hugsanlegum
framtíðar hernaðaróvinum?
Annað iðnaðarstór-
stökk Sovótríkjanna
í kringum 1950 hafði öllum meiri-
háttar undirbúningi verið lokið fyrir
2. meiriháttar iðnaðaruppbyggingar-
stig í Sovétinu, og ekki hvað sízt í
iðnaðarþáttum hernaðartækjafram-
leiðslu. Þetta útheimti tugmilljóna
mannflutninga úr sveitunum til borg-
anna þar sem nota átti sveitafólkið
sem iðnverkamenn í hinum nýju iðn-
greinum. En þessi flutningur þýddi
að fólk var tekið frá matvælafram-
þann kost í för með sér, að sjúkling-
unum veitist meira ráðrúm til að
huga að framtiðaráætlunum sínum.
Klonidin er ekki nýtt lyf í Dan-
mörku. Það hefur verið notað gegn
of háum blóðþrýstingi og einnig við
höf uðsjúkdómnum „migrene” og
það er selt undir vörumerkinu Cata-
pressa.
Það hefur áður verið reynt með
góðum árangri til að venja sjúklinga
af eiturlyfjum, til dæmis í Englandi.
Umræðan um eiturlyfjavanda-
málið í Danmörku hefur verið mjög
mikil í fjölmiðlum að undanförnu,
bæði í dagblöðum og sjónvarpi. Það
var Ekstrablaðið sem reið á vaðið og
fékk dómsmálaráðherrann í lið með
sér í mikilli herferð gegn eiturlyfja-
bölinu. Einnig hefur nýlega verið lagt'
fram í danska þinginu frumvarp sem
gerir ráð fyrir auknu valdi fíkniefna-
lögreglunnar og mjög öflugum stuðn-
ingi stjórnvalda við þá aðila er berj-
ast gegn vandamálinu. Einnig er gert
ráð fyrir í frumvarpinu, að fjölmörg
ný endurhæfingarheimili fyrir eitur-
lyfjasjúklinga verði sett á laggirnar.
(Politiken og Ekstrabladet)
Nýja lyfið k lonidin héfur vakið vonir
manna um að hetri árangurs sé að
vænta í meöferð eiturlyfjasjúklinga,
til dæmis heróinsjúklinga.
Ieiðslu og gert að hreinum matvæla-
neytendum í borgunum. Svarið við
þessum vanda var hin gífurlega áætl-
un i Mið-Asíulýðveldinu Khasakstan,
sem leysa átti vandamál matvæla-
framleiðslunnar í Sovétríkjunum um
nána framtíð. Þetta er stærsta áætlun
í landbúnaði í heimssögunni. Tug-
milljarðar rúblna voru fjárfestir og
slík var trú foringjanna í Kreml, að
Krútsjoff sagði í alvöru við eitt tæki-
færi: „We shali bury you,” eins og
frægt er orðið, eða eins og útleggst,
„við munum jarða ykkur,” og átti
hann þar við Vesturlönd. En hér var
ekki eingöngu um að ræða alla tug-
milljarðafjárfestinguna í Khasak-
stan, heldur var búið að gera stórar
iðnaðaruppbyggingaráætlanir i sam-
bandi við þessa miklu landbúnaðar-
áætlun. Ef landbúnaðaráætlunin
brygðist mundi það hafa skelfilegar
afleiðingar á allar iðnaðaruppbygg-
ingaráætlanirnar jafnframt og or-
saka kollsteypu í þjóðarhag Sovét-
ríkjanna. En landbúnaðaráætlunin
byrjaði að bregðast á 2. ári og á 3. ári
blasti við hörmung. Efnahagsskipu-
leggjendur Sovétríkjanna litu því
eftir valkostum, og aðeins einn blasti
við, „heimshöfin skyldu verða mal-
vælabúr Sovétríkjanna’. Á þessum
árum hefst æðisgengin uppbygging
sovézka fiskiskipaflotans sem endar í
heildarstærðinni 4,5 milljónir smá-
lesta, sá stærsti í heimi, og öll heims-
ins höf urðu vettvangur ’ hans.
Ástandinu var bjargað í bili. En mikil
hætta var á ferðum, því þróun fyrir
stækkaðri landhelgi hafði byrjað árið
1945 með Trumansyfirlýsingunni og
stuttu seinna „einhliða yfirlýsingu”
Breta í sama dúr við Bahamaeyjar,
þá brezk nýlenda. Síðar, 1948, út í
200 mílur af 3 Suður-Ameríkuríkj-
um, Chile, Perú og Equador. Því
voru gefin út ströngustu fyrirmæli til
allra njósnadeilda Sovétríkjanna á
Vesturlöndum að koma í veg fyrir
frekari útfærslu landhelgi til þess að
hinn nýi og fullkomni fiskiskipafloti
Sovétríkjanna gæti haldið ótruflaður
áfram að rányrkja heimshöfin fyrir
alheimskommúnismann. Það er því
eftirtakanlegt nú, að eina ríkið sem
barðist gegn útvíkkun landhelgi
íslands, jafnvel með brezka flotan-
um, var Stóra-Bretland, en sögulega
staðreyndin er sú í dag, að hvergi
höfðu rússnesku njósnahringirnir
náð lengra inn í stjórnkerfin á
Vesturlöndum en í Bretlandi.
í næstu grein verður sagt frá þeim
ægifjárhæðum, sem Sovétríkin, al-
heimskommúnisminn, hefur sparað
sér með rányrkjunni á heimshöfun-
um, upphæðum, sem gera meira en
að borga kostnaðinn af öllum vopna-
kerfum, sem eru nú í eigu Sovétríkj-
anna, og sem gertJiafa Sovétríkin að
hernaðarlegu risaveldi.
Pétur Guðjónsson,
form. Félags áhugamanna
um sjávarútvegsmál.
Anthony Blunt, einn hinna mörgu njósnara Sovétrikjanna, er trúað hafa á heims-
kommúnismann og tryggt hafa úr háum stöðum hagsmuni hans, meðal annars
með þvi að halda öllum heimsins höfum opnum fyrir rányrkju sovézka fiskiskipa-
flotans, segir greinarhöfundur.